Morgunblaðið - 11.08.1967, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1967
- MAURER
Framhald af bls. 15.
kam 'hann oft til þess að fá sér
eitt glas.
— Ég hafði þjón, sem var lít
ið eitt eldri en ég. Var hann
ákaflega góður vinur minn og
fór með mér í leikhús og á tón
leika. Hét hann Leo og gekk
ávallt þremur skrefum fyrir
aftan mig. Annað kom ekki til
greina, þótt ég skildi það aldrei
og mér væri meinilla við það.
— Eitt sinn meðan ég var
barn kallaði afi á mig og syst-
ur mína, og bað okkur um að
koma inn til sín í vinnuher-
bergið. Okkur varð hverft við
og skipaði hann okkur að setj-
ast í stóran leðursófa, þar sem
við sátum og þorðum varla að
mæla. Þá kom hann með stóra
súkkulaðiöskju og bauð okkur
mola úr sinni stóru hendi. Við
vorum svo hrifnar og gagntekn
ar af þeim heiðri að fá að koma
inn í herbergið, að við höfð-
um varla lyst á súkkulaðinu.
Hann var mikill persónuleiki.
Og um leið og frú Weihrauch
segir þetta starir hún dreym-
andi augunum út í loftið og
síðan heldur hún áfram:
— Eins og ég sagði áðan
minnist ^ ég ekki neinna sér-
stakra fslendinga, sem komu
í heimsókn. Hins vegar man
ég eftir Björnstjerne Björnson,
því að hann gaf mér áritaða
bók áður en hann fór. Móðir
mín sagði við mig, að ég skyldi
geyma hana, því að maðurinn
væri mjög frægur. Þetta gerði
ég og gaf síðan syni mínum.
Bókin glataðist hins vegar, eft
ir síðari heimsstyrjöldina, er
við flúðum frá Austur-Þýzka-
landi. Var það skaði, að bókin
skyldi tapast.
Árið 1857 fór Maurer til
Kauponannahafnar og dvaldist
þar um hríð. Kynntist hann þá
Jóni Sigurðssyni mjög náið og
öðrum íslendingum, er í Höfn
bjuggu. Urðu þessi kynni til
þess að ári síðar sigldi Maurer
til íslands og ferðaðist allvíða
um. Um þessa för segir Björn
M. Ólsen: „Betra gest höfum
vjer íslendingar aldrei haft,
enda var honum tekið tveim
höndum.“
Arangurinn af þessari ferð
Maurers til íslands varð mik-
ið safn þjóðsagna, er hann gaf
út í Leipzig 1860 og hét ,Is-
lándische volkssagen der geg-
enwart“. Þetta safn er undan-
fari hins mikla þjóðsagnasafns
Jóns Árnasonar, er var mikill
vinur Maurers. Á því sviði sem
öðru ruddi Maurer brautina. í
bréfi tál Björns M. Olsens eftir
Islandsheimsóknina sagði Maur
er: „Að vísu á ísland einkum
frægð sína að þakka þeim
dírðarljóma, sem af fornöld-
inni leggur, enn þó á einnig
hin síðari saga landsins sinn
rjett og sinn fróðleik. Ekkert
verra gæti að minni higgju
komið firir landið, enn ef
menn altaf skoðuðu það eins
og nokkurs konar smurling
(,,mumie“) eða liðið lík frá
löngu horfnum tímum, enn til
Snæbjörn Eyjólfsson
— Afmæliskveðja
SJÖTUGUR er í dag (6. ágúst)
Snæbjörn Eyjólfsson frá Kirkju-
hóli í Staðarsveit, nú búsettur í
Reykjavík.
Hann er fæddur á Syðra-Lága-
felli í Miðholtshreppi 6. ágúst
1897 og voru foreldrar hans,
Eyjólfur Snæbjarnarson, bóndi
þar og kona hans, Sesselja Pét-
ursdóttir. Þau fluttu þegar Snæ-
bjöm var á barnsaldri vestur í
Staðarsveit og bjuggu þar á
nokkrum stöðum, en lengst og
síðast á Kirkjuhóli. Þau eru nú
bæði látin fyrir löngu. Á Kirkju-
hóli ólst Snæbjörn að mestu
leyti upp og hefir jafnan verið
við þann bæ kenndur, sem nú
er í eyði
Snæbjörn þótti snemma efnis-
piltur og vel gefinn til sálar og
líkama, söngmaður góður og vel
að manni. íþróttir iðkaði hann
einnig, bæði glímu og hlaup og
mun hafa verið bezti hlauipari á
æskuárum sínum í Staðarsveit.
Ég, sem línur þessar rita, ólst
upp í næsta nágrenni við Snæ-
björn og vorum við því æsku-
vinir og leikbræður. Auk þess
vorum við saman um skeið í
skóla hjá föður mínum og átti
það ekki sízt drjúgan þátt í vin-
áttu okkar. Þegar við vorum inn
an við fermingaraldur, sátum
við hjá kvíaám beggja heimil-
anna, Kirkjuhóls og Hofgarða,
og var þá oft glatt á hjalla hjá
okkur. Minningar okkar frá þeim
árum eru báðum kærar.
Snaebjörn var einn af stofn-
endum M.M.F. Staðarsveitar sem
orðið er 55 ára gamalt og lengi
í stjórn þess. Frá 1919 til 1927
var ég formaður áðurnefnds
félags en hann ritari og var sam
starf okkar jafnan ágætt.
Eftir að hann fluttist til Reykja
víkur höfum við sjaldnar sést,
en þó hefi ég oftast heimsótt
hann þegar ég hefi komið í bæ-
inn og notið framúrskarandi
gestrisni hans og hans góðu
konu. Fyrir það m.a. vil ég færa
þeim báðum mínar beztu þakk-
ir.
Snæbjöm er kvæntur frænd-
konu sinni er Sigríður heitir
Jónsdóttir, ágætri konu og eiga
þau þrjú börn, sem öll eru upp-
komin og gift, en þau heita:
þess er mönnum mjög gjarnt,
einkum útlendingum.*
Enn heldur frú Weihrauch
áfram frásögn sinni af afa sín-
um:
— Á jólunum safnaðist þessi
stóra fjölskylda ávallt saman
á heimili afa. Þetta varð til
þess, að er ég hafði stofnað
mitt eigið heimili hafði ég sem
fábrotnast fæði, því að mér of-
bauð annríki þjónustuliðsins á
aðfangadagskvöld.
í stofunni var stórt jólatré
og eftir að afi varð gamall var
ekki við annað komandi en
hann sjálfur slökkti á trénu
hvert kvöld. Blés hann og
blés, tútnaði út og roðnaði öll-
um til hinnar mestu gremju,
því að allir voru dauðhrædd-
ir að hann þyldi ekki áreynsl-
una, en hans vilji varð að ráða.
Hann átti það til undir borð
um að standa upp brjóta sam-
an pentudúk sinn og ganga
orðalaust út, mislíkaði honum
eitthvað. Oft vissu menn ekki,
hvað hefði farið öðru vísi en
hann hafði viljað og sátu því
allir hljóðir eftir og fengu ekki
mælt.
— Um afa má ýmislegt gott
segja. Hann hafði raunar mjög
hlýtt hjarta. Einhverju sinni
varð hann var við, að ein barn
fóstran grét í laumi. Hann
spurði hana þá af hverju hún
gréti og sagði hún þá, að for-
eldrar sínir hefðu látizt úr kól-
eru og yngsti bróðir sinn ætti
ekki í neitt hús að venda,
Hann bauð þá stúlkunni, að
koma með bróður sinn til sín,
hann skyldi sjá um uppeldi
hans. Ólst þessi piltur síðan
upp með okkur, fór í iðnnám
og lærði trésmíðar. Er hann
hafði lokið prófi, keypti afi
handa honum verkstæði og
verzlun og kom undir hann fót
unum. Þessi maður varð síðan
bezti fjölskylduvinur okkar og
var ávallt kallaður Peps
frændi.
— Nei, segir frú Weihrauch
að lokum. Ég heyrði aldrei tal-
að um sjálfstæðisbaráttu ís-
lendinga. Líklegast hefur það
verið af því að enginn á heim-
ilinu hafði áhuga á henni
nema afi, og því var hún ekki
fallin til samræðna.
Dr. Konrad Maurer lézt árið
1902. Þessi mikli íslandsvinur
hafði þá orðið íslendingum að
ómetanlegu gagni. Það vekur
furðu, að Þjóðverji, sem á eng-
in þjóðernisleg tengsl við Dani
eða íslendinga skuli fá svo mik
inn áhuga á sjálfstæðisbaráttu
íslendinga. íslendingar eiga að
halda minningu hans í háveg-
um og því viljum’ við enda
þessa grein með niðurlagsorð-
um Björns M. Olsens í alman-
aksgreininni:
„Að endingu leifi jeg mjer
að taka undir það, sem Gísli
Brynjólfsson segir í kvæði
sínu til Maurers (í Níjum Fje-
lagsritum 1859):
„Nje þín gleimast lið í landi
íengi besta minning skaL“
— mf.
FJÖLDI Þjóðverja hefur ver-
ið handtekinn í Ruhr-hérað-
inu í Vestur-Þýzkaiandi, sak-
aður um njósnir á vegum
kommúnistaríkja. Ekki hefur
verið skýrt frá því hve marg
ir hafa verið handteknir, né
heldur hve alvarleg brot
þeirra eru.
Brídge
EVRÓPUMÓTIÐ í bridge fer að
þessu sinni fram í Dublin dag-
ana 4.—16. september nk. Bridge
samband íslands sendir sveit til
keppninnar í opna flokknum og
eru það núverandi íslandsmeisit-
arar, þ.e. sveit Halls Smíonar-
sonar, en auk Halls eru í sveit-
inni Símon Símonarson, Þorgeir
Sigurðsson, Stefán J. Guðjohn-
sen, Eggert Benónýsson og Þórir
Sigurðsson. Fararstjóri verður
I>órður Jónsson.
Bvrópumót þetta er hið 19. í
röðinni og hafa 20 lönd tilkynnt
þátttöbu í opna flokknum en 14
í kvennaflokki. Löndin sem til-
kynnt hafa þátttöku í opna
flokknum eru þessi (talin upp
eftir töluröð): Spánn, England,
Líbanon, ísraeþ Sviþjóð, ftalía,
írland, Noregur, Pólland, Belgía,
Grikkiand, Fraikkland, Dan-
mörk, ísland, Sviss, Holland,
Porfúgal, Tékkóslóvakíu, Þýzka-
land og Finnland. Samkvæmt
þessari töfluröð mætir íslenzka
sveitin fyrst gestgjöfunum frá
írlandi, síðan ítölsku sveitinni og
í þriðju umferð Svíþjóð.
Þetta er í 12. sinn sem ís-
lenzk sveit keppir í opna flokkn-
ur í Evrópumóti. Bezti árangur
sem íslenzkt sveit hefur náð var
árið 1950, en þá hlaut íslenzka
sveitin 3. sætið.
Núverandi Evrópumeistari er
franska sveitin, sem sigraði á
Evrópumótinu, sem haldið var í
Varsjá í september 1966. f öðnu
sæti var hollenzka srveitin og nr.
3 var nonska sveitin.
Denver, 9. ágúst, AP.
MJÖG snarpur j arðskjáHtaC .Ipp-
■ur varð á Denverngvæðinu í Colo
rado-fýlfki í Bandarítojiunium í
dag. Kippurinn mœldist 5.3 stig
á Rich t e r - j ar ðsk j álft amæl i.
Nökfkrar ííkeimmdir hlutust af
jarðbkjálítanuim, en slys urðu
efeki á iruönnuim.
- 25 ÁR
Framhald af bls. 14.
Tókíó bárust fréttir af því að
eyjan hafði verið á valdi Ja-
pana. Flotastjórninni hafði
láðst að geta þess.
Tanshiro Hattori, sem þá
var majór í hemum og starf-
aði við yfir-herstjórnina í
Tókíó, sag*ði: „Við vissum
varla hvar Guadalcanal var.“
Hattori minnist þess að flestir
yfirstjórnendur japanska
hersins hafi haldið að Banda-
ríkjamenn gætu alls ekki haf-
ið neina gagnárás, sem heitið
gæti, fyrr en á miðju ári 1943.
„Margir voru þeir yfirmenn,
sérstaklega í hemum, sem
ekki höfðu hugmynd um hve
gífurlegan ósigur japanski
flotinn hafði beðið í sjóorust-
unni, sem kennd er við eyj-
una Midway, þar sem mörg
af fremstu skipum flotans
voru eyðilögð," sagði Hattori.
Eftir að bandarísku land-
gönguliðarnir, undir stjóm
Alexanders A. Vandergrifts
hershöfðingja, höfðu lagt und-
ir sig flugvöllinn varð ja-
pönsku herstjórunum Ijóst að
japanskar herstöðvar í mörg
hundmð kílómetra fjarlægð
frá Guadalcanal voru í hættu
JAMES BOND ~±~ -*- - - - - -sc- -dc- IAN FLEMING
James horfði furðu lostinn á, þegar — Sláðu, Oddjob. Taktu nú vel eftir, Bond. Oddjob, arin-
Kóreurisinn lyfti hendinni ... — Svona kraftur býr í fótum hans líka. hilian.
vegna hugsanlegra loftárása,
sérstaklega Rabaul-herstöðin
fyrir norðan GuadalcanaL
Innrásarforinginn framdl
sjálfsmorð.
Það ráð var tekið að senda
úrvalssveit japanskra her-
manna undir stjóm Kiyonao
Ichiki ofursta til að taka eyj-
una á ný, og höfðu þeir sex
tundurspilla sér til stuðnings.
Stigu þeir á land á Guadal-
canal hinn 18. ágúst, ellefu
dögum eftir landgöngu
Bandaríkjamanna, og átti
ekki að gefa óvinunum tæki-
færi til að búa um sig.
Japanirnir stigu á land á
Taivu, sem er nes norðarlega
á eyjunni, og stefndu strax
til flugvallarins. Samkvæmt
japönskum heimildum urðu
Japanir ekki varir við neina
Bandaríkjamenn í fyrstu, og
varð það til þess að Ichiki
ofursti sendi herstjóminni í
Tókíó svohljóðandi símskeyti:
„Hér eru engir óvinir. Þetta
er eins og að fara um friðlýst
svæði.“
Þegar japanska innrásar-
liðið var svo skömmu seinna
að fara yfir Ilu-fljótið og út
á bersvæði, varð það fyrir
haiðri skothríð frá banda-
rískum leyniskyttum, sem
vom í felum allsstaðar um-
hverfis innrásarherinn. Um
helmingur Japananna féll, og
Ichiki sjálfur særðist. Varð
honum svo mikið um að hann
hrifsaði til sín fána herdeild-
arinnar og kveikti í honum,
en framdi síðan sjálfsmorð
með því að reka sverð gegn-
um hálsinn á sér.
Næstu tilraunir.
Þetta var mikið áfall fyrir
herstjórnina í Tókíó, sem
sendi þegar annan leiðangur
til að frelsa Guadalcanal, að
þessu sinni undir stjóm Kiyo-
take Kwaguchi hershöfðingja.
Ekki tókst þessum leiðangri
heldur a'ð hrekja Bandaríkja-
mennina frá Guadalcanal.
Vora um tvö þúsund Japanir
felldir úr innrásarliðinu,
þeirra á meðal Kwaguchi
hershöfðingi.
Þriðja tilraun Japana var
gerð í september undir stjórn
Masao Marayama hershöfð-
ingja. Hafði hann fyrirskipun
um að taka flugvöllinn á Gua
dalcanal, sem Bandaríkja-
menn kölluðu nú Henderson
Field. Einn af undirforingj-
unum í þessum leiðangri seg-
ir að herflokk sínum hafi
tekizt að ná smáhluta flug-
vallarins en öðram sveitum
Japana tókst ekki að brjótast
gegnum varnarlínu banda-
rísku landgönguliðanna, svo
flokkurinn neyddist til að
hörfa undan.
Erfiðlega tókst áð halda
uppi vistaflutningum til inn-
rásarliðsins vegna þess hve
bandarísku flugvélarnar áttu
auðvelt með að sökkva skip-
unum. Gengu því matvæli
skjótt til þurrðar. „Það eina
sem við höifðum var vatn og
jurtarætur", segir einn af for-
ingjum innrásarliðsins. „Við
neyddumst til að ferðast um
nætur til að forðast loftárásir
óvinanna. Margir létust úr
malaríu. Hinir særðu létust
unnvörpum. Sjúkraliðarnir
voru of veikburða vegna
hungurs til áð geta gengið.“
Áætlað er að um 24 þúsund
af þeim 36 þúsund japönsku
hermönnum, sem þátt tóku í
þessum tilraunum til að ná
GuadalcanaL hafi fallið eða
særzt. Samkvæmt japönskum
heimildum var mannfall
Bandaríkjanna 2.000 hermenn.
Sjálfir segjast Bandaríkja-
menn hafa misst 1.500.
♦
Hinn 31. desember 1942
komu japönsku herstjórnend-
urnir saman til fundar í
Tókíó. Ákváðu þeir þar að
flytja á brott alla þá her-
menn, sem enn voru á Gua-
dalcanal. Eftir það var eyjan
á valdi Bandaríkjamanna. Til-
raunum Japana til að ná
henni var lokið.