Morgunblaðið - 20.04.1967, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1067.
SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆDISMANNA:
ÆSKAN OG FRAMTÍÐIN
RITSTJGRI: ARMANN SVEINSSON
Sjalfstæðisflokkurinn er kjðifestan í
utanríkismálum þjóðarinnar
f Avarpi, sem Árni G. Finnsson, íormaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna, flutti á utanríkismála-
ráðstefnu samtakanna fyrir skömmu vék hann að
ýmsum þáttum utanríkismála þjóðarinnar. Birtist hér
brot úr ávarpi hans.
¥ Ttanríkismálin hafa lengi verið einn veiga-
mesti þátturinn í stjórnmálal'ífinu og
stjórnmálabaráttunni á íslandi. Sérstaklega
voru þessi mál ofarlega á baugi í iok síðustu
heimstyrjaldar og næstu árin á eftir.
Fyrstu árin eftir heimsstyrjöldina voru
fyrstu ár íslenzka lýðveldisins og þá reyndi
mjög á um það, hvaða stefna var mörtkuð í ut-
anríkismálum og hvern farveg þau tóku, og
hafði síðan verulega þýðingu um þróun mála
hér á landi.
Það kom í hlut Sjálflstæðisfl'ok'bsins á fyrstu
árum íslenzka lýðveldisins að hafia forustu um
mótun stefnunnar. Það kom í hiut okkar manna
að skipa sæti utanríkisráðherra og núverandi
formaður f’lobksins, Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, var einmitt utanríkisráðherra
þegar stærstu og örlagaríkustu ákvarðanimar
voru teknar. Deilan stóð þá fyrsit og fremst um
það, hvort rjúfa ætti það hlutleysi, sem íslenzka
þjóðin hafði kosið að fylgja árið 1918 og taka
afleiðingum af þeirri miklu breytingu, sem
orðin var á alþjóðavettvangi að síðan heims-
styrjöldinni lokinni. Um þetta urðu milkil átök.
En eftir að hvert landið á fætur öðru í Evrópu
hafði orðið kommúnistum að bráð, þá var það
ráð frjálsra þjóða í Evrópu og við Atlantshaf
norðanvert að mynda með sér varnarbandalag.
Var það gert 1949 og var ísland eitt af þátttöku-
ríkjunum. Stefnan, sem þá var ofan á hefur
síðan verið meginstefna íslendinga í utanríkis-
og varnarmálum.
Að tveimur árum liðnum er Íslendingum
heimilt að endurskoða afstöðu sína til Atlants-
hafssamstarfsins. Það er mín skoðun, að enda
þótt margt hafi breytzt í viðhorfi og á vettvangi
álþjóðamála tvo síðustu áratugi þá sé enn í dag
allt of margt með sama markinu brennt og
1949. Sömu hætturnar steðja að, enda þótt þær
hafi tekið á sig nýja mynd og á yfirhorðinu virð-
ast margir hlutir hafa breytzt til hins betra.
Engu að síður ber að játa, að um sumt hefur
orðið breyting til hins betra og full ástæða er til
að öll þessi mál séu vegin og metin.
Nauðsynlegt er að menn geri sér grein fyrir
því, hvað hefur breytzt, hvað hefur áunnizt og
hvert sé gildi áframhaldandi samstarfs. Al'lt eru
þetta þýðingarmikil atriði og afstaða íslands
byggist á því, hver afstaða Sjá;Lfstæðisfiokksins
verður til þeirra. Það hefur, því miður, sýnt
sig æ ofan í æ, að enda þótt SjáIfstæðis)flokkur-
inn hafi oft náð samstöðu um þessi mál með
hinum tveimur lýðræðisflokkunum, Alþýðu-
fl'okknum og Framsóknarflokknum, þá hafa
þeir undir ákveðnum kringumstæðum verið til-
búnir til að láta stundaihagsmuni ráða afstöðu
sinni til utanríkis- og varnarmála þjóðarinnar,
Árni G. Finnsson
sbr. samþykktir þeirra 19&6, sem einvörðungu
voru gerðar í því skyni að afla kjósendafylgis.
Einmitt slíkar samþýkktir sanna, að kjölfestan
í varnar- og öryggismálunum er fyrst og fremst
Sjálfstæðisflokkurinn.
Frá utanríkismálaráðstefnunni.
344
Samkvæmt dagbók
f r amkvæmdast j óra
Heimdallar hafa 344
æskumenn og konur
gengið í Heimdall á
tímabilinu 1. nóv.
1966 — 31. marz 1967.
FJolimsiui F.U.S. í Árnessýslu
Óli Þ. Guðbjartsson endurkjörinn form.
Óli Þ. Guðbjartsson
FÉLAG ungra Sjálfstæðis-
manna í Árnessýslu, hélt aðal-
fund sinn á Selfossi, þriðjudag-
inn 28. marz 1967.
Yar fundurinn vel sóttur og
ánægjulegur.
Á fundinum gengu 18 nýir
menn í félagið, og er það nú
eitt fjölmennasta sjálfstæðisfé-
lagið í sýslunni.
Stjórn Félags ungra Sjálf-
stæðismanna í Árnes-sýslu skipa
nú:
Formaður: Óli Þ. Guðbjarts-
son, Selfossi. Ritari: Þór Þor-
bergsson, Selfossi. Gjaldkeri:
Sverrir Steindórsson, Selfossi.
Meðstjórnendur:
Guðrún Magnúsdóttir, Hvera
gerði: Sigurður Sigmundsson,
Syðra-Langholti. Garðar Ein-
arsson, Selfossi. Björn Arnolds-
son, SelfossL