Morgunblaðið - 19.03.1968, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.03.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1968 3 HVAÐ SEGJA ÞEIR UM NÝJU SAMNINGANA MBL. sneri sér í gær til nokkurra helztu forustu- manna vinnuveitenda og verkalýðssamtakanna, sem þátt tóku í samningavið- ræðunum og leitaði álits þeirra á því samkomulagi, sem undirritað var í gær- morgun. Fara svör þeirra hér á eftir: Björgvin Sigurðsson fram- kvæmdastjóri: Við eruim út af fyrir sig ánægðir með sam komiulagið, en það hefur í för með sér mikil útgjöld, sem við sjáum ekki, hvemig á að * standa undir, en allra ráða verður að leita til að atvinnu vegirnir stöðvist ekki. Það er auglj'óst, að sammingarnir auka mjög á verðbólguna í landinu og þeir eru alvarlegt íhugumarefni. En að svo stöddu sé ég ekki ástæðu til að segja frekar um þessi at- riði. Björn Jónsson formaður Einingar á Akureyri. Við sett um aðéins fram eina kröfu um fullar vísitölulbætur og átt um ,þá vitanlega við það, að try.ggja hagsmuni hinna liægst laumuðu í þeirri miitklu dýrtíð, sem leitít hetfur af genigilstbreytingunni. Þetssu marki, sem við settucn oklk- u.r, hötfum við etoki náð til fullnustu, en í aðal atriðum htefur olkkur, (þó tetkizt að tryggja viður'kenningu á því, að laun eigi að vera verð- trygigð, ag það tel ég aðai- atriðd m'álsins. Og miðað við þ'ætr erifiðu aðstæður, sem eru á mörguim sviðlum til þ<ese að nlá fram kröfutm utm kjara- bætur, tel é.g, að mikilis'verður árangur hafi náðzt mieð þ'ess- um samningum. Yifirlýsinjgu rJkisBtjóxmarinnar um at- vinnuim'áll og h'úisnæðilsmál tel ég molkkurs virði, og álít, að bún skapi okkur betri grund'völl en áður tii þess að koma fram sjónar- miðum okkar og vinna að hagsmun'amálum okkar á þeim sviðum, sem yfirlýsing- in fjallar um. Þá tel ég það líka einnig mikils virði, hvað ver'kailýðshreyfingin hefur sýnt isig faglega eimhuga í allri . deilunni. Samstaða hefur ver- ið alrnenn og almenningsáiit- ið okkur hliðlhollt, og það eru mjög athygliswerðar stað- reymdir, sem hljóta að létta ökkur róðurinn í hagsmuna- baráttunni í framtíðinni. Eðvarð Sigurðsson, for- maður Dagsbrúnar. Þeir verulegu kjaralegu ávinning- ar, sem náðust eru í fyrsta lagi sú staðreynd, að vísitölu- kerfið hefur verið tekið upp að nýju og er því bein kjara- bót. Þetta fyrihkomulag, sem þýðir að við fáum bættar verðhækkanir, er að okkar áliti hemiil á stjórnvöld, til pess að þau haldi í skefjum verðlagi. Þá var í samningunum núna farin óvemjuleg leið, með skerðingarregliunum. Tel ég það rét't, þótt naumiast verði það t.i'1 frambúðar, að hafa þennan hátt á, þegar al'l ir tala u:m að skipta byrð- uinum, og leggja mieiiri byrð- ar á þá, sem betur eru færir um að axla þær. Og nú koma hlutfallslega meiri hækkanir til þeirra lægst launuðu, hel'd ur en áður hefur verið. Ég tel, að yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar, þótt þar sé að- einis um vilj ayfirlýsingu að ræða, hafi hjálpað frekar en hitt, og þar er drepið á þýð- ingarmikla hluti, til að bægja frá atvinnuleysi, sem við höf- um því miður fengið að kynn ast í vetur. En þetta er aðeins viljayfir 'lýsing, þótt við vonuim að úr framkvæmdum verði ,og at- vinnumáianefndin ætti að verða til þess að meira sam- starf takist milli þeinra aðila, er þar eiga sæti. Atvinnurek- endur og verkalýður eiga áreiðanlega margra sameigin- legra hagsmuina að gæta á miörgum sviðum, og ég tel mjög fansælt ,að fulltrúar frá báðum þessum aðilum eiga sæ1i í nefndinmi. Að lokum vil ég minnast á yfirlýsingarnár um húsnæðis máiin, sem ég tel mjög mik- ÍLSverðar og raunar þær mik- iisverðustu í þessari viljayf- irlýsingu. Gunnar Friðriksson, for- maður Félags ísl. iðnrekenda: Við verðum að taka á okkur auknar byrðar, en einis og málum var háttað, held ég að þet.ta hafi verið farsæl lausn, enda er dýrt að haida áfram verkfalli, þegar á stendur eins og nú. En þetta voru erfiðir samningar og samningaviðræður. Við iðnrekendur höfum skilning á því, að vísitölu- bætur geta haft vissa kosti, og geta orðið til festu í þjóð félaginu, ef verðbólgiu er hald ið í skefjum oig aukið vinnu- fr.ið og eru visst aðlhald fyr- ir riíkisvaidið að það stuðli að stöðugu verðlagi. Gunnar Guðjónsson, for- maður stjórnar SH: Ég hef ekkert að segja um samning- ana. Eins og öllum er kunn- ugt ,er frystiiðnaðinium al- gjörlega um megn að bæta nokkrum böggum á sig, og við sem við þann iðnað fá- urnst vonum bara, að það verði f'undin eimhver ráð til að jafna metin, og að ríkis- stjórn hjálpi til að gera þess- um iðnaði kleift að starfa áfram. Hannibal Valdemarsson for seti ASÍ: Um sjálfa samning- ana er ekki margt að segja, þeir gefa launþegum lítinn fjárhagslegan feng í hendi strax, en þeir leiða þó af sér 3% hækkun á kaup nú þegar vegna þeirrar vísitöluhækkun ar, sem örðin er, en síðan veita þeir verkafólki fram eft ir árinu vaxandi hluta fullra vísitölubóta, þar til 1. des. að fullar vísitölubætur verða við urkenndar. Þannig hefiur greiðslu verðlagsbóta á laun ve:ið frestað af t'lhliðrunar- semi við erfiðleika ísl. at- vinnulífs í bili, en aðalatriði samninganna er það, að verka fólk öðlazt viðurkenningu á þeim rétti, sem það var svipt . með löggjöf á sl. hausti, þeg ar lögin um kaupgjaldsvísitölu voru afnumin. Ég tel samn- ingana vera mjög hófsamlega og held, að þeir verði bæði verkalýðssamtökunum og þjóð inni til heilla, þó að það hafi óneitanlega kostað miklar fórnir að endurheimta réttinn ti'l verðlagsbóta ’ á kaup. En til þess bar mikla nauðsyn vegna þess hve kaupið er yfir leitt lágt hjá verkafólki, en það er .algengast 9 — 11 þús. kr. á mánuði. Það var því efnahagsleg réttlætiskrafa, sem borin var fram, en fyrst og fremst krafa um mikilsverð ma'i'jinréttindi. Sverrir Heirmanmsson, for- maður L.Í.V.: „Ég fatgna þessari laulsin, sem ég .tiel eftir ativilkuim mjiög góða fyrir laumþieiga. Hitt er einnig höf- uðatriði, að otokar ríkisbú- sikapur þdli þesisar kjarabæt- ur til handa l'aiunjþeguim, ann- ars væri mlálið unnið fyrir gýlg- Ég vil segija í fullri hrein- skilnd, að ég tel ekltoi, að krlötfu igerð olkíkar verzlunanmianna ihafi átlt sMfcan rét't á sér, að vinnulsitöðvun væri réttltetan- le,g. Ita’ það mtál hins vegar hö'fðuim við ful'lkloim'ið samiráð við stijórn A.S.Í., en ég lagð- is't gegn vininus'töðVtun verzl- unarfóiks tfrá uipplhatfii. Og .þ'eirri afstiöðu var elklki breytt með neinum röteum, sem firam boimu í þesBari vinniu- deilu. iHér blös'tu við ný viðlhiorf. Hár var eklki verið að stoipta ágóða, heldur að jafna niður áföl'lum sem þjóðaribúskapiur- inn hafði orðið fyri'r. Með til- liti til þes.s að hika ég ekki við að segja ,að með þessum nýju samni'ngum taiki verkalýðs- hreyfingin ábyrga afs'töðu. Um aifstöðu olkkar verzlunar- mianna mlá deila, en éig full- yrði, að oklkar afls'taða átti beinan þá'tt í farisœlli lausn vin n'udieiil'unn ar. A ðalskrilstofa SÚN á Siffluíirði — tillaga samþykkt í Efri-deild Eins og skýrt hefur verið frá liggur nú fyrir Alþingi frum- varp um lagabreytingu á lögum um síldarútvegsnefnd og út- flutning saltaðrar síldar. Áður höfðu svo nokkrir þingmenn efri deildar lagt fram lagafrumvarp um að síldarútvegsnefnd skyldi hafa aðalskrifstofur sínar á Siglu firði. Við afgreiðslu fyrrniefndra frumvarpsins lögðu svo fram breytingartillögu þeir Jón Þor- steinsson, Björn Jónsson, Ólafur Jóhannesson og Jónas G. Rafn- ar. Var breytingartillagan svo- hljóðandi: Heimili síldarútvegsnefndar varnarþing og aðalskrifstofa skal vera á Siglufirði, en nefnd- in skal einnig hafa skrifstofur í Reykjavík og á Austurlandi. Samþykkt í Efri-deiM með 10 at kvæðum gegn 5. AUGLYSINGAR SÍMI 22.4.80 STAKSTEIIAR Tilræðið ÞAÐ fór ekki fram hjá þeim sem fylgdust með samningavið- ræðum fulltrúa verkalýðssam- takanna og vinnuveitenda s.l. tvær vikur, að forustumenn stjórnarandstöðunnar, Framsókn armenn og kommúnistar, fylgd- ust af áhuga með því sem þar gerðist og lögðu sitt lóð á vogarskálarnar til þess að gera aðilum sem erfiðast fyrir að ná samkomulagi. Mennimir, sem s.l. haust hugðust misnota verkalýðssamtökin í eigin þágu, til þess að reyna að koma sjálf- um sér í ríkisstjóm, höfffu greinilega ekki gefið upp alla von um að það mundi takast þegar verkfallið skall á fyrir tveimur vikum og þeir unnu sleitulaust bak við tjöldin gegn samkomulagi, og að þvi að vierk failiff stæði sem lengst. Fram- sóknarforsprakkarnir og komm únistaforingjarnir fluttu m.a. þingsályktunartillögu á Al- þingi en óneitanlega vekur það athygli, að enginn af verkalýðs- leiðtogunum í þingmannahópi Alþýðubandalagsins er flutn- ingsmaður að þeirri þingsálykt- unartillögu og segir það sína sögu. En tilræði Framsóknar- og kommúnistaforsprakkanna mis- tókst. Brostnar vonir Enn einu sinni hafa vonir Framsóknarmanna og kommún- ista um að nota átök á vinnu- markaðnum tU þess að tryggja sjálfum sér þaff, sem þeir ekki náðu í lýðræðislegum kosning- um brostið. Þeir Lúðvík Jósefs- son og Eysteinn Jónsson sitja enn utan ríkisstjórnar og verka- lýðshreyfingin hefur enn einu sinni neitað að láta þá spenna sig fyrir sinn pólitíska stríðs- vagn. Atlaga þeirra félaga mis- heppnaðist. Þessir stjómarandstöðuleiðtog ar hafa allt frá því að júnísam- komulagið var gert, 1964, reynt að nota hverja einustu deilu, sem upp hefur komið á vinnu- markaðnum til persónulegs pólitísks framdráttar, en þeim tilraunum hefur jafnan verið hafnað af verkalýðssamtökun- um. Þegar þeim félögum var enn einu sinni vísað á bug fyrir áramótin síðustu gerðu margir sér vonir um, að þeir mundu nú sjá að sér og hætta ítrekuðum og árangurslausum tilraunum að þessu sama marki, en athafnir þeirra síðustu tvær vikur benda því miður ekki til þess að þeir hafi mikið lært. Andi eysteinskunnar Raunar hafa formannsskipti orðið í Framsóknarflokknum en leitt er til þess að vita, að hinn nýi formaður Framsóknar- flokksins hefur látið eysteinsk- una ráða ferðinni hingað til og ekki beitt hinum nýfengnu á- hrifum á jákvæðan veg. Situr Eysteinn kannski enn við stýr- ið? Ef svo er, geta Framsóknar- menn ekki búist við því að mik- ið tillit verffi til þeirra tekið. r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.