Morgunblaðið - 09.10.1965, Side 3
LaugardaguT 9. október 1965
MORGUNBLAÐIÐ
3
STAKSTHNAR
Bcuizt um sama
bitann
Það er óneitanlega dátítið kát-
le^t aff fylgjast með rifrildi full-
trúa Framsoknarmanna og
kommúnista í borgarstjóm. Nú
orðið leggja þeir meiri áhcrzlu «•
á að deila innbyrðis, en deila á
borgarstjórnarmeirihlutann og er
skýringin auðvitað sú, að þessir
tveir flokkar berjast um sama bit
ann, um fylgi sömu kjósenda, eða
öllu heldur, að Framsóknarflokk-
urinn er farinn að veiða á grugg-
ugum miðum kommúnista. Þegar
gjaldskrárhækkanir SVR og Hita
veitunnar vora til umræðu i
borgarstjóm í sumar, lýsti Einar
Ágústsson, fulltrúi Framsóknar-
flokksins, sig fylgjandi þeim
hækkunum, þar sem hann taldí
full rök vera fyrir þeim. Guð-
mundur Vigfússon, borgarfuil-
trúi kommúnista, snerist hinsveg
ar gegn þeim, ekki í grundvallar
atriðum, en lagði til að þeim yrði
frestað um nokkurt skeið. Af-
staða Framsóknarfulltrúans varð y
Þjóðviljanum tilefni til mikilla
árása á Framsóknarflokkinn, og
greinilegt var, að Tíminn kveink
aði sér mjög tmdan þessum skrif-
um,
Spilinu snúið við
Á borgarstjórnarfundi sL
fimmtudag vora svo til umræðu
tillögur um nokkra hækkun hatn
argjalda, og nú var greinilegt,
að borgarfulltrúi Framsóknar-
flckksins ætlaði að hafa vaðið
fyrir neðan sig og standast
kommúnistum snúning. Guð-
mundur J. Guðmundsson, borgar
fulltrúi kommúnista og varafor-
maður Dagsbrúnar kvaðst óhik-
að mundu styðja hækkun á hafn
argjöldum, sem næmi 22% heild-
artekjuaukningu fyrir Hafnar-
sjóð, þar sem nauðsynlegt væri
að ráðast í ýmsar úrbætur við
gömlu höfnina í Reykjavík. Borg
arfulltrúi Framsóknarflokksins,
Einar Ágústsson, sagðist í grund *
vallaratriðum vera sammála nauð
syn þess að hækka hafnargjöldin,
en lagði til, að hækkunin yrði
ekki meiri en svo, að um 15%
heildartekjuaukningu mundi
verða að ræða. Ekki færði borg-
arfulltrúinn nein sérstök rök
fyrir því að hækkunin ætti að
verða 15% í stað 22%. Líklega
hefur hann dottið ofan á þessa
tölu af tilviljun. Þar með vax
spilinu snúið við. Framsókn
hafði snúið á komma, eins og
kommar höfðu snúið á Framsókn
fyr í sumar, og metin þar með
jöfnuð.
Broslegar deilui
Umræður í borgarstjóm um
hækkun hafnargjalda snerast svo
að töluverðu leyti í orðaskak
milli Guðmundar J. Guðmunds-
sonar og Einars Ágústssonar, um
það, hvort heildartekjuaukning
Hafnarsjóðs ætti að vera 22%
eða 15%, og er óneitanlega hros-
legt að sjá þá mynd, sem bar-
átta Framsóknar og kommúnista
um sama bitann tekur stundum á
sig. Þannig hélt t.d. Einar Ágústs
son því fast fram, að hækkun
hafnargjalda mundi hafa tals-
verð áhrif á verðlag í land-
inu, þótt sýnt hafi verið
fram á, að t.d. eitt kíló af
kaffi hækkar einungis um 1.4
aura, en „safnast þegar saman
kemurí', sagði bankastjóri Sam- t
vinnubankans. 22% heildartekju-
aukning Hafnarsjóðs veldur tölu
verðri hækkun á verðlagi." Þetta
kvað varaformaður Dagsbrúnar,
Guðmundur J. Guðmundsson
hins vegar vera hina mestu vit-
leysu hjá bankastjóranum, hækk
un hafnargjalda hefði engin áhrif
á dýrtíðarþróun og verðlags-
hækkanir í landinu og skipti
engu máli í sambandi við þær.
Stigin eru nú jöfn. Fróðlegt verð
ur að fylgjast með næstu lotu.
Setningarathöfn
Alþingis
kvikmynduð
- á vegum kvikmyndadeildar
Atlantshafsbandalagsins
ÞAÐ vakti nokkra athygU við
sctningu Alþingis í gær, að kvik-
mynd var tekin af setningarat-
höfninni. Vora þar að verki
kvikmyndatökumenn frá kvik-
myndadeild Atlantshafsbanda-
lagsims. Mbl. sneri sér í gær til
Bjarna Guðmundssonar, blaða-
fulltrúa, og innti hann nánari
fregna af kvikmyndun þessarL
Bjarni Guðmundsson sagði,
að kvikmyndadeild Atlantshafs-
bandalagsins hefði nú.með hönd-.
um gerð nýrra kvilkmynda frá
þátttökuríkjum bandalagsins og
hafa þegar verið gerðar kvik-
myndir um Tyrkland og Grikk-
land. Er ísland því þriðja landið
í röðinni að þessu sinni.
í sumar kom hingað einn af
kvilkmyndastjórum Atlantshafs
bandalagsins og gerði hann þá
drög að handriti. Hér á landi
eru nú staddir þrír menn frá
kvikmyndadeild bandalagsins og
er kvikmyndastjóri Henry Sand-
öz, en með honum erir tveir
kvikmyndatökumenn. Hafa þeir
verið hér í tæpa viku og unnið
að kvikmyndun og sættu lagi,
þegar Alþingi var sett að taka
kvikmynd af þeirri athöfn. Munu
þeir síðan koma hér aftur í júní
eða júlí og taka landslagsmyndir.
Vandað verður mjög til þess-
arar kvikmyndar. hún verður í
lit og 30 mínútur að lengd. Fullt
samráð verður haft við íslenzk
stjórnarvöld um endanlega gerð
myndarinnar.
Bjarni Guðmundsson sagði, að
við væntum okkur góðs af töku
þessarar kvikmyndar, einkum
vegna þess, að kvikmyndadeild
Atlantshafsbandalagsins h e f ð i
mjög góða aðstöðu til dreifingar
myndarinnar og hún yrði því
sýnd víða. Yrði ai þessu hin
bezta landkynning.
— Johnson
Framhald af bls. 1.
inni, að -forsetinn væri við góða
líðan.
Síðar í dag var fréttamönnum
skýrt frá því, að orðið hefði að
fjarlægja gallblöðruna, en for-
setinn hefur tvívegis áður verið
skorinn upp við gallsteinum. —
Einkalæknir Johnsons, Dr. James
Cain ,frá Mayo Clinic, var við-
staddur.
Strax, er fréttist, að ekki hefði
verið um alvarlegt mein að ræða,
bárust Johnson heillaóskaskeyti
víða að, m.a. mikill fjöldi skeyta
frá þingmönnum.
Gert var ráð fyrir, að forsetinn
reyni að stíga í fæturna síðar í
kvöld, en hann mun verða að
dveljast í sjúkrahúsinu i tæpar
tvær vikur, og verður frá störf-
um á meðan. í fjarveru hans gegn
ir Humphrey maraforseti, störf-
um í Hvíta KiVcin.i.
Lagfæringar á
Alþingishúsinu
eð skilrúm milli ytra anddyris
©g fatageymslu hefur verið rif-
ið og er nú gengið beint úr
ytra anddyri í innra í stað þess
að ganga gegnum fatageymsl-
una. Ytra andyrið hefur verið
klætt viði er nefnist vengi og
ennfremur skilrúm það, er sett
var upp milli ytra og innra
enddyris. Þá hefur lýsing verið
bætt til muna í fremra andyrL
í lestrarsal hafa nýir sskápar
verið settir upp. Er þeim ætlað ’
fið rúma það, er þar liggur
frammi, handrit af ræðum, blöð,
erindi, blaðaúrklippur og fL
Þar hafa einnig verið sett upp
íiý borð, sem tólf þingmenn geta
setið við samtimis.
Tvö símaskiptiborð voru sett
upp fyrir Alþingi og viðbótar-
húsnæðið í Þórshamri. Gömlu
ÉÍmaklefarnir þrír voru teknir
tiiður, en í þeirra stað settir upp
ejö nýir og þeirn komið fyrir
í helmingi þess herbergis er var
éður notað til fundahalda fjár-
veitinganefhdar. Nýju simaklef-
ernir eru mun rúmbetri og loft-
betri en þeir gömlu, enda mátti
Begja að þeir væru orðnir ónot-
tiæfir.
í suðurstofu uppi, þar sem
áður var nefndaherbergi, er gert
ráð fyrir vinnuaðstöðu frétta-
manna blaða og útvarps. Þar
verður komið fyrir hljóðnem-
um, svo þeir geti hlustað á um-
ræður í báðum deildum. Þar er
einnig gert ráð fyrir að frétta-
menn. geti unnið að vélritun og
fleiru, ef þeir kæra sig um. Að-
staðan í sjálfri blaðamannastúk
unni verður óbreytt.
í Þórshamri eru leigðar þrjár
hæðir. Tvær þeirra fær Alþingi
nú til umráða, en þá þriðju eftir
ár. Gerðar hafa verið þær
breytingar á innréttingu húss-
ins, sem nauðsyn bar til vegna
þarfa þingsins. Ráðstafanir voru
gerðar til smíða á innbúi og
framkvæmdir við þær hafnar.
A fyrstu hæð fær fjárveitinga-
nefnd • eitt herbergi til sinna
nota. Fjögur herbergi eru ætl-
uð sem fundanherbergi fyrir
nefndir, tvö fyrir hverja deild.
Önnur herbergi eru ætluð sem
vinnu- og viðtalsherbergi fyrir
þingmennina, að því undan-
teknu, að eitt herbergi á hvorri
hæð er ætlað starfsfólki.
Húsameistari ríkisins undir-
bjó og sá um framkvæmdir á
öllum breytingum er gerðar
voru, en forsetar Alþingis
ákváðu þær. Leiga Þórshamars
var ákveðin með samþykki ríkis
stjórnarinnar og formanna þing-
flokkanna. Gunnar Magnússon,
arkitekt téiknaði breytingar í
anddyri, lestrarsal og frétta-
mannaherbergi.
Herbergi fjárveitinganefndar í Þórshamri.
(Ljosmyndir: Sveinn Þormóðsson)
'ALWNGI var sett í gær og
hefur vinnuaöstaða þing-
manna nú verið bætt til
: muna frá því sem var. —
Breytingar verið gerðar á
Alþingishúsmu og nýtt
húsnæði tekið á leigu
skammt frá, í ftórshamri.
„Þær breytingar sem gerðar
hafa "verið á húsakynnum Al-
þingis eru auðvitað engin fram-
éíðarlausn, en eru til mikilla
bóta, bæði bæta þær starfsað-
fitöðu þings, þingm. og nefnda“,
•agði Friðjón Sigurðsson ,skrif-
■tofustjóri Alþingis, er Morgun-
blaðið átti tal við hann um
breytingar þær, er gerðar hafa
iveiið á húsakynnum Alþingis.
Aðalbreytingarnar felast í því
Lestrarsalur hefur verið endurbættur, nýir skápar verið settir upp og ný borð en þar geta nú 12
þingmenn setið samtímis. Á myndinni er frú Auð ur Auðuns ásamt nokkru af starfsfólki þingsins.
7