Morgunblaðið - 15.03.1967, Page 24

Morgunblaðið - 15.03.1967, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1S. MARZ 1967. Skólatónleikar Sin- fóníuhljómsveitarinnar í D A G, á miðvikudag, fimmtudag og föstudag, 15., 16. og 17. þ.m., halda skólatónleik- ar Sinfóníhljómsveitar íslands áfram. f dag, miðvikudag kl. 14 verða tónleikar fyrir framhalds- skólafólk, D-flokkur, og verða flutt eftirfarandi verk: Nótt á nornastóli eftir Mússorgský, Ský og Hátíð eftir Debussy og „Le Tombeau de Couperin" eftir Ravel. Verk þessi eiga fleira sameiginlegt en í fljótu bragði virðist, þótt þau séu samin af gerólikum mönnum á ólikum tímum. A flmmtudag verða svo tón- leikarnir fyrir skólabörnin tólf ára og yngri, E-flokkur, fyrir hádegi kl. 10,30 og eftir hádegi kL 2,30 og aftur á föstudaginn kl. 2,30. I>á verða fluttar nokkr- ar œvintýralegar tónsmiðar. Fyrst heyra börnin um furðu- verurnar Baba-Jaga og Kiki- mora og síðan um Hnotubrjót- inn eftir Tsjækofský. Stjórnandi allra tónleikanna verður Páll P. Pálsson, en kynnir Þorkell Sigurbjörnsson. Hreinn meirihluti sósíal- demókrata í V-Berlín Berlín, 12. marz, NTB, AP. ENDANIÆG úrslit eru nú sem næst kunn í borgarstjórnarkosn- ingunum sem fram fóru í V- Berlín á sunnudag, þótt loka- tölur liggi ekki fyrir. Hafa sósíal demókratar fengið breinan meiri BRÆÐURNIR KAMPAKÁTU -------TEIKNARI: JÖRGEN MOGENSEN KVIKSJÁ — — — — —K— FRÓÐLEIKSMOLAR BORGIN, SEM GLEYMDIST Það, sem mesta athygli hef- nr vakið, þegar borgin Afro- disias var grafin upp er hið stórkostlega leikhús, sem mun hafa verið eitt stærsta sinnar tegundar við Miðjarðarhafið. — Áhorfendabekkir voru úr marmara og rúmuðu um 30000 manns. Við uppgröft borgar- innar fundu fornleifafræðing- ar margar minjar frá fortíð- inni. Undir múrvegg einum, sem hafði hrunið, fannst 4ja metra há stytta af Afródide úr marmara. Hafði styttan verið grafin í jörðu, þegar borgin var miðstöð kristinna manna. Við uppgröftinn rákust menn á margar fallegar marm arastyttur og grískar súlur, ýmist fallnar niður eða uppi- standandi eins og þær höfðu verið, þegar þær prýddu borg ina. hluta í kosningunum eða 59.9% atkvæða, kristilegir demókratar 32.9% og frjálsir demókratar 7.1%. Kommúnistar hafa fengið í kringum 2% atkvæða. Er því sýnt, að Heinrich Al- bertz, sá er tók við borgarstjóra- embættinu til bráðabirgða af Willy Brandt í desember sl. (er Brant tók við embætti utanrikis- ráðherra V-í*ýzkalands) muni nú gegna borgarstjóraembættinu á- fram næstu fjögur árin, þótt ekki njóti hann eins mikils meiri- hluta sósíaldemókrata og fyrir- rennari hans í embættinu á sín- um tíma. Síðast fóru fram borgarstjóra- kosningar í V-Berlin 1963 og fengu þá sósíaldemókratar 61.9% atkvæða, Kristilegir demókratar 26,9% og frjálsir demókratar 7,9%. Kommúnistar fengu þá 1.4% atkvæða og hafa bætt hlut sinn nokkuð, þó enn skorti þá töluvert á þau 5% sem til þarf að koma að manni. Veður var vont í V-Berlíu kosningardaginn, hvassviðri og rigning en kjörsókn góð og það svo að skömmu eftir hádegi höíðu um 56% atkvæðisbærra kjósenda, sem eru 1.7 milljón, mætt á kjörstað. Meðal hinna ár- risulu kjósenda var Willy Brandt, formaður sósíaldemó- knata, sem var borgarstjóri V- Berlínar í 13 ár eða allt til þesu er hann lét af embættinu í des- ember s.l. eins og áður sagði. Annar flokksformaður var líka snemma á fótum og mættur á kjörstað með fyrstu mönnum. Það var Gerhad Danelius. for- maður sósíaliska einingarflokks- ins, sem er deild úr kommúnista flokki A-í>ýzkaland. Flokkur þessi er bannaður í V-Þýzka- landi en leyfður í Berlín meS tilvísun til samnings hernám®- veldanna fjögurra á sínum tíma. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 myndi dæma réitt. Baukas og kryppling- urinn fóru nú til dómar- ans. Margir biðu þar úr- akurðar í málum sínum og dómarinn kallaði þá iipp eftir röð, sem til hans voru komnir. Áður en röðin kom að Baukasi, kallaði dómar- inn upp fnæðimann nokkurn og bónda. Þeir deildu um konu. Bónd- inn sagði hana vera eigin konu sína, en fræðimað- urinn sór og sárt við lagði, að hún væri gift sér. Dómarinn hlustaði á þá, hugsaði sig andartak lin, en sagði síðan: „Skiljið konuna hér ettir, og mætið aftur í réttinum á morgun“. Næstir komu fyrir slátr ari og smjörgerðarmaður. Slátrarinn var ataður bióði, en hinn var þak- inn smjörklessum. Slátr- arinn hélt á peninga- buddu í hendinni, en smjörgerðarmaðurinn hélt föstu taki um hand- legg hans. Slátrarinn sagði: „Ég keypti smjör af þessum manni og dró upp pyngju mina til að borga hon- um, en þá greip hann um handlegginn á mér ©g ætlaði að hrífsa af mér peningana. Þess vegna komum við svona til yðar: Hann heldur um handlegginn á mér og ég held á pyngju minni. En peningarmr eru mín eign og hann er að reyna að stela þeim“. Smjörgerðarmaðurinn sagði: , ,Þetta er allt saman haugalý'gi. Slátr- arinn kom að kaupa smjör. Ég rétti honum það og hann bað mig að skipta gullpeningi. Ég tók við peningnum og lagði hann á búðanborð- ið. Þá greip hann pening-. inn og hljóp á dyr en ég elti hann og dró hann hingað á yðar fund“. Dómarinn sait þögull og hugsaði málið, en skipaði þeim síðan að skilja peningana eftir og koma aftur á morgun. Þá var komið að þeim Baukasi og krypplingn- am. Baukas sagði dómar anum hvað skeð haíði. Dómarinn hlustaði á hann, en bað síðan krypplinginn að segja söguna írá sínu sjónar- miðL „Þetta er allt saman lygi“, sagði krypplingur- inn. Ég kom ríðandi eftir borgarstrætL þar sem þessi maður sat á gang- stéttinni og bað mig að taka sig með. Ég setti hann á bak hesti mínum og fór með hann niður á torgið, en hann vildi ekki fara af baki og þóttist eiga hestmn. En því lýg- ur hann eins og öllu, sem hann segir“. Dómarinn hugsaði sig um og sagði síðan: „Skiljið hestinn eftir hérna og komið aftur á morgun“. Daginn eftir var fjöldi íólks saman kominn til að 'heyra úrskurði dóm- arans. Fyrst voru bóndinn og fræðimaðurinn kallaðir fram. „Taktu við konu þinni“ sagði dómarinn við fræði manninn, „og ég dæmi bóndann til að þola íimmtíu vandarhögg". Fræðimaðurinn fór heim með konuna, ei bóndinn tók út reísingu sína. Næst kaRaði dómarinn slátrarann fyrir sig. „Þú átt peningana", sagði dómarinn. Svo benti hann á smjörgerð- armanninn og fyrirskip- aði, að hann skyldi hýdd ur fimmtíu vandarhögg- um. Nú var röðin komin að Baukasi og krypplingn- um. „Geitur þú þekkt hest- ;nn þinn frá tuttugu öðr- um hestum?“ spurði dóm arinn Baukas. ,,Auövitað“, svaraði Baukas. „En þú?“ „Vissulega“, rvaraði krypplingurinn. „Fylg þú mér“, sagði dómarinn við Baukas. Þeir gengu til hesthús- anna. Baukas benti strax á hestinn sinn meðal tutt ugu annarra hesta. Þá lét dómarinn kalla á krypplinginn og sagði honum að benda á hest- ínn. Krypplingurinn þekkti hestinn strax aft- ur. Dómarinn settist nú að nýju við borð sitt í réttarsalnum og sagði við Baukas: „Þú átt hest- ínn, taktu hann“. Og hann dæmdi kryppling- ír.n að hýðast fimmtíu vandarhöggum. Eftir að hafa fellt þessa dómsúrskurði hélt dóm- arinn heim og Baukas íylgdi honum eftir. „Ert þú ekki ánæeður með dóma mína?“ spurði dómarinn. „Jú, vissulega er ég ánægðux" svaraði Bauk- as. „En mér þætti gaman að vita, hvernig þú vissir að konan var gift fræði- manninum en ekki bónd- anum, að slátrarinn átti peningana, en ekki smjör gerðarmaðurinn, og að ég átti hestinn en kryppl- ingurinn ekki“. „Ég skal segja þér, hvernig ég leysti gátuna um eiginmann konunnar. Ég lét kalla hana fyrir mig í morgun og skipaði henni að setja blek í bletobyttuna mína. Hún tók hana upp og þvoði ▼andlega, áður en hún hellti blekinu í hana. Það sannaðL að hún var vön þessum starfa. Ef hún hefði verið kona bónd- *ns, hefði hún ekki farið svona rétt að þessu verki. Fræðimaðurinn hlaut að segja sannleikann. Það var ekiki vanda- samt að komast að því sanna með peningana. Ég setti þa ofan í heitt vatn í gærkvöldi og gáði svo í morgun, hvort fitu- brák hefði setzt ofan á vatnið. Bf smjörgerðar- maðurinn 'hefði ábt pen- irgana, nefðu þeir verið kámugir af smjöri. En engin brák var á vatn- inu, svo að slátrarinn hlaut að segja satt. Erfiðara var að komast *ó raun um, hvor ykkar átti hestinn. Kryppling- unnn var jafn fljótur að þekkja hestinn aftur eins og þú varst sjálfur. En ég fór ekki með ykkur báða út í hestlhúsið til þess að sjá hvor ykkar væri fljóf ari að þekkja hestinn, heldur til að komast eft- ir, hvorn ykkar hestur- inn þekkti. Þegar þú komst til hans, sneri hann sér við og kom til þín, en þegar krypplingurinn sírauk honum um lend- ína, sló hann til eyrun- um og stappaði niður öðr um framfætinum. Ég gat auðveldlega séð, að þú varst húsbóndi hans“. Þá sagði Baukas: „Ég er ekki kaupmað- ur á ferðalagi, heldur er ég Baukas konungur. Hingað fór ég til að sann reyna hvort frægðarorð- ið, sem af þér fór, væri verðskuldað, eða ekkL Nú hef ég sjálfur séð, að þú ert vitur dómarL Þú mátt biðja mig, hvers sem þú óskar og ég skal uppfylla bón þina“. En dómarinn svaraði: „Trauist konungsins er mér mikils virði, en ég þarfnast einskis“. Ráðningar Þekkið þið árnar: 1. Tíber, 2. Dóná, 3. .Rio Grande, 4. Rín, 5. Avon. Shrítlo Jón: „Það er sagt, að þið hjónin séuð eins og hundur og köttur hvort við annað“. Björn: „Þvættingur! Hver hefur séð hund og kött kasta leirtaui í hausinn hvort á öðru“. Gosi Stjörnuhrap, eða hvaðt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.