Morgunblaðið - 19.03.1968, Qupperneq 28
28
MORGUNJBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1968
j
i
t
I
1. september: „Jæja, gott og
vel, þá borðaði ég bara með
henni í gærkvöld. Hversvegna?
Ég gæti gefið þér tíu skýring-
ar og jafnvel hundrað, en ég vil
það bara ekki“.
2. september. Farðu varlega og
gerðu henni ekkert, því að þá
fer ég bara frá þér, og þú sérð
mig ekki framar.
Nemetz leit á kápuna á bók-
inni, sem neðst var. „2. marz
1952“ stóð þar skrifað. Innihald-
ið var svipað því, sem stóð í
16
bókinni frá 1956, en að því þó
frátöldu, að eitthvert dularfullt
x kom fyrir öðru hvoru undir
einhverri dagsetningu, oftast
skrifað með rauðu, og skreytt
ýmiskonar krumsprangi.
Það var sýnilegt, að allt frá
árinu 1952 hafði frúin gætt þess
að skrifa allt, sem læknirinn
sagði við hana. Blaðsíðurnar líkt
ust mest hlutverkahefti, nema
hvað bendiorðin vantaði. En
engu að síður virtist það auð-
sætt, að þessi stuttu svör læknis-
ins væru svör við löngum
skammaromsum frúarinnar.
Nemetz tók bækurnar, kvaddi
Lillu og fór. Árangurinn af tím-
anum sem hann hafði eytt í
þetta, var að vísu ekki mikill, en
þó dálítill. Hægt og hægt virt-
ist einkaiíf Zoltan Halmys vera
að taka á sig mynd.
Enda þótt sunnudagur væri,
fann hann samt Irene Lestak
við skrifborðið sitt, prjónandi.
— Ja, við tvö. Skyldu nokkr-
ir verri fábjánar vera til? fnæsti
hún, er hún sá Nemetz ganga
inn í skrifstofu sína. — Að
koma hér á sunnudegi. Vegna
þess eins, að maður hefur engan
stað að fara á. Enginn til að
heimsækja. Og ekki einusinni
hundur að fara með út að ganga.
— Það skuluð þér tala um,
hvað sjálfa yður snertir, sagði
Nemetz. — Svo vill til, að ég
hef fullt af stöðum, sem ég get
farið á, ef ég vildi. Hvað er um
Kaldy? Fékk hann þetta leyfi
hjá dr. Hommer?
Irene lagði frá sér prjónana.
— Eigum við ekki að vera hrein
skilin. Þér gerðuð alls ekki ráð
fyrir, að dr. Hommer væri nokk
ursstaðar að finna. Sízt hann.
Nei. Dr. Hommer hefur vit á að
fara án þess að skilja eftir nokk-
urt heimilisfang. En ef ég væri
spurð, segði ég, að hann væri
nú í Vín, og væri heiðraður af
Könunum sem mesta frelsishetja.
Já, skárri er það nú frelsishetj-
an!
Nemetz yppti öxlum. — Svo
virðist sem ekki aðeins rotturn-
ar, heldur mýsnar líka, séu að
yfirgefa hið sökkvandi skip. En
sjáið þér nú til. Þá getum við
sent Kaldy yfir i safnið. Hann
er nokkuð sniðugur ungur mað-
ur. Hann er vís til að finna lík-
ið af frú Halmy. Þessar nýju
grafir eru sennilega ekki sér-
lega djúpar. Og einhver hlýtur
að vita, hvar hún hefur verið
grafin.
Irene leit á hann, full efa-
semda.
— Já, en við erum í byltingu,
fjandinn hafi það. Líkin eru lát-
in liggja dögum saman, af því að
enginn fæst til að jarða þau.
Og svo viljið þér láta grafa upp
heilt bílhlass, bara til þess að
vita, frá hvaða hlið frú Halmy
hefur verið skotin. Nei, reynið
þér nú að vera svolítið skynsam-
ur. Ef satt skal segja, þá grun-
ar mig stundum, að heilinn í yð-
ur hafi orðið fyrir einhverjum
skemmdum vegna þess, að þér
hafið verið oflengi í embættinu.
Nemetz lét þetta fara inn um
annað eyrað og út um hitt. Hann
settist smásnuggandi á bekk and
spænis skrifborðinu hennar. Ef
hann átti að vera alveg hrein-
skilinn, varð hann að játa, að
í þessu Halmymáli hafði hann
rennt hausnum í múrvegg. Þetta
var nú í sjálfu sér ekkert merki-
legur sorgaratburður, þar eð mál
ið var allt sprottið af augnabliks
tortryggni hjá honum og þar sem
enginn annar vissi af því, var
hægur hjá að þurka það út.
Hann þurfti ekki annað en telja
sjálfum sér trú um, að þetta
Halmymál hefði aldrei verið til.
Byltingin geisaði. Og hvað mun-
aði um einu líkinu fleira eða
færra?
— Nokkuð n"tt? spurði hann.
— Ekki annað en lausafregnir.
Koller sakamálafulltrúi fullyrð-
ir, að AVOmaður með hlaðna
skammbyssu standi bak við
Nagy forsætisráðherra, hvenær
sem hann heldur ræðu í útvarp-
ið. Hinsvegar hafa Rússarnir
dregið sig í hlé á svæðinu kring
um þinghúsið, og það ku vera
ráðagerðir um, að þeir hafi sig
algjörlega burt úr miðborginni.
Allar kionur þeirra og börn hafa
verið flutt burt. En svo breytti
hún allt í einu rödd. — Ég hef
nú alltaf verið svartsýn. En nú
— ef þetta er virkilega satt —
ég á við, að þá getur maður far-
ið að lifa eins og almennileg
með virkuni viðarkols fjölfiltei
Gæðaframleiðsla frá Philip Morris
SKREFI A UNDAN
Phiiip
Morrts
manneskja — ef það bara er þá
satt. Hún þagnaði, og líklega af
hræðslu við, að hún ætlaði að
fara að gráta.
— Mig furðar á yður, Irene,
sagði Nemetz hlæjandi. — Og ég,
sem hélt, að þér yrðuð síðust
manna til þess að fá þjóðernis-
dellu.
Irene yppti öxlum. — Já, vit-
leysa. Ég man alveg, hvað ég
varð fegin, þegar Rússarnir
gerðu enda á stjórn Horthys og
kumpána hans, 1945. Og nú yrði
ég hundrað sinnum fegnari, ef
þessi sami skríll kæmi aftur og
ræki Rússana burt.
— Þér eruð kostuleg mann-
eskja. Nemetz hristi höfuðið.
— En nú skulum við ná í hann
Kaldy. Svo sendi ég hann að
safninu til þess að grafa frú
Halmy upp aftur.
Klukkustund síðar kom Kaldy
aftur. Hann sagði, að um tuttugu
lík væru grafin á blettinum fyr-
ir framan Þjóðminjasafnið. Gröf
in var talsvert djúp, enda vél-
grafin. Þessvegna var ekki hægt
að opna hana fyrr en bylting-
unni væri lokið, og hægt væri
að flytja líkin í grafir til fram-
búðar.
Nemetz smábölvaði og lét
I Kaldy fara.
Myrkrið seig niður yfir borg-
ina, þar sem hundruð manna og
kvenna stóðu á verði milli hálf
hruninna húsa, eftir fimm sólar-
hringa bardaga. Allt var kyrrt,
en allt öðruvísi kyrrt en vant er
að vera á sunnudögum. Það
hvein ekki í neinum sporvögn-
um, væMi ekki í neinum bílhiorn
um, enginn hófadynur og vopn-
in ósýnilega hersins, sem beið
átekta, allt þetta gerði kyrrðina
ennþá þyngri, eins og hún lagð-
ist nú yfir allt og alla.
Nemetz sat hreyfingarlaus og
hlustaði á hjartsláttinn í sjálf-
um sér. Honum fannst hann hrað
ari en eðlilegt mætti telja. Hann
fann til hans um allan skrokk-
inn og bak við augun. — f únlið
unum og öklanum, sem voru allt
af dálítið bólgnir eftir allt
göngulagið síðustu daga — og
jafnvel í fingurgómunum. Honum
varð hugsað til aðvörunar, sem
læknirinn hans hafði gefið hon-
um fyrir mörgum mánuðum: Ekk
ert áfengi, kvenfólk eða geðs-
hræringar og enga næturvinnu
— með öðrum orðum: hættu að
vera til og vefðu þig í bómull
arumbúðir.
Kvenfólk ... nei, það var nú
ekkert vandamál. Svo var fyrir
að þakka örinu, sem lá frá
vinstra eyranu og yfir vinstri
Þriðjudagur 19. marz:
Hrúturinn 20. marz — 20. apr. Dagurinn ætti að færa þér lang-
þráða umbun erfiðis undanfarnar vikur. Varaðu þig á kunningj-
um, sem meiri áhuga hafa á peningum þinum en velfamaði.
Nautið. 21. apríl — 20. maí. Samband þitt við kunningja
og vini verður ekki upp á það allra bezta, þar sem ýmsir hillast
til að hneykslast á framkomu þinni. Skeyttu ekki um það.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní. Þú verður að taka mikilvæga
ákvörðun í dag og skalt hvergi hika. Þó ættirðu að íhuga málið
vel og rasa ekki um ráð fram. Farðu snemma i rúmið.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí. Þér er eindregið ráðið frá að gera
nokkra bindandi samninga í dag. Láttu allt slíkt bíða, þar sem
nauðsynlegt er að ganga frá ýmsum atriðum, áður en heppi-
leg lokaniðurstaða fæst.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst. Dagurinn verður hinn ánægjuleg-
asti og ekki ósennilegt, að þér áskotnist nokkurt fé í dag. Kvöldið
skaltu nota til lesturs eða ritstarfa og láttu engan trufla þig við
verk þín.
Jómfrúin. 23. ágúst — 22. sept. Þighungrar í skilning og vin-
áttu og skalt ekki gefast upp. Allt útlit er fyrir, að betri og
gleðilegri tímar séu í nánd. Leggðu ekki of hart að þér við
vinnu.
Vogin. 23. sept. — 22. okt. Nú er þjóðráð að endurskipuleggja
allan fjárhag heimilisins og taka ákvarðanir sem beinast að
sparnaði í ýmsum málum. Þótt þú sért gjafmildur og rausnar-
legur að eðlisfari má það ekki fara út í öfgar.
Drekinn. 23. okt. — 21 nóv. Þú hefur mikla þörf fyrir róman-
tík og ert dreyminn að eðlisfari. Reyndu að líta raunsæjum
augum á tilveruna og láttu ekki blekkjast af fögrum orðum kunn-
ingja, sem engin alvara er með orð sin.
Bogmaðurinn. 22. nóv.— 21. des. Annríki verður mikið í dag
og það á vel við þig, þar sem þú ert hvíldur eftir rólega helgi.
Þú skalt ekki gera mikil innkaup í dag og láttu ekki freistast
til að kaupa hluti, sem þú getur verið án.
Steingeitin. 22. des,—19. jan. Peningar og vinátta er ekki endi-
lega það sama og fer ekki vel saman í dag. Vertu gætinn og íhug-
ull í peningamálum og lánaðu engum fé í dag.
Vatnsberinn. 20. jan. —18. febr. Þér verður gert boð í dag, sem
þú heldur við fyrstu sýn að sé hagstætt en þó skaltu bíða með
að taka ákvörðun. Ekki er allt sem sýnisit — og það á við vini
þína líka.
Fiskarnir. 19. febr. — 20. marz. Fáðu vini þínum verk að vinna,
sem hann hefur lengi skorazt undan. í kvöld skaltu bjóða ætt-
ingjum þínum heim og njóta kvöldsins í ró og næði.