Morgunblaðið - 09.10.1965, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
LaugardagUT 9. október 1965
Mynd þessi ér tekin á íslenzku sýningunni í Bandaríkjunum, Fyrir framan myndina Síldar-
bátur, eftir Gunnlaug Scheving, sem Colbysafniö vill kaupa, standa, talið frá hægri: Ellerton
Jette og frú hans og frú Gertrud A. Melnand, en þau áttu frumkvæðið að því að fá sýn-
inguna vestur um haf, þá er dr. Selma Jónsdóttir og dr. James Corjendr, próf. í Colby-háskóla,
Sýning á 75 ísl. lista
verkum vestan hafs
Flutt til New York um næstu helgi
í SEX vikur hefur staðið yfir
sýning á 75 listaverkum eftir
15 íslenzka listamenn í lista-
safni Colby-háskólans í Maine
í Bandaríkjunum. Vakti sýning-
in mikla athygli og hefur Ame-
rican Federation of Art beðið
um hana til New York. Verður
hún sett upp í sýningarsölum
þess félagsskapar við 65. götu í
New York og opnuð 17. nóvem-
ber. Á eftir verður sýningin svo
send víðar um Bandaríkin.
Sýningarmyndirnar eru frá
Listasafni ríkisins, úr Ásgríms-
safni og fengnar að láni hjá
einstaklingum. Nokkrar eru til
sölu og hafa 3 þeirra selzt, tvær
eftir Guðmundu Andrésdóttur
og ein stór mynd eftir Gunn-
laug Scheving.
Dr. Se-lma Jónsdóttir, listfræð
ingur, forstöðumaður Listasafns
ríkisins, fór til Bandaríkjanna
vegna sýningarinnar og hélt
fyrirlestur um íslenzka mynd-
list í háskólanum fyrir fullu
húsi. Sagði hún frá myndlist á
Islandi frá upphafi og sýndi
skuggamyndir frá landinu, af
gamalli list og nútímalist,
kynnti málarana, sem þarna
sýna, og sagði frá Listasafni
ríkisins. Selma er nýkomin
heim og áttum við tal við hana
í gær.
Hún sagði, að upphaflegt til-
efni þessarar íslenzku sýningar
í Bandaríkjunum hefði eigin-
lega verið koma Bandaríkja-
mannsins Ellerton H. Jette til
laxveiða á íslandi. Hann og
kona hans eru mikið áhugafólk
um myndlist, og er hann hafði
kynnst verkum íslenzkra mál-
ara hér á söfnum, varð hann svo
hrifinn, að hann sendi konu
sinni skeyti um að koma. Frú
Jette hefur mikil afskipti af
listasafninu í Colby-háskóla.
Hún kom þá strax og svo aftur
árið 1964. Þá var í för með
henni frú Gertrud A. Melnand,
sem er mikill listaunnandi og
hefur m.a. starfað við Museum
of Modern Art í New York. Þær
skoðuðu safnið og fóru víða til
listamanna. Frúin keypti fjöl-
mörg málverk fyrir sjálfa sig.
Seinna kom svo bréf, þar sem
farið var fram á myndir á ís-
lenzka sýningu og beðið um að
listmálararnir Þorvaldur Skúla-
son og Gunnlaugur Scheving
veldu myndimar, ásamt dr.
Selmu Jónsdóttur. — Að vísu
voru frúrnar búnar að sjá nokk
uð af myndum, sem þeim leizt
vel á, og við reyndum að taka
tillit til þess, sagði dr. Selma.
Fyrir valinu urðu sem sagt 75
myndir eftir eftirtalda lista-
menn: Ásgrím Jónsson, Eirík
Smith, Guðmundu Andrésdótt-
ur, Gunnlaug Soheving, Jó-
hannes Jóhannesson, Jóhannes
S. Kjarval, Jón Engilberts, Jón
Stefánsson, Júiíönu Sveinsdótt-
ur, Kristján Davíðsson, Nínu
Tryggvadóttur, Snorra Arin-
bjarnar, Steinþór Sigurðsson,
Þórarinn B. Þorláksson og Þor-
vald Skúlason. Loftleiðir tóku
að sér að flytja listaverkin fram
og aftur endurgjaldslaust og
rómaði Selma mjög þann rausn
arskap. Sýningin var opnuð
18. ágúst og stóð í 6 vikur. Sagði
Selma, að mikið hefði verið um
hana • skrifað, og til marks um
það að hún hefði vakið athygli
mætti nefna það, að stórblaðið
Boston Herald sendi blaðamann
alla leið frá Boston þeirra er-
inda að segja frá henni
Myndirnar tvær eftir Guð-
mundu Andrésdóttur, sem seld-
ust, eru abstrakt .Önnur var
keypt af auðugum manni, í
þeim tilgangi að gefa hana lista
safninu í Colby, og er það
fyrsta abstraktmálverkið, sem
keypt er þangað. Aftur ^- móti
sagði dr. Selma, að þegar sýning
in kæmi til stærri staða, eins
og til New York og Texas, þá
yrði meiri áhugi á slíkum mál-
verkum. Myndin „Síldarbátur“
eftir Gunnlaug Scheving, sem
safnið er að kaupa, er mjög
stór, 200x270 sm. Sagði Selma,
að nokkurt umstang yrði í sam-
bandi við kaup á myndum af
íslenzku sýningunni, því sýn-
ingin hefði komið inn í landið
í heilu lagi og eftir diplomatsk
um leiðum og ætti því eiginlega
að fara aftur úr landi sem slíkt.
í sambandi við sýninguna var
gefin út mjög vönduð sýningar-
skrá með myndum af öllum
listamönnunum, sem eiga mynd
ir á, sýningunni, og kynningu á
þeim og að auki mynd af einu
iistaverki eftir hvern. Oddur
Ólafsson tók myndirnar af lista
verkunum, en dr. Selma Jóns-
dóttir skrifar formála í sýn-
ingarskrána. Er mjög til hennar
vandað, svo sem allrar sýning-
arinnar. T.d. eru allir titlar á
Framhald á bls. 23
Sýningargestir skoða íslenzku myndlistarsýningunf
6 geröir þota
til athugunar
Ákvörðun um vélakeup tekin fyr
ir næstu áramót
UM þessar mundir fer fram
athugun á 6 gerðum af þot-
um fyrir Flugfélag íslands.
Það eru þrjár nefndir sérfræð
inga, sem athuganir þessar
gera á vegum félagsins. At-
huganirnar eru nú á lokastigi.
Eftir að nefndirnar hafa skil-
að skýrslum sínum mun fram
kvæmdastjóri og stjórn Flug-
félags íslands taka málið í
sínar hendur og ákvörðun á
þotukaupum verður gerð fyr-
ir næstkomandi áramót.
Hér fer á eftir yfirlit yfir flug-
hraða, flugþol og farþegafjölda,
sem hinar einstöku gerðir geta
flutt, af þeim þotum, sem nú eru
í athugun hjá Flugfélagi íslands:
D OUGLAS DC-9 30 er í reynsluflugi, en mun hefja farþega-
flutninga á áætlunarleiðum í Bandaríkjunum í desember í ár.
Gerð: Flug- Flug- Far-
hraði þol þega-
í km í km fjöldi
BAC One-EIeven 870 3300 79
Caravelle 834 3130 84
Douglas DC-9 897 3400 80
Boeing 727 953 4075 119
Trident 953 4610 88
Boeing 737 897 3360 110
Flugþol í ofangreindum dálk- þols, hafi þoturnar eldsneyti
um er miðað við að til viðbótar tveggja tíma (klst.) flugs
uppgefinni kílómetralengd flug- auki .
Allar þessar gerðir þota eru komnar í flug nema BOEING 737,
sem áætlað er að verði tilbúin.til afhendingar árið 1968.
CARAVELLE er sú af þessum þotum, sem lengst hefur verið í
farþegaflugi. Þessi franska farþegaþota er nú í notkun víðs-
vegar um heim.
BOEING 727 er í notkun hjá mörgum bandarískum flugfélög
um og sl. vor hóf Lufthansa ferðir með henni í Evrópu.