Morgunblaðið - 20.04.1967, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRtL 1967.
Hugleiðingar um dvaiar-
heimili aldraðs fólks
3PRÁTT fyrir öll þau kynstur,
eem skrifuð eru um breytingar
og framfarir mannlifsins í yfir-
standandi nútima þjóðfélagi,
menningarlega, tæknilega í lækn
isfræði, sáifræði og öllum mögu-
legum vísindum, hefur eitt mál
næstum gleymzt, sem er þó í
rauninni í augum núlifandi
eldri kynslóðar að verða mál
málanna. Og þar sem þetta er
lengi búið að vera áhugamál
okkar hjónanna, var sem heitur
straumur hrifningar legðu um
huga okkar, við að lesa grein
herra Gísla Sigurbjörnssonar í
Morguniblaðinu 7. febr. s.l. „Und
irbúningur fyrir ellina“ þessa
ágæta manns, sem meira hefur
gjört fyrir eldri kynslóðina, en
ncfkkur annar núlifandi íslend-
ingur.
Varð þetta til þess að ég
greip pennan aðeins til það
TÓKÍÓ: — Afarmiklum snjó
kingdi niður í Tókíó og um mið-
bik Norður-Japans síðdegis á
sunnudag og á mánudagsmorgun.
Mældist snjókoma þessi, sem
kom mjög svo flatt upp á lands-
tnenn, allt að 30 cm. í fjallahér-
uðunum norðan Tókíó.
sæist að þetta hefði ekki farið
fram hjá otkkur og einnig til at-
hugunar á hvað helzt skyldi gera
þessu máli til framkvæmda. Ein-
hvers staðar las ég þessar línur:
„Bezti mælikvarði á þjóð, er
meðferð hennar á gamalmenn-
um“ Og einmitt í þessu sambandi
ber að minnast og þakka ráða-
mönnum íslenzku þjóðarinnar
hið höíðinglega framlag ríkis-
ins til aldraða fólksins, sem gjör-
ir því kleift að geta lifað elli-
árin áhyggjulítið og án mikils
styrks til viðbótar. Margt af
þessu fólki er svo lánsamt að
eiga skjól hjá börnum sínum.
Sambúðin getur verið í bezta
lagi, og fullur vilji fyrir hendi
að láta þeim líða vel, en bæði
lítil húsrými og óþægilegt getur
staðið í vegi að það geti tekizt.
Og þá er ekkert eðlilegra en að
við taki dvalaheimili í þeirra
áttfhögum, svo ekki þurfi lang-
leiðis í ókunnugt umhverfi til
hvíldar og dvalar. Það skal tekið
fram, að hér er sérstaklega átt
við aldraða einstaklinga, sem
búnir eru að lifa langan vinnu-
dag, hlaðnir störfum hverja
stund, og eru ekki lengur færir
um erfiðu störfin, en eiga hvorki
frændur né vini til að dvelja hjá
síðustu árin. Og þá verður vand-
inn mestur.
Það mun mörgum finnast oifur-
eðlilegt að hreppsfélög og sýslur
stæðu fyrir því með fjárfram-
lögum og styrk frá ríkimi að
koma upp nokkrum hvildarheim
ilum fyrir aldrað fólk hliðstæð-
um Grund í Reykjavík og Dval-
arheimili aldraðra sjómanna. Þau
yrðu að vera vel í sveit sett nærri
alfáraleið, svo létt yrði um heim-
sóknir ættingja og vina. Myndar-
legar byggingar á sléttum grunni,
engar tröppur og engir stigar,
með venjulegri herbergjaskipan
og nútíma þægindum. ,J5umir
draumar geta aldrei rætzt“, svo
djarfir geta þeir verið og fjarri
mögwleikanum, en trúa mín er
sú, að svo eigum við marga á-
gæta vini og áhugamenn bœði
innan sýslunnar og burtfl'utta, að
sýna mundu þeir sitt góða rækt
arþel og hjartahlýju með að
styrkja svona hugsjón til fram-
kvæmda með nokkru fjárfram-
lagi, eldra fólki þessara sveitar
til ómetanlegirar ánægju og bless
unar, að eignast möguleika á
æfikvöldsins kyrrð, að mega lifa
fagurt sólarlag.
Haldóra Gunnarsdóttir
Ærlæk.
ANCLI - SKYRTUR
COTTON - X og Respi Super Nylon
Fáanlegar í 14 stærðum frá nr. 34 til 47.
Margar gerðir og ermalengdir.
Hvítar — Röndóttar — Mislitar.
ANGLI - ALTAF
Gjafir til Garðakirkju
GARÐAKIRKJA var vígð 20.
marz 1966 og á vígsludegi kirkj-
unnar i marz sL var þessa áfanga
minnst með fjölsóttri athöfn í
kirkjunm. Við þá athöfn afhenti
forseti bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar kirkjunni að gjöf mjög
vandaðar kirkjuklukkur, sem
Hafnarfjarðabær gaf kirkjunni.
Garðakirkju hafa við endurreisn
hennar, vígslu og á síðasta ári
borizt fjölmargar gjafir og verða
þær nefndar hér um leið og
sóknarnefndin vill flytja öllum
gefendum einlægar þakkir fyrir
frábæra rausn og velvild til hinn
ar fornfrægu kirkju.
Gjafir til Garðakirkju.
Steindur gluggi. Gefinn af
börnum Einars Þorgilssonar til
minningar um foreldra þeirra.
Altarisstjaki gefinn af Ástu og
Jóhanni Björnssyni til minning-
ar um Guðrún Egilsdóttur og
Gunnar Þorvaldsson.
Tveir altarisstjakar gefnir til
minningar um Þórunni og Ágúst
nygering af börnum þeirra.
Einn altarisstjaki gefinn af
Huldu og Óttari Proppé til minn
ingar um Helgu og C. E. D.
Proppé.
TVeir blómavasar gefnir af
Elíztabetu og Önnu Stefánsdætr-
um frá Háteigi, en þær voru
fermingarbörn séra Jens Páls-
sonar 1906.
Steindur gluggi gefinn til
minningar um Jón Þórarinsson
og séra Þórarinn Böðvarsson af
börnum og barnabörnum Jóns
Þórarinssonar.
Skírnarskál gefin til minning-
ar um Sigríði Jónsdóttur (1866-
1904) af Þorsteini Guðbrands-
syni.
Ljósakróna gefin til minningar
um Jón Gíslason, útgerðarmann
Hafnarfirði.
Róðukross á altari gefinn af
Kvenfélagi Hafnarfjarðarkirkju.
Málverk af Görðum 1906 eftir
dr. Jón Helgason, biskup.
Hökull og tvö rykkilín, níu-
tíu sérbikarar, fermingarkyrtlar
og kyrtlar fyrir söngfólk, sjálf-
virk hringingartæki fyrir kirkju
klukkur og 70 sálmabækur a!l+
gjafir frá Kvenfélagi Garðu-
hrepps.
Ailtariskanna, kaleikur, oblátu-
askur og patína gefið til minn-
ingar um Sigurlaugu og
Þórarin Böðvarsson af börnum
Einars Þorgilssonar.
Tíu sérbikarar gefnir til minn
ingar um Emil Rokstad af frú Jó
hönnu Rokstad.
Pálmatré gjöf frá frú Ástu
Björnsson.
Kaleikur gefinn til minningar
um Karitas Árnadóttur og Magn
ús Erlendsson frá Nýjabæ og
börn þeirra Þorgerði og Árna.
Gefendur- Laufey Árnadóttir,
Jón Guðmundsson, Stefanía
Jónsdóttir og Jón M. Guðmunds-
son.
Guðbrandsbiblía gefin til
minningar um fósturforeldra
sína séra Jens Fálsson og Guð-
rúnu Pétursdóttur af Guðrúnu
Magnúsdóttur og Steini Steinsen.
TVeir kertastjakar á altari
gefnir af Áslaugu Jónsdóttur.
Púlt undir Guðbrandsbiblíu
gefið af Ingimundi Hjörleifs-
syni.
Altaristafla gefin 01 minning
ar um Claus E. D. Proppé og
Helgu Proppé af afkomendum
þeirra.
Tíu þúsund krónur til að gera
steindan glugga gefinn til minn-
ingar um Össur Sigurvinsson,
trésmíðameistara.
Áheit frá Kristínu Andrésdótt
ur, Sólvallagötu 6, Reykjavík,
kr. 500.00. Áheit frá N.N. kr.
5000.00. Peningagjöf kr. 25.000
til minningar um Magnúa
Blöndahl, framkv.stjóra og frú
Guðrúnu Blöndhal og látin
systkini frú Sigríði Fjaldsted,
Sighvat Blöndahl, cand juris.,
Þormóð Stefán og Kristjönu.
Dánargjöf frá Sigfúsi Blöndahl,
generalkonsúl.
Peningagjöf fcr. 10.000.00 til
minningai um Kristínu Ölafsdótt
ur og Böðvar Böðvarsson og
börn þeirra: Þórarin Böðvars-
son, Elizabetu Böðvarsdóttur og
Elizabetu Jónsdóttur frá Önnu
Böðvarsdóttur.
Blómaker gefið af vinum.
Peningagjafir árið 1966.
Guðrún og Kristján fsaksson,
Smárahvammi, kr. 5000.00. N.N.
áheit 100 00. N.N. áheit 100.00.
Til minningar um hjónin Lilju
Kristjánsdóttur og Árna Jóns-
son, Þórdísi Bjarnadóttur og
Kristján Guðnason frá fimm
litlum systkinum kr. 25.000.00.
ólafur Þorvaldsson Ásyallagötu
Reykjav.k kr. 2.500.00. Eiríkur
Sigurðsson Kirkjuvegi 16, Hafn
arfirði, kr. 20.000.00, N.N. kr.
100.00, N.N. kr. 100.00, Minning-
argjöf um Guðrúnu og séra Jens
Pálsson, prófast, frá Karitas Hall
dórsdóttur, kr. 5,000.00, Magnús
Brynjólfsson, Dysjum, kr.
3000.00, Guðjón Jónsson, Austur-
götu 15, Hafnarfirði, 900.00. Af-
hent formanni KFUM, Reykja-
vík kr. 1000.00, Ferðafólk úr
Óháða söfnuðinum í Reykjavik,
kr 800.00. Tvö álheit kr. 200.00,
Búi Þorvaldsson, kr. 200.00, Þór-
dís og Finnbogi Guðmundsson,
Innri-Njarðvík til minningar
um Guðmund Guðmundsson frá
Hákoti, kr. 2000.00, Arnór Þor-
varðarson og systkini minningar
gjöf um ■ Elínu Jónsdóttur og
Þorvarð Þorðvarðsson, kr.
7000.00, Á.B. kr. 400.00, J.R. áheit
kr. 500.00 Á, og J. kr. 200.00,
Til minningar um Guðbjörn As-
mundsson frá Þórdísi Sigurge;rs
dóttur og börnum hans kr.
10.000.00. Minningargjöf lun Guð
ríði og Guðrúnu Sveinsdætur
kr. 2000.00 frá Úlfhildi Kristjáns
dóttur.
(Frá sóknarnefnd Garðasóknar)
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
GEFIÐ ÞESSA
HUGÞEKKU OG
FALLEGU BÓK
TIL
FERMINGA
GJAFA
UTGEFANDI
ÆSKULÝÐSNEFND
KIRKJUNNAR