Morgunblaðið - 23.03.1966, Blaðsíða 27
Miðvikudagur 25. tnarz 1966
MORGU N BLAÐIÐ
27
—Alþingi
Framhald af bls. 8
in um að flytja þetta frumvarp.
Alþingi hefði
samþykkt þings
ályktunartillögu,
Sverris Júlíus-
sonar og hefði
með henni /er-
ið óskað þess að
stjórnin á stofh-
lánasjóðum út-
vegsins yrði sam
rýmt, en það
væri einmitt meigintilgangur
frumvarps þessa. Segja mætxi,
að með frumvarpinu væri
skemmra gengið heldur en marg
ur hefði óskað. Ríkisstjórnin
hefði á vissu stigi málsins hugs-
að sér, að fiskimálasjóður féili
einnig til Fiskveiðasjóðs og ríkis
stjórnin hefði fyrir sitt leyti mik-
— Helga R.E.
Framhald af bls. 28.
fékk sama og ekkert. — Nokkurt
magn af fiski hefur verið ekið
hingað inneftir frá Þorlákshöfn
af bátum, sem þar leggja upp.
Loðnubátarnir hafa aflað vel í
þessum mánuði og oft verið með
fullfermi eða upp í 2000 tunnur.
Hafa þeir lagt aflann á land fyr-
ir vestan, í Reykjavík, og nokk-
uð í Hafnarfirði, en þar (í Lýsi
og mjöl) hefur ekki verið hægt
að taka á móti eins miklu og
æskilegt hefði verið sökum
manneklu.
Fjórir trillúbátar biða nú eftir
að gefi á sjó, en þeir munu verða
með línu og á handfærum.
Akranesi. — Akranesbátar
hafa aflað mjög sæmilega að und
anförnu, þeir sem hafa sótt vest-
ur að Jökli. Það versta er hins-
vegar, að aflinn er yfirleitt orð-
inn gamall, þegar hann berst á
land vegna þess hve gæftir hafa
verið stopular. Er hann mest
unninn í skreið. Bátarnir hafa
mest sótt vestur á Breiðafjörð.
Hinsvegar virðist vera kominn
allgóður fiskur á svæðið sunnan
úr Miðnessjó og vestur á Breiða-
fjörð, en það vantar gæftirnar
til að hægt sé að nýta hann.
Vestmannaeyjum. — Afli hér
hefur verið mjög lélegur að und-
anförnu og gæftir samfara því
stopular. Bátar voru á sjó héðan
í gær, en þeir, sem þá fengu eitt-
hvað að ráði, voru með gamlan
fisk úr netum. Um miðjan þenn-
an mánub var afli orðinn um 40%
af því sem hann var á sama tíma
í fyrra.
Ekki er útlit fyrir sjóveður í
nótt, því veður er hvasst.
— Bj. Guðm.
í Reykjavík munu nú leggja
upp nær 50 bátar með öllu og
öllu. Hafa stærri bátarnir verið
að veiðum á Breiðafjarðarmiðum
og fengið þetta frá 20—50 tonn
og allt upp í 70 tonn. Helga kom
hingað til Reykjavíkur í gær-
morgun með 70 tonn. Þeir bátar
sem verið hafa að veiðum út af
Skaga hafa fengið 8—15 tonn í
veiðiferð.
Þess skal í þessu sambandi
getið að Helga hefur nú farið 9
veiðiferðir og fengið alls 460
tonn.
— Vegir lokast
Framhald af bls. 28.
Súðavíkurveg, en komin voru
nokkur snjóflóð á vegina.
Að undanförnu hefur verið
sæmilega greiðfært um Húna-
vatnssýslur og Skagafjörð, en í
gær var gert ráð fyrir að þar
yrði allt ófært, enda var þar iðu-
laus stórhríð.
Á Austurlandi var orðin sæmi-
leg færð fyrir daginn í gær og
Fagradalsvegur fær og allt til
Eskifjarðar, ennfremur nokkuð
um Fljótsdalshérað. Hins vegar
skall stórhríðin þar yfir í gær-
morgun og lokuðust vegir því
nær á augabragði.
Á suðausturhorni Iandsins var
veður bjartara, en þar hafa veg-
ir verið allgóðir í vetur og fært
oftast frá Hornafirði til Djúpa-
vogs.
inn áhuga á því, að hægt yrði
að koma þeirri breytingu - á,
að atvinnuleysistryggingasjóður,
sem lánað hefði töluvert til sjáv-
arútvegs á einstöku stöðum, ián-
aði heldur gegnum stofnlána-
sjóði sjávarútvegsins heldur en
ti'l hinna einstöku framkvæmda.
Ráðherra sagði að þingsálykt-
unartiHaga sú er hér um ræddi
og væri frá 1964 hefði gert ráð
fyrir að stofnuð yrði 5 manna
nefnd til að kanna stofnlánamál
sjávarútvegsins. Af skipun þess-
arar nefndar hefði ekki orðið,
en ríkisstjórnin hefði sjálf haft
til athugunar eflingu stofnlána-
sjóðanna og samræmingu þeirra.
Veruleg efling stofnlánasjóða
hefði orðið á því ári síðan tillag-
an var samþykkt og ríkisstjórn-
in hefði einnig átt rikan þátt í
því að afla fyrirtækjum lánsfjár
til stofnlána í sjávarútvegi. Mál-
in stæðu nú þannig, að útlán
Fisikveiðasjóðs hefðu aukizt um
24% á árin 1964—1965. Stafaði
það m.a. af því að útfflubnings-
gjaldið hefði orðið meira en gert
hefði verið ráð fyrir. Sjávarafl-
inn hefði einnig orðið meiri og
Fiskveiðasjóður hefði þanuig
haft meiru úr að spila. Þá hefði
ríkisstjórnin einnig, í samvinnu
við bankana greitt fyrir mönnum
að taka erlend lán til fiskiskipa
kaupa. Síðar í ræðu sinni vék
ráðherra að því að í sambandi við
aukin stofnlám til sjávarútvegs-
ins og þá fyrst og fremst til upp-
byggingar og viðhalds væri það
að segja, að ríkisstjórnin heíði
lagt áherzlu á, að hér á landi
efldist stálskii>asmíði og við gæt
um að verulegu leyti orðið þess
megnugir að byggja okkdr fiski
skip sjálfir. Ríkisstjórninni væri
það Ijóst, að eftir því sem slík
stálskipasmíði ykist hér innan-
lands yrði fjárþörf Fiskveiða-
sjóðs meiri en hún hefði verið
að undanförnu, þar sem menn
hefðu getað tekið lán til 7 ára
í sambandi við kaup á fiskiskip-
um erlendis. Ef þær lánveiting-
ar myndu. dragast saman hefði
ríkisstjórnin í huga, að eðlilegt
væri að afla í staðinn lánsfé til
handa Fiskveiðasjóði, annaðhvort
innlendis eða erlendis. Gert væri
ráð fyrir því, að víða hérlendis
kæmu upp stálskipasmíðastöðv-
ar er byggðu báta af þeirri stærð
er menn kysu helzt nú, það
væri 3—400 tonna skip, sem
myndu kosta um 20 npillj. kr.
Eftir reglum Fiskveiðasjóðs til
lá/na út á innlenda skipasmíði
væri gert ráð fyrir að lána 75%
upphæðar og mundi það svara
til 15 millj. kr. á bát. Ek'ki væri
ólíklegt að innan skamms tírna
yrðu smíðaðir margir slí'kir bát-
ar á ári hérlendis og sæu menn
því að hér væri um mikla fjár-
upphæð að ræða. Ríkisstjórnin
hefði hugsað sér að mæta þeim
með því að aðstoða Fiskveiða-
sjóð til lántöku og endurlána til
þessarra fiskiskipa. Sem betur
færi, væri aðstaða Fiskveiðasjóðs
þannig, að hann væri mjög öfl-
ugur sjóður, sem ætti auðvelt
með að útvega lánsfé. Eigið fé
sjóðsins mundi nú vera um 600
millj. kr., og meðan að við yrð-
um ekki fyrir neinum verulegum
skakkaföllum í sjávarútveginum
væri sjóður sem svo tryggilega
hefði verið uppbyggður, að sjálf-
sögðu vel til þess fær að taka
lán og það mundi hann þurfa að
gera langt umfram það, sem eig
ið lánsfé hans mundi duga hon-
um, ef við hefðum að verulegu
leyti sjálfir stálskipasmíði. Væri
þetta einn þátturinn í því sem
stjórnin hefði -haft á prjónunum
með því að auka stofnlán, — að
vera reiðubúin til þess, að hlaupa
undir bagga og aðstoða Fiskveiða
sjóðinn til verulegra stórra lán-
veitinga til þess að stuðla að því
að innlend stálskipasmíði yrði
efld.
— Berlingur
Framhald af bls 1
verða. Sjálfa. skiptinguna á að
framkvæma af dansk-íslenzkri
nefnd, sem mun nota hinn
danska forsætisráðherra, sem
oddamann í þeim málum, sem
ekki næst samkomulag um. Menn
geta séð af því hve lögin eru á
reiki varðandi afhendinguna, að
slík vandamál muni verða óhjá
kvæmileg. Menn mega ekki vona
vegna forsætisráðherrans sjálfs,
að starfsemi slíks oddamanns
með þessum skilyrðum verði yf-
irleitt að veruleika. Það kynni
að íþyngja dansk-íslenzkum sam
skiptum með enn frekari beiskju
en einkennt hefur þau alla deil-
una um handritamálið. Við þett.a
bætist, að ekki hafa allir aðilar
á fslandi skilið hver alvara býr
að baki hinni samningsbundnu
skyldu landsins að falla frá öll-
um frekari kröfum á íslenzkum
menningarminjum í Danmörku".
„Meira að segja áður en af-
hendingarlögin hafa öðlazt rétt-
arlega staðfestingu á gildi sínu
hefur varaformaður íslenzku
handritanefndarinnar, Sigurður
Ólason, hæstaréttarlögmaður,
brennt sig á því að ljóstra því
upp að langt sé frá því að lög-
in, að íslenzku mati, gangi nógu
langt“.
Þessu næst eru endurtekin í
ritstjórnargreininni nokkur um-
mæla Sigurðar Ólasonar eins og
þau voru eftir honum höfð af
Viggo Starcke, fyrrum ráðherra,
í grein í Berlingske Tidende fyr
ir nokkru. Ritstjórnargreininni
lýkur síðan með þessum orðum:
„Undir öllum kringumstæðum
er það dálítið snemma af stað
farið að tala um að handritamál-
ið hafi verið leyst á meðan Hæsti
réttur hefur ekki fengið tækifæri
til að segja álit sitt. En ef gert
er ráð fyrir því, að dómurinn
muni ganga gegn Árnasafni,
vaknar sú spurning — á grund-
velli þeirra skoðana, sem fram
koma 1 áðurnefndu íslenzku
blaðaviðtali — hvort afhending-
arlögin séu yfirleitt til þess fall-
in að gera ísland ánægt. Landið
hefur vissulega að þessu sinni
skuldbundið sig til þess með
samningi, en samningum er hægt
að breyta og hér í þessu landi
getur það naumast virzt hug-
hreystandi að nýjar afhendingar-
kröfur, þótt óopinberar séu, eru
uppi hafðar af ábyrgum íslenzk-
um aðila á þeim tíma er sú hand
ritasending, sem átti að vera hin
síðasta, er ekki enn lögð af stað“.
■— Rytgaard.
Mbl. sneri sér í gær til Gylfa
Þ. Gíslasonar, menntamálaráð-
herra, og spurði hann hvað hann
vildi segja um ofangreinda for-
ystugrein í Berlingske Tidende.
Ráðherrann sagði:
„Handritanefndin svokallaða,
sem í áttu sæti fulltrúar þing-
flokkanna undir forsæti prófess-
ors Einars Ólafs Sveinssonar,
var mynduð til þess að vera rík-
isstjórninni til ráðuneytis í við-
ræðunum við dönsku ríkisstjórn
ina á sínum tíma. fslenzka ríkis-
stjórnin lýsti 1961 yfir fullu sam-
þykki sinu á þeirri lausn, sem
fólst í handritafrumvarpi dönsku
ríkisstjórnarinnar. Öll handrita-
nefndin hafði mælt með þessari
lausn. Auk þess hafði ég samráð
við leiðtoga stjórnarandstöðu-
flokkanna um málið og var um
það full samstaða við þá. Ég get
því fullýrt, að almennur stuðn-
ingur var og er á íslandi við þá
endanlegu lausn á handritamál-
inu, sem í frumvarpi dönsku
stjórnarinnar fólst“.
„Ég lít þannig á, að handrita-
nefndin hafi lokið störfum 1961,
enda hefur hún aldrei komið
saman síðan", sagði menntamála-
ráðherra að lokum.
GtJSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Laufásvegi 8. Sími 11171.
Ingi Ingimundarson
hæstarettarlömaðui
Klapparstig 26 IV hæð
Simi 21753.
• Jo Cals, forsætisráðherra
Hollands, lýsti því yfir á kjós
endafundi í gær, að erlend
„sensation" blöð hefðu að
nokkru leyti staðið að baki
látunum, sem urðu við brúð-
kaup Beatrix prinsessu og
Þjóðverjans Claus von Am-
bergs. Kvaðst Cals hafa undir
höndum upplýsingar er sönn-
uðu þessa staðhæfingu hans.
Bolsévikkar vilja Stalín
ærulausan áfram
Moskvu 19. marz, NTB.
ÓEINKENNISKLÆDDIR lög-
reglumenn tóku nýverið höndum
fjölda fólks sem safnast hafði
saman á Rauða torginu til þess
að mótmæla tilraunum til þess
að veita Josef Stalin uppreisn
æru, að því er hermdi í Moskvu
í dag. Meðal þeirra sem teknir
voru höndum var ritihöfundurinn
Vasilij Aksenov. Allir hinir
handteknu voru þó látnir lausir
aftur eftir heimsókn á lögreglu-
stöðina.
Fyrr í vetur sendu gamlir
bolsévikkar — þ.e.a.s. úr hópi
þeirra ar börðust í októberbylt-
ingunni 1917 út boð til manna að
safnast saman á Rauða torginu
til þess að mótmæla því að Stal-
in hlyti uppreisn æru. Fjöldi
þeirra sem send voru slík boð
Hillary vill
klífa Jasamba
• Hinn kunni fjallagarpur, Sir
Edmund Hillary, er kominn til
Nepal til þess að reyna að fá
heimild stjórnarvalda þar til
þess að klífa fjallið Jasamba,
sem er 7.315 metrar á hæð.
Hyggst Sir Edmund gera út leið-
angur þangað næsta haust, fáist
lcyfið. Einnig er hann að reyna
að fá leyfi til þess að opna lítið
sjúkraskýli í þorpinu Khunda í
nágrenni Everest fyrir leiðsögu-
menn fjallamanna — hina svo-
nefndu Sherpa. Gerir hann ráð
fyrir byggingu sex rúma skýlis.
• Stjórnin í Nepal hefur tekið
fyrir fjallgöngu leiðangra á
þeirri forsendu, að hún hafi ekki
bolmagn til þess að tryggja nauð
synlegar vistir og samgöngur í
fjallahéruðunum.
Hfavinekla
á Eyrarbakka
SUÐVESTAN átt og foráttu
hrim hefur verið hér undanfarna
daga. Tveir bátar liggja nú hér
í höfninni og komast ekki á sjó
vegna brimsins, og hinir tverr,
sem héðan eru gerðir út eru í
Þorlákshöfn.
Eftir helgina er vonazt til að
fimmti báturinn bætist við flot-
ann hér, og er það v.b. Fjalar,
40 tonna bátur, keyptur frá Vest-
hingað 18-20 Færeyingar, sem
vinna munu að verkun fisksins.
— Óskar.
Fjárveiting til
Vietnam
Washington, 22. marz (NTB)
ÖLDUNGADEILD Bandarikja-
þings samþykkti í dag með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða 13
milljarða dollara fjárveitingu til
styrjaldarrékstursins í Víetnam.
Mun stærsti hluti fjárveitingar
þessarar renna til þess að fjölga
í bandaríska liðinu í Víetnam,
til aukinna vopnakaupa og fleiri
herstöðva.
Verulegum hluta verður þó
varið til efnahagsaðstoðar, að
mestiu í Víetnam, en einnig að
nokkru annars staðar í Asíu og
í S-Ameríku.
Öldungadeildin samþykfkti fjár
veitinguna með 7 atkvæðum gegn
tvéimur. Þeir, sem atkv. greiddu
á móti, voru demókratarnir
Wayne Morse og Ernest Gruen-
ing.
Fulltrúadeildin samþykkti
fjárveitinguna fyrir viku með
387 atkvæðum gegn þremur.
komu ekki af ótta við að um
ögrar.ir væri að ræða.
Mótmælaaðgerðir þessar áttu
að fara fram 5. marz en ekkert
varð af því. Fjöldi óein-
kennisklæddra lögreglumanna og
manna úr öryggislögreglunni var
þó þar á verði og^ tóku þeir
fólkið höndum.
— Erhard
Framhald af bls 1
Indlands og Pakistan, sem dæmi
um þetta.
Lágvært muldur frá hinum
furðu lostnu áheyrendum voru
einu viðbrögðin við þessum um-
mælum hins níræða Adenauers.
Mikið lófatak kvað hinsvegar
við í dag, er Erhard kanzlari
skoraði á Sovétríkin að láta
friðarvilja sinn í Kasmírdeilunni
einnig ná til Þýzkalands og ann-
arra Evrópulanda.
Erhard og Adenauer hafa jafn-
an verið andstæðingar, og var
Adenauer mjög andsnúinn því að
Erhard yrði eftirmaður' hans í
kanzlaraembættinu.
Erhard sagði í ræðu sinni í
dag, að vissulega bæri að bera
virðingu fyrir því, sem sovézku
leiðtogarnir hefðu fengið áorkað
í Tashkent. „En málamiðlunar-
tilraunirnar grundvallast fyrst
og fremst á hagsraunum Sovét-
ríkjanna í sambandi við varnir
þeirra gegn Kínverska alþýðu-
lýðveldinu", sagði hann.
Þá skoraði Erhard á Sovétrík-
in að sýna friðarvilja sinn í
verki með því að stuðla að því
að endi verði bundinn á skipt-
ingu Þýzkalands, og að leggja
niður valdbeitingu eða nótanir
um valdbeitingu gegn Þýzka-
landi.
— Stórhrið
Framhald af bls. 28
ferðir á togveiðar og fengið 70
tonn á 12 dögum. — Jakob.
Siglufirði, 22. marz —
HÉR ER NA hríð og mikil fann-
koma og allhvasst. Mikill ófærð
er á götum bæjarins. Drangur
átti að koma hingað í dag en
sneri við inn á Eyjafirði til Ak-
ureyrar aftur. — Stefán.
Sauðárkróki, 22. marz: —
ÓVEÐRIÐ hefir verið svo glóru
laust hér í dag að gersamlega
hefir verið ófært til og frá bæn-
um nú síðari hluta dagsins. Hér
stendur yfir sæluvika og átti
söngflokkur að koma framan úr
Blönduhlíð og skemmta hér í
kvöld, en hann gat ekki komið.
Hér verður leiksýning í kvöld,
en allt er óvíst um framhald
sæluvikunnar ef veður helzt svo
slæmt. — Jón.
- Prins
Framhald af bls. 28
söfnuðust um 95 þúsund doll-
arar, til hjálpar fátækum og
fötluðum börnum í umhverfi
Toronto. Þá kom prinsinn til
Ottawa og úthlutaði verð-
launum úr sjóði þeim, er við
hann er kenndur, en þau eru
veitt drengjum, sem skara
fram úr í íþróttum, frístunda-
störfum og útilífi.
Prinsinn heldur frá Goose
Bay að morgni fimmtudags og
kemur við í Syðra-Straumi á
Grænlandi og mun fiugvél
hans taka þar eldsneyti, en
fljúga síðan hingað til íslands.
Flugvél hans, sem er úr kon-
unglega flughernum, er vænt-
anleg hingað á fimmtudags-
kvöld kl. 18.30. Héðan heldur
prinsinn á föstudagsmorgun
til Bretlands. Hann er hér í
einkaerindum, en mun sitja
miðdegisverðarboð forsætis-
ráðherra hér og búa í ráð-
herrabústaðnum.