Morgunblaðið - 27.11.1965, Blaðsíða 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
1
Laugardagur 27. nóv. 1965
Ctgeíandi:
Framkvæmdas tj óri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
VANDAMÁL
SJÁ VAR ÚTVEGSINS
k aðalfundi Landssambands
ísL útvegsmanna, sem
hófst í Reykjavík síðastliðinn
fimmtudag, flutti varaformað
ur sambandsins, Loftur
Bjarnason, ræðu í veikinda-
forföllum formanns LÍÚ,
Sverris Júlíussonar. í ræðu
sinni vakti Loftur Bjarnason
athygli á tveimur meginbreyt
ingum, sem orðið hafa á síð-
ustu árum í íslenzkum sjávar-
útvegi, og valdið honum og
atvinnulífi landsmanna viss-
um erfiðleikum. Hann bendir
á að reynslan hafi sýnt, „að
skip undir 120 smálestum
henti ekki til síldveiða leng-
ur, en fyrir tíu árum voru
nær eingöngu skip undir 120
smálestum á síldveiðum .Þess
ar breyttu aðstæður hafa leitt
til þess að mörg skip af stærð-
inni 50 til 120 smálestir hafa
verið rekin með miklum halla
að undanförnu“.
Þá ræddi Loftur Bjarnason
um vandamál togaraútgerðar
og sagði:
„Árið 1960 voru gerðir út 48
togarar, en nú eru aðeins
'gerðir út 27 togarar. Þegar
togararnir voru keyptir til
landsins á árunum eftir stríð-
ið, náði íslenzk landhelgi að-
eins þrjár sjómílur frá landi,
og stærstu flóar landsins voru
að mestu opnir fyrir veiðum
togaranna. Með útfærslu land
helginnar í 12 mílur og miðað
við grunnlínupunkta út að
yztu annesjum og lokun
Faxaflóa og Selvogsbanka
fyrir togveiði, þá er talið, að
togararnir hafi vegna þessar-
ar landhelgisstækkunar misst
% hluta af þeim fiskimiðum,
sem þeir áður sóttu á mikinn
hluta ársins.
íslenzku togararnir hafa
fengið tímabundið leyfi á
mjög takmörkuðum svæðum
til að veiða inn að fjögra
mílna landheigi. Það er al-
menn ósk togaraeigenda að
þessi svæði verði víðar við
landið á vissum árstímum“.
Hér hefur Loftur Bjarna-
son drepið á tvö meginvanda-
mál í íslenzkum sjávarútvegi
í dag. Annarsvegar erfiðleik-
ar litlu bátanna, sem ekki
geta lengur stundað síldveið-
ar á jafn fjarlægum miðum
og með jafn fullkominni
tækni og hin stóru skip gera,
sem eru að stærð á fjórða
hundrað tonn, og hinsvegar
vandamál togaranna, þess-
ara skipa, sem á sínum tíma
ollu gjörbyitingu í atvinnu-
háttum íslendinga.
í landinu er mikill fjöldi
þessara litlu báta, sem Loftur
Bjarnason gerði að umtals-
efni, og full ástæða til þess að
kanna, á hvern hátt þeir
verði bezt nýttir, eða hvort
það er yfirleitt hægt. Sú þing-
kjörna nefnd, sem tekið hefur
þetta mál til athugunar mun
væntanlega rannsaka það of-
an í kjölinn, og miklar vonir
hljóta að vera bundnar við
starf hennar.
Það er umdeilt atriði, hvort
leyfa eigi íslenzkum togurum
að veiða á fleiri svæðum inn-
an landhelginnar en nú er
gert. En hverja skoðun, sem
menn hafa á því máli, er hitt
ljóst, að þeir togarar sem nú
eru gerðir út frá íslandi eru
yfirleitt gömul skip og varla
við því að búast, að þeir stand
ist þær kröfur, sem nú eru
gerðar til veiðitækni slíkra
skipa. Á undanförnum árum
hafa ýmsar tilraunir verið
gerðar með nýja tegund tog-
ara, og ýmsar nýjungar kom-
ið fram. Nauðsynlegt er, að
íslendingar fylgist mjög náið
með þessum tilraunum og
nýjungum og að því hlýtur
að koma að við verðum að
gera upp hug okkar um það,
hvort við viljum viðhalda tog
araútgerð í landinu og þá
leggja í þann kostnað, sem
því fylgir að endurnýja tog-
araflotann og skapa honum
raunhæfan rekstursgrund-
völl eða gefa alveg upp
á bátinn það atvinnutæki sem
mestri byltingu olli í íslenzku
atvinnulífi í upphafi þessarar
aldar.
TÍMINN
STAÐINN AÐ
ÓSANNINDUM
ll/Iálgagn Framsóknarflokks-
ins hefur í þeim umræð-
um, sem að undanförnu hafa
farið fram um embættisveit-
inguna í Hafnarfirði gripið
til ýmissa ráða og ekki alltaf
sést fyrir í málflutningi sín-
um.
í forustugrein blaðsins í
gær er að því vikið, að í ræðu
sinni á Alþingi sxðastliðinn
þriðjudag hafi Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra,
skorað á Framsóknarmenn að
bera saman embættaveiting-
ar sínar og Hermanns Jónas-
sonar. Síðan segir dagblaðið
Tíminn:
„Hann þorði með öðrum
orðum ekki að ræða saman-
burðinn á því, hvernig hann
og Hermanni Jónassyni hefði
tekizt val á mönnum í Hæsta
rétt“.
Þeir, sem hlýddu á umræð-
ur á Alþingi dagintt áður en
þessi forustugrein birtist í
Varð kæruleysi 30
manns að bana?
t SAMTÖK sænskra flug-
manna telja sig hafa í
höndum gögn, er sýni, að flug-
slys, sem fyrir um það bil ári
varð við Ángelholm í Svíþjóð,
með þeim afleiðingum, að 30
manns biðu bana, hafi átt ræt-
ur að rekja til kæruleysis af
hálfu viðgerðarverkstæða
S.A.S.-flugfélagasamsteypunn-
ar. —
4 Forystumenn flugmann-
anna staðhæfa, að hæð-
armælir flugvélarinnar hafi
verið sendur til viðgerðar
fjórum sinnum á síðasta ári,
síðast nokkrum dögum áður
en fiugslysið varð, án þess að
nokkru sinni væri gert al-
mennilega við hann.
Flugvélin, sem fórst, var af
gerðinni Metropolitan, og var
í eigu systurfélags SAS —
Linjeflyg, sem annast flug-
ferðir á innanlandsleiðum I
Sviþjóð. Yekur uppljóstrun
flugmannanna því meiri at-
hygli, sem talið er, að bilaður
hæðarmælir hafi valdið því,
að önnur Metropolitan-flugvél
fórst í kennsluflugi fyrir u.m.
þ. þremur vikum. Fjórir menn
sem voru í vélinni, komust lífs
af og er það einkum þakkað
snarræði flugstjórans og kenn
arans, sem var danskur, Egon
Esbiml að nafni. Nefnd sú, er
skipuð var til að rannsaka or-
sök slyssins hefur enn ekki
skilað áliti, en af hálfu SAS
er staðhæft, að ekkert hafi
verið athugavert við vélina
eða búnað hennar.
Rannsókn á flugslysinu við
Ángelholm er hinsvegar löngu
lokið, en flugmannasamtökin
staðhæfa, að rannsóknarnefnd
in hafi virt að vettugi upplýs-
ingarnar um bilanir hæðar-
mælisins og sé slíkt kæruleysi
vítavert. Segjast þeir reiðu-
búnir að leggja fram ljósmynd
ir og skjöl, er sýni, að hæðar-
mælir vélarinnar var hvað eft
ir annað sendur á viðgerðar-
verkstæði SAS í Ósló og að
viðgerð hafi í öllum tilfellum
verið flaustursleg.
Hæðarmælirinn, segja þeir,
að hafi verið í danskri SAS-
vél, þegar fyrst var kvartað
um bilanir á honum, í janúar
1964. Var hann þá tekinn úr
vélinni í Kastrup og sendur
til Ósló. Þar var tjaslað upp á
hann og hann síðan settur í
aðra danska Metropolitan-vél.
í ágúst var aftur tilkynnt, að
hann væri bilaður og sendur í
viðgerð. í október var hann
settur í vélina, sem fórst við
Ángelholm og 15. nóvember
skrifaði flugmaðurinn skýrslu,
þar sem hann sagði, að mælir-
inn væri mjög varhugaverð-
ur. Að þessu sinni var hann
athugaður á verkstæði SAS á
Bromma-flugvelli við Stokk-
hólm, en aftur settur í sömu
vél, án gagngerrar viðgerðar.
Síðan kom mælirinn ekki
meira við sögu, fyrr en hann
var dreginn út úr flugvélar-
flakinu í Ángelholm .
Tímanum, vita, að forsætis-
ráðherra ræddi einmitt ítar-
lega veitingar sínar og Her-
manns Jónassonar á hæsta-
réttardómaraembættum á
fundi neðri deildar síðast-
liðinn fimmtudag og gerði
það á þann veg, að eng-
inn var í vafa um, að á hann
hallaði ekki í þeim efnum.
Jafnvel þótt forsætisráðherra
hafi varið töluverðum hluta
ræðutíma síns á Alþ. til þess
að ræða einmitt þetta atriði,
skirrist málgagn Framsóknar-
flokksins ekki við að bera á
borð fyrir lesendur sína, dag-
inn eftir, hrein ósannindi á
þann veg að forsætisráðherra
hafi ekki gert þetta. Þetta er
því ósvífnara, sem stjórnmála
ritstjóri Tímans var einmitt
staddur í þingsal meðan for-
sætisráðherra flutti ræðu
sína, og ef hann fylgist eitt-
hvað með því, sem í blaði
hans stendur, hlýtur honum
að vera ljóst, að í forustugrein
blaðs hans í gær er farið með
hrein ósannindi og á blaðið
ekki annars kost en biðjast
opinberlega afsokunar á slík-
um málflutningi. Stjórnmála-
deilur á íslandi eru oft harð-
ar, en út yfir tekur þó, þegar
málgagn annars stærsta
stjórnmálaflokksins er staðið
að beinum ósannindum.
Annars er það fróðlegt,
ekki sízt fyrir yngri kynslóð-
ina, að kynna sér ræðu for-
sætisráðherra á Alþingi í
fyrradag. Þar rakti h-ann að-
draganda þess, að tveir nýir
hæstaréttardómarar voru
skipaðir árið 1935, árið
eftir að Hermann Jónas-
son hafði vikið tveimur
hæstaréttardómurum úr emb-
ætti gegn vilja þeirra. Þá
voru forustumenn Framsókn-
arflokksins margir hinir
sömu og nú eru, og má það
heita furðuleg ósvífni, að rað-
ast nú með óbótaskömmum
að dómsmálaráðherra fyrir
embættisveitinguna í Hafnar-
firði. Þeir menn sem eiga
slíka sögu að baki, sem Fram-
sóknarmenn í embættaveit-
ingum, eiga að skilja að þeim
er hollast að tala sem minnzt
um ranglæti annarra í þess-
um efnum. Þeim mun meira
verður rifjað upp af þeirra
eigin verkum.
HÖRMUNGAR-
SAGA KONGÓ
Ctjórnarbylting hefur verið
gerð í Kongó, herinn tekið
völdin og Mobutu skipað sjálf
an sig forseta. Það á ekki af
þessu afríska ríki að ganga.
Sjálfstæðissaga þess er hörm-
ungarsaga allt frá upphafi og
sýnir við hvílíka erfiðleika
hin nýfrjálsu ríki Afríku
eiga að etja. Sjálfstæðið er
engin lausn á vandamálum
þeirra eins og berlega hefur
komið fram í Kongó.
Þeir stjórnmálaleiðtogar,
sem fram hafa komið í Kongó
á undanförnum árum hafa
yfirleitt ekki reynzt hæfir til
þess að stjórna landinu. Ýms-
um kann að þykja það ótrú-
legt, en margir eru þeirrar
skoðunar að sá ,sem beztum
árangri hefur náð í stjórn
landsins, sé Tshombe, en ein-
mitt vegna þess gat Kasa-
vubu forseti ekki unnt hon-
um þess að halda áfram um
stjórnvölinn. Kasavubu hef-
ur nú hlotið sín örlög. Engu
skal um það spáð hvernig hin-
um unga hershöfðingja, sem
kom mikið við sögu strax á
fyrstu mánuðum hins sjálf-
stæða Kongó, tekst til í stjórn
landsins. Menn hljóta aðeins
að vona að vaxtarverkjum
hins unga Kongóríkis taki
brátt að linna og leiðtogar
þess snúi sér að verðugri
verkefnum en þeim, sem þeir
hafa sinnt mest undanfarin
ár. —
Ráðherrafundur
OAS ■ Brasilíu
Rio deJaneiro, 25. nóv. NTB
• Um þessar mundir stendur
yfir í Rio de Janeiro fundur utan-
ríkisráðherra aðildarrikja Sam-
taka Ameríkuríkjanna — OAS.
Þar hafa ko.mið fram a.m.k. tvær
tillögur um myndun ráða, er hafi
það hlutverk að leita málamiðl-
ana og lausna á milliríkjadeilum
Ameríkuríkja.
Önnur tillagan er fram borin
af hálfu stjórnar Brazilíu, sem
leggiur til, að ráðið sé skipað ut-
anríkisráðiherrum aðildarríkj-
anna og ákvarðanir þeirra verði
bindandi fyrir viðkomandi deiiu-
aðila. Önnur tiilaga, af hálfu
gaignrýndi (þá tillögu mjög harð-
Bandaríkjastjórnar gerir ráð fyr-
ir að það sé skipað sendiherrum
Iandanna, en til þess að hún geti
náð samþykiki, þarf að gera breyt
ingu á stofnsáttmála bandalags-
ins.
Bandaríkjastjóm hefur einnig
borið fram tillögur um myndun
sameiginlegs herstyrks Ameríku
rikjanna. Fulltrúi Sovétstjórnar-
innar á Allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðana, Nikölai Ferdoren ko,
lega á fundi stjórnmáilanefndar
þingsins í gær og sagði hana
brjóta í bága við sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna.
• Hægri hönd Tage Erland-
ers, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar og helzili ráðgjafi stjórnar
hans, hefur tekið við nýju em
bætti innan hennar. Verður
hann samgöngumálaráðherra
í stað Gösta Skoglund, sem
lengi hefur reynt að fá sig
lausan úr stjórninni.