Morgunblaðið - 27.11.1965, Side 12
12
MORGU N BLAÐID
Laugardagur 27. nóv. 1965
Nýstárleg keiming
í sagnfræði
!FYRIR skömmíu barst mér í
ihendur ný bók, „ísraelsmenn og
íslendingar“, eftir Hilmar Jóns-
son, bókavörð í Keflavík.. Er
(þet'ta þriðja bók höfundar. Hinar
tvær eru: Nýjar hugvekjur útg.
í Rvík 1954 og Rismá'l, útg. í
Rvíik. 1964.
f hinni nýju bók sinni setur
Ihöfundur fram næsta nýstárlega
Ikenningu í sagnfræði. Hann ger-
ir ýtarlegan samaniburð á lögmáli
Móse annars vegar, en hins vegar
á siðum, háttum og trú forfeðra
okkar, landnámsmannanna. Af
þessum samanburði kemur það
í Ijós, að ótrúlega marga sam-
eiginlega drætti má finna með
jþessum tveimur þjóðum, Hebre-
um og íslendingum. Eitt af því,
•em mér finnst allra mest slá-
andi, er hinn augljósi skyldleilki
Hávamála hinna fornu og Síraks-
~ Ibókar sem er ein af hinum svo-
mefndu „apokryfu“ ritum Gamla
testamentisins. Hávamá'l telur
höfundur ort fyrir kristni og
dregur af því þá ályktun, að
Síraksbók hafi verið landnem-
unum áður kunn. >á bendir hann
á hliðstæð hátíðahöld Hebrea og
landisnámsmanna, og ýmsa siði,
sem voru sameigimlegir þessum
itveimur þjóðum og einlkennandi
fyrir þær. Og að lokum leiðir
hann svo í ljós þá staðreynd að
í íslendingasögunum úir og grúir
af hebrezkum mannanöfnum.
Margt er það fleira, sem hölfund
ur minnist á, skoðun sinni til
stuðnings. Vitnar hann óspart í
kunna fræðimenn, innlenda og
erlenda, eldri og yngri. En sjálf-
ur telur hann sig standa í mestri
þakkarskuld við frænda sinn
Runól'f Pétursson, sem lézt árið
1963. Runólfur hafði hinn mesta
áhuga á spumingunni um upp-
runa fslendinga. Hann var al-
sannfærður um, að Hebrear og
íslendingar væru af sama ætt-
stofni. Lét hann eftir sig allmikil
drög að þessum athugunum sín-
um, og telur Hilmar þau vera
kjarnan í bók sinni.
Á vísindalegt gildi umræddrar
bókar skal enginn dómur lagður
hér. En hitt er víst, að hún hefir
feikna mikinn fróðleik að geyma.
Hún er rituð á kjarngóðu máli
og borin uppi af sannfæringar-
hita, án þess þó að rökvísi sé
þar misboðið á nokkurn hátt.
Enginn, sem hefir áhuga á sagn-
fræði eða mannfræði, ætti að
láta undir höfuð leggjasí að lesa
þessa bók og kynna sér hana
vandlega.
„ísraeismenn og fslendingar“
er prentuð í prentsmiðjunni
„Oddi hf.“ í Reykjavík. Fráigang-
ur hennar er góður að öðru leyti
en því, að kaflaskipting er ekki
nógu greinileg. Prentvillur eru
hverfandi fáar.
Bjöm Jónsson, Keflavík.
EFTIRFARANDI skákir eru
númer 4 og 5 í einvígi þeirra
Spasskys og Tals.
Fjórða skákin er mjög til-
breytingalítil og uppskipti urðu
snemma á mestöllu liðinu. Byrj-
unin er Nimzoindversk vörn.
Hvítt: B.-Spassky.
S.vart: M. Tal.
1. d4, Rf6. 2. c4, e6. 3. Rc3, Bb4.
4. e3, 0—0. 5. Bd3, d5. 6. Rf3, c5.
7. 0—0, dxc4. 8. Bxc4, Rbd7. 9.
a3, cxd4. 10. exd4, Bxc3. 11. bxc3,
Dc7. 12. Dd3, e5. 13. Rxe5, Rxe5.
14. dxe5, Dxd5. 15. Dg3, Dxg3. 16.
hxg3, Be6. 17. Bxe6, fxe6. 18.
Hel, Kf7. 19. Hbl, b6. 20. a4,
Hfc8. 21. a5, Rd5. 22. axb6, axb6.
23! Be3. Jafntefli.
FIMMTA SKÁK
Hvítt: Tal.
Svart: Spassky.
Spánski leikurinn.
1. e4, e5. 2. Rf3,Rc6. 3. Bb5, a6.
4. Ba4, Rf6. 5. 0—0, Be7. 6. Hel,
b5. 7. Bb3, 0—0. 8. c3, d5. 9. exd5,
Rxd5. 10. Rxe5, Rxe5. 11. Hxe5,
c6. 12. Bxd5, cxd5. 13. d4, Bd6.
14. He3, Dh4. 15. h3, Df4. 16. He5,
Df6. 17. Hel, Dg6. 18. Df3, Bf5.
19. Be3, Be4. 20. Dg4, h5. 21.
Dxg6, Bxg6. 22. Rd2, f6. 23. Rb3,
Bf5. 24. Rc5, Bxc5. 25. dxc5, Bd7.
26. Hadl, Bc6. 27. h4, Hfe8. 28.
f3, Kf7. 29. Kf2, Hh8. 30. Hd2,
Hae8. 31. Hde2, He6. 32. Bf4,
Hxe2f. 33. Hxe2, He8. 34. Hxe8,
Bxe8. 35. g4, g6. 36. b4, Bc6. 37.
Ke3, Ke6. 38. Kd4, Kf7. 39. Bc7,
Ke7. 40. Bxd6f, Ke6. — Hér fór
skákin í bið, en síðar sömdu
keppendur um að skipta með sér
vinningnum.
Staðan eftir 6 skákir er þannig
að Spassky hefur hlotið 3 vinn-
inga gegn 3 Tals.
í DAG LAUGARDAG verður hlutverk em sem kunnugt er í
leikrit Arthur Millers, ,,Eftir leikin af Rúrik Haraldssyni *
syndafallið“ sýnt í 18. sinn í og Herdísi Þorvaldsdóttur og |
Þjóðleikhúsinu. Aðsókn að hlutu þau mjög góða dóma i
leiknum hefur verið góð. fyrir túlkun sína á þessum J
Ákveðið er að hætta sýn- hlutverkum. Myndin er af J
ingum á leiknum fyrir jól, og Rúrik Haraldssyni og Bríeti 1
eru því aðeins eftir fjórar Héðinsdóttur í hlutverkum i
sýningar á þessum leik. Aðal- sínum. [
Samb. Dýraverndunar-
félagsins skorar á Alþingi
STJÓRN Sambands dýravernd-
unarfélaga fslands samþykkti ein
róma á fundi sínum laugardag-
inn 20. nóvember 1965 eftirfar-
andi áskorun:
Stjórn Sambands dýraverndun
arfélaga íslands leyfir sér að
■beina þeirri áskorun til háttvirts
Alþingis varðandi frumvarp það
til laga um fuglaveiðar og fugla-
friðun, sem nú er til umræðu á
Alþingi:
1. Að lög nr. 50/1965 um eyð-
ingu svartbaks verði felld úr
gildi eins og lagt er til í frum-
varpinu.
2. Að inn í 2. málsgr. 11. gr.
verði bætt „. .. . enda verði ekki
komið í veg fyrir tjón með öðru
móti“.
Önnur málsgrein orðist þá
þannig:
„>ar sem grágæsir valda mikl-
um og almennum spjöllum á
nytjagróðri, getur ráðuneytið, að
fengnum tillögum Fuglafriðunar-
nefndar, veitt hreppstjórum fyr-
ir hönd veiðiréttanhafa í um-
dæmum sínum undanþágu frá
friðunarákvæðum laga þessara,
að því er veiði grágæsa varðar,
enda verði ekki komið í veg fyr-
ir tjón með öðru móti. >á skal
taka grágæsareggja heimil, þrátt
fyrir ákvæði 8. gr., án þess að
sækja þurfi um leyfi til eggja-
tökunnar.
Greinargerð:
1. Rök fyrir niðurfellingu
laga nr. 50/1965 um eyðingu
svartbaks hafa verið mjög ræki-
lega sett fram af formanni Fugla-
friðunarnefndar. Umfram það,
sem hann gerir að meginatrið-
um, árangursleysið og kostnað-
inn, leyfir stjórn SDÍ sér að
benda á þá staðreynd, að umferð
með skotvopn á víðavangi á þeim
tíma, sem fuglar njóta alfriðun-
ar, verður til þess að stórauka
deyðingu fugla yfirleitt. Fugla-
dráp aðvífandi skotmanna á frið-
unartíma fugla hefur farið vax-
andi með ári hverju, og yrðu á-
kvæði umræddra laga til að
auka það enn frekar. Vörzlu-
menn veiðiáa og veiðivatna telja
fugladrápið af völdum skot-
manna orðið svo gegndarlaust,
að á sumum landssvæðum hafi
algengum fuglum stórfækkað.
kveður svo rammt að þessum á-
gangi skotmanna úr ýmsum átt-
um, að til orða hefur komið, að
umráðamenn eða vörzlumenn á-
kveðinna landssvæða fái heimild
til að leita í farartækjum og far-
angri þeirra, sem ferðast vilja
um þessi svæði.
2. Út af ráðstöfunum til þess
að hefta tjón af völdum grágæsa,
leyfir stjórn SDÍ sér fyrst og
fremst að benda á, að dr. Janet
Kear lagði í ritgerðum sínum
um íslenzku grágæsirnar höfuð-
áherzlu á ýmsar varnarráðstaf-
anir aðrar en þær að deyða gæs-
ir með skotum eða smala þeim
NÆSTKOMANDI sunnudag, h.
28. þ. m„ efnir Skógræktarfélag
Hafnarfjarðar til kynningarfund-
ar um skógrækt og gróðurvernd.
Fundurinn verður haldinn í Góð-
templarahúsinu í Hafnarfirði og
hefst hann kl. 4 e. h.
Á fundinum mun Hákon Guð-
mundsson, formaður Skógrækt-
arfélags íslands, flytja ávarp.
Ingvi >orsteinsson, magister,
ræðir um gróðurvernd og sýnir
litskuggamyndir og Hákon Bjarna
son, skógræktarstjóri, flytur loka
orð. Kvikmyndasýning.
Um þessar mundir stendur yfir
í Hafnarfirði gluggasýning á veg-
um Skógræktarfélags íslands. Er
þetta farandsýning, sem áður hef
ur verið í Reykjavík, á Akur-
eyri og Húsavík. í Hafnarfirði
hefur sýningunni verið komið
fyrir að Vesturgötu 2, í húsa-
í sárum, þegar þær eiga sér enga
leið til undankomu. >á benti
hún einnig á og færði að því
sterk rök, að ekki væri unnt að
stórfækka — hvað þá eyða —
gæsum með skotum frekar en
öðrum fuglategundum, t.d. svart-
bak. Hver sá, sem setti fram þá
skoðun, að slíkt mætti takast,
kynnum Kaupfélags Hafnfirð-
inga.
Stjórn Skógræktarfélags Hafn-
arfjarðar vill hvetja Hafnfirð-
inga til þess að koma á kynning-
arfundinn nk. sunnudag og hún
væntir þess einnig að sem flestir
Hafnfirðingar leggi leið sína að
Vesturgötu 2 til þess að skoða
gluggasýninguna, en þar gefur
m. a. að líta litskuggamyndir frá
starfi skógræktarinnar.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
var stofnað 25. október 1946 og
hefur nú því starfað í nær 20 ár.
Til þessa hefur aðalverkefni fé-
lagsins verið það að friða þær
skógarleifar, sem eftir eru í
Undirhlíðum, auk þess sem fé-
lagið hefur unnið að gróðursetn-
ingu og að uppgræðslu lands, í
Undirhlíðum og í næsta nágrenni
Hafnarfjarðar: Gráhelluhrauni og
við Hvaleyrarvatn.
Girðingar félagsins eru nú 5
að tölu og eru innan þeirra
röskir 100 ha. Nú þegar hefur
gróður innan elztu girðinganna
tekið. miklum stakkaskiptum.
Blómplöntur og annar gróður er
nú meiri og fjölbreyttari en áður
og trjágróður er víða farinn að
prýða landið.
Að undanförnu hefur félagið
gróðursett um 10 þúsund trjá-
plöntur árlega og við plöntunina
hafa unnið sjálfboðaliðar og ungl
ingar, en vinnu unglinganna hef-
ur bæjarfélagið kostað að mestu.
Auk bæjarfélagsins hafa og
aðrir veitt félaginu fjárhagslegan
stuðning, svo sem Kaupfélag Hafn
firðinga, Lýsi og mjöl hf. o. fl.
Stjórn félagsins færir þeim, sem
hafa lagt því liðsinni, sínar beztu
þakkir.
Með kynningu þeirri, sem fé-
skorti raunhæfa þekkingu í þess-
um efnum.
Stjórn SDÍ vill ennfremur
vekja athygli á því, að einnig
ferðir manna með skotvopn úti á
víðavangi til eyðingar grágæs-
um á friðunartíma fugla hafa í
för með sér dráp annarra fugla-
tegunda. (Stjórn Sambands dýra-
, verndunarfélaga Islands).
lagið gengst nú fyrir, vill það
vekja fólk til umhugsunar um
gróðurverndar- og skógræktar-
mál, um leið og það leitast við
að auka félagatölu sína.
í stjórn félagsins eru:
Ólafur Vilhjálmsson, formað-
ur; Garðar >orsteinsson, varafor-
maður; Páll V. Daníelsson, ritari;
Guðmundur >órarinsson, gjald-
keri; Haukur Helgason og Jón
Magnússon.
Magnús G.
Jdnsson, form.
AUinnce
Frnncnise
AÐALFUNDUR var haldinn I
Frakklandsvinafélaginu Alliance
Francaise 4. þ.m. Tveir menn úr
stjórn félagsins báðust undan
endurkosningu formaðurinn, Al-
bert Guðmundsson, ræðismaður
Frakka, og varaformaðurinn
Björn L. Jónsson, yfirlæknir.
Stjórn félagsins er nú svo skip
uð: Formaður: Magnús G. Jóns-
son, menntaskólakennari; vara-
form.: Halldór Hansen yngri, yfir
læknir; gjaldkeri: Geir G. Jóns-
son, stórkaupmaður; ritari: Jón
Gunnarsson skrifstofustjóri; —•
bókavörður: Thor Vilhjálmsson,
rithöfundur.
Félagsmenn eru nú nálægt
tveimur hundruðum. Kennt er í
vetur á námskeiðum félagsins í
fjórum flokkum. Bókasafn félags
ins sem er til húsa að Hallveigar
stíg 9, er nú opið tvisvar í viku.
Ákveðið er að fyrsti fundur í
félaginu verði \aldinn snemma
í desember.
íbúðir í Vesturbænum
Til sölu eru nokkrar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í glæsilegu fjöl-
býlishúsi, sem verið er að reisa við Reynimel 80—84. — íbúðirnar
seljast tilbúnar undir tréverk og málningu með allri sameign úti
sem inni fullfrágenginni. Sér hitaveita er fyrir hverja íbúð. Við hend
ina eru öll helztu þægindi borgarinnar, verzlanir, skólar, leikvellir,
sundlaug. strætisvagnar, malbikaðar götur o. s. frv. — Allar nánari
upplýsingar veittar í síma 14594 og á skrifstofu minni.
BJARNI BEINTEINSSON, HDL.
Austurstræti 17 (Silli og Valdi). — Sími 13536.
Kynningarfundiir skógræktar-
manna í Hafnarfirði