Morgunblaðið - 01.04.1966, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fðstudagur 1. api‘Tl 1966
Ýmsar blikur á lofti varðandi
skreiðarsölu til Nígeríu
Rætt við Braga Eiríksson, framkvæmda-
stjóra Samlags skreiðarframleiðenda
MORGUNBLAÐIÐ hefur snúið
sér til Braga Eiríkssonar, fram-
kvæmdastjóra Samlags skreiðar
framleiðenda, og beðið hann að
segja frá sölu skreiðar á síðast-
liðnu ári. — Bragi sagði:
— Alls keyptu 10 þjóðir skreið
frá íslandi árið 1965. Þær eru
Nígería, Ítalía, Kameroon, Banda
ríkin, Ástralía, Holland, Bret-
land, Grikkland, Færeyjar og
Kanada.
— Mest keyptu Nígería og ftal
ía og því næst Bretland og Kam
. eroon, en magnið, sem selt var
til hinna þjóðanna var óveru-
legt.
— Við höfum ennþá getað selt
til Nígeríu allar skreiðartegund-
ir, sem við framleiðum, en skreið
in er framleidd úr þorski, ýsu,
keilu og löngu. Við höfum meira
að segja getað selt herta þorsk-
hausa til Nígeríu.
— Til Ítalíu er hins vegar ein-
göngu seld skreið úr þorski og
hafa allar tilraunir til að selja
þangað aðrar tegundir orðið ár-
angurslausar.
— ítalir greiða hærra verð fyr
ir skreið en Nígeríumenn, enda
eru gæði Ítalíuskreiðarinnar
meiri og gildir þar um strangara
gæðamat.
— Mikil aukning hefur orðið
á sölunni til Ítalíu á sl. 5 árum.
Árið 1961 voru seld þangað 428
tonn, árið 1962 1092 tonn, árið
1963 2.850 tonn, árið 1964 3.355
tonn og árið 1965 um það bil
3.400 tonn.
— Um tíma mátti svo heita,
að Norðmenn væru einráðir á
skreiðarmarkaðinum á Ítalíu. —
Hlutur íslands var t.d. aðeins
3,6% af heildarinnflutningi á
skreið árið 1961, en var orðinn
45,4% árið 1964. Hlutfallið hefur
líklega orðið svipað á sl. ári, en
endanlegar tölur liggja ekki fyrir
um það ennþá. Eftirspurn er nú
orðin meiri en unnt er að anna.
— Á þessum tíma hefur flutn
ingur til Nígeríu minnkað og
eru ástæðurnar auknar sölur til
205 þús. torr.a
olíuflutningaskip
JAPANSKA skipasmíðastöð-
in Ishikavajima-Harima hef-
ur gert samning við japanska
olíufélagið Idemitsu Kosan
Kaisha um smíði 205 þúsund
tonna olíuflutningaskips.
Skipið á að vera tilbúið til
sjósetningar í ágústmánuði á
næsta ár og á að afhendast
eigendum þrem mánuðum
síðar.
Það mun kosta yfir 600
milljónir íslenzkra króna að
smíða þetta risaskip.
Ítalíu og minnkandi framleiðsla
eins og varð hjá okkur 1965.
— Sé litið á útflutping fslend
inga og Norðmanna til Nígeríu
sl. 4 til 5 ár kemur í ljós, að
skreiðarkaup Nígeríumanna
hafa minnkað mjög.
— Helztu ástæður fyrir þeirri
þróun eru þessar:
1. Nígeríumenn hafa aukið eigin
fiskveiðar.
2. Erlend veiðiskip hafa fengið
leyfi til landana á nýjum fiski
í höfnum í Nígeríu og ber mest
á japönskum og rússneskum
skipum. Síðastliðin 2 til 3 ár
hafa þessar landanir á nýjum
fiski aukizt úr 500 tonnum í
30000 tonn.
3. Kæligeymslur og frystihús
hafa verið sett á stofn í helztu
hafnarborgum Nígeríu.
4. Neyzla á nýjum fiski, kældum
og frystum fer stöðugt vax-
andi.
— Það er því óhætt að segja,
að ýmsar blikur eru á lofti varð
andi sölu á skreið til Nígeríu.
Þar var gerð stjórnarbylting í
janúarmánuði og truflaðist við-
skiptalífið um tíma, en er nú
komið í eðlilegt horf .
— Það hefir heyrzt,- að inn-
flutningshöft kunni að verða
sett á skreið í Nígeriu, en sá
orðrómur er eldri en byltingin.
Þess má geta, að Nígeríustjórn
setti innflutningsbann á allar
vörur frá Japan vegna þess að
verzlunarjöfnuðurinn var óhag-
stæður fyrir Nígeríu.
— Til nóvemberloka á sl. ári
flutti ísland út skreið til Nígeríu
fyrir 220 milljónir króna, en
flutti inn þaðan vörur fyrir að-
eins 124 þúsund krónur.
— Af þessu má vera ljóst, að
nauðsyn ber til að þessi mark-
aðsmál séu athuguð til hlítar.
Það er enn ekki ljóst t. d., hver
áhrif hinn aukni innflutningur
Nígeríumanna á frystum og
kældum fiski hefur á skreiðar-
markaðinn.
Norski skuttogarinn Ole Sætremyr. Ljósm.: Knut Höyer, Álasundi.
Flökin til Englands
saltfiskur til Noregs
NORSMENN hafa nú eignazt
annan verksmiðjutogara sinn.
Hann heitir Ole Sætremyr og er
499 tonn að stærð, byggður hjá
A. M. Liaaen í Álasundi.
Þetta er einn af hinum svo-
nefndu skuttogurum og verður
áhöfnin 38 manns, þar af vinna
28 við veiðarnar og að verkun
aflans.
Ole Sætremyr kostaði um 30
milljónir íslenzkra króna.
Togarinn er nú á leið til veiða
við Grænland. Hraðfrystum
flökum verður landað í Englandi,
en fiskurinn, sem saltaður verð-
ur um borð, verður fluttur til
Noregs.
— Mér dettur í hug í fljótu
bragði, að ísland geti aukið inn-
flutning sinn á timbri frá Ní-
geríu, sérstaklega harðviði, og
þaðan má einnig kaupa alls kon
ar krydd. Þá er Nígería einnig
orðin stór útflytjandi á olíum.
— Ég vil hvetja alla aðila að
vera vel á verði, því fslending-
um er nauðsyn að halda Nígeríu-
markaðinum eins lengi og unnt
er. Um 60—75% af skreiðar-
framleiðslunni verður að selja til
Nígeríu. í því sambandi vil ég
minna á, þann tíma vetrarver-
tíðar, sem mestur afli berst á
land, eru engin tök á að frysta
hann allan eða salta.
Bragi Eiríksson
Aflinn til nóvember-
ioka rúml. 1,1 millj. tonn
— þar af var síld nærri 700 þúsund tonn
HEILDARAFLINN til nóvember
loka á sl. ári var 1.115.429 tonn,
en var 932.191 tonn á sama tíma
bili 1964. Er hér miðað við fisk
upp úr sjó.
Ráðstöfun aflans til nóvember
loka á sl. ári var þannig:
Síld, ísuð, 1.383 tonn, annar
fiskur, ísaður 32.714 tonn, fiskur
til frystingar 180.051 tonn, fisk-
ur til herzlu 53.226 tonn, fiskur
til niðursuðu 809 tonn, fiskur til
söltunar 86.394 tonn, síld til sölt-
unar 58.372 tonn, síld til fryst-
ingar (þ. á. m. til beitu) 24.994
tonn, síld í verksmiðjur 656.452
tonn, annar fiskur í verksmiðjur
2.938 tonn, krabbadýr til fryst-
ingar 3.831 tonn, krabbadýr til
niðursuðu 233 tonn, annað 14.032
tonn.
Fiskaflinn á fyrrgreindu tíma-
bili skiptist þannig 1 tegundir:
Skarkoli 7.023 tonn, þykkval-
úra 769 tonn, langlúra 421 tonn,
stórkjafta 227 tonn, sandkoli 68
tonn, lúða 932 tonn, skata 314
tonn, þorskur 236.629 tonn, ýsa
50.532 tonn, langa 4.923 tonn,
steinbítur 7.527 tonn, karfi, 29.011
tonn, ufsi 24.918 tonn, keila
2.065 tonn, síld 692.367 tonn,
loðna 49.612 tonn, rækja 893
tonn, humar 3.172 tonn og ósund-
urliðað 3.976 tonn.
Aflabrögð togar-
anna ennþá léleg
— eru þó skárri en fyrst eftir
áramót og á st. hausti
'REMUR léleg aflabrögð hafa
verið hjá íslenzku togurunum
undanfarnar vikur, en þeir hafa
að mestu verið að veiðum út af
Jökli. Aflinn er þó skárri en í
haust og fyrst eftir áramótin,
en þá var næstum um ördeyðu
að ræða.
Einstaka togarar hafa gert ti'l-
raun til veiða við Austur-Græn-
land, en hafa alltaf orðið að
snúa við fljótlega vegna íss og
slæmra veðra.
Mikið af afla togaranna, sem
þeir hafa fengið út af Jökli og
Breiðafirði, hefur verið karfi og
fara þeir flestir með hann til
Þýzkalands.
Á leið þangað eru núna t.d.
Þorkell máni og Sigurður með
160—170 tonn hvor og Víkingur,
sem er með nálægt 230 tonn,
en hann var einn þeirra, sem
leitaði fyrir sér á Græníands-
miðum og fékk þar einhvern
reyting.
Fáir togarar hafa landað afla
sínum heima að undanförnu, en
þó landaði Marz um 160 tonnum
í Reykjavík í gær. Nokkrir tog-
arar hafa verið í Reykjavíkur-
höfn við lestarhreinsun og lag-
færingar.
I