Morgunblaðið - 09.06.1966, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.06.1966, Blaðsíða 28
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins Allvíðtækt ávísana fals á Akureyri Akureyri, 8. júní. UPP hefur komizt um allvíðtækt ávÍKanafals í Akureyrarbæ ©g alls sjö perspnur við málið riðnar. Ná j*egar hafa komið fram 6 fals aðar ávisanir, sem tekizt hafði að selja, auk nokkurra, sem náðst hafa óseldar. SíðdegLs í gær var kært til Jögreglunnar um að falsaðar ávís anir væru komnar í umferð og jafnframt að ávísanahefti hefði horfið úr skrifstofu einni hér í foæ. Nokkrar þessara ávísana voru þá komnar fram í úti'búi Landsbankans að upphæð 500— 2000 kr. hver. Rannsókn málsins hófst þá þegar og er iangt komið að upplýsa það að fullu. Það hef ur tafið rannsóknina að sækja varð þrjá aðila málsins um ail- iangan veg, einn til Sauðárkróiks, og tvo austur í Reykjada!. Það er upphaf málsins að ung- lingspiitur nokkur álpaðist af rælni inn í fyrrnefnda skrifstofu á laugardagskvöld s.l. um i-lla læstar eða ólæstar bakdyr og sá ávísanahefti liggja þar á borð- inu. Reif hann eitt eyðublað úr heftiinu og hafði sig síðan á brott. Nok’kru síðar hitti hann Sauð- krækiinginn, sem útfyilti blaðið. Eitthvað mun það hafa farið í handaskolum, því hann taldi föls unina of auigljósa og reif ávísun- ina. En nú var hann kominn á braigð ið og fór að tilvísan piltsins inn í skrifstofuna og stal öllu heft- inu, en í því munu hafa verið um 20 eyðublöð. Var nú tekið til óspilltra mála við útgáfu ávís ana, aðallega með aðstoð ann- arra. Mun annar Reykdæiingur- inn hafa verið þar mikilvirkast- ur og munu jafnvel báðir Reyk- | dæiingarnir hafa komið þar við ■ sögu. Ekki er búið að yfirheyra þá en verið er að flytja þá hingað til bæjarins til yfirheyrslu nú í kvöid. Þrír aðitar í viðbót tóku þátt Fékk sptöku ®§ gummflyðru SKIPSTJ ÓRINN á trillunni Sæljón, Magnús Vilhjálmsson fiskaði sl. sunnudag 400 kg á handfæri, en svo átti hann skötu lóðimar í sjó. Meðan hann dró þær hækkaði heldur betur á honum brúnin, því á skötuióð- irnar fékk hann eina 120 punda spikfeita spröku og það sem meira var eina gammflyðri 230 punda þunga. Hávaða iandsynnings rok hefir verið hér í dag. — Oddur. í að koma ávísununum í verð og munu hafa átt að selja eina að upphæð 2000 kr. vestur í Húna- vatnssýslu. Meðal þeirra, sem fiæktir eru í máiið, er un,g stúika, sem seldi einna fiestar ávísan- irnar. Sjáift ávísanaiheftið hefur ekki komið í leitirnar enn, en talið er vist, af framburði annarra sak- bominga, að það sé í fórum ann- ars Reykdæiingsins, þess er tal- inn er bafa. verið stórvirkastur við faisanirnar. — Sverrir. Frá hinum fjölmenna fundi su nnlenzkra bænda á Selfossi í gær. Sjá bls. 3. Hlaut 4 mánaða fangelsi og svipt- ur skipstjóraréttindum í tvö ár Dómur kveðinn upp í máli skipstjórans a b.v. Nlarfa DÓMUR hefur verið kveðinn upp í Siglingadóm í máli ákæruvalds- ins gegn skipstjóranum á b.Y. Narfa, Lofti Júlíussyni. Hlaut hann 4 mánaða fangelsi og svipt- ingu skipstjóraréttinda í tvö ár fyrir yfirsjónir og vanrækslu við skipstjórn b.v. Narfa hinn 18. marz 1965, er olli árekstri við portúgalska togarann Joao Al- vares Fagundes. Þetta gerðist á Hamilton miðum undan strönd Labrador, með þeim afleiðingum að portúgalski togarinn sökk, og einn maður af áhöfn hans fórst. Þess má geta að bótakröfur vegna árekstursins, sem hafðar eru uppi í sérstöku máli og þessu óviðkomandi, er rekið fyrir Sjó- og verzlunardómi Reykjavíkur. Nema bótakröfurnar alls 45 millj. króna. í forsendum Siglingadóms í máli Lofts Júlíussonar segir m.a.: „Við athugun á gögnum máls- ins kemur í ljós að ósamræmi er í frambur'ði skipstjóranna um (Jndirnefnd á fundi í dag í DAG kl. 4 verður haldið áfram fundum í undirnefnd þeirri, sem fulltrúar Vinnuveit- enda og Verkamannasambands- ins hafa kjörið til þess að fjalla um samningamáiin. stefnur skipanna. Það breytir þó eigi þeirri staðreynd að stefnur skipanna skárust og að portú- galski togarinn var á stjórnborða frá Narfa. Það er áiit hinna siglingafróðu dómenda, að eins og skyggni var háttað, þegar áreksturinn varð, hafi í sjálfu sér ekki verið óvar- legt af ákærða að láta skip sitt halda fullri ferð, ef fulirar var- úðar var gætt, Verður ákærða því eigi gerð refsing fyrir brot á a-lið 16. gr. tilskipunar nr. 47/1953. Af frambur’ði ákærða og öðr- um gögnum málsins er hins veg- ar ljóst að ákærði fór af stjórn- paili og fól á meðan ósiglingar- fróðum manni eftirlit með sigl- ingu skipsins, sem var stýrt með sjálfvirkum tækjum, enda þótt auðvelt hefði verið fyrir ákærða að kaila á 2. stýrimann, sem vat að störfum á þilfari skipsins, og láta hann fylgjast með sigiingu skipsins meðan ákærði þurfti að FramhaJd á bis. 21. ÁHtin með 7 unga a Tjörninni er fóru með Tjö’minni sunn- ÞAÐ VAKTI athygli þeirra anverðri í gær að hnúðsvan- urinn þýzki var kominn með j 7 nnga út á Tjömina. Ilrfir : álftin legið á frá því snemima ' í april, eða um tvo mánuði, I og leiðir nú út fleiri unga | en nokkra sinni áður. Óþekkt lík finnst í Rvíkurhöfn I GÆR klukkan 14.50 fannst karlmannslík á floti í Reykja- víkurhöfn milli Ingólfsgarðs og Faxagarðs. Líkið var alkiætt venjulegum vinnufötum, gráum jakka bláum vinnubuxum og köflóttri skyrtu með svarta, lága skó. Líkið virðist vera af miðaldra manni 174 cm. á hæð, frekar þrekvöxnum og nokkuð holdug- um, með dökkt hár. Engin skilríki fundust, sena upplýst gætu hvaða lík hér er um að ræða og hefir ekki tekist að uppiýsa það enn, að sögn lögreglunnar. Ttúlega mun líkið hafa legið. nálæg tveimur mánuðum í sjó. Þeir, sem kynnu að geta gef- ið einhverjar upplýsingar um mál þetta eru beðnir að hafa sam.band við rannsóknarlög- regluna. Flestir fjallvegir aö verða færir cn þurtgatakinarkanir á þeim enn BUAÐIÐ HAFÐI í gær sam- band við skrifstofu vegamála- stjóra og spurðist fyrir um á- stand vega á nokkrum fjallveg- um á þjóðleiðum. Verið er að moka Þorskafjarð- Eleildar síldarmagnii var 44 þúsund tonn um helgina Jén Klartansson aflahæstur HINN 12. maí fékk m.b. Jón Kjartansson frá Eskifirði fyrstu síld sumarsins. Var það um 150 sjómílur suðaust- ur af Seley. Fyrsta síldin í fyrra barst á land 25. maí. Fá skip voru á miðunum fyrstu dagana, en upp úr 20. maí voru þau orðin rúmlega 40 og hefur fjölgað síðan. Erfitt er að segja um þátttöku í síld- veiðum í sumar, þar sem bú- ast má við að margir minni bátar heltist úr lestinni, en í fyrra voru skipin sem lögðu afla á land 210. Aðalveiði- svæðið hefur verið 200—250 sjómílur austur af Jandinu, frá Gerpi að sunnan og norð- ur til Langaness. Veiðiveður má segja að hafi verið sæmilegt, en síldin stygg og erfið viðureignar. Framhald á bls. 21 arheiði, sem skilur miili Barða- strandarsýslu og ísafjarðardjúps Ekki er gert ráð fyrir að heiðin verði fær fyrr en um næstu helgi. Tafir hafa orðið á mokstr inum vegna bilunar á vélum. Þingmannaheiði var fyrir nokkru orðin fær öllum bílum, en er nú aðeins jeppafær sökum rigninganna sem skapað hafa þar aurbleytu. Breiðdalsheiði milli ísafjarðar og Önundarfjarðar er aðeins jeppafær enn sem komið er. Siglufjarðarskarð er nú fært öllum bílum, en sett hafa verið þungatakmörk þar við 5 tonna öxulþunga. Sama gildir um Lág heiði til ólafsfjarðar. Vaðlaheiði er fær öllum bílum að kalla, en öxuliþungi er þar 5 tonn. Fljóts- heiði er lokuð sökum aurbleytu. Vegurinn um kelduhverfi og Núpasveit er veikur og vart fær nema jeppum og svo gildir norð ur fyrir Melrakkasléttu og suður um heiðar allt til Vopnafjarðar. Möðrudalsfjallgarður hefir verið opnaður og er fær öHum bilum en þungatakmörk þar fyrst um sinn miðuð við 5 tonn á öxul. Oddskarð má heita fært öll- um bílum. Er öxuiþungi þar 5 tonn og Fjarðaheiði hefir verið mokuð en kafli heiðarinnar er svo slæmur að vart er fær nema jeppum. Suðurfjarðavegux á Austurlandi er sæmilega fær en háður úrkomu þar sem grunnt er á aunbleytu. Loks er að geta þess að hér á Suðurlandi er Gullfossvegur enn lokaður svo og Lyngdals- heiði sökum aurbleytu. Háskólanum sagf upp i fyrsta sinn á þriðjudag HÁSKÓLA íslands verður sagt upp með viðhöfn næstkom- andi þriðjudag. Er þetta í íyrsta sinn frá stofnun skólans, sem formleg slit munu fara fram, og mun kandidötum þá afhent prófskírteini sín. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.