Morgunblaðið - 04.04.1968, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1908
'BttA££/EAM
O/M
Rauðarárstíg 31
Símí 22-0-22
IVIAOIMlJS/lR
5KIPHOLTI21 símar 21190
eftir lokun simi 40381
>SÍM11-44-44
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 e»a 81748
SigurSur Jónsson.
BÍLALEIGAISi
- VAKUR —
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
NÝIR VW 1300
SENDUM
SÍMI 82347
1966 Chevrolet Malibu, 2ja
dyra, hard-top, gólfskipt-
ur, ekinn 9 þús. km.
1966 Dodge Coronet 500, 2ja
dyra hard-top, sjálfskipt-
ur.
1967 Saab V-4 kr. 180 þús.
1967 Volkswagen 1300, 19 þ.
km.
1967 Volvo 144, rauður 13 þ.
km.
1966 Toyota Corona, hvítur.
1966 Taunus 17-M station.
1967 Fiat 1100 station.
1965 Cortina 2ja dyra, rauð.
1964 Volvo P-544, 45 þ. km.
1964 Austin A-40, 35 þ. km.
1968 Land-Rover dísil, hvít-
ur, 8 þ. km„ toppgrind.
1966 Willy’s og Bronco.
1965 Gas m. velklæddu húsi.
Mikið úrval af bílum.
Ingólfsstræti 11.
Símar 15014 — 19181 — 11325
^ Hvers eiga sjúkir
að gjalda?
María Skagan skrifar:
Velvakandi gó&ur.
Eindregið vil ég taka undir
orð séra Hannesar í Fellsmúla
um starf séra Jónasar Gísia-
sonar í Danmörku.
Af sjúkrahúsum þar, sem
fjöldi íslendinga er árlega send
ur til, má nefna Rigshospitalet,
Militær hospital, Ortopædisk
hospital, Fysiurgisk hospital í
aðra) o. fl.
Af eigin reynslu og annarra
kunnugra get ég um það borið,
að starf séra Jónasar er þeim
sjúklingum ómetanlegt. Hann
tekur á móti sjúklingum við
komu þeirra, fylgir þeim á
sjúkrahúsin ef þeir þarfnast
sjúkraflutnings, ekur þeim
ella sjálfur — talar við lækna
og hjúkrunarkonur, heimsækir
hina sjúku að staðaldri þaðan
í frá og greiðir veg þeirra á
allan hugsanlegan hátt, kemur
meðal annars á tengslum milli
þeirra og íslendinga, sem bú-
settir eru ytra.
Sökum alhliða þekkingar á
öllum aðstæðum og staðháttum
ytra svo og sérstæðar lipurðar
og Ijúfmennsku er séra Jónas
svo vel til þess starfa fallinn
sem framast má verða. Nýtur
hann og fulltingis sinnar ágætu
konu í hvívetna.
Að sjúkradvöl lokinni annast
séra Jónas farmiðakaup og
flutning hinna sjúku um borð
í flugvél eða skip.
Hér heima er Rauði krossinn
að hefja hjálparstarf svoball-
aðra sjúknavina, tenglar hafa
einnig verið starfandi um nokk
urt skeið. Reynslan hefur sýnt
að þessaraf hjálparstarfsemi er
brýn þörf.
Ómannúðleg og lágkúruleg
spamaðarráðstöfun væri það
að svipta sjúklinga í framandi
Hornbæk (þjálfunarstöð fatl-
landi þeim sjúkravinum og
H ERRÁDEILD
tenglum sem séra Jónas og
kona hans eru. Væri þess frem
ur óskandi, að kirkjan sæi sér
fært að efla starf sitt á þessum
vettvangi.
María Skagan.
Gæzluvellir fyrir
hvert einasta barn
Móðir skrifar:
Velvakandi!
Finnst þér ekki, eins og mér
að nú sé kominn tími til, að
við tökum öll höndum saman
um að koma upp lokuðum
gæzluvöllum fyrir alla yngstu
borgarana okkar?
Ég get ekki hugsað mér ann-
að en allir vildu bæta nokkr-
um krónum við útsvarið sitt,
ef þeir væru vissir um, að þær
yrðu notaðar til þess að tryggja
öryggi þessara litlu fjörkálfa,
sem seinna eiga að erfa land-
ið. Það er bókstaflega ekki
hægt að ætlast til þess, að
nokkur móðir, hversu lítið
heimili sem hún hefur, geti
hlaupið hvert fet á eftir litlum
börnum sínum í leit þeirra að
ævintýrum og þekkingu. Það
ættu að vera svo þéttir gæzlu-
vellir, eða helzt leikskólar, að
hvert einasta bam gæti verið
þar einhvern hluta dagsins
svo að við eigum það ekki á
hættu, að öll þjóðin þurfi að
bíða í ofvæni eftir því, hvort
lítið barn finnst, ef móðirin
hefur þurft að líta af því aug-
unum í fáeinar minútur, svo að
ekki sé talað um að firra for-
eldrana allri þeirri sálarangist
og örvæntingu, sem slíku er
samfara.
I>ær konur, sem nauðsynlega
verða að vinna utan heimilis
síns, geta fengið gæzlu fyrir
börn sín og þó með mestu
herkjubrögðum og skýrslugerð
um, og svo eru auðvitað víða
til gæzluvellir, en bara ekki
nógu víða. Hér í hverfinu, sem
ég bý í, er t. d. enginn.
Það er beinlínis ógnvekjandi
að sjá þessi litlu böm á göt-
unni eða annars staðar þar sem
hættur steðja að þeim frá öll-
um hliðum. Því vil ég endur-
taka þetta, í djúpri samúð með
foreldrunum, sem í dag sitja í
myrkri sorgarinnar og í minn-
ingu yndislegs lítils drengs:
Komum upp fleiri gæzluvöllum
eða leikskólum og látum það
ekki um okkur spyrjast lengur
að börnin okkar séu gæzlulaus
þó að móðirin hafi öðru að
sinna en hlaupa á eftir þeim
hvert fótmál.
Við berum öll ábyrgðina.
Móðir.
Endurtaka í betra
veðri
' Þ. V. E. skrifar:
Kæri Velakandi.
Mig langar til að biðja þig
að koma á framfæri fyrir mig
erindi, sem ég veit að margir
hafa áhuga á. Þannig er mál
með vexti, að sl. sunnudags-
kvöld fór ég á kirkjukvöld í
HaUgrímskirkju. Þar flutti
sænski sendikennarinn á ís-
landi, Sven Magnus Orrsjö er-
indi um sænska skáldið Par
Lagerkvist, einkum með tilliti
til trúar og efasemda í verkum
hans. Kristinn Hallsson óperu-
söngvari söng og lítil stúlka,
Lilja ÞórisdóttÍT, las ævintýri
eftir Jóhann Magnús Bjarna-
son. Nú er ekki að orðlengja
það, að þessi atriði öll tókust
með ágætum og urðu þeim,
sem þarna voru saman komnir
til óblandinnar ánægju og upp-
byggingar. En veður var vont
þetta kvöld, norðanstormur
með hörðu frosti og komu því
færri en ella hefði verið. Nú
hafa nokkrir menn komið að
máli við mig, sem fegnir hefðu
viljað sækja þetta kirkjukvöld,
en treystust ekki til þess vegna
veðurs. Þess vegna vil ég
spyrja þig, Velvakandi, sem
leysir vanda svo margra hvort
þú vildir ekki koma því á fram
færi við aðstandendur þessa
kirkjukvölds hvort ekki væri
möguleiki að endurtaka það,
einhvem tíma þegar veðrið er
betra. Þá veit ég að margir
mundu koma, sem ekki treystu
sér til þess í óveðrinu um dag-
inn.
Þ. V. E.
Þessu er hér með komið á
framfæri til réttra aðila.
★ Neitað um að greiða
með ávísun
Kæri Velvakandi.
Ég má til með að taka undir
orð læknanema í dálkum þín-
um hinn 28. marz. Því að það
vill einmitt svo til að í það
eina skipti, sem mér hefur ver-
ið neitað um að greiða með
ávísun var efnmitt undir sömu
kringumstæðum. Er ég á síð-
astliðnu sumri brá mér til höf-
uðborgarinnar ásamt konu
minni og ætluðum við kvöld
eitt í Þórskaffi að skemmta
okkur. Er þangað kom bað ég
um 2 miða í miðasölunni, en er
ég ætlaði að greiða þá með
ávísun, þrumaði hinn kurteisi
afgreiðslumaður: )rÞað þýðir
ekki að reyna svona lagað við
mig“. Mér þótti Þetta heldur
leiðinlegt, þar sem mér fannst
að hann teldi sig örugglega
eiga þarna viðskipti við ótýnd-
an glæpamann.
Sem betur fór var svo kona
mín með peuinga á sér svo að
ég gat með því að fá þá lán-
aða tínt skrjáfandi seðla í af-
greiðslumanninn. Varla skil ég
í að svona afgreiðsla sé aðdrátt
arafl fyrir skemmtistaði.
Virðingarfyllst.
„Snobbari" að norðan.
»
★ Fyrirbyggjum
dráttarvélaslysin
G. A. skrifar:
Heiðraði, víðlesni Velvak-
andi.
Nú eftir að enn eitt dráttar-
vélaslys hefur orðið, með þeim
voðalega hætti, sem einkennir
þau, get ég ekki orða bundizt
yfir þeim sofandahætti, sem
einkennir öll öryggismál í sveit
um. Finnst mér ægilegt til þess
að hugsa, að þeir, sem þessir
unglingar þjóna, bera í raun og
veru alla ábyrgð, Til úrbóta
dettur mér í hug, að sett yrðu
lög, svipuð og lögin um örygg-
isbelti í bílum. Nú veit ég að
margir, sem í bæjum búa og
eiga frændfólk í sveitum, vilja
styrkja þetta mál. Því legg ég
til, að happdrætti verði stofn-
að óg allur ágóði renni til að
styrkja smíði þessara öryggis-
húsa, sem eru mjög dýr. Nú
eru lög um að allar nýjar drátt
arvélar skuli vera með öryggis
húsi, en mér er nær að halda,
að ekki sé síður ástæða til að
krefjast fullkomins öryggis
þegar þessar vélar fara að
slitna. Ég vil geta þess, að þær
dráttarvélar, sem fyrst komu,
eru enn víðast hvar í fullri
notkun dag hvern. Þær vélar,
sem síðast komu fyrir gildis-
töku laganna um öryggishús
geta því enn verið í notkun í
25 til 30 ár, ef að líkum lætur.
Enn er þess því langt að bíða,
að hættan líði hjá hvað þetta
snertir.
Ég vil svo að lokum skora á
viðkomandi yfirvööld að þau
bregðist strax við og reyni að
fyrirbyggja dráttarvélaslysin,
eftir því sem umnt er.
G. A.
SPEGLA Nytsöm fermingargjöf
SKATT-
HOUN
Vinsæl fermingargjöf
Falleg fermingargjöf
usoacinariol h
L
»i
'T r
Hrw i
Simi-22900 Laugaveg 26