Morgunblaðið - 09.10.1965, Blaðsíða 32
| AUGLÝSINGA&TEIKNISTOFUR •
Grimsby heimsöknin
mjög vel heppnuð
lílijbbfundur
Helmdallar I dag
Einkaskeyti til Mbl. (AP)
Grimsby, 8. október.
BORGARSTJÓRINN í Reykja-
vík Geir Hallgríms.son, ’sagði í
dag, að hann teldi heimsókn
sína til hinnar brezku hafnar-
borgar, mjög vel heppnaða, en
hann er fyrirmaður íslenzkrar
sendinefndar sem hér er í boði
Denys Petchel, borgarstjóra
Grimsby.
Geir Hallgrímsson sagði, að
borgarstjprnin, útgerðarmenn
og allur almenningur hefði gert
allt sem unnt væri til að gera
heimsóknina ánaegjulega og vel
héppnaða. Hann sagði ennfrem
ur, að hann hefði boðið sendi-
nefnd frá Grimsby í heimsókn
til Reykjavíkur í aprílmánuði
næstkomandi.
Frá setningu Alþingis í gær. Þóröur Eyjólfsson, forseti Hæstaréttar, lýsir því yfir, að Alþingi ís-
lendinga sé sett.
Í DAG verður fyrsti klúbbfúndur
Heimdallar á þessu hauslfc í>ar
mun forsætisráðherra TBjarni
Benediktsson ræða um stjórn-
máiaviðhorfið. Fundur þessi verð
ur í Tjarnarbúð og hefst kl.
12.30, stundvíslega. Er athygli
vakinn á breyttum 'fundarstáð
frá því sem verið hefúr. Heim-
dallarfélagar eru hvattir til þess
að fjölmenna á fund þennan.
Petchel borgarstjóri sagði í
dag, að hann væri þess full-
viss að heimsókn hinna íslenzku
gesta hafi treyst hin vinsamlegu
bönd, sem þegar væru milli
borganna tveggja.
í dag sátu hinir íslenzku gest
ir m.a. hádegisverðarboð hafnar
stjórans í Grimsby.
Valdastöðum, 8. október.
ÞEGAR smalað var til skil-
réttar fyrir viku fannst nýborin
ær með tveim sprellfjörugum
lömbum í heimahögum.
Eigandi hennar er Grímur
Gestsson á Grímsstö'ðum í Kjós.
í fyrra bar ær þessi á ldkum
tíma og nú, eða um skilarétt, og
átti þó eitt lamb. — St.G.
Eldstólpi stóð upp af sængur-
fötunum og sleikti loftið
IVIiklð tjón i eldsvoða að bæn um Gilsbakka
í Arnarneshreppi — Viðtal við bóndann þar
Akureyri, 8. október.
ELDUR kom upp í íbúðarhús-
inu að Gilsbakka í Arnarnes-
hreppi um kl. 10 á miðviku-
dagskvöld og brann alit sem
brunnið gat. þar á meðal allt
innbú heimilisfólksins, en þar
búa hjónin Ingibjörg Jó-
hannsdóttir og Ólafur Bald-
vinsson og fjögur börn þeirra.
Þrjú börn þeirra voru
heima, þegar eldsvoðann bar
að höndum og bjargaðist
yngsta barnið naumlega. Allt
var óvátryggt nema húsið
sjálft, steinhús með timbur-
þaki, sem var í lágri skyldu-
tryggingu.
Þarna brunnu líka nærri
þrjátíu þúsund krónur í banka
seðlum, en ólafur hafði ný-
lega fengið útfborgaðan hluta
af sumarkaupi sínu í síldar-
verksmiðju á Hjalteyri.
Fréttamaður Mbl. hitti Ól-
af bónda Baldvinsson á hlað-
inu á Gilsbakka í dag. Hann
var þá staddur einn heima
við, kona hans hafði farið
með börnin til Akureyrar til
að kaupa einhverjar spjarir
utan á þau.
— Börnin voru ein inni
iþegar eldurinn kom upp,
sagði Ólafur. Telpurnar,
Helga 13 ára, og Lára, 9 ára,
voru að lesa í skólabókunum
sínum í litlu herbergi inn af
svefnherberginu, en Jóhann
Garðar bróðir þeirra, 2ja ára,
var einn inni í svefnherberg-
inu, þegar þær heyrðu eitt-
hvert snark þar inni.
— Þær þutu inn og sáu
eldstólpann upp af sængur-
fötunum sleikja loftið, sem
strax var farið að brenna.
Þær gripu bróður sinn og
skólatöskurnar sinar og hlupu
út til að kalla á mömmu sína,
sem var að gera slátur í litlu
húsi á bak við bæinn, en
mættu henni í bæjardyrun-
um.
— Inigibjörg þreif drenginn,
en bað telpurnar að reyna að
hringja niður að Sjávar-
bakka, næsta bæ. Það tókst,
þó að illverandi væri inni
fyrir reyk, en rétt í því fór
símasambandið og allt raf-
magn, bæði af Gilsbalkka og
af næstu bæjum.
— Saumavél gátu þær grip-
ið með sér út og ég held eina
sæng.
— Bóndinn á Sjávarbakka,
Gústav Behrend, danskur
maður, gerði slökkviliðinu á
Hjalteyri viðvart, svo og mér,
sem var í vinnu þar i verk-
smiðjunni og kom hann svo
hlaupandi uppeftir. En þá
var allt orðið alelda og eng-
um vörnum var við komið,
enda var hvöss norðanátt.
— Slöklkviliðið gat heldur
ekkert gert. Allt branh, sem
brunnið gat húsgögn, fatnað-
ur, búsáhöld, matur, þar á
meðal 30 pokar af kartöflum,
bókstaflega allt, líka sumar-
hýran mín, nærri 30 þúsund
krónur í seðlum, sem geymd
var í peningakassa.
— Það á að reyna að senda
kassan óhreyfðan suður í
Seðlabankann. Það er rétt
hugsanlegt, að þeir geti lesið
úr einhverju af númerunum.
— Þetta hefur verið heldur
öinurleg aðkoma fyrir þig?
— ójá, ekki neita ég þvi.
Þó að manni finnist ekki mikl
ar eignir geta komizt fyrir í
svona litlu húsi og ekki taka
því að vátryiggja þær finnst
vel hvers virði þær voru þeg-
ar alif er orðið að ösku á ein-
um hálftíma.
— Ég hef verið að smá-
rækta hér upp í kring og
smáauka bústofninn og ætlaði
mér að lifa eingöngu á bú-
skap, þegar fram í sækti, en
nú veit ég ekki hvað við tek-
ur. Maður er nú farinn að
lýjast. Húsið er gjörónýtt, þó
að það hangi uppi.
— Við hjónin erum bara
þakklát fyrir, að systurnar
skyldu ekki vera sofnaðar. Þá
er ég hræddur um, að hvorki
þær né Jóhann litli hefðu
komizt lifandi út.
— Hvað tókur svo við hjá
ykkur?
— Við höfum verið á Sjáv-
arbakka síðan brann, en ég er
búinn að fá inni á Hjalteyri
í vetur og við flytjum þangað
bráðlega. Ég verð svo að fara
á milli og sinna skepnunum.
— Sv.P.
Rannsókn lokið
vegna slyssins
RANNSÓKN er lokið vegna í Ghevrolet-bílnum. Morgun-
slyssins á Langholtsvegi sl. blaðið hefur fengið nöfn
laugardag. Sakadómur Reykja þeirra eftir öðrum leiðum og
víkur hefur sent málið til þykir rétt að draga ekki leng-
saksóknara rikisins til ákvörð- ur birtingu þeirra.
unar um málshöfðun. Bræðurnir eru Ingimundur,
Sakadómur hefur ekki vilj- Óskar og Þorsteinn Snorri
að gefa upp til birtingar nöfn Axelssynir.
bræðranna þriggja, sem voru
Nær 80 verkfræðingar
búsettir erlendis
VERFRÆÐINGAFÉLAG íslands
hefur látið kanna hve margir ás-
lenzkir verkfræðingar séu búsett
ir erlendis og reyndust þeir í
nóvember 1964 vera 79 talsins.
Skráin var tekin saman sam-
kvæmt upplýsingum frá verk-
fræðistúdentum frá öllum ár-
göngum menntaskólanna og á
því að vera áreiðanleg, þótt
reikna megi með því, að einhverj
ir fáir hafi ekki komið í leitirnar
vegna gleymsku, segir í nýút-
komnu hefti af Tímariti V F í.
Þar er einnig frá því skýrt að
félagsmenn Verkfræðingafélags
íslands séu 342 talsins, en þar af
séu 42 erlendis. Verkfræðingarn-
ir skiptast þannig eftir greinum:
byggingarverkfræðingar 134 tals
ins, efnaverk- og efnafræðingar
55, rafmagnsverkfræðingar 62,
skipa- og vélaverkfræðingar 60,
ýmsir verkfræðingar 31.
7-8 bílar óku á
akreinaskilti
FYRIR nokkru var Hafnarfjarð
arveginum skipt í tvær akrein-
Sendir 2 fulltrúa
á fund í Róm
ÆSKULÝÐSSAMBAND Evrópu
CiENYC efnir dagana 10.—16.
október til rá'ðstefnu í Róm um
„Einingu Evrópu". Æskuiýðs-
samband fslands, sem er aðili að
OENYC hefur ákveðið, að senda
tvo fulltrúa á ráðstefnu þessa,
þá Árna Gretar Finnsson, for-
mann Sambands ungra Sjálf-
stæ’ðismanna og bæjanfulltrúa
Hafnarfjarðar, og Unnar Stefáns
son, varalþingmann Alþýðuflokks
ins og fulltrúa Samibands ísL
sveitarfiélaga.
Nánar verður skýrt frá ráð-
stefnu þessari í næsta frétta-
bréfi Æskulýðssamibands ís-
lands.
ar yfir Arnarneshálsinn og
Hraunholtshæð og voru sett
upp á báðum stöðunum akreina
skilti á gulmáluðum steinstöpl-
um.
Skiltið Hafnarfjarðarmegin &
HraunSholtshæðinni var ekið
niður þegar fyrsta daginn og
einum fimm sinnum síðar. f
■ gærlcvöldi gerðist það svo, að
einir 7—8 bílar óku á skiltið
og skemmdust allir meira eða
minna.
Bílarnir voru á leið til Reykja
víkur og er ekki ólíklegt, að
ökumennirnir hafi blindazt aj
ljósum bíla, sem komu upp hæð
ina. Einnig virðast ökumenn
hneigjast að því, að aika etftir út-
línum gamla vegarins þarna á
hæðinni í stað þess að fara út
á nýja akrein, sem malbikuð
var yfir hæðina sjávarmegin.
Skiltin yfir Arnameshálsinn
hafa til þessa ekki orðið íyrir
ákeyrslum.