Morgunblaðið - 27.11.1965, Page 9
r Laugardagur 27. n8v. 1965
MORCUNBLAÐIÐ
9
Tónlistarsam-
keppni í Hollandi
E I N S og undanfarin ár, mun
Btofnunin Gaudeamus í Hollandi,
efna til tveggja alþjóðlegra sam-
keppna fyrir nútímatónlist. Þær
eru, samkeppni fyrir túlkendur
nútímatónlistar og önnur fyrir
unga tónsmiði.
Keppnin fyrir túlkendur verð-
ur haldin dagana 17. til 24. marz
1966. Keppnin er opin fyrir söngv
era og 'hljóðfæraleikara, sem
ekki eru eldri en 35 ára, og fyrir
hljóðfærasamsetningar ekki
fleiri en niu leikara, og skal
meðalaldur þeirra vera innan 35
éra. Þátttakendur þurfa að senda
efnisskrár fyrir klukkustundar
fónleika fyrir 31. des. 1965. —
Efnisskráin þarf að uppfylla eft-
irfarandi skilyrði:
a. öll verkin hafi verið samin
eftir 1950.
b. Tvö eða fleiri verkanna sam
in eftir 1950.
e. Tvö eða fleiri verkanna séu
eftir hollenzk tónskáld.
Fimm verðlaun verða veitt og
eru fyrstu verðlaun 3 þúsund
igyllini (tæpl. 36 þús. ísl. kr.)
Hina alþjóðlegu dómnefnd
skipa: Johan Van Den Boogert,
Hollandi; Rene Allain, Frakk-
landi; próf. Wolfgang Fortner,
Þýzkalandi; próf. Siegfried Palm,
Þýzkalandi, og dr. Francis Travis,
Bandaríkj unum.
Tónsmíðasamkeppnin verður
haldin í sambandi við alþjóðlega
tónlistarviku, sem haldin verður
dagana 15. til 22. sept. 1966. Sam-
keppnin verður fyrir kór-,
kammer-, hljómsveitar- og elektr
ónisk tónverk, og einnig fyrir
tónsmíðar skrifaðar sérstaklega
fyrir sjónvarp. Samkeppnin er
aðeins opin fyrir tónskáld, sem
fædd eru eftir 1. janúar 1929.
Fjögur verðlaun verða veitt og
eru fyrstu verðlaun 2 þúsund
gyllini (tæpl. 24 þús. ísl. kr.)
ítalska tónskáldið Luciano Berio
mun annast fræðslu í tónsmíða-
rannsóknum (music-analysis) í
tónlistarvikunni í september. —
Tónsmíðarnar eiga að sendast
undir dulnefni fyrir 31. janúar
1966 til Foundation Gaudeamus,
Postbox 30, Bilthoven, Hollandi,
sem mun láta í té frekari upp-
lýsingar um samkeppnir þessar.
París, 25. nóv. — NTB
0 2.500 flugmenn, flugfreyj-
ur og flugþjónar í Frakklandi
hófu í gær verkfaH til árétt-
ingar launakröfum, sem sett-
ar voru fram árið 1963, en
stjórnarvöldin hafa ekki enn
viljað fallast á. Af 70 þotum
flugfélagsins „Air France“,
sem venjulega fara frá Orly-
flugvelli dag hvern komust
aðeins tólf á loft í morgun.
Verkfallið kostar „Air
France" rúmlega þrjár millj-
ónir franka á dag, eða sem
svarar 25—30 milljónum ísl.
króna.
London, 26. nóv. — NTB:
KAI DWE von Hassel, land-
vamaráðherra V-Þýzkalands,
ræddi í dag við Denis Healey,
landvarnaráðhcrra Bretlands-
Voru það einskonar undirbún
ingsviðræður fyrir NATO
fundinn, sem haJda á nk.
langardag, en þar verður m.a.
fjallað um stefnu Atlants-
hafsbandalagsins í kjarnorku
málum.
Von Hassel fer beint til Par
ísar frá London. Á morgun
eru hins vegar væntanlegir
til London Robert McNam-
ara, landvamaráðherra Banda
rikjanna og George Ball að-
stoðarutanríkisráðherra.
Sunbomui
Hjálpræð isherinn
Sunnud. kl. 11: Helgunar-
samkoma. Brigadér Drive-
klepp talar. Kl. 20.30 talar
kafteinn Olsson. Verið vel-
komin.
Kristniboðsvikan
A samkomunni í kvöld kl.
8.30 tala þeir séra Jóhann
Hannesson, próf. og norski
kristniboðinn P. A. Bredvei.
Kvennaskór syngur og ein-
söngur verður.
Síðasta samkoman verður á
sama stað annað kvöld kl.
8.30. Þá tala Gísli Friðgeirs-
son, Jóhannes Ólafsson og
P. A. Bredvei. Blandaður kór
syngur. Gjöfum tU kristni-
boðsins í Konsó veitt móttaka
í samkomulok. Allir velkomn-
ir.
Kristniboðssambandið.
Almennar samkomur
Boðun fagnaðarerindisins
Á morgun (sunnudag) að
Austurg. 6, Hafnarf. kl. 10 f.h.
að Hörgshlíð 12 Rvík, kl. 8 e.h.
Samkomuhúsið Zion,
Óðinsgötu 6 A.
Á morgun: Sunnudagaskól-
inn kL 10.30. Almenn sam-
koma kL 20.30. Alliir vel-
komnir.
Heimatrúboðið.
K.F.U.M. — A morgun:
Kl. 10.30 f. h. Sunnudaga-
skólinn við Amtmannsstíg.
Bamasamkoma að Auðbrekku
50 KópavogL — Drengjadeild-
in við Langagerði.
Kl. 10.45 f.h. Drengjadeild-
in Kirkjuteigi 33.
Kl. 1.30 e.h. V.D. og Y.D.
við Amtmannsstíg. — Drengja
deUdin við Holtaveg.
Kl. 8.30 e.h. Siðasta sam-
koma kristniboðsvikunnar. —
Gjöfum til kristniboðsins veitt
móttaka í samkomulok.
K.F.U.K. — I dag:
Kl. 4.30 e.h. Yngiri deildim-
ar við Holtaveg og Langa-
gerði.
Á morgun:
Kl. 3.00 e.h. Yngri deildin
við Amtmannsstíg.
Á mánudag:
Kl. 3.15 e.h. Smátelpnadeild
in (7 og 8 ára) Kirkjuteigi 33.
Kl. 5.30 e.h. Yngri deildin
(telpur 9—12 ára) Kirkju-
teigi 33.
Kl. 8.00 e.h. Unglingadeildin
Holtavegi.
Kl. 8.30 e.h. Unglingadeild-
irnar Kirkjuteigi og Langa-
gerði.
Þurfið þér
að gera við sprungu í stein-
vegg?
Setja gler. í glugga?
Setja upp útvarps- eða sjón-
varpsloftnet?
Hreinsa rúður?
Gera við þakið eða þakrenn-
una?
Þá er þetta rétta verkfæirið
verður haldinn í Skátaheimilinu við Snorrabraut
28. nóvember 1965 og hefst kl. 2,30 e.h.
Mikið af góðum og ódýrum munum.
Hentugar jólagjafir. — Kaffisala hefst á sama tíma.
Hinir vinsælu iukkupokar. — Jólasveinar skemmta.
K. S. F. R.
Samkvæmisspil fyrir
alla fjölskylduna
6 spil í einum kassa.
DAM — DERBY — HALMA — GÆSASPIL
LUDO — MILLA
l'æst í öllum helztu leikfanga- og ritfangaverzlunum.
Útsöluverð kr. 175,00.
Ileildsölubirgðir:
IngólfshvolÍ hf„
' ,t^Mg»yegÍ'|'ÍÍ|Í/—\
■V*--rri—T’ r-í I. «1-1---i... ' ■-r-^r-~ *■' ---—
Lyftubíllinn
BJ33&
Sími 35643
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Blússur
Nýkomnar blússur — mikið úrval.
VBRZLUNIN
>
IAUCAVEC ,M
Nauðungaruppboð
það á fasteignunum Ásgeirsreit 1 og Aðalgötu 6B
(íshús) með tilheyrandi réttindum, sem auglýst var
í 8., 10. og 12. tbl Lögbirtingablaðsins 1965, fer
fram á eignunum sjálfum þriðjudaginn 30. nóvem-
ber 1965 og hefst í dómsal embættisins við Gránu-
götu þann dag kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Siglufjarðarkaupstað.
íbúð
Vönduð íbúð með húsgögnum óskast til skamms
tíma fyrir reglusaman, einhleypan mann. —
Há leiga í boði. — Hringið í síma 20100 á skrif-
stofutíma.
Husasmíðameistari
Stórt byggingafélag vill ráða mann vanan verkstjórn
með réttindum til þess að standa fyrir bygginga-
framkvæmdum í Reykjavík og nágrenni. Ekki er
nauðsynlegt að þeim sem ráðinn er í starfið fylgi
smiðir né verkamenn. Með umsókn verður farið
sem trúnaðarmál. Tilboð með upplýsingum um fyrri
störf og réttindi leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 1. des.
nk., merkt: „Byggingastarf — 6260“.
Blómaskáli IVfichelsen
Jólagjafavörurnar eru komnar í óvenju
góðu úrvali. — Margt, sem ekki er til
annarsstaðar. — Mikið af jólaskreytingar-
efni. — Pottablóm í mjög miklu úrvali.
Ath. að ég gef 10% afslátt af öllum vörum
mínum til 10. desember nk.
Blómaskáli
Paul V. Michelsen
Hveragerði.
HUSQVARNA 2000
• Slillíð á lit og saumið -
PaS «r þessi ejnfalda, nýjung, sem
kðlluð er „Colormatlc", sem á skömm-
um tíma hefur auklð vinsældir
HUSQVARNA 2000 til stórra muna.
Beinn saumur, hnappagðt, bHndfaldur og úrval
mynztursauma er hægt að yelja með einu hand-
taki. Þar sem það er sýnt á greinilegan hátt,
ilitum, & „saumYeljara".
★ fsknzkur leiðarrísir fylgtr hverri satunavéL
★ Kennsla er itmifalin í verðino.
■fc Afsláttur vzittur gegn staðgreiðslu.
★ £f þér komizt ekki til okkar tð að kynna yður
vélina, munum vér senda sölumaiui til yðar
eftir lokun, ef þér búið í lteykjavík eða
nágrennL
•fa Umboðsmenn vfða utn landið.
Suðurlandsbraut -16 - Revkjavik - Símnefni: »Volver« - Simi 3520Ö.
HUSQVAKNA heimihstæki, saumavélar o. fi.
eru þekkt hér á landi í yfir 60 ár. Hafa naíninE
hér sem annarstaðar stöðugt vaxið vinsældur.