Morgunblaðið - 02.03.1968, Page 1
32 SBÐUR
53. tbl. 55. árg.
LAUGARDAGUR 2. MARZ 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
- BÁTAFLOTIIMIM KOIVfST A SJO I IMOTT -
neitar
Eftir 6 daga landleigru hjá öllum bátaflotanum * Vestmannaeyjum, gaf fyrst á sjó í gær. Myndina tók Sigurg'eir Jónasson í gær
og sýnir hún hluta af bátaflotanum, sem var þar í höfninni í landlegunni. Allur þessi floti hélt á miðin í gær og nótt, en
veður var þá farið að stillast og sjór farinn að ganga niður. Foráttubrim hefur verið undanfarna daga við Eyjar og hafa grunn
verið uppi í sjógangj og brot á þeim. Er óskandi að sjómenn fái frið til þess að sækja á miðin og að gæftir verði góðar.
Bonn, 1. marz. — NTB
HEINRICH Lúbke, forseti V-
Þýzkalands hefur vísað á bug
ásökunum um, að hann hafi und-
irritað teikningar af fangabúðum
er nazistar komu upp í heims-
styrjöldinni síðari. Hefur forset-
inn gefið út opinbera yfirlýsingu
um þetta mál og las hana sjálfur
I upp í útvarpi og sjónvarpi í dag,
auk þess sem hún var birt í blöð
um og hjá öðrum fréttastofnun-
um.
f yfirlýsingunni sagði hann,
m.a., að hann gæti með engu
móti munað eftir sérhverri teikn-
ingu, sem hann setti nafn sitt
undir á styrjaldarárunum, en
staðhæfði, að arkitektafyrirtækið
sem hann starfaði fyrir í Berlín
á þessum árum, hefði aldrei tek-
ið að sér að teikna fangabúðir
útrýmingarstöðvar.
Um leið og forsetinn las yfir-
lýsinigu sína í útvarpinu, birti
v-þýzka stjórnin aðra, þar sem
lýst var yfir fullum stuðningi við
forsetann. Segir þar, að fram-
koma forsetans hafi verið óað-
finnanleg, bæði á dögum Weim-
Framhald á bls. 31.
Þjóðarafkvæðagreiðsla
í Grikklandi í sumar
— um nýja stjórnarskrá
Aþenu, 1. marz NTB
FORSÆTISRÁÐHERRA
Grikklands, Georg Papado-
poulos skýrði frá því í dag,
að einhverntíma á tímabilinu
frá júní til september nk.
mundi gengið til þjóðarat-
kvæðagreiðslu í landinu um
nýja stjórnarskrá.
Papadopoulos skýr’ði frá þessu
á fundi með fréttamönnum og
sagði, að uppkast að stjórnar-
skránni yrði birt opinberlega
og frjálsar umræður um það
leyfðar. Ekki vildi hann segja
hvenær uppkastið yrði birt, en
gaf í skyn að það yrði eftir 2
vikur. Hann fullyrti að nægur
tími yrði gefinn til umræðna
um þa'ð. Raunar sagði hann, að
samning uppkastsins hefði taf-
izt vegna hinnar misheppnuðu
byltingartilraunar Konstantíns
konungs í desember sl. 20
manna lögfræðinefnd hefur ann
ast samningu þess.
Papadopoulos skýrði ennfrem
ub frá því, að stjórnin mundi
skipa nefnd til þess að fjalla
um breytingartillögur frá ein-
staklingum og samtökum. Úr-
skurðir nefndarinnar í hverju
tilfelli yrði loks lagðir fyrir rík-
isstjórnina til endanlegrar stað-
Framhald á bls. 31.
Angola:
50 uppreisnar
menn felldir
Lissabon, 1. marz. AP.
PORTÚGÖLSKU hemaðaryfir-
völdin hafa tilkynnt, að í síð-
nstu viku hafj 50 uppreisnar-
menn þjóðernissinna í Angola
veirið feilldir, átta hafi særzt og
aðrir átta verið tekniri höndum.
1 átökunum misstu Portúgaiir 11
menn, segir í tilkynningunni.
Stoðo pundsins
óhagstæð í gæi
London, 1. marz NTB—Reuter
VERÐGILDI sterlingspundsins
var í gær lægra en nokkru sinni
síðan gengi þess var fellt í nóv-
ember. Orsökin mun vera nýtt
gullæði í kauphöllinni. Meðal
kauphallarsérfræðinga er sú
skoðun almenn, a'ð eftirspurn
eftir gulli sé merki um almenna
vantrú á pappírsgjaldm. og auk
þess eru sögusagnir á kreiki um,
að Bandaríkin hafi í hyggju að
takmarka gullsölu. Staða sterl-
ingspundsins í gær var 2 dollarar
og 40,04 cent. Englandsbanki tók
þá í taumana og keypti mikið af
gjaldeyri til að stö'ðva þróun-
Rúmenar farnir
heim frá Búdapest
— Getgátur um að íleiri sendinefndir
Pólsku rithöfundasamtökin gagn
rýna ritskoðun stjórnarvaldanna
fari að dæmi þeirra
Búdapest, 1. marb NTB
Rauter.
RÚMENSKA sendinefndin á al-
þjóðaráðstefnu kommúnista í
Búdapest hélt heimleiðis í gær
morgun, eftir að harðar orða-
sennur urðu á fundinum í fyrra-
dag milli Rúmena og Sýrlend-
inga og sagt var frá í blaðinu
í gær.
Háttsettir kommúnistaforingj-
a:r í Búdapest fylgdu rúmensku
fulKirúunum til flugvallarins.
Stjórnmálasérfræ’ðingar telja, að
þetta muni sennilega vebða til
þess, að ráðstefnan standi mun
skemmri tíma en upphaflega
hafi verið áætlað. Þá eru ýmsir
þeirrara skoðunar, að fleiri
sendinefndir kunni að fara að
dæmi Rúmena og halda brott af
ráðstefnunni í mótmælaskyni.
Sýrlenzki fulltrúinn Khaled
Bagdas hafði gagnrýnt Rúmena
harðlega fyrir að hafa ekki stutt
Araba í júnístyrjöldinni, en
Rúmenía er eina Austur-Evrópu
Framhald á bls. 31.
Varsjá, 1. marz NTB.
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum í Varsjá, að á
fundi hjá pólsku rithöfunda-
samtökunum, hafi með leyni-
legri atkvæðagreiðslu verið
samþykkt ályktun, þar sem
stefna pólsku ríkisstjórnar-
innar í menningarmálum og
hin opinbera ritskoðun er
gagnrýnd harðlega.
Til fundairins var boðað
mjög skyndilega eftir að
stjórnin hafði bannað, að
flutt yrði leikritið „Dziady“,
sem Adam Mickiewiczi skrif-
aði árið 1832. Harðar umræð-
ur urðu á fundinum og fóir
svo, að þar voru bornar fram
til atkvæðagreiðslu tvær yfir
lýsingar, önnur af fylgjend-
um stjórnarinnar í samtök-
unum, hin af aðilum óháðum
kommúnistaflokknum .
í yfirlýsingu stjórnarsinna
voru rakin þau rök, sem
stjórnin færði fyrir banninu
gegn því að leikritið yrði
fliutt, en við atkvæðagreiðslu
um þá yfirlýsingu, var hún
felld með meira en hundrað
atkvæða mun. Hin yfirlýsing-
in með gagnrýninni á stefnu
stjórnarinnar var samiþykkt
með ámóta meirihluta at-
kvæða.
Þeir, sem að þeirri yfirlýs-
ingu stóðu, kröfðust þess, að
hún yrði birt í blöðum, en
það hefur ekki verið gert
enn. í gærkveldi héldu rit-
höfundasamtökin aftur fund
og þá söfnuðust úti fyrir
fundarstaðnum nefndir frá
ýmsum stamtökum og flokkn
um, sem fordæmdu gagnrýni
hinna óháðu og lýstu stuðn-
ingi við stjórnina. Reyndi
fólk þetta að komast inn í
fundarsalinn en var vísað
frá. Þegar fundarmenn yfir-
gáfu húsið seint í gærkveldi,
neituðu þeir að ræða við vest
ræniu fréttamennina, sem
sátu þar fyrir þeim.