Morgunblaðið - 15.04.1966, Page 3
iVótuðagur 15. apríl 1966
MORGUNBLAÐIÐ
3
en málararnir eru: Eiríkur
Smith, Valtýr Pétursson, Jón
Engilberts, Hafsteinn Austmann,
Jóhannes Kjarval, Jóhannes Jó-
hannesson, Benedikt Gunnars-
son, Kjartan Guðjónsson, Svav-
ar Guðnason og Jóhann Briem.
Á 'hver listamaður frá þremur og
upp í fimm myndir á sýning-
unni, en flestar myndir, eða
fimm talsins, á Svavar Guðna-
son. Myndhöggvararnir fimm,
er á sýningunni sýna eru: Sig-
urjón Ólafsson, Guðmundur
Benediktsson, Jón Benediktsson,
Jóhann Eyfells og Ólöf Pálsdótt-
ir, og sýna þau eina höggmynd
hvert.
X sýningarnefndinni Islenzku
eiga sæti: Jóhannes Jóhannesson,
Sigurður Sigurðsson og Eirikur
Smith, svo og Sigurjón Ólafs-
son og Guðmundur Benedikts-
son fyrir höggmyndarana. Jó-
hannes Jóhannesson er formað-
ur sýningarnefndarinnar.
Tfc- Næstu daga verður unnið
að því hér að pakka niður 35
málverkum og fimm höggmynd-
um 15 íslenzkra myndlista-
manna, en síðan verða listaverk-
in flutt áleiðis til Hannover í
Þýzkalandi, þar sem þau verða
sett á sýningu ásamt listaverkum
frá hinum Norðurlöndunum.
Á I>að er Norræna listbanda-
lagið sem stendur að þessari
sýningu í Hannover, en
þetta er í annað skipti sem slík
eýning er haldin utan Norður-
landanna, að því er Valtýr Pét-
ursson fulltrúi Félags isl. mynd-
listamanna í Norræna lista-
bandalaginu, tjáði fréttamönnum
í gær. Fyrra skiptið var í Róm
1956.
★ Það er félagsskapurinn
Kunstverein í Hannover, sem
býður til þessarar sýningar, en
félagið hefur yfir að ráða mjög
glæsilegum sýningarsal, og hefur
haldið þar margar veglegar sýn-
ingar. Sýningin fer, eins og áð-
ur segir, fyrst til Hannover, og
verður opnuð þar 26. júní n.k.
og stendur til 31. júlí, en fer þá
til Vestur-Berlínar. í>aðan fer
hún til Stuttgart og til Frank-
furt am Main, og sömuleiðis til
Essen, þ.e.a.s. ef timi vinnst til,
en ráðgert er að sýningin verði
sex mánuði í Þýzkalandi.
ísland fær nákvæmlega jafn-
mikið rúm á þessari sýningu, og
hinar Norðurlandaþjóðirnar, en
á henni verða málverkin ekki
hengd upp með tilliti til landa,
heldur dreift af handahófi. Um
uppsetningu myndanna sjá
danskur listamaður og sænskur.
Mjög vönduð sýningarskrá verð-
ur gefin út í tilefni sýningarinn-
ar og verða í henni átta svart-
hvítar myndir af málverkum og
ein litmynd. Auk þess verður
stuttur formáli frá hverju landi,
og stutt æviágrip hvers lista-
manns.
Jóhannes Jóhannesson t.v. og V altýr Petursson halda a einm
myndinni, sem fer á sýninguna, en hún er eftir Jón Engilberts.
I
Þrjár þeirra mynda Svavars Gu ðnasonar, er verða á sýningunni.
Þýzkalandi
Eins og áður segir verða 35
málverk eftir tíu málara á þess-
ari sýningu héðan frá íslandi,
Norræn samsýning
A henni verða 40 listaverk eftix
15 íslenzka myndlistameim
Formaður Iðnsýningarnefndar, Bjarni Björnsson, afhendir
Kristínu Þprkelsdóttur verðla unin.
Merki Idnsýningar-
innar 1966 ákveðið
SÝNINGARNEFND Iðnsýning-
arinnar 1966, sem haldin verður
í september í Sýningar- og
íþróttahöllinni í Reykjavík, efndi
til samkeppni um hugiuynd að
merki sýningarinnar og var það
auglýst þann 6. marz sl.
í skilmálum samkeppninnar
var sagt, að merkið yrði notað
sem tákn sýningarinnar og það
þyrfti að vera unnt að gera af
því prjónmerki. Frestur til að
skila hugmyndum rann út 20.
marz.
14 aðilar tóku þátt í samkeppn
inni og skiluðu þeir alls 26 úr-
lausnum.
Ein verðlaun voru veitt, að
upphæð 10 þúsund krónur, og
hlaut þau frú Kristín Þorkels-
dóttir, teiknari, Lindarhvammi
13, Kópavogi.
Dómnefnd skipuðu sýningar-
nefndin og fulltrúi tilnefndur af
Félagi íslenzkra teiknara.
Fulltrúi F.Í.T. var tilnefndur
Ástmar Ólafsson, en í sýningar-
nefnd eiga sæti Bjarni Björns-
son, formaður, Björgvin' Fred-
eriksen, Davíð Sch. Thorsteins-
son og Þórir Jónsson.
Merki Iðnsýningarinnar 1966
Sæluvikunni
lýkur um
helgina
SÆLUVIKA Skagfirðinga
stendur yfir þessa viku, en
henni var á sínum tíma frestað
vegna veðurs. Margt er þar á
dagskrá til skemmtunar, leik-
sýningar, kvikmyndasýningar,
söngur og dansleikir.
í dag, föstudag verður kvik-
myndasýning í Sauðárkróksbíói
kl. 13.30. Verkakvennafélagið
Aldan sýnir gamanleikinn
Grænu lyftuna kl. 15.30. Leik-
stjóri er Ragnhildur Steingríms-
dóttir, höfundur Avery Hopwood
og þýðinguna gerði Sverrir
Thoroddsen. Kl. 16.00 er söng-
skemmtun hjá Karlakór Sauðár-
króks og í kvöld kl. 20 sýnir
Leikfélag Sauðárkróks Skál-
holt eftir Guðmund Kamban í
þýðingu Vilhjálms Þ. Gíslason-
ar, leikstjóri Kári Jónsson,
Ragnheiði leikur Halla Jónas-
dóttir og Brynjólf biskup Kári
Jónsson. Kl, 23.00 hefst svo
dansleikur.
Á laugardag verður kvik-
myndasýning kl. 13, leiksýning
á Grænu lyftunni kl. 16.00,
kvikmyndasýning kl. 17.30,
leiksýning á Skálholti kl. 20.00
og dansleikur kl. 23.00. Og á
sunnudag eru kvikmyndasýning
ar kl. 15.00 og kl. 17.00. Græna
lyftan er sýnd kl. 20.00 og loka-
dansleikur hefst kl. 20.30.
Barnakerra
hverfur
SÍÐASTLIÐIÐ þriðjudagskvöld
hvarf barnakerra frá Lindar-
götu 63. Hún er með tjaldi, sem
unnt er að leggja niður, og er
mosagræn að lit. Rósóttur púði
var í kerrunni.
Finnandi er beðinn að skila
kerrunni að Lindargötu 63 eða
láta rannsóknarlögregluna vita
um hvar hún er niður komin.
Skiluðu bítla-
myndunum aftur
í GÆR var skýrt frá því í blað-
inu, að um páskana hefðu horfið
stórar myndir af tveimur af
bítlunum í Hljómum úr sýning-
arkassa ljósmyndastofu Kalda'ls
við Laugaveg.
Eftir að sagt var frá þessu í
Morguhblaðinu komu tvær 15
ára stúlkur með myndirnar til
lögreglunnar og skiluðu þeim
aftur. Þær hafa ekki staðizt
freistinguna að fá að (hafa mynd-
ir af átrúnðargoðunum heima,
en sáu sig um hönd og skiluðu
þeim aftur.
Aðolhindur
Skdksombonds
íslnnds
Guðm. Arason form.
AÐALFUNDUR Skáksambands
íslands var haldinn 7. april í
Hábæ. Kjörinn var forseti sam-
bandsins, Guðmundur Arason,
framkvæmdastjóri úr Taflfélagi
Reykjavíkur. Aðrir í stjórn
voru kosnir: Jón Ingimarsson
frá Taflfélagi Akureyrar, Hjálm
ar Þorsteinsson frá Taflfélagi
Akraness, Guðbjartur Guð-
mundsson frá Taflfélagi Hreyf-
ils og Guðmundur Pálmason frá
Taflfélagi Reýkjavíkur. Til
vara voru kosnir: Páll G. Jóns-
son, Taflfélagi Reykjavíkur;
Guðmundur G. Þórarinsson,
Taflfélagi Reykjavíkur og Helgi
Jónsson frá Taflfélagi Akureyr-
ar. HBinn nýkjörni forseti og
fundarmenn allir þökkuðu frá-
farandi stjórn, þeim Ásgeiri
Þór Ásgeirssyni, Baldri Pálma-
syni, Þorvaldi Jóhannessyni,
Eiði Gunnarssyni og Gísla ís-
leifssyni góð störf x þágu skák-
hreyfingarinnar. . -
staksthmr!
: i
Ihaldsmenn í Moskvu
Bandaríska stórblaðið New
York Times birti sáðastliðinn
þriðjudag forystugrein um 23.
flokksþing sovézka kommúnista-
flokksins og segir þar:
„23. þing sovézka kommúnista
flokksins var aukin sönnun þess,
að Sovétríkin eru orðin eitt
hinna íhaldssömu stórvelda
heims, sem hafa mun meiri á-
huga á jafnvægi og öryggi í al-
þjóðlegum stjórnmálum, sem
þau þarfnast til þess að efla efna
hagsþróunina innanlands, heldur
en byltingarævintýrum úti í
heimi. Sendimaður Kúbu á
Moskvu-fundinum lærði þessa
lexíu þegar hann í ræðu sinni á
þinginu hvatti kommúnistalönd-
in til þess að ráðast gegn banda->
rískum flugvélum, sem varpa
sprengjum á Norður-Vietnam.
Þeim tilmælum var tekið með
þögninni einni eða óánægjuköll-
um, samkvæmt því sem fundar-
menn segja. Hins vegar eru memn
á einu máli um, að Kosygin,
forsætisráðherra hlaut emdurtek-
ið lófatak þegar hann skýrði frá
nýju 5 ára áætluninni um hærri
laun og lífeyri, lægra verð á
neyzluvörum og bættri heilbrigð
isþjónustu við hina sovézku borg
ara“.
Sigur Moskvu
yfir Peking
Þeir, sem skipulögð'u þetta
flokksþing unnu sinin mesta sig-
ur með því að fá fulltrúa allra
nema fjögurra helztu kommún-
istaflokka heims til þess að koma
til flokksþingsins, og ennfremur
í hrósyrðum fulltrúa Norðux-
Vietnam um Moskvu. Flokkam-
ir sem komu til Moskvu ögruðu
Peking, en það þýðir ekki að
þeir lúti sovézkri stjórn. Þvert
á móti komu þeir vegna þess,
að Kreml hafði áður viðurkengt
rétt hinma einstöku kommúnasta
flokka til sjálfstæðra skoðana í
meiriháttar málum. /
Óeining í sovézka
kommúnistaflokknum
Þeim tókst hins vegar ekki að
leyna því, að óeining ríkir í
sovézka kommúnistaflokknum,
þótt henni væri ekki leyft að
koma fram á yfirborðið í þýð-
ingarmestu málum. Ágreiningur
inn milli þeirra, sem líta með
söknuöi til Stalintímabilsins, og
hinina, sem eru óþolinmóðir eftir
að koma á frekari breytingum
í efnahagskerfi og þjóðlífi Sovét
ríkjanna, var greinilegur í ræð-
um fulltrúa, og þessum ágrein-
ingi í valdamestu stofnun flokks-
ins og Sovétríkjanina varð ekki
leynt. Bráðlega mun þvi reyna
á, hversu varanlegt það sam-
komulag er, sem náðist til þess
að koma í veg fyrir opinberan
klofning á þinginu.
Skynsamleg tillaga?
Alþ.bl. segir í forustugrein í
gær: Sú var tiðin að jafnaðar-
menn lögðu eindregið til, að aHt
land skyldi vera rikiseign.
Myndu bændur þá fá jarðir
leigðar fyrir vægt verð en þyrftu
ekki að strita við það árum sam-
an að kaupa sér jarðnæði. Þá
væri úr sögunni aðstöðumunur-
inn milli sonar ríka bóndans, sem
fær jörð í arf og hins fátæka.
Þá gætu auðmeim í bæjum ekki
átt jarðir og látið leiguliða sitja
þær.“
Alþ.bl. segir siðan að þessi W-
laga sé ,„skynsamleg“. Ja, margt
er skrítið í kýrhausunum.