Morgunblaðið - 15.04.1966, Síða 21

Morgunblaðið - 15.04.1966, Síða 21
Fostudagur 15. apríl 1966 MORGUHBLAÐIÐ 21 I Björn Þorgrí msson MinnSn ÞRIÐJUDAGININ 5. apríl sl. and aðist að heimili sínu Grettisgötu 67 Björn Þorgrímsson nær 80 ára að aldri. Má segja að marg- ur hafi orðið að hlýða þeim dómi yngri að árum. Hann var fæddur að Borgum, Nesjahreppi í Hornafirði hinn 15. sept. 1886 sonur myndar og merkishjónanna Þorgríms Þórð- arsonar læknis og konu hans Jó- Ihönnu Dúðvígsdóttur Knudsen. Þar ólst hann upp í hópi góðra og glaðra systkina við leik, störf og nám. Mannmargt var ó æskuheimilinu, glaðværð mik- il en þó hófsemi því foreldrarn'ir voru reglu- og búsýslufólk, gædd íhöfðingslund og gestrisni. í fjallafaðmi.iþessarar fögru og 6tórbrotnu sveitar mótaðist hug- arfar hans og tengdist hann slík- um tryggðaböndum bæði hérað- inu og fólkinu, sem það byggði að með fádæmum var. Alla æv- ina meðan heilsan leyfði var hann vakinn og sofinn í að greiða götu sinna gömlu sveit- unga og lagði oft hart að sér við það, án þess að nokkur gæti orð- ið annars var en hann gerði slákt í eigin þágu. Títt var að Horn- firðingar, eins og aðrir lands- menn, leituðu sjúkra'hússvistar í Reykjavík. Var sem Bjöm hefði sagnaranda þegar þeir áttu í hlut, svo fljótur var hann að hafa upp á þeim og þrávitja (þeirra og stytta þeim stundir í erfiðum kringumstæðum. Öll framkoma hans við fornvini og afkomendur þeirra var slík, að hann mátti teljast ólaunaður „amibassadör“ Hornfirðinga. Mátu þeir hann mikils og órjúf- andi vinátta var milli margra Iþeirra og hans og heimiMs hans. Ég 'hef engum kynnzt sem jafn- oft beindi huga og tali að horfn um æskuslóðum og vinum, og sem samhMða glæddi frásögnina slíkri heiðríkju að unun var. Skopleg atvik gátu oft dregizt inn í myndina og var þá ekki verið að fegra sjálfan sig fyrir áheyrendum. Árið 1905 flytzt hann með for eldrum sínum og fjölskyldu Iþeirra til Keflavíkur eftir að föður hans var veitt Keflavíkur læknishérað. Brottflutningur barna þeirra læknishjónanna frá fæðingar- og œskuslóðum mun á þeim tíma ekki hafa verið þeim neitt sér- stakt fagnaðarefni, þótt þau fljót lega tileinkuðu sér hið breytta umhverfi og eignuðust þar góða vini og iélaga. Birni var þannig skapi farið þótt trölltryggur væri fornum vinum, að hann átti gott með að umgangast fólk almennt og gætti oft í tali hans sMks létt- leika og gamansemi, að lítt kunn ugir áttuðu sig ekki í fyrstu, en við nánari kynni fundu þeir fljótt góðvilja manns með ást á náttúrunni og því sem í henni lifir og hrærist. Eftir komuna til Keflavíkur starfaði hann við verzlunarstörf, lengst við Edinborgarverzlun, sem Ólafur V. Ófeigsson, síðar lengi kaupmaður í Keflavík, veitti þá forstöðu. Mat hann Ólaf og heimili hans og minntist dvalarinnar þar með ánægju. Um tíma starfrækti hann eigin verzl un. Hún blómstraði ekki og mætti segja mér, að á þeim tím um almennrar fátæktar hafi hann átt óhægt með að láta fá- taeka og lítt megandi ganga bón leiða til búðar, því annað var honum betur gefið og hirti þá sennilega ekki eins og skyldi um eiginn hag. Árið 1911 fer hann til verzlun arnáms til Kaupmannahafnar. Hverfur heim aftur árið 1912 og giftist í júlí það ár unnustu sinni Mörtu Valgerði Jónsdóttur ætt- aðri úr Rangárvallasýslu en þá búsett með ágætum foreldrum í Keflavík. Hún mikil greind- ar og myndarkona og vel þekkt fyrir ritstörf o.fl. — Fluttust ungu hjónin þá þegar til Ákur- garorð eyrar. Starfaði Björn um eins árs skeið við kaupfélag Eyfirð- inga. Eignuðust þau hjón þar góða vini og kunningja eins og annars staðar, sem þau hafa dvalið. Frá Akureyri fluttu þau aftur til Keflavíkur, þar sem Björn starfaði lengst af við Duus verzlun. Á þeim árum brá hann sér oft á sjó til fisk- og fuglaveiða. Var hann á þeim ár- um veiðikló hin mesta og naut tilbreytingar í faðmi frjálsrar náttúru, að dagsverki loknu. Árið 1919 bregða þau hjón á nýtt ráð og flytja til Reykja- víkur, þar sem Björn gerist starfs maður hjá Páli Stefánssyni frá Þverá. Starfaði hann hjá honum, sem Páls önnur hönd og fulltrúi hans þar til Páll seldi starfsemi sína Sigfúsi Bjarnasyni, stórkaup manni. Hjá Sigfúsi starfaði hann síðan meðan stætt var og lengur 'þó, að margra dómi. Á seinni starfsárum hans hjá Páli Stefáns syni hrakaði sjón hans mjög og varð hann blindur á öðru auga og dapraðist sjón á hinu. Vann þó áfram hjá Sigfúsi nokkur ár. Sálarstyrkur hans var mikill og vildi hann ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Reyndist Sig- fús ihonum frábær húsbóndi, ör- látur og hjálpfús og lét honum í té verkefni lengur en eðMlegt mátti teljast. Mátu þau hjón Marta og Björn höfðingsskap Sigfúsar og konu hans mikils og er mér fyrir þeirra hönd óhætt að færa þeim beztu þakkir. 1 stórum dráttum er þetta ytri rammi starfs þessa góða drengs. Hvar sem hann starfaði var hann heill og óskiptur í starfi og vann af skyldurækni að heill þeirra, sem hann vann fyrir hverju sinni. Heimili þeirra hjóna var sá reitur, sem hann unni mest, enda í sameiningu byggt upp af hátt- vísi og myndarskap. Þar var alla tíð gestkvæmt og var þeim báð- um og sitt í hvoru lagi mjög eiginlegt að láta fólki ekki leið- ast í návist sinni. Bæði vel lesin, greind og minmxg á ættir og at- burði úr persónusögu manna og annan fróðleik. Björn var tungu- málamaður góður. Auk norður- landamála, ensku og þýzku, var hann frönskumaður svo að hann skrifaði kunningja sínum frönsk- um á því máli, eftir að hann var blindur orðinn. Notaði hann ritvél til þeirra skrifta. Björn var maður fríður sýnum með höfðinglegt yfirbragð. Hraustur meiri hluta ævinnar. Fyrir nokkrum árum veiktist hann þó all hastarlega og dvaldi á sjúkrahúsum og árið 1963 var honum vart hugað líf. Samt fór svo að hann náði sér furðu vel og hafði fótavist allt til hins síðasta. Gestir sem áframhaldandi voru margir á heimili þeirra hjóna, nutu návistar og æðru- leysis hans, sem þrátt fyrir 12 ára setu í algjöru myrkri stráði um sig birtu og lét ekki æðru- orð falla um hlutskipti sitt. Þvert á móti taldi hann byrði sína létta, móti því sem margur bæri, sem aldrei hefði séð dagsins Ijós, en þó lifað langa ævi. í 68 ár hefði sér hlotnast sýn og lit- brigði, sem nú birtust í Ijúfum draumum, enda var minnið óvenju trútt og gott. HeimilisMf þeirra hjóna var með ágætum og unun að sjá hve Marta var manni sínum góður förunautur þessi síðustu og erf- iðu ár. Heilsa hennar hafði ekki verð traust fyrr hluta hjúskapar þeirra. Reyndist Björn henni þá góður og eftirlátur og gat hún nú endurgoldið það, þar sem heilsa hennar fór batnandi með aldrinum. Þeim hjónum varð ekki barna auðið, en kjördóttir þeirra, Anna Sigríður, bróðurdóttir Björns reyndist þeim sem sönn dóttir. Ast þeirra og umhyggja fyrir henni, manni hennar, Ólafi Páls syni verkfræðingi og börnum iþeirra var aðdáanleg. Aðra bróðurdóttur Björns, Jó hönnu ólu þau og upp. Hún er búsett í Reykjavík. Ég hef orðið nokkuð langorð- ur í þessum minningarorðum, en þó fáorðari en ég hefði viljað, því Björn Þorgrímsson var um marga hluti óvenjulegur persónu leiki. Frændrækinn, hjálpsamur, góðviljaður og glaðvær. Barn- góður og laus við að gera sér mannamun. í fáum orðum sagt, hrekklaus mannkostamaður, sem æðrulaus beið þess, sem koma skyldi og fékk rólegt and- lát í návist sinna nánustu. Konu hans, dóttur, tengda- syni, dótturbörnum og öðrum ættingjum vottum við hjón inni- legustu samúð. Ég sem þessar línur rita og átti því láni að fagna að alast upp hjá foreldrum Björns og með honum og systkinum hans sendi honum bróðurlegar kveðjur um leið og ég heiðra allar bjartar minningar, sem tengdar eru liðn um stundum. Þ. St. E. Matráðskona Óskast að dagheimili Kópavogs við Hábraut frá 1. maí nk. — Umsóknir berist forstöðukonu heimil- isins, Guðrúnu Erlu Björgvinsdóttur, fyrir 21. þ.m. Forstöðukonan veitir allar nánari upplýsingar um starfið og er til viðtals í dagheimilinu virka daga milli kl. 10 og 12 f.h. Skrifstofumaður Maður vanur almennri skrifstofuvinnu óskast strax. Upplýsingar á skrifstofu vorri, Suðurlandsbraut 32. Efrafall Rognheiður Jóseps- dóttir — Minning Fædd: 15. apríl 1889. Dáin: 8. apríl 1966. ÞANN 8. apríl sl. andaðist að heimili sínu, Hlíð í Garðahreppi, Ragnheiður Margrét Jósepsdótt- ir, og verður hún til moldar bor in í dag á fæðingardegi sínum, en hún hefði orðið 77 ára í dag. Ragnheiður var fædd 15. apríl 1889 á Hörgshóli í Vestur-Húna- vatnssýslu, dóttir Jóseps Gunn- laugssonar og fyrri konu hans, Kristínar Eggertsdóttur. Ung missti hún móður sína og var þá tekin í fóstur af hjónunum, Guð- jóni Sigurðssyni og Jósefínu Jós- epsdóttur. Er hún var um 12 ára aldur, flutti hún með þeim suð- ur í Hraun í Garðahreppi og ólst þar upp hjá þeim á bænúm Ótt- arsstöðum. Einn vetur stundaði hún nám við Flensborgarskóla. Árið 1916 giftist hún eftirlifandi manni sínum, Gísla Guðjónssyni, sem einnig var uppalinn í Hraunun- um. Ungu hjónin hófu búskap sinn að Straumi í Hraunum, en bjuggu þar aðeins tvö ár. Þá fluttu þau til Krísuvíkur, þar sem þau bjuggu í eitt ár. Árið 1919 fluttust þau að Hlíð í Garða hreppi og bjuggu þar allan sinn búskap eftir það. Fyrst í tvíbýli, en tóku fljótlega við allri jörð- inni, þegar sambýlingar þeirra fluttu burt. í Hlíð reistu þau sér snoturt bú, sem með ái'unum óx í starf- sömum höndum þeirra. Þau eign uðust einn son, Kristin, sem nú hefir tekið við búinu. Hann er kvæntur Hólmfríði Sigurðardótt ur og eiga þau tvo syni. Ragn- heiður og Gísli ólu einnig upp tvær fósturdætur, Guðlaugu Guð laugsdóttur og þá, sem þessar línur ritar. Fósturmóðir mín var þrótt- mikil kona, sem unni birtu og gróanda. Ekkert gladdi hana meira, en að horfa yfir velsprott in tún og blómlega matjrtar- garða, sem voru ávöxtur hennar iðnu handa. Allt óx og dafnaði undir handarjaðri hennar. Bú- smalinn var vel alinn og gaf góðan arð. í þessu friðsæla sveitahverfi, þar seni nágranna- rígur þekkist ekki, en fólkið er hvað öðru hjálpsamt og velvilj- að, var gott að alast upp. Og kær leikurinn, sem þessi góðu hjón, fósturforeldrar mínir, auðsýndu mér sem barni, mun endanst mér til æviloka. Þau voru samhent og undu glöð sínu hlutskipti í lífinu. Fóstra mín var vel af guði gerð. Hún var myndarleg í sjón, og hafði trausta skapgerð. Hún var vel gefin, hæglát i fasi og æðrulaus, á hverju sem gekk. Hún var handlagin og framúr- skarandi dugleg til allra verka og störfin léku í höndum henn- ar. Fyrir 24 árum varð hún fyrir því slysi, að mjaðmarbrotna. Brotið hafðist illa við og var hún upp frá því mikið hölt. En hún lét það ekki aftra sér frá því að vinna sín störf eins og ekkert hefði í skorizt. Fyrir 8 árum varð hún fyrir enn alvarlegra áfalli. Þá missti hún sjónina. Hún tók því einnig með stillingu, en úr því var hún að mestu bundinn við sessinn. Hún satf og prjónaði daginn út og daginn inn, því til þess þurfti hún ekki sjón, en hennar starf- sömu hendur gátu ekki verið iðjulausar. En svo versnaði heils an og hún varð að leggjast í rúm- ið. Síðustu 5 árin hefir hún að mestu verið rúmföst. Þetta voru dapurleg ævilok fyrir þessa starf sömu konu, þó eiginmaður henn- ar, sonur og tengdadóttir, hafi gert allt, sem í þeirra valdi stóð til að létta henni lífið. Sú var tíðin, að mér fannst að ekki gæti meiri ógæfa yfir mig dunið en sú, að fóstra mín félli frá. Nú samfagna ég henni, að fá að hverfa héðan úr myrkrinu og ganga inn í birtu himnanna. Hún dó á föstudaginn langa, þessum dimma sorgardegi mann h'fsins. En framundan var páska- hátíðin, björt og fögur. Nú trúi ég því, að „Mamma í Hlíð“ sé komin í annan og bjart- ari heim, þar sem grasið bylgjast á grænum túnum, þar sem allt- af er sólskin. Vertu sæl, mamma mín og þökk fyrir allt. Blessuð sé minn- ing þín. Fjóla Sigurbjörnsdóttir. Iðnaðarhúsnæði Nýtt, bjart og gott iðnaðarhúsnæði 500 ferm. á 2. hæð til leigu í Kópavogi. Lyfta er í húsinu. — Húsnæðið gæti leigst í tvennu lagi. — Tilboð er tilgreini iðngrein leggist inn á afgr. Mbl. fyrir nk. mánaðamót, merkt: „Iðnaður — 8811“. Húsgögn til fermingagjafa! Skrifborð — Skrifborðsstólar Svefnsófar — Svefnbekkir Sófaborð — Kommóður Vegghúsgögn o. m. fl. HNOTAIM, húsgagnaveTzlun Þórsgötu 1. — Sími 20820.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.