Morgunblaðið - 18.02.1968, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1968
„Hann mokar kolum og mokar
kolum frá morgni til sólarlags“
Nú er kolakraninn fallinn.
Höfnin eftir sem neflaus
ásýnd er. Kolakraninn setti
svip sinn á bæinn, virðulegan
stórborgarsvip, og mikið held
ég að hafi rétzt úr mörgum
bökum gömlu karlanna og
jafnvel kvennanna, sem í
gamla daga urðu að bera alla
kola- og saltpokana, upp
steinlbryggjuna, Tryggvasker,
— þegar kola'kraninn eða
Hegrinn, eins og hann var oft
nefndur, tók til starfa. Mynd-
in, sem þessum línum fylgir,
er gömul, frá fyrsta ári kola-
kranans. Greinilega sést að
verið er að losa kol úr kjaft-
inum, og ef vel er að gáð,
sést hestur spenntur fyrir
kerru, en slík farartseki voru
notuð í þá daga.
—Kolakraninn varð einskonar
þjóðsagnapersóna, skáildin
ortu um hann kvæði, og í til-
efni af falli Hegrans, birtum
við glefsur úr kvæðum
tveggja stórskálda, þar sem
minnst er á kolakranann. —
Skáldin eru Halldór Laxness
og Tómas Guðmundsson. Við
biðjum forláts, að kvæðin
skuli ekki vera birt í heild,
en plássleysi veldur. — Fr. S.
------------- ■ .|- — - - ■ --------------------------------------------- - ■ ----------- - ■ ,
Fíladelfía, Reykjavík: Guðs-
þjónusta sunnud. kl. 2. Athugið
breyttan tíma. Ræðumenn:
Daníel Jónasson söngkennari,
Hallgrímur Guðmundsson. Fjöl-
breyttur söngur. Samkoma um
kvöldið fellur niður.
Bræðrafélag Bústaðasóknar:
Konukvöldið er í salarkynnum
dansskóla Hermanns Ragnars,
Miðbæ, sunnudagskvöld kl- 8.30.
Félagar takið með ykkur gesti
og munið guðsþjónustuna kl. 2.
Stjórnin.
Barnaskemmtun
í dag kl. 1.30 verður barna-
skemmtun í Austurbæjarbíói. —
Þangað kemur gamall góðkunn-
ingi margra barna, Konni, og
hlakkar til að hitta marga káta
krakka.
Hugleiðing
Páll postuli sagði: „Ég veit
að ekkert gott býr í mér þar
er Guð sem vinnur hið góða
verk í mér og öðrum mönn-
um.
Og sjálfur konungur kær-
leikans sagði: „Elskið hver
annan og verið miskunnsam-
ir. Á því skulu allir þekkja
að þér eru mínir lærisveinar,
og þér elskið hver annan.“
Kristur þekkti eðli og ástæð-
ur allra manna og hjálpaði
öllum. Hann sagði: „Hungr-
aður var ég og þér gáfuð mér
að éta, þyrstur var ég og þér
gáfuð mér að drekka- Gestur
var ég og þér hýstuð mig,
nakinn var ég og þér klædd-
uð mig. Sjúkur var ég og þér
vitjuðuð mín, í fangelsi var
ég og þér komuð til mín.“
Hann svarar, „það sem þér
hafið gjört einhverjum þess-
ara minna minnstu bræðra
— þá hafið þér gjört mér
það.
Ekki er nú von að við
syndugir menn, skiljum
þennan fullkomna kærleika
Guðs, sem og stjórnar öllum
miskunnarverkum á jörðu
Vitum þó að það er Guð,
sem gefur mönnum alla
möguleika og þann góða
vilja, að ganga fram og
segja, „Hér er ég — sendu
mig.“
Kristín Sigfúsdóttir
frá Syðri-Völlum.
Vísukorn
Afmælisávarp.
Þér er mikið létt að lýsa
ljúfur vinur sérhvers manns.
Þetta er reyndar engin vísa
aðeins vottur sannleikans.
Leifur Auðunsson, Leifsstaðir.
! Héraðavísur j
t Bianda og ár, sem í hana 1
/ falla. \
J Þrettán kvíslar í Þegjandþí
\ Þegjandi í Beljandi, /
L Beljandi í Blöndu þá, *
/ Blanda rennur út í sjá. |
Spakmœli dagsins
Á meðan vér unnum, þjónum
vér. Á meðan oss er unnað,
liggur mér við að segja, að vér
séum ómissandi. Og enginn er
gagnslaus mieðan hann á nokk-
urn vin. — R- L. Stevenson.
sá NÆST bezti
Tristan Bernard gekk um franskan kirkjugarð með vini sínum.
Sáu þeir þá legstein, er reistur hafði verið yfir aldraðan mann, og
stóð þar skrifað, að hann hefði látið eftir sig gullfallega ekkju. „Já“
sagði Bernard, „þetta er líklega okið er létt var af hjarta hennar!“
FRÉTTIR
Holmens Havn eftir Laxness
„Lát huggast barn, því hér mun batna í ári
og hér mun létta vinnuskorti og fári,
kaupgjaldið hækkar, sál mín, senn áð mun:
fimmkall á tímann fyrir uppskipun.
Hlustaðu á útvarpsóma tímans nýa
og unn þeim góðs sem kolahegrann vígja.“
Við höfnina
eftir Tómas Cuðmundsson
„En hátt yfir umferð hafnar og bryggju
og hátt yfir báta og skip,
sfinxi líkur rís kolakraninn
með kaldan musterissvip.
Hann mokar kolum og mokar kolum
frá morgni til sólarlags.
Raust hans flytur um borg og bryggjur
boðskap hins nýja dags.
Hann læsist í gegnum umferðaysinn.
Hann iðar í bílanna þröng.
Undrandi kolakarlarnir hlusta
á kranans máttuga söng.
Eitthvað, sem skeði, sló örstutt glampa
á augun þreytt og köld.
— Þarna kom Súlan og beygði yfir bæinn.
Botnia fer í kvöld.“
Rýmingarsala
Nýir gullfallegir svefnbekk
ir 2.300.00 kr., með skúffu
2.950.00. Vandaðir svefnsóf
ar frá 3.500.00. Sófaverk-
stæðið, Gretisg. 69, s. 20676
Skrifstofustarf
Vön skrifstofustúlka óskar
eftir atvinnu, er vön véla-
bókhaldi og almennum
skrifstofust. Tilboð merkt:
„5359“ sendist Mbl.
Höfurn opnað bílaverkstæði
að Höfðatúni 4. Sími 22760.
Önnumst viðgerðir á Volkswagen.
Vinsamlegast reynið viðskiptin.
Jónas Jónsson, Karl Pálsson.
Skrifstofuhúsnæði
2 samliggjandi skrifstofuherbergi á Laugavegi 24
til leigú strax.
Upplýsingar í síma 17266.
Skipstjórar
Skipstjóra vantar á gott skip, sem gert verður út
á togveiðar frá Norðurlandi.
Upplýsingar veitir bæjarstjórinn á Sau'ðárkróki.
Vél i trillubát óskast
12—20 hestafla benzín- eða steinolíuvél óskast.
Uppl. í síma 35727 mánudag frá kl. 1—5.
Rýmingarsala
tJr, klukkur, skartgripir.
Þar sem verzlunin er að hœtta
verður 15 til 20°Jo afsláttur
af öllum vörum
tJrsmiður Ingvar Benjamínsson
Laugavegi 25.
Arabia-hreinlætistæki
Hljóðlaust W.C. Hið einasta í heimi
Verð á W.C. aðeins kr. 3.375.00
Handlaugar — 930,00
Fætur f. do. — 735,00 *
Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Eingaumboð fyrir Island:
Hannes Þorsteinsson, heildverzlun
Hallveigarstíg 10 — Sími 2-44-55