Morgunblaðið - 18.03.1967, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1967.
29
Laugardagur 18. man
tK)0 Morgunútvarp
Veöurfregnir — Tónleikar —
7:30 Fréttir — Tónleikar — 7:55
Bæn — 8:00 Morgunleikfimi —
Tónleikar — 8:30 Fréttir — Tón-
leikar — 8:56 Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna — 9:10
Veðurfregnir — Tónleikar —
9:30 Tilkynningar — Tónleikar
10:00 Fréttir.
12:00 Hádegisútvarp
Tónleikar — 12:25 Fréttir og
veðurfregnir — Tilkynningar.
13:00 Óskalög sjúklinga
Sigríöur Siguröardóttir kynnir.
14:30 Vikan framundan
Baldur Pálmason og Þorkell
Sigurbjörnsson kynna úbvarps-
efni.
16:00 Fréttir.
16:10 Veörið í vikunni
Páll Bergþórsson veöurfræðingur
skýrir frá.
16:20 Einn á ferð
G-ísli J. Ástbórsson flytur þátt i
tali og tónum.
16:00 Veðurfregnir.
Jetta vil éS heyra
Edda Ogmundsdóttir velur sér
hljómplötur.
27:00 Fréttir.
Tómstundaþáttur bama og ungl-
inga. Örn Arason flytur.
17:30 Úr myndabók náttúrunnar
Ingimar Óskarsson talar um
dýrið frá miðöldum jarðar.
17:50 Á nótum æskunnar.
Dóra Invadóttir og Pétur Stein-
grimsson kynna nýjar hJjómplötur.
18:20 Veðurfregnir.
18:30 Tilkynningar.
16:95 Dagskrá kvöldsins og veöur-
fregnir.
19:00 Fréttir
19:20 Tilkynningar.
19:30 Harmonikulög:
John Molinari lefkur.
19:46 Kaldsamur dagur á Kötluslóðum
Jón Pálsson frá Heiði segir ferða
sögu í léttum tón.
20:15 Létt, rússnesk tónlist:
Þarlendir listamenn flytja.
21:00 Leikrit: Þættir úr ..Paradísar-
heimt* eftir Halldór Laxness,
Saman teknir af Lárusi PáLssyni
fyrir leiksýninguna Kiljanskvöld
1961 og nuttír undir stjórn hans
(Áður útv. í sept 1963).
22:00 Kórsöngur:
Sœnski stúdentakórinn syngur
norræn lög: Einar Ralf stj.
22:30 Fréttir og veðurfregnir.
22:40 Lestur Passíusálma (46)
22:50 Danslög — (24:00 Veðurfregnir).
01 tf)0 Dagskrárlok.
- ATHUGASEMD
Framhald af bls. 13
Þá eru hér, úr greininni nokkr
ar glefsur: „En Jesú var eftir öll
um frásögnum að dæma ókvænt-
ur“U „>ar sem Jesú hefur haft
mikinn áhuga á trúmálum“. „Per
sónuleiki Jesús hefur ósjálfrátt
álhrif á menn“M „Við getum sem
sagt gengið út frá því að Jesús
hafi hafið kennslu undir hand-
leiðslu Gyðinga að hann hafi
næstum áreiðanlega hlotið
menntun hjá Fariseum".
I>etta Iæt ég nægja að taka upp
úr greininni, þó af miklu sé að
taka. Gagnvart þessari síðustu
fjarstæðu má þenda á frásögn-
ina í öðrum kapitula Lúkasar
Guðspjalls, þegar Jesús var 12
ára og þau Jósef og María móð-
ir hans töpuðu honum í mann-
grúanum í Jerúsalem í þrjá daga
og fundu hann í helgidómnum
meðal lærimeistarana og þar á
tali við þá. I frásögninni stend-
ur: „En alla, sem heyrðu til háns,
furðaði á skilningi hans og and-
svörum“. (Lúk. 2:47). Samkvæmt
þessu má líta svo á að Jesús,
12 ára gamall, hafi verið kenn-
ari lærimeistaranna þarna í
helgidómnum. Þegar móðir hans,
við þetta tækifæri, tjáði honum
frá hræðslu sinni um hann, svar
aði hann: „Hvers vegna voruð
þið að leita að mér? Vissuð þér
ekki að mér ber að vera í því,
sem míns föður er“. (Lúk. 2:49).
Gagnvart því sem að greinar-
höfundur segir, að áhrif Krists á
mann hafi aðeins verið óbein,
má benda á frásagnir Guðsspjall
anna um það, hvernig fólk þyrpt
ist umlhverfis hann í þúsundum,
af því það hafði engan heyrt
tala eins og hann. Fjallræðan,
merkasta ræða allrar sögunnar,
hafði stórkostleg álhrif á allan
þann mannfjölda, sem hlýddi á
hana og hún er, enn í dag, hið
lifandi áhrifaorð allra kristinna
manna og mun verða um adur
og æfi, af því að þau eru frá
Guði komin. Fjallræðan er birt
í 5, 6. og 7. kap. Matteusar Guð-
spjalls. Hluti af henni er daglega
hafður yfir af milljónum manna
og mun verða meðan mannheim-
ur stendur. En það er bænin:
„Faðir vor —■ —“. Til þess að
frelsa fólk frá villu og synd
færði Jesús því kenningu Guðs
orðs og stofnaði kirkju sína. Til
þess að viðlhalda og útbreiða
kenninguna, „Farið og gerið all-
ar þjöðir að lærisveinum" sagði
'hann við þá, sem tóku við kenn-
ingunni. Hún er Guðs orð, sem
aldrei breytist, stendur af sér
alla tímá og er alltaf nýtt. Ef
allir tryðu þeim og breyttu sam-
kvæmt kenningunni yrði adaskil
í mannheimi. Allir félagslegir
örðugleikar fólks, stríð og hvers
konar ranglæti yrði úr sögunni
Kenning Krists er hin eina von
mannkynsins. Að lifa samkvæmt
henni er menningin sjálf. Allt
annað, sem talið er til menning-
ar er háð fallvatleikanum. Skil-
yrðið er að trúa því sem Krist-
ur segir og þróa trúna í ástund-
un Guðs orðs og í bæn — tala
við almáttugan Guð,
Hvernig mundi umhor>fs i
mannheimi, ef Kristur væri ekki
kominn til jarðarinnar? Það er
ekki langt síðan hann kom. Það
vantar mjög mikið á að það séu
ein milljön dagar. Engir viðburð-
ir sögunnar eru vottfastir en
dvöl hans og starf meðal lifandi
fólks — starfs hans þá og starfs
hans í dag. Guðs orð hefur þann
eiginleika, fram yfir öll önnur
orð, að það sannar sig sjálft. Um
það mætti fara mörgum orðum.
1 tímaleysi efnishyggjunnar, nú
á dögum, kostar það engan tíma
að trúa, og ástunda trúna. Þvert
á móti sparar það mikinn tími.
Losar fólk við aukaatriði og lífs
flækjur daglegs lífs, sem taka
upp mikinn tíma.
„Kristur er sá, sem kominn er
og hefur valdið þeirri heimsbylt-
ingu, sem fólkið þurfti með, til
þess að geta lifað. — Sú bylt-
ing og starf hans, varir alla tíma.
Höfundar greinar þeirrar, sem
hér hefir verið gerðar athuga-
semdir við, eru illa komnir. —
En þeim má ekki vera ómót-
mælt, og engum þeim, sem ala á
vantrú og afbaka Guðs orð.
20. janúar 1967,
Jón H. Þorbergsson s
Bergsætt
Hið mikla og vandaða niðjatal fæst aðeins hjá
höfundi í Drápuhlíð 5, Reykjavík, sími 12912.
Bergsætt er valin vinargjöf til handa ungum og
öldnum.
Heimamyndatökur í svart hvítt
Correct Colour stofu það bezta sem völ er á,
Pantið með fyrirvara hvort heldur er í heimahús
eða á stofu.
Einkarétt fyrir Correct Colour á íslandi:
Stjörnuljósmyndir Flókagötu 45 sími 23414.
Norska graf- og ámoksturvélin
★ er eingöngu vökvaknúin.
★ er einföld og fljótvirk í notkun.
★ er ódýr í viðhaldi ,enin belti, ekkert drif á
hjólum.
★ notar flotplötur í mýrlendi og ræsir fram mýr-
ar, sem ekki halda manni.
★ Hagstætt verð.
Söluumboð á Akureyri:
Magnús Jónsson,
c/o Bifreiðaverkst. Þórshamar hf.
Suðurlandsbraut 16 - Reykjavík - Simnefni: »Volver« - Símf 35,200
Bifreið til sölu
Á bifreiðaverkstæði lögreglunnar við Síðumúla er
til sýnis og sölu Volvo Amazon bifreið, árgerð
1963, 4 dyra. Upplýsingar á staðnum. Tilboðum sé
skilað til Skúla Sveinssonar, aðalvarðstjóra, fyrir
25. þ.m.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 16. marz 1967.
Aðalfundur
Sparisjóðs vélstjóra verður haldinn að
Bárugötu 11 sunnudaginn 19. marz 1967
kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir ábyrgðarmönnum eða umboðs-
mönnum þeirra föstudaginn 17. marz kl.
13.00—16.00 og laugardaginn 18. marz
kl. 10.00—12.00. Stjórnin.
Kristniboðsdagurinn
Eins og undanfarin ár verður kristniboðsins í
Konsó sérstaklega minnzt á pálmasunnudag. Vér
viljum vekja athygli á eftirtöldum guðsþjónust-
um og samkomum, þar sem gjöfum til kristniboðs
verður veitt viðtaka:
AKRANES:
Kl. 10.30 f.h. Sunnudagskóli K.F.U.M. og K. í
samkomusalnum „Frón“, Vestur-
götu 35.
— 5.00 e.h. Kristniboðssamkoma í Akranes-
kirkju. Sævar B. Guðbergsson og
Jóhannes Ingibjartsson tala.
Hafoarfjörður:
Kl. 10.30 f.h. Sunpudagaskóli K.F.U.M. og K. í
húsi félaganna við Hverfisgötu.
— 2.00 e.h. Guðsþjónusta í Hafnarfjarðar-
kirkju. Jóhannes Ólafsson,
kristniboðslæknir, prédikar. Síra
Magnús Guðmundsson, fyrrv.
prófastur, þjónar fyrir altari.
— 8.30 e.h. Kristniboðssamkoma í húsi K.F.
U.M. og K. Síra Frank M. Hall-
dórsson., talar.
Reykjavík:
Kl. 11.00 f.h. Guðsþjónusta Grensássafnaðar í
Breiðagerðisskóla. Bjarni Eyjólfs-
son, form. Kristniboðssambands-
ins, prédikar. Síra Felix Ólafsson,
þjónar fyrir altari.
— 11.00 f.h. Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju.
Síra Sigurjón Þ. Árnason prédikar.
Síra Lárus Halldórsson þjónar fyr-
ir altari.
— 2.00 e.h. Guðþjónusta í Fríkirkjunni. Síra
Þorsteinn Björnsson.
í Laugarneskirkju síra Garðar
Svavarsson.
í Neskirkju síra Frank M. Hall-
dórsson.
— 8.30 e.h. Kristniboðssamkoma í húsi K.F.U.
M. og K. Ólafur Ólafsson, kristni-
boði, talar.
Vestmannaeyjar:
Kl. 11.00 f.h. Barnaguðsþjónusta í Landakirkju.
— 2.00 e.h. Guðsþjónusta í Landakirkju.
Gísli Arnkelsson, kristniboði,
prédikar. Síra Jóhann S. Hlíðar
þjónar fyrir altari.
'—3-11.30 e.h. Kaffisala til ágóða fyrir
kristniboðið í Konsó í húsi
K.F.U.M. og K.
Kristniboðsvinir og aðrir velunnarar íslenzka
kristniboðsins í Konsó eru hvattir til að sækja
guðsþjónustur og samkomur dagsins.
Samband ísl. kristniboðsfélaga.