Morgunblaðið - 26.07.1966, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. júlí 1966
FÁLKAFLUG
EFTIR DAPHNE DU MAURIER
sem virtust vera þarna gestir,
stóðum út af fyrir okkur, dálítið
óvissir um, hvað gera skyldi, en
aðrir voru þarna meira heima
hjá sér og með valdsmannssvip,
og gengu um gólfið þvert og endi
langt, en stönzuðu öðru hverju
til að líta á okkur, með kæru-
leysissvip og líkast því sem þeir
skemmtu sér við að horfa á
þessi aðskotadýr.
Loksins lokaði dyrðavörður-
inn dyrunum. Hann stóð upp við
hurðina með krosslaga arma og
sviplaust andlit. Samistundis
varð þögn. Ein kona, sem var
taugaóstyrk, rak upp ofurlítinn
hlátur, en karlmennirnir félagar
hennar, þögguðu samstundis nið
ur í 'henni. Ég leit á Carla Raspa.
Hú.n greip í hönd mér og hélt
fast í hana. Þetta þögla um-
hverfi seildist frá einum áhorf-
anda til annars og ég fann mig
vera eins og í gildru. Hefði ein-
hver þjáðist af innilokunar-
kennd, hefði hann ekki getað
sloppið út.
Dymar að svefnherbergi her-
togans, sem hingað til höfðu ver
ið lokaðar, opnuðust nú snögg-
lega. Maður, með menn
á eftir sér kom inn, og menn-
imir umkringdu hann eins og
lífvarðarsveit. Hann gekk inn í
salinn, rétti út höndina og tók
þegar að heilsa .gestum sínum.
sem ruddust fram til að verða
fyrstir. Carla Raspa gleymdi
mér alveg og þaut inn í röðina.
— Hver er þetta? sagði ég.
Hún heyrði ekki til mín. Hún
var farin frá mér. En ungur
maður, sem stóð hjá mér, leit á
mig hissa. — Hvað er þetta? Auð-
vitað Donati prófessor, forstjóri
Listaráðsins.
Ég færði mig úr kyndlaljósinu
og inn í skuggann. Maðurinn
með lífvörðinn kom lengra
fram. Hann sagði eitt orð við
einn, brosti til annars, klappaði
þeim þriðja á öxlina — og ég
komst alls ekki út úr röðinni,
ég gat alls ekki komizt burt, því
að þeir, sem á eftir mér voru,
ýttu mér áfram. Eirfhvernveg-
inn var ég aftur kominn að hlið
samferðakonu minnar, og heyrði
hana segja: — Þetta er hr.
Fabbio. Hann er að hjálpa hr.
Fossi í bókasafninu. Ég rétti út
hönd og hann greip hana, og
sagði: — Gott, gott, gleður mig
að hitta yður. Hann rétt leit á
mig en hélt- síðan áfram. Carla
Raspa fór að tala af miklum
ákafa við þann, sem var við hlið
hennar, en sem betur fór ekki
við mig. f mínum augum hafði
gröfin opnazt. Ókunni maðurinn
í Draumagötu í gærkveldi hafði
þá loksins ekki verið nein aftur-
ganga og skyldi ég efast um það,
þá nægði nafnið til að sannfæra
mig.
Forstjóri Listaráðsins, Aldo
Donati, prófessor. Tuttugu og tvö
ár höfðu gefið honum þroska,
breikkað vaxtarlag hans, gert
hann öruggari í framkomu og
höfuðburðinn drembilegri, en að
öðru leyti var þetta bróðir minn,
eins og ég gat munað hann.
Aldo var aftur lifandi. Aldo
hafði risið upp frá dauðum, og
heimurinn minn riðaði.
□--------------□
25
□--------------□
Ég sneri höfðinu að veggnum
og fór að glápa á veggteppin. Ég
sá ekkert, heyrði ekkert. Fólk
gekk til og frá í salnum, og tal-
aði saman og ég hefði ekki tekið
eftir þó að þúsund flugvélar
hefðu drunið í kring um mig.
Ein flugvél hafði ekki hrapað
niður fyrir tuttugu og tveimur
árum — það var allt, sem máli
skipti. Eða ef hún hafði hrapað,
þá hafði hún ekki brunnið, eða
hefði hún brunnið, hafði flug-
maðurinn að minnsta kosti
sloppið óskaddaður. Bróðir minn
lifði. Bróðir minn hafði ekki dá-
ið.
Einhver snerti handlegginn á
mér. Það var Carla Raspa. Hún
sagði við mig: — Hvernig lízt
þér á hann?
Ég sagði: — Mér finnst hann
vera guð!
Hún forosti, Iyfti upp hendinni
og hvíslaði: — Það finnst þeim
öllum.
Ég dró mig út að veggnum. Ég
vildi ekki láta hana sjá, að ég
skylfi. Ég var hræddastur um,
að ég ætlaði að hníga niður,
draga þannig að mér athyglina,
og svo fyndi Aldo mig þar,
frammi fyrir öllu þessu fólki.
Seinna, auðvitað .... seinna. En
bara ekki núna. Mér var ómögu-
legt að hugsa eða ráðgera. Ég
mátti _ bara ekki koma upp um
mig. Ég varð að hætta að skjálfa.
— Liðskönnuninni er lokið,
sagði Carla Raspa. — Hann ætl-
ar að taka til máls.
Það var einn stóll þarna í
salnum, þessi frá fimmtándu
öld með mjóa bakinu, sem stóð
við arininn. Einn lífvörðurinn
gekk fram og færði hann út á
mitt gólf. Aldo brosti og gaf
bendingu með hendinni. Allir
settust á gólfið, sumir okkar
hölluðust upp að veggnum, aðrir
hnöppuðust saman, skammt frá
ræðumanninum. Kyndlaljósið
varpaði enn skuggum á loftið,
og nú enn fáranlegar en áður,
vegna hausanna, sem voru svo
þétt saman. Ekki gat ég sagt, hve
margir voru þama — kannski
áttatíu eða jafnvel huhdrað,
kannski meira. Aldo settist á
stólinn, arineldurinn flökti og
með því að taka á öllum kröft-
um reyndi ég að hafa hemil á
skjálfandi höndum mínum.
— Fyrir fimm hundruð tuttugu
og fimm árum á þessu vori,
drápu íbúar Ruffano hertogann
sinn, sagði hann. — Þið finnið
ekki í ferðamannabókum, hvern
ig þeir fóru að því, heldur ekki í
opinfoerum skjölum — jafnvel 1
þá daga voru ritskoðarar á hött-
unum til að dylja sannleikann.
Ég á hér auðvitað við Claudio,
fyrsta hertoga af Ruffano, sem
kallaður var Fálkinn, fyrirlitinn
því að þeir óttuðust hann.
Hvers vegna óttuðust þeir
hann? Af því að honum var sú
gáfa gefin að geta lesið sálir
þeirra. Hann fyrirleit og með
réttu, allar smálygamar þeirra,
svik þeirra og pretti, samkeppni
þeirra í viðskiptum — því að
allt, sem borgarar í Ruffano
hafa nokkurntíma kært sig um
er að sjúga merginn úr bænda-
lýðnum í nágrenni þeirra. Þeir
vissu ekkert um listir eða menn-
ingu, og það ekki einu sinni á
þessum tíma — í upphafi endur-
reisnartímabilsins. Biskuparnir
og prestamir tóku sig saman
við aðalsmennina og kaupmenn-
ina um að halda almúganum fá-
fróðum, svo að hann var litlu
betri en skepnur, og svo að
spyrna gegn hertoganum á allan
hátt sem þeim gat dottið í hug.
— Það var ætlun hans að
safna að hirð sinni hóp göfugra
ungra manna — sama af hvaða
stigum þeir voru — ef þeir
höfðu vit og gáfur, sem með
persónulegu hugrekki sínu,
vopnavaldi og eindreginni holl-
ustu gætu orðið einvalalið —
það má kalla þá ofstækismenn,
ef vill — en með fordæmi sínu
skyldu þeir verða sem lýsandi
kyndill fyrir hvert hertogadæmi
landsins. Listin skyldi sitja í há-
sæti, salir fullir af listaverkum
skyldu verða meir metnir en
bankar, foronzmynd meira metin
en klæðastrangar. í þessum til-
gangi lagði hann á skatta, sem
kaupmennirnir neituðu að inna
af hendi. Hann hélt burtreiðar
og riddaralegar samkomur við
hirð sína, til þess að æfa hirð-
mennina sína, en fólkið baktal-
aði hann og kallaði hann saur-
lífismann.
— Fimm hundruð tuttugu og
fimm ár eru liðin og mér finnst
tími til kominn að endurreisa
hertogadæmið. Eða öllu heldur
að veita miimingu hertogans
uppreLsn. Þessvegna 'hefur það
fallið í minn hlut í fjarveru
Butali prófessors, háskólarekt-
ors, sem við öll elskum og virð
um, að sjá um hátíðina í ár, og
því hef ég ákveðið að láta leika
uppreisn Ruffanoborgary gegn
sínum misskilda herra og höfð-
ingja.Claudio, fyrsta hertoga, að
auknefni Fálkinn.
Hann þagnaði. Ég þekkti
svona þögn. Hann hafði notað
hana forðum þegar við lágum
hlið við hlið í herberginu, sem
við höfðum saman, og var að
segja mér einhverja sögu.
— Sum ykkar vita þetta þeg-
ar, hélt hann áfram. — Við höf-
um haft okkar æfingar. Þið skul
uð muna, að Fálkaflug, sem
verður nafnið á hátíðinni í ár —
því að þannig lauk Claudio ævi
sinni — hefur aldrei verið leik-
ið og verður sennilega aldrei
framar. Ég vil, að hún lifi í hug-
um ykkar — og allra þeirra,
sem hana sjá, og verði þar æv-
arandi. Það sem 'hefur verið leik
ið á þessum hátíðum okkar hing
að til, verður sem hismi, sam-
anborið við þessa hátíð. Ég vil
setja upp glæsilegustu sýningu,
sem þessi borg hefur nokkurn
tíma séð. Og þessvegna ætla ég
að fala ennþá fleiri sjálfboða-
liða en við höfum nokkurn tíma
haft undanfarin ár.
Nú 'heyrðist kliður frá þögla
hópnum, sem sat á gólfinu. Hver
hönd þarna kom á loft. Andlit-
in, sem voru föl í þessari birtu,
sneru að honum.
— Bíðið við, sagði hann. —
Ekki verða allir kosnir. Ég kýs
seinna þá, sem ég tel hæfa. En
aðalatriðið er þetta........ Nú
gerði hann þögn, enn einu sinni.
Hann horfði í andlit þeirra. —
Þið þekkið aðferðir mínar, sagði
foann, — við notuðum þær í
fyrra. Það er nauðsynlegt, að
hver sjálfboðaliði trúi á hlut-
verkið, sem hann leikur, trúi
því, að persónan sé hann sjálf-
ur. f ár verðið þið hirðmenn
Fálkans. Þið verðið lítil-1 hópur
dauðtryggra manna. Þið listnem
ar við háskólann eruð auðvitað,
stöðu ykkar vegna, sjálfkjörnir.
Þið eruð þegar einvalalið. Til
þess eruð þið hér í Ruffano og
fyrir þetta ætlið þið að lifa. En
samt eruð þið í minnihluta í há-
skólanum hópur ykkar er lítill,
en allur hópurinn, sem flæðir yf
ir hinar deildirnar eru skríll —
Gotar og Vandalar, sem — eins
og kaupmennimir fyrir fimm
hundruð árum — hafa enga hug
mynd um fegurð eða list.
Þeir mundu, ef þeir væru við
völd, eyðileggja öll listaverkin,
sem hér eru innan veggja, jafn-
vel rífa sjálfa höllina og setja
í hennar stað....... já, hvað?
Verksmiðjur, skrifstofur, banka,
.....og ekki til þess að bæta
kjör bændalýðsins, sem á jafn
bágt nú og fyrir fimm hundruð
árum, foeldur til að auðga sjálfa
sig, bæta kjör sin, kaupa fleiri
bíla, fleiri sjónvarpstæki, fleiri
kexkassavillur við Adríahafið og
ala á eymd og óánægju.
Allt í einu stóð hann upp.
Hann lyfti hendi til að þa-gga
niður fagnaðarópin, sem stigu
upp til loftsins og bermáluðu
þar.
— Þetta nægir, sagði hann.
— Þið heyrið ekki meira hjá
mér í kvöld. Það, sem við ætl-
um nú að gera er að gefa ykkur
smá-sýningu á þeirri æfingu,
sem sjálfboðaliðarnir okkar 'hafa
þegar fengið. Varið ykkur frá,
annars getið þið kannski orðið
fyrir meiðslum.
Fagnaðarópin urðu samstund-
is að djúpri þögn. Hópurinn hall
aði sér fram, spenntur að sjá,
hvað nú kæmi. Tveir lífverðir
komu fram og báru stólinn burt.
Fjórir í viðbót gengu fram, með
blys í báðum höndum og mynd
uðu auðan ferhyrning á miðju
gólfi, sem var upplýstur af blys
unum einum.
Aldo tók sér stöðu við einn
kyndilinn. Um leið hlupu tveir
menn inn í ferhyrninginn. Þeir
voru í hvítum skyrtum með erm
arnar brettar upp fyrir olnfooga,
og svörtum gallabuxum. Andlit-
in voru með grímur — þó ekki
til hlífðar, faeldur til þess að
dyljast. Hvor bar nakið sverð.
Þeir ‘börðust, eins og menn gerðu
til forna, í fullri alvöru en ekki
í leik. Það var engin uppgerð
í vörn eða sókn, engin látalæti I
stellingunum. Það glumdi 1
sverðsblöðunum, er þau mættust
og þeir hjuggu og beygðu sig
niður, og þegar annar hólm-
göngumaðurinn reyndist seilast
TIHTiinMliynTllTMrMWKTtMMBWrHir ii>ff“,,TOffrrv■‘’TTílrifi ir ' i~
IMATIOIMAL RAFHLÖÐUR
Aukið ánægjuna í sumarleyfinu.
Notið National í ferðatækin.
Öruggustu rafhlöðurnar á markaðnum.
Heildsölubirgðir:
G. Helgason & Melsteð hf.
Rauðarárstíg 1. — Sími 11644.