Morgunblaðið - 11.08.1967, Síða 27
MORGUNBLAÐEÐ, FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1967
27
— Þótt við séum
Framhald af bls. 11.
Einn liður í þessum athug-
unum mínum á fjallagróðri er
hvernig jökulsker, sem mynd-
ast hafa við samdrátt jöklanna
að undanförnu. Jökulsker þau,
sem ég hef sérstaklega til rann-
sóknar, eru uppi í Breiðamerk-
urjökli og hafa myndazt sfðustu
áratugi. Hef ég rannsakað
hvernig gróður hefir numið þar
land og hvernig svæðin hafa
svo klæðst gróðri. Ég hef beint
rannsóknum mínum aðallega
að tveimur skerjum, annað er
30 ára gamalt, en hitt aðeins
5 ára. í skerjum þessum hef
ég merkt þó nokkra reiti, sem
ég hef síðan farið og rannsakað
flest árin allt frá 1962. Skerið,
sem var nýkomið upp þá, árið
1962, og var aldautt af gróðri
er nú svo á vegi statt, áð í
það eru komnar 20 tegundir af
blómplöntum, eða svo var í
fyrra, og nokkrar mosategund-
ir.
Stór þáttur í þessum rann-
sóknum mínum er að gera sam-
anburð á gróðurfari milli ein-
stakra landshluta. Af þeim sam
anburði er ætlunin að fá sam-
anburð á gróðurþróun til fjalla.
Þessar rannsóknir geta sýnt
fram á, að hafi íslaus svæði
verið til hér á landi á jökul-
tíma, þá eru býsna margar ís-
lenzkar plöntur það harðgerðar
að þær hafa getað lifáð á þeim
stöðum, en einmitt þessi kenn-
ing um ísaldarplöntur vakti
áhuga minn á rannsókn fjalla-
plantna.
Hitt er svo annað mál að erf-
itt er að meta á þessu stigi, hve
mikla hagnýta þýðingu þetta
getur haft 1 þeirri þjóðhagslegu
merkingu er varðar brauðstrit
og fylling buddu og maga.
Þá hef ég einnig ætlað að
gera samanburð á landnámi í
fyrrnefndum jökulskerjum og
landnámi plantna í Surtsey
þótt aðstaða sé mjög ólík á
margan hátt þá eru bæði sker-
in og Surtsey einangruð frá
grónum svæ'ðum, þótt allar aðr-
ar aðstæður séu ólíkar.
Og að síðustu ræðum við Ey-
þór lítillega um grasaáhuga al-
mennings. Um það segir hann:
— Ég vil mjög hvetja þá,
sem áhuga hafa á grasafræði
og plöntusöfnun, að haldá sínu
starfi ótrauðir áfram, enda
hafa margir slíkir áhugamenn
unnið mikið gagn í sambandi
við útbreiðslu einstakra plöntu-
tegunda. Flóra íslands er það
rit, sem bezt getur leitt byrj-
andann, sem vill helga sig
plöntusöfnun og raunar hið
eina rit, sem hér er að hafa
sinnar tegundar og í henni eru
ýtarlegar lefðbeiningar um
plöntusöfnun.
— Og að lokum ofurlítið um
aðstöðu ykkar vísindamann-
anna, Eyþór?
— Þótt við séum stöðugt að
kvarta og vinnuaðstaða okkar
sé ekki sem ákjósanlegust, frek-
ar en hjá öðrum vísindamönn-
um á íslandi, hef ég mikla gleði
af þessu starfi mínu, þótt lífs-
afkomuna verði ég að bæta
með kennslustörfum á vetrum,
segir Eyþór Einarsson grasa-
fræðingur að lokum. Með þáð
heldur hann með sitt snyrtilega
skegg og veðurbitna andlit út í
ágústsólina og stefnan er tekin
til fjalla á ný.
vig.
Saltvík opnar
um aðra helgi
SÁLTVÍK — hinn nýi skemmti-
staður ung-a fólksins á Kjalar-
nesi verður opnaður helgina 19.
og 20. ágúst. Upprunalega var
ákveðið, að skemmtistaðurinn
yrði opnaður um næstu helgi,
en af því getur ekki orðið, vegna
þess, að framkvæmdir við gólf
í hlöðu, þar sem verða á dans-
salur, hefur ekki staðizt áætlun.
Unnið hefur verið af kappi
við allan undirbúning. Gengið
hefur verið frá veitingastað, sal
ernum og húsakynni öll hafa ver
ir máluð. Þá hefur verið komið
fyrir bifreiðastæðuim og fl. Að
öllu forfallalausu geta Því reyk-
vískir unglingar skemmt sér í
Saltvík um aðra helgL
Hafin smíði göngubrúar
yfir Jökulsá á Löni
Sffifði brúarinnar yfir Jökulsá
á BreiÖamerkursandi langt komin
Hornafirði, 3. ágúst
HÉR er heyskap viðast hvar að
verða lokið. Var grasspretta yf-
irleitt allgóð, og einkanlega á
sandræktum, en lélegri á göml-
um túnum, sem voru beitt iangt
fram á vor. Er heyfengur víða
mikill og nýting með ágætum.
Ekki verður um neinn háarslátt
að ræða, né engjaslátt, því að
þær eru aliar einskisnýtar síð-
an hætt var að nýta þær.
Hengibrúin á Jökulsá á
Breiðamerkursandi er að verða
langt komin, og lýkur smíði
hennar sennilega síðar í þess-
um mánuði, en yfirbrúarsmiður
er Jónas Gíslason. Þá er hafin
smíði á göngubrú yfir Jökulsá
í Lóni hjá Kollumúla, en upp-
setningu hennar annast Haf-
steinn Jónsson, verkstjóri. Var
efni til hennar flutt á bílum
inn á Illakamto, dregið á flekum
yfir kambinn, en síðan flutt á
hestum það sem eftir var af
leiðinni að brúarstæðinu.
— Gurmar.
Góöur afli hjá sjó-
stangaveiðimönnum
H Ó P U R manna úr Sjóstanga-
veiðifélagi Reykjavíkur fór nú
um verzlunarmannahelgina á
veiðar á Breiðafirði. Gisti fólkið
í hótelinu í Grundarfirði og
stundaði veiðar tvo daga á þrem
ur bátum. Voru þátttakendur í
ferðinni tæplega 30, og voru
bæði heppnir með veður og
feng.
Maignús Valdimansson, fram-
kvæmdastjóri, tjáðd Mbl. að þetta
væri í sjötta skiptið, sem efnt
væri til slíkrar farar á vegum fé-
lagsins til Grundarfjarðar. Heföu
ávaOllt verið farið um verzlunar-
mannahelgina og hefði veður
ætíð verið mjög gott.
Nú um helgin-a var rjómalogn.
- DE GAULLE
Framhald af bls. 1.
fjögurra eða fimm annarra
ríkja í það, í viðhorfi sínu til
austurs, til hins alþjóðlega pen-
ingaikerfis, eða nú fyrir
skemmstu til hins einróma og
ólýsanlega vilja til frelsis, sem
frönskumælandi Kanadamenn
hefðu sýnt frammi fyrir forset-
anum. Sú staðreynd, að Frakk-
land hefur megnað að gera allt
þetta, hefur komið á óvart og
hefur hrætt ,málsvara hnignun-
arinnar", sagði forsetinn.
De Gaulle sagði ennfremiur,
að það hefði verið í þágu frið-
arins, að Frakkland hefði bund
ið endi á hernaðaraðgerðir sín-
ar í Alsír og komið á vinsam-
legum samskiptum við fyrri ný
lendur sínar í Afríku. Þetta
hefði einnig verið ástæðan til
þess, að Frakkar hefðu látið
fyrri dei’lur sínar við Þjóðverja
tilheyra fortíðinni og tækju nú
þátt í vinsamlegu samstarfi við
þá. Af sömu ástæðu kynnu
Frakkar að því, að samstarfið
á meðal hinna sex ríkja Efna-
hagsbandalagsins yrði að stjórn
málalegri staðreynd og mikil-
vægur þáttur í friðarjafnvægi
heimsins.
Þetta væri einnig ástæðan fyr
ir því, að í stað hinnar hættu-
legu afstöðu til Austur-Evrópu
kysu Frakkar nú vinsamleg og
árangursrík tengsl við ríkin þar.
Þetta væri og einnig ásæðan fyr
ir því, að Frakkar hefðu tekið
upp stjómmálasamskipti við Pek
ingstjórnina, enda þótt árangur
þess væri ef til vill ekki sýni-
legur eins og er. Af sömu á-
stæðu fordæmdu Frakkar einn-
ig sénhverja vopnaða íhlutun á
landsvæði annarra ríkja, eins og
átt hefur sér stað í Suðaustur-
Asíu og Austurlöndum nær.
Forsetinn sagði enn fremur, að
það væri einnig í þágu friðar-
ins, að Frakkland hefði komið
sér upp kjarnorkuherafla til
þess að bægja frá árás, sem væri
þannig, að ekkert land í heimi
myndi hafa áhuga á að gera árás
á Frakkland, því að það myndi
vita það, að ef það gerðist, þá
myndi það land verða fyrir
hræðilegu tjóni.
f innanlandsmálum benti de
Gaulle m.a. á þær félagslegu ráð
stafanir, sem ríkisstjórnin hefði
samþykkt á miðvikudag, en það
væru endurbætur á trygginga-
kerfinu og áætlun um að laun-
þegar fái hlutdeild í hagnaði
fyrirtækja.
De Gaulle skírskotaði að lok-
um til Mephistophelesar í Faust,
leikriti Goethes, er forsetinn
skoraði á þjóð sína að sækja
fram á við. Hann sagði: „Með
því að hlusta á ráðleggingar
Mephistophelesar rataði hinn
ógæfusami dr. Faust úr einni
ógæfunni í aðra, unz Ihann hlaut
fordæmingu að lokurn. Franskir
karlar og konur, við munum
ekki gera hið sama. Við munum
sækja fram og ýta til hliðar ef-
anum, hinum illa anda allrar
hnignunar."
Veiðin gekk vel og fékk sá er
varð fengsælastur 147 fiska, en
það var Njáll Símonarson. Tvær
ihnátur, 10 ag 11 ára, fengu til
samsns 140 fiska.
Mestur hluti aflans var þorsk-
ur og ufsi og fóllkið reyndi við
lúöuna, en hún lét ekki ginnast.
Stærsiti þorskurinn, sem veiddist
mun hafa verið um 14 pund.
Maignús sagði, að hér hefði
ekki verið um mót að ræða, held
ur hafi ferðin verið farin til
skemmtunar eingöngu. Eiftir um
það bil mánuð verður haldið á
Akureyri á sjóstangaveiðimót, en
alls gengst Sjóstangaveiðifélag
Reykjavíkur fyrir þremur mót-
um á þssisu sumri.
Kostnaður við þessa ferð til
Grundarfjarðar, sagði Magnús,
að væri um 500 krónur á stöng
á dag og væri þá allur kostnað-
ur innifalinn. Sumir þátttakend-
ur notuðu einnig tækifærið og
skoðuðu fuiglalíf, en það er blóm
legt á Breiðarfjarðareyjum, eins
og kunnugt er.
— Jdrnbrautarslys
Framhald af bls. 1.
tnu og fjölda björgunarmanna,
m.a. frá Falck's, sem létu sam-
stundis taka gildi neyðarástands
áætlun sína fyrir svæðið. Danska
þjóðvamarliðið tók einnig þátt
í björgunarstarfinu og fjöldi
sjálfboðaliða. öll umferð í þeim
hluta Óðinsvéa, sem næst var
slyisstað stöðvaðist að balla mieð-
an sjúkrabílarnir óku fram og
aftur milli slysstaðs og sjúkra-
hússins með hina slösuðu jafn-
óðum og þeim var bjargað út
úr lestarvögnunum,
Fyrstu upplýsingamar frá
sjúkrahúsinu hermdu að 5—6
manns hefðu farizt. Um klukkan
ellefu höfðu 30 manns kamið á
sjúkrahúsið til meðferðar og var
helmingur þeirra svo illa særð-
ur að þá varð að kyrrsetja þar.
Um kl. 12,30 var ljóst, að
minnsta kosti níu manns höfðu
látið lifið í slysi þessu og um
100 særzt meira og minna. Lækn
ar á slysstað óttuðust að fleiri
kynnu að hafa látizt, en ekki
voru öll kurl komin til grafar
síðast er til fréttis, þvi ekki var
að fullu lokið leit í tveimur lest
arvögnunum sem harðast urðu
úti í árekstrinum.
Ljóst var að „Norðjyden" ók
á „Sydvestjyden" á mikilli ferð,
en ékki er vitað nákvæmlega
hver hraðinn hefur verið. Al-
gengastur hraði á leiðinni yfir
Fjón á þessu aðalspori hraðl^st-
anna dönsku er um 140 km. á
klst. Talsmenn Jámbrautarfélags
ins danska í Árósum, höfuðstöð
svæðisins, segjast hvorki skilja
upp né niður í þvi hvernig slys-
ið hafi getað átt sér stað. Hrað-
lestarsporin yfir Fjón eru al-
gerlega sjálfvirk og merkja-
kerfin þar talin eitt öruggasta
í Danmörku.
Hopferð að
VEGNA Hólahátíðarinnar á
sunnudaginn kemur verður efnt
til hópferðar frá Akureyri að
Hólum í Hjaltadal kL 11 á
sunnudagsmorgun. Lagt verður
af stað frá Ferðaskrifstofunni
Sögu, og ættu þeir, sem hug
hafa á þátttöku að láta skrá sig
þar sem hið allra fyrsta.
Tito kominn
til Kairo
Kaíró, 10. ágúst, AP.
TÍTÓ, forseti Júgósiavíu, kom
til Kairó í dag tl þriggja daga
viðræðna við Nasser, Egypta-
landsforseta, í því skyni, að þvi
er haldið er, að finna lausn á
dailumálum ísraelis og Araba-
ríkjanna.
Þjóðhöfðingjarnir föðmuðu
hvor annan á flugvellinum og
skotið var af fallbyssum í heið-
ursskyni við Tító.
Mannfjöldinn, sem mættur
var til þess að fagna Tító forseta,
hrópaði m.a.: ,,Lengi lifi Tító....
við munum halda áfram barátt-
unni til sigurs“. Á götunum, sem
bifreið þjóðhöfðingjanna ók eft-
ir, voru einnig menn með skilti,
þar sem á stóð: „Velkominn Tító,
friðarins maður“.
- ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 26
Fyrsti dagur mótsins var sann
arlega dagur Finnlands þeir
hlutu alls fimm Norðurlanda-
meistaratitla og ein silfurverð-
laun í sundgreinum mótsins sem
voru 6 í dag og auk þess sjötta
Norðurlandameistaratitillinn 1
anmarri tveggja greina dýfinga
sem á dagskrá voru. Svíiar
fengu komið í veg fyrir hreinan
sigur Finna í sundgreinum dags-
ins, með sigri í fyrstu grein móts
ins, 400 metra skriðsundi karla.
Uppskera í verðlaunum hjá
löndunum fimm á mótinu urðu
annars þessi: Finnar 6 gullverð-
laun og tvenn silfurverðlaun;
Svíar hlutu ein gullverðlaun,
fjögur silfurverðlaun og þrjú
bronzverðlaun; Norðmenn hlutu
tvenn silfurverðlaun og þrenn
bronzverðlaun; Danir hlutu ein
gullverðlaun, í dýfingum, og ein
bronzverðlaun í sundgreinum og
fslendingar hlutu ein bronzverð
laun.
Það, að svo lítið ber á Sví-
um á þessu móti, stafar af því,
að sænsk sundyfirvöld hafa hrein
lega hunsað þetta Norðurlanda-
mót og sent tugi af bezta sund-
fólki sínu til æfinga í háfjafla-
laug á Pireniaskaga til undir-
búnings fyrir olympíuleikana I
Mexikó.
Hefur þetta valdið hneykslun
hjá hinum Norðurlöndunum, og
svo mjög hjá gestgjöfumum,
Dönum, að Svíar hafa séð sig
um hönd og einhverjir úr hópi
hinna tuttugu útvöldu eru vænt
anlegir til keppninnar á morgun,
föstudag.
ENN var stillt veður um allt
land í gær. Smáskúrir voru á
víð og dreif um Suður og
Vesturland, en fyrir norðan
og austan voru þokuloft að
morgni, en létti víða til í mið
sveitum síðdegis. Fremur
hlýtt var um allt land nema
svalt var við strendur á Norð
ur og Austurlandi. Kl. 15 var
hlýjast á Eyrarbakka 15 stig.