Morgunblaðið - 02.03.1968, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARZ 1998
sss
er of the Order of the British
Empire).
Ungfrú Redgrave hefur getið
sér heimsfrægðar fyrir leik
sinn í kvikmyndum og á leik-
sviði, en auk þess er hún þekkt
fyrir að vera hörð og ákveðin
í baráttu fyrir mannréttindum
og á móti strfðinu í Víetnam.
Brezkum ráðherra rænt
um hábjartan dag!
BREZKIR ökmenn hafa undan-
fama mánuði haft horn í síðu
samgöngumálaráðherra lands-
ins, Barböru Castle. Eins og
kunnugt er, eru „belglögin"
svonefndu frá ráðuneyti henn-
ai komin, en þau lög heimila
vörðum laganna að láta öku-
menn blása í belg til að rann-
saka alkóhólmagn í blóði
þeirra. Þetta finnst mörgum
hin mesta vanvirða og hafa
hugsað frúnni þegjandi þörf-
ina. Fyrir nokkrum dögum var
frúnni rænt er hún var að
bjór að andvirði 40 þús. pund,
sem rennur eftir götunum í
Birmingham. Bjórflóðið' var
svo mikið, að vegfarendur
urðu að taka til fótanna til að
komast á „þurrt land“, bílaum-
ferð stöðvaðist og menn stó’ðu
bjargarlausir og horfðu á bjór-
inn renna niður í göturæsin.
Það versta var, að bærinn var
að verða bjórlaus, en samt var
þetta óumflýjanlegt, því bjór-
gerðarmennirnir eru í verk-
falli og þessi bjór hafði verið
bruggaður fyrir verkfallið, og
enginn mátti setja hann í
tunnur.
verzla um hábjartan dag í kjör
dæmi sínu, Blackburn. Hún var
borin á burt og höfð í haldi í
hálfa klukkustund. Ræningj-
arnir sendu skeyti til Harolds
Wilsons og kröfðust 50 punda
í lausnargjald fyrir frúna. —
Ræningjarnir voru þó ekki
reiðir ökumenn, eins og ætla
mætti, heldur stúdentar vi’ð
tækniháskólann í Blackburn,
sem rændu frúnni eingöngu í
auglýsinga- og fjáröflunar-
skyni fyrir árlega söfnunarher-
ferð brezkra háskólastúdenta,
svokallað „Rag“. Ágóða af þess
ari söfnunarherberð, sem stend
ur i viku, er skipt á milli alls-
konar góðgerðastofnana. Frúin
sagði stúdentunum, að Wilson
mundi án efa segja þeim að
hirða hana og finnast það vel
sloppið. En stúdentarnir eru
enn vongóðir um að fá sent
lausnargjaldið frá Wilson, þó
frúin hafi verið látin laus eftir
hálftíma, þar e'ð hún átti
skyldustörfum að gegna. Með-
fylgjandi mynd var tekin, er
ræningjarnir gengu með ráns-
feng sinn um eina af verzlun-
argötum Blackburn.
Ótrúleg sjón í Bretlandi —
Óhugsandi á íslandi
Á ÞESSARI mynd siáum við
Kattarpólitík
ARTHUR nefnist köttur, hvít-
ur að lit, sem milljónir sjón-
varpsnotenda þekkja úr aug-
lýsingum fyrir niðursoðna
kattafæðu. Leikur nokkur, Ton
eye Manning, sem telur sig
eiga köttinn, segir að Arthur
hafi fengið pólitískt hæli hjá
sovézka sendiráðinu í London.
En sendiráðsmennirnir eru
ekki eins ánægðir yfir þessu.
Þegar brezka utanríkisráðu-
neytið hafði samband við sendi
ráðið til þess að kanna póli-
tíska stö'ðu Arthurs, sögðust
sendiráðsmenn enga vitneskju
hafa um köttinn eða eiganda
hans.
Mál þetta hefur vakið at-
hygli, vegna þess að framleið-
endur kattafæðunnar, sem
Arthur auglýsir, þykjast líka
eiga hann, og vilja fá hann
aftur.
„Við vitum ekkert um þetta“,
sagði talsmaður sendiráðsins.
„Við höfum um annað að hugsa
en að telja kettina hér í sendi-
ráðinu".
Brezka utanríkisráðuneyti'ð
er í mestu vandræðum út af
máli þessu. Talsmaður ráðu-
neytisins hefur sagt, að hann
fái ekki séð, að kisa sé tækur
sem pólitískur flóttamaður, því
hann hafi ekki framkvæmt
neinn pólitískan verknað, sem
gæti ógnað lífi hans eða ör-
yggi-
Vanessa Redgrave, CBE
LEIKKONAN Vanesso Red-
grave var ein af 166 manns,
sem hlutu heiðursmerki frá
Englandsdrottningu við virðu-
lega athöfn í Buckinghamhöll
nú fyrir skemmstu. Hlaut leik-
konan orðuna CBE (Command-
LÍFIÐ brosir við þessari ungu
brúður hér á myndinni, en þa’ð
hefur ekki alltaf igert það. Því
Halina Grzegorzewska, 21 árs
gömul fóstra, sem nú fyrir
skömmu gekk í hjónaband
með Uaul Newman, laganema
í Blaekhead, fæddist í nazista-
fangabúðunum í Belsen, sá
móður sína deyja þegar hún
var 5 ára af afleiðingum þess
að hún hafði verið tilraunadýr
nazista og faðir hennar liggur
nú í sjúkrahúsi í Þýzkalandi
og fær aldrei heilsuna af sömu
ástæðum. — Foreldrar hennar
kynntusit í fangabúðunum og
hún fæddist þar skömmu eftir
að friður komst á, og kom til
Bretlands 9 ára gömul ásamt
mörgum öðrum börnum, sem
stríði'ð hafði leikið grátt. „Enn
er stríð í heiminum og enn
verða börn foreldra- og heim-
ilislaus af völdum þess, því
megum við ekki gleyma", segir
þessi unga brúður. „Höfum við
e.t.v. gleymt?“
6 vikna gömlum dreng
rænt úr barnavagni
ÞESSUM 6 vikna gamla snáða
var rænt síðastliðinn föstudag
úr barnavagni fyrir utan verzl-
un í Coven'try. Lögreglan
fann hann sólarhring seinna
hjá 25 ára gamalli giftri konu.
Hún hafði hugsað vel um hann,
og hann var hreinn og saddur
þegar lögreglan fann hann. —
Þegar hann var færður móður
sinni, hinni 19 ára gömlu Sir-
ley Ward, brast hún í grát og
sagði: „Ég skil hann aldrei við
mig aftur í eina mínútu".
Ahrifarík mótmæli
SKRIFSTOFA sú, sem sér um
verðlag á eggjum í Bretlandi,
fékk óvænta sendingu nú fyrir
skemmstu. Bóndi nokkur,
Henry Neusinger, birtist þar
með tvo pappakassa fulla af
eggjum og hellti úr þeim á
tröppurnar fyrir utan skrifstof
una. Aflei’ðingarnar: Einn á-
nægður bóndi, nokkrir ráðvill't
ir skrifstofumenn og ein alls-
herjareggjakaka.
Með gerðum sínum var Neus
inger bóndi að mótmæla á á-
þreifanlegan hátt að bændur
fengju ekki nógu mikið greitt
fyrir egg. Þar eð atvik þetta
átti sér stað á Shaftesbury
Avenue í London, leið ekki á
löngu áður en lögraglan kom á
vet'tvang. Neusinger samþykkti,
að hann væri með þessu að
orsaka umferðartruflun og réði
því tvo menn til að hreinsa
upp eftir sig. Yfirgaf hann sið-
an ftaðinn í leigubíl.
Verð á eggjum hefur nú ver-
ið tekið til athugunar.