Morgunblaðið - 27.11.1965, Side 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 27. nóv. 1965
Knútur IlaUsson, Otto Pick, Robert Abdesselam og Ólafur Egilssoa á Reykjavíkurflugveili t
gærkveldi. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
Tveir erlendir fyrirlesarar
ræða Atlantshafssamstarfið
NÆSTÚ daga hefur Mæðra-
styrksnefnd ' starfsemi sína,. en
þa'ð er venja hennar að byrja
söfnun sína fyrstu dagana í des-
ember. Á íundi með fréttamönn-
um í gær skýrði forstöðukona
nefndarinnar frá því að nú hefði
að venju verið sendur iisti til
verzlana og fyrirtækja, og kváð-
ust þær vonast eftir gó’ðum und-
irtektum. Þær sögðu ennfremur,
að í ár myndi Mæðrastyrksnefnd-
in ekki hafa samvinnu við
Vetrarhjálpina, eins og verið
hefði undanfarin ár, hún nyti
ekki neins framlags og hefði nú
ekki skáta til þess að safna fyrir
sig. Þess vegna yiði hún að
HifasfigiS mælt
Akranesi, 26. nóv.
BÆJARSTJÓRNARFUNDUR
var haldinn hér í dag og hófst
kl. 4. Fundarefni var reikning-
ur bæjarins fyrri umræða.
Jarðborunarme.nnirnir á Still-
holtinu mældu í morgun hitastig
vatnsins á botni holunnar á 25
metra dýpi og reyndist vatnið
7 J/2° heitt.
treysta algjorlegá á góðviíd borg
arbúa. Skrifstpfa Mæðrastyrks-
nefndatinnar yrði að Njálsgötu 3
og hún yrði opnuð á fimmtudag
n.k. Yrði hún opin daglega frá
kl. 10.30—6, og yrði ■ þar tekið
á móti peningaframlögum og
fatnaði, sem alltaf væri vel
þeginn.
Forstöðukonurnar sögðu enn-
frmur, að þeir sem æsktu hjálp-
ar Mæðrastyrksnefndarinnar,
skyldu senda umsóknir sínar til
skrifstofunnar að Njálsgötu 3.
Þær kváðust vilja undirstrika
það, að þær treystu því nú, að
sem flestir létu eitthvað af mörk
um ti! þess að gleðja bágstadda
um jó!in og vildu um leið þakka
þeim, er styrkt hafa Mæðra-
styrksnefndina á liðnum árum.
Að lokum gerðu þær grein
fyrir starfseminni fyrir sl. jól, en
þá söfnuðust 400 þús. krónur.
Var úthlutáð til um 7—800 fjöl-
skyidna, þar af voru um 500
gamlar konur og gömul hjón, um
110 einstæðar mæður með 1—3
börn, 120 ekkjur með 2—7 börn
og 54 heimili með 6—13 börn,
en auk þess til um 120 sjúklinga
á öllum aldri.
TVEIÍt erlendir fyrirlesarar
komu til landsins í gærkvöldi
til þess að flytja fyrirlestra á
helgarráðstefnu Samt.aka um
vestræna samviirinu, sem hefst
í dag kl. 14 í Tjarnarbúð (Odd-
fellow-húsinu).
Efni ráðstefnunnar er „fram-
tíðarsamstarf Atlantshafsríkj-
anna“ og verður fjallað um það
bæði af innlendum og erlendum
sjóniarhóli.
Annar hinna erlendu fyrirles-
ara er Robert Abdesselam, mál-
flutningsmaður og fyrrverandi
þingmaður, sem kemur frá París.
Hann hefuir haft náin afskipti af
allþjóðamálum um árabil, meðal
annars setið fimm til sex alls-
herjaíþing Sameinuðu þjóðanna
og gegnt trúnaðarstörfum innan
V-Evrópubandalagsins (WEU).
Mun Abdesselam m.a. fjalla um
afstöðu de Gaulles til Atíantshafs
bandalagsins. Hinn fyrirlesarinn
er Otto Pick, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri „Atlantic Informa
tion Center for Teachers" í Lund-
únum, sérfræðingur um aiþjóða-
mál. Hefuir hann m.a. starfað við
brezka útvarpið (BBC), flutt
fyrirlestra víða og ritað fjölda
tímaritsgreina.
Hinir erlendu gestir munu
flytja fyrirlestra sína í dag, fyrri
dag ráðstefnunnar, og að fyrir-
lestrunum loknum munu þeir
svara fyrirspurnum. Fundars'tjórl
verður Ásgeir Pétursson sýslum.
Á morgun (sunnudag) munu
þeir dr. Gunnar G. Schratn, rit-
stjóri, Jón Skaftason hrl. og alþm.
og Benedikt Gröndal ritstjóri og
alþm., flytja stutt erindi. Að
þeim loknum verða almennar
umræður. Ráðstefnunni lýkur
svo með síðdegisboði.
Heigarráðstefnan hefst kl. 14
báða dagana. Við setninguna i
dag munu flytja ávörp foirmaður
Samtaka um vestræna samvinnu,
Knútur Hallsson deildarstjóri og
Emil Jónsson, utanríkisráðhera.
Þátttakendur í ráðstefnunni
verða félagsmenn í Samtökum.
um vestræna samvinnu og Varð-
bergi, félagi ungra áhugamanna
um vestræna samvinnu ,auk ali-
margra gesta.
Tal og Spassky tefla 11. skákina.
Spassky sigraði í
einvíginu við Tai
Vann elleftu skákina i gær
Moskvu, 26. nóv. — Einkaskeyti til Mbl. frá AP —
BORIS SPASSKY sigraði í einvígi þeirra Mikhail Tals
um áskorunarréttinn á heimsmeistarann í skák. Tefldu
þeir elleftu skák einvígisins í dag og vann Spaasky í 41
leik. Eru þannig fengin úrslit í skákeinvíginu, 7 : 4 fyrir
Spassky, sem unnið hefur þrjár síðustu skákirnar í röð,
en eftir átta skákir voru keppendurnir jafnir. Skákir
einvígisins var áformað að yrðu 12, en telja má nær
fullvíst, að hin síðasta þeirra Verði ekki tefid, þar sem
úrslit eru fengin. Spassky mun nú heyja einvígi snemma
á næsta ári við heimsmeistarann í skák, sovézka skák-
manninn Tigran Petrosjan um heimsmeistaratitilinn, en
Petrosjann hefur verið heimsmeistari frá 1963.
Eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær er ráðgert,
að Spassky komi til Reykjavíkur í janúar n.k. og taki
hér þátt í alþjóðlegu skákmóti. Hann er 29 ára gamall
og búsettur í Leningrad. Sigur hans gegn Tal nú er
mesta skákafrek hans til þessa, en Tal er fyrrverandi
heimsmeistari í skák.
Morgunblaðið sneri sér, er
fréttin hafði borizt um úrslit
einvígisins, til skákmannanna
Friðriks Ólafssonar og In-ga
R. Jóhannssonar og spurði þá
um álit þeirra á einvíginu. —
Fara svör þeirra hér á eftir.
FRIBRIK ÓLAFSSON:
Sé það komið á daginn, að
Spassky hafi borið sigurorð
af Tal, þá er það í samræmi
við þá skoðun, sem ég hafði í
upphafi myndað mér um gang
einvígisins. Spaasky stendur
um þessar mundir á hátindi
getu sinnar. Það ber jöfn og
örugg taflmennska hans að
undanförnu ljóslega vott um
og þá sérstaklega úrslitin í
einvígjum hans við Keres og
Geller. Aftur á móti hefur Tal
ekki náð að sýna þá tafl-
mennsku, sem hann sýndi hér
á árunum, þegar hann hreppti
heimsmeistaratitilinn og mið
að við þann styrkleika, sem
hann sýndi þá, má segja, að
hann sé í eins konar öldudal
nú. Ef til vill er skýringin á
því sú, að hann hefur ekki
verið líkamlega hraustur að
undanförnu.
Satt að segja bjóst ég við
því, að yfirburðir Spasskys
myndu verða meiri en á dag-
inn hefur komið. Ég bjóst við
því, að hann myndi ná smá-
forskoti fljótlega og síðan
auka það hægt og sigandi, en
Framhald á bls. 27.
trastyrksnefnd að
fíefja starfsemi sína
Hýr bankaútibús-
stjóri ú Blönduósi
Á BANKARÁÐSFUNDI Búnað-
arbanka íslands hinn 25. þ.m.
var samþykkt að ráða Guðmund
Hrafn Sverrisson, bankafull-
trúa til þess að vera útibússtjóri
Búnaðarbankans á Blönduósi.
Guðmundur Hrafn er 28 ára
að aldri fæddur 24. okt. 1937
í Reykjavík. Hann varð stúdent
frá Menntaskólanum í Reykja-
í vík 1957 og réðst það ár til
t starfa í Búnaðarbankanuni. Guð
mundur hefur gegnt ýmsum
störfum innan bankans og áunn-
ið sér það trajist, að honum er
falin forsjá útibúsins á Blöndu-
ósi i stað Hermanns heitins Þór-
arinssonar, sem lézt í október-
mánuði sl.
Guðmundur hefur undanfarið
gegnt störfum aðalfulltrúa í
hlaupareikningsdeild Búnaðar-
bankans. Kvæntur er hann Elísa
betu Guðmundsdóttur,
Þing FFSÍ hafið
TUTTUGASTA og ANNAÐ þing
Faraianna- og fiskimannasam-
bands íslands var sett kl. 10 í
morgun í fundarsal Slysivarna-
félagsins á Grandagarði.
Forseti sambandsins, Örn
Steinsen, setti þingið með ræðu.
1 upphafi máls síns minntist
hann þeirra manna er látizt hafa
á sjó, frá því síðasta sambands-
þing var haldið fyrir tveimur
árum, en þeir eru 39 talsins. Risu
fundarmenn úr sætum í virðing-
arskyni við hina látnu.
Örn Steinsen gat í ræðu sinni
þeirra mála, er rædd yrðu á
þinginu, og þau er helzt varða
öryggismál og kjaranaál, auk
þess sem lagt yrði fram nýtt
lagafrumvarp fyrir sambandið.
Að ræðu forseta lokinni flutti
Eggert G. Þorsteinsson, félags-
og sjávarútvegsmálaráðherra, á-
varp og flutti kveðjur og árnað
aróskir ti! þingsins frá ríkisstjórn
inni og árnaði FFSÍ allra heilla
í starfi sínu.
Þeir Kristján Thorlacíus, form.
Bandalags starfsmanna ríkis- og
bæja, og Jón Sigurðsson, formað
ur Sjómannasambands íslands,
fluttu ávörp fyrir hönd samtaka
sinna og fluttu þinginu árnaðar-
óskir og kveðjur.
Þá var þingfundi frestað til
kl. 1,30, og hófst á þeim tíma
þingfundur í boðstofu FFSÍ að
Bárugötu 11, en þar verður þing
ið haldið. Að tillögu kjörbréfa-
nefnaar voru samþykkt kjörbréf
51 fulltrúa frá 15 sambandsfélög
um. Síðan fór fram kosning þing
forseta, var Þorsteinn Árnason
vélstjóri kjörinn þingforseti; 1,
varaforseti var kjörinn Böðvar
Steinþórsson bryti ,og 2. vara-
forseti Sverrir Guðvarðsson, stýri
maður.
Rætt var um skýrslu stjómar
FFSÍ og hafði Örn Steinsen fram
sögu um hana. Síðan fór fram
fyrri umræða um nýtt
varp og hafði Böðvar Steinþórs-
son framsögu um það af hálfll
milliþinganefndar.
Að loknum umræðum um
skýrslu stjórnar og lagafrumvarp
ið var þeim málum vísað til
þingnefnda og kl. 18,40 var fundx
frestað til kl. 20,00.
Guðmundur Hrafn Sverrisson.