Morgunblaðið - 23.03.1966, Síða 16
16
- Miðvikudagur 23. marz 1966
MORGUNBLAÐIÐ
Hilmar Fenger torm. Fél. ísl. sfórkaupm.
jHÍ
Aðild að EFTA mundi skopa
aðhald í kaapgjalds- og
veiðlagsmólum
- EFTA
Framhald af bls. 15
ísfisk úr togurum og heilfrystan
fisk, sem seldur yrði í Englandi,
hvort sem ísland vseri í EFTA
eða ekki. I
Tollatap fslands, samanborið
við Noreg og Danmörku, sem
njóta EFTA-kjara, var árið 1965
(miðað við f.d.b .verð) 30 millj.
króna vegna útflutnings á fryst-
um fiskflökum ,fiskimjöli og
síldarlýsi til Bretlands. — Guð-
mundur sagði, að neikvæð tolla-
áhrif, miðað við heildarútflutn-
ing framangreindra afurða, væri
litil eða frá 0,5% í rúmlega
2%.
Þá sagði Guðmundur, að Aust-
ur-Evrópuviðskiptin hefðu enn
mikla þýðingu fyrir útflutnings-
framleiðslu íslendinga, og gerði
samanburð á útflutningsaðstöðu
íslands gagnvart Austur-Evrópu.
Guðmundur taldi, að ekki væri
nægilega skýrt, hvernig atvinnu-
rekstrarréttindum útlendinga,
þ.e.a.s. þegna annarra aðildar-
ríkja EFTA, væri háttað í fram-
kvæmd, og sagði, að í þeim efn-
um þyrftu að vera skýrar lín-
ur.
Ræðu sinni lauk Guðmundur á
þessa leið:
„Að lokum: Það er mín per-
sónulega skoðun, að íslendingar
eigi að flýta sér hægt að sækja
um eða gérast aðilar að erlend-
um hagsmunabandalögum, og er
■sérstaklega þýðingarmikið að
bíða átekta og sjá, hver verður
árangur hinna svónefndu Kenn-
edy-viðræðna“.
— Minníng
Framhald af bls. 12
Ýmis fleiri félagsstörf vann Vil
hjálmur, en þar fyrir utan leit-
uðu samstarfsmenn í bankanum
til hans með vandamál sín til
úrlausnar og hjálpar. Það sem
hér hefur verið minnst á er ærið
eukaálag fyrir mann sem veitir
forstöðu lögfræðideild í stærstu
og virðulegustu peningastofnun
landsins.
Samt gerði Vilhjálmur meira
fyrir starfsfélaga sína í Lands-
bankanum. Austur við Álftavatn
í Grímsnesi var ógirt sumarbúða
land, er Selvík heitir, eign Fé-
lags Landsbanka íslands. Við
þennan fallega stað hafði hann
tekið ástfóstri. Þarna er friðsælt
og fagurt og hægt að íhuga
hversvegna fjöllin eru svo fagur
blá. En Vilhjálmur vildi ekki
vera einn um mikilleik staðarins,
til þess var hann of félagslyndur.
„Nú þarf bara hendur til þess
að byrja, svo kemur þetta“,
eagði hann þegar rætt var um
væntanlega byggingu sumarhúsa
í Selvík. Þetta reyndist rétt. Nú
er búið að girða landið, skáli
kominn á staðinn og verið að
vinna að aðal framkvæmdaáætl-
un staðarins. Hann var fyrsti for
maður framkvæmdanefndar Sel-
víkur og síðan formaður hennar
meðan hann lifði.
í önn dagsins kynntumst við
etarfsmanninum Vilhjálmi Lúð-
víkssyni. En mér er líka í muna
margar ferðir með honum austur
í Selvík og ferðir í Þórsmörkina.
Eina sumarbjarta júnínótt 1964
gekk fámennur hópur að upp-
tökum Krossár. Þá nótt sá ég
Vilhjálm glaðastan og ávallt
vildi hann bera hópinn yfir ár-
kvíslarnar. Vilhjálmur dáði ör-
æfaferðir. Hann beinlínis þráði
óbyggðirnar. fslenzka hálendið
var honum líka ætíð gott. Nú er
vorar munu margir sakna Vil-
hjálms austur í Selvík. Öll börn-
in sem hann leiddi og léku sér
við hann munu líka sakna hans.
Trúa þau því, að næsta sumar
siglir hann ekki með þeim á hrað
bátnum sínum um „Álftavatnið
bjarta“.
Það #var gott að kynnast Vil-
hjálmi* í starfi og leik. Mann-
skaði að hann féll frá langt um
aldur fram. Okkur starfsfélög-
um hans er nú efst í huga þakk-
læti fyrir allt það sem hann
hefur gert fyrir okkur og við
vottum ástvinum hans innileg-
ustu samúð.
Þorkell Magnússon.
Hilmar Fenger sagði meðal
annars:
„Aðild að EFTA mundi vafa-
laust gera óhjákvæmilegt, að
hvers konar iðnaði, öðrum en
náttúrulega vernduðum iðnaði,
yrði sköpuð starfsskilyrði, sem
væru þjóðhagslega mun hag-
stæðari en verið hefur. Og með
hliðsjón af nýgefnum upplýs-
ingum fiskifræðinga um veiðiþol
fiskstofnanna ,virðist varla fara
milli mála, að hvers konar iðn-
aður, annar en fiskiðnaður og
náttúrlega verndaður iðnaður,
muni hafa vaxandi hlutfallslega
þýðingu, og það án tillits til
þess, hvað verður gert í EFTA-
málinu, og hver stefna stjórn-
valdanna gagnvart iðnaðinum
v«rður. En það er vissulega
heillavænlegt, að stjórnarvöldin
geri sér sem skýrasta grein fyr-
ir framtíðarhlutverki þessa iðn-
aðar og veiti lífvænlegum iðn-
greinum þá aðhlynningu, sem
hagkvæm er.
Það er ljóst, að af aðild EFTA
hlytist mikil röskun á tekjuöfl-
un ríkissjóðs, svo mikilvægar,
sem tollatekjur hafa verið fyrir
ríkisbúskapinn. En hér getur eng
an veginn verið um óyfirstígan-
lega erfiðleika að etja. Við gæt-
um vafalaust lært eltthvað af
athugun á þeirri skipan, sem er
á innheimtu ríkistekna í EFTA-
ríkjunum. Ýmsir möguleikar
blasa . við. Fyrir utan lækkun
niðurgreiðslna neyzluvara er að
sjálfsögðu vel. hugsanlegt, að
hafin verði sköttun þeirra „fram-
færslutekna“, sem að undanförnu
hafa verið undanþegnar tekju-
skatti. Svo virðist, sem laun-
þega megi einu gilda ,hvort hann
greiði engan tekjuskatt, en hátt
verð fyrir neyzluvörur vegna
innflutningstolla, eða einhvern
tekjuskatt, en lægra verð fyrir
vörurnar.
Áður en ákvörðun er tekin um
afstöðuna gagnvart EFTA, má
okkur ekki sjást yfir að kanna,
hver áhrif aðild er líkleg til að
hafa á verðlagsþróun hér á landi.
Allir, sem tjá sig opinberlega
um verðbólgu, eru sammála um,
að verðbólga hafi verið þjóðar-
böl.
Með því að gerast aðilar að
EFTA, mundum við, að því er
mér virðist, verða að sætta okk-
ur við, að úr höndum okkar
yrðu tekin ýmis tæki, sem til
þessa hafa gert okkur kleift að
búa við skilyrði mun meiri verð-
bólgu heldur en hefur verið í
Hilmar Fenger
viðskiptalöndum okkar. Hér er
um að ræða afnám, ef til vill
hægfara afnám, möguleikana á
að hafa áhrif á utanríkisverzlun
með breytingum á viðskiptahöft-
um, styrkjum og tollum. Við
hefðum að vísu óskert vald yfir
gengisskráningunni, en þessar
breytingar, sem ég nefndi,
mundu einmitt verða til þess,
að við yrðum frekar að bregð-
ast við verulegum röskunum á
greiðslujöfnuðinum með gengis-
breytingum, heldur en ella
mundi vera. En einmitt vegna
þess, hve gengisbreytingar, rétt-
ara sagt gengislækkanir, eiga
litlum vinsældum að fagna með-
al ráðamanna hér, er þess að
vænta, að aðild að EFTA mundi
skapa nokkurt aðhald í kaup-
gjalds- og verðlagsmálum hér
innanlands.
Um nokkurn tímabundinn
vanda verður sjálfsagt við að
glíma fyrir heildsölu og verzlun
yfirleitt, þegar tollalækkanir
eiga sér stað, og er þá nauðsyn-
legt að verzlanir séu vel á verði,
til þess að komast hjá tapi á
vörubirgðum þegar varan lækk-
ar. Einnig þarf að gæta sín þeg-
ar tollar á vörum frá EFTA-
löndum lækka, en ekki að sama
skapi á vörum frá löndum utan
EFTA. Þá mun í mörgum til-
vikum breytast hefðbundin
verzlunarsambönd og verða ó-
samkeppnisfær. Þetta hvort
tveggja eru vandamál, sem geta
verið erfið viðfangs fyrir ein-
staka heildsölur, en ættu að vera
yfirstíganleg í góðri samvinnu
við viðkomandi yfirvöld.
Ég vildi að lokum geta þess,
að mér hefur skilizt, að í aðild
að EFTA fælist ekki almenn
'heimild til handa útlendingum
til atvinnurekstrar í öðrum með-
limaríkjum. Þess vegna er hér
ekki tilefni til þess, að ég geri
grein fyrir viðhorfum mínum
til slíkrar heimildar. En það
var í trausti þess, að ég lýsti
því yfir áðan, að væntanleg
áhrif á hagvöxt ættu að ráða
úrslitum um viðhorf okkar til
aðildar".
Við óskum eftir innflytjanda fyrir ísland
HEIMSNÝJUNG
SÓLIN — vinur vor og óvinur. — Ár-
lega eyðileggst fyrir milljónir króna af
y vefnaðarvöru vegna upplitunar. Þús-
undir góðra vinnutíma tapast í skólum
á sjúkrahúsum, skrifstofum og í yerk-
smiðjum vegna öflugra hitageisla frá
sólinni.
SOLAR - FLEX
grundvallast á „Cyasorbs" frá amerísku
„Cyanamid“. Solar-Flex minnkar upp-
litun ailt að 99,5%, blindun allt að 91%
og hitageislun allt að 82% — SOLAR-
FLEX einangrar gegn hita og kulda og
lækkar hitakostnað 4—-12% vegna minna
hitataps gegnum rúðugler.
Frá sama framleiðanda getum við boðið
GILL ICE - BAN
ís- og snjó bræðiefni sem verkar 35 sinn-
um hraðar en salt. Gill Ice-Ban verndar
gegn ryði, en er annars alveg hlutlaust
í verkan sinni. Góðar ábatavonir.
Skriflegar fyrirspurnir á dönsku eða
ensku til
Aksjeselskap
Waldemar Thranes gt. 84 B, Oslo 1. Norge.
Lokað
Höfum lokað á laugardögum fyrst um sinn.
Gler og Listar hf.
Dugguvogi 23 — Sími 36645.
larry S3taines
LINOLEUM
Parket gólfflísar
Parket gólfdúkur
— Glæsilegir htir —
GRENSÁSVEG 22-24 (HORNI MIKLUBRAUTAR) SlMAR 30280 & 32262
JárnsmiBir og
laghentir menn
óskast við málmiðnað strax.
Létt og hreinleg vinna.
Aluminiðjan
Ármúla 14 — Sími 37920.
KjÖrskrárstotn
Til bæjarstjórnarkosninga í Keflavík 22. maí 1966
liggur frammi almenningi til sýnis á skrifstofu
Keflavíkurbæjar Hafnargötu 12 dagana 22. þ.m. til
19. apríl n.k. Kærur yfir kjörskránni skulu hafa
borizt skrifstofu bæjarstjóra eigi síðar en 2. maí n.k.
Bæjarstjórinn í Keflavík.
Rafvirkjar
Staða skoðunarmanns raflagna hjá Rafveitu Akra-
ness er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur til
15. apríi nk. Nánari upplýsingar á skrifstofu Raf-
veitunnar sími 1242.
RAFVEITA AKRANESS.