Morgunblaðið - 04.04.1968, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1968
11
Tekniskur teiknari
Vita- og hafnarmálaskrifstofan vill ráða til sín
tekniskan teiknara frá 15. maí.
Skrifleg umsókn þar sem greint er frá aldri,
menntun og starfsreynsiu sendist Vita- og hafnar-
málaskrifstofunni Seljavegi 37, fyrir 15. apríl.
Trésmíðavélar
Til sölu er 2ja ára norskar trésmíðavélar „Tegle
& S0nner“ mjög lítið notaðar.
Þykktarhefill 70 cm. afréttari 45x220 cm. fræs-
ari með sleða, hjóisög með sleða, límingarpressa
115 x 270 cm, bandstýrisvél.
Uppl. á Akureyri í sima 96—11087.
Skolphreinsun úti og inni
Sótthreinsum að verki loknu. Vakt allan sólar-
hringinn. Niðursetning á brunnum og smáviðgerðir.
Góð tæki og þjónusta.
Rörverk
sími 81617.
Norðlendingar
Höfum opnað mjög glæsilega sjálfs-
afgreiðsluverzlun að
Clerárgötu 34
Opið 1 til 6 e.h. nema laugardaga 9—12 f.h.
Mikið af nýjum vörum.
Akureyri, sími 21575.
ROAMER
á pilta
og stúlkur
Hermann Jónsson & Co.
Lækjargötu 2.
NÝTT - NÝTT
Það þarf ekki lengur að
fínpússa eða mála loft-
og veggi ef þér notið
Somvyl.
Somvyl veggklæðning.
Somvyl þekur ójöfnur
Somvyl er auðvelt að þvo.
Somvyl gerir herbergið
hlýlegt.
Somvyl er hita- og hljóð-
einangrandi.
Það er hagkvæmt
að nota Somvyl.
Á lager hjá okkur
í mörgum litum.
SOMMER
somyyl
LITAVER
Grensásvegi 22—24. — Símar 30280—32262.
- MINNING
Framhald af bls. 21
í Oxarfirði. Það var pabba mikið
gleðiefni að vera me’ð systur-
börnum sinum og völdum vinum
í ágætri veizlu, er þau hjónin
Björn og Þórstína buðu til. Þetta
var í apríl 1966, síðasta vorið,
sem pabbi lifði. í febrúar árið
eftir hittust þeir frændur í Borg
arspítalanum, þá báðir lagðir
upp í hinztu förina.
Þegar Vilhjálmur Benedikts-
son lézt 1938 fóru börn hans al-
farin frá Sandfellshaga. Björn
hóf þá um haustið nám við Hér-
aðsskólann á Laugarvatni. Næsti
stóráfanginn í lífi hans var, þegar
hann réðist til vélsmiðjunnar
Héðins. Þar lærði hann járnsmfði
og lauk bæði bóklegu og verk-
legu námi með ágætum vitnis-
burði. Hann vann í Héðni um
tuttugu ára skeið og varð þar
vel til vina. En heilsa hans var
ekki sterk og því skipti hann
um starf. Síðustu árin var hann
verkstjóri í Fiski- og síldarmjöls
verksmiðju Guðmundar Jónsson-
ar í Sandgerði og féll starfið og
starfsfólkið hið bezta.
Björn kvæntist 24. janúar 1948
eftirlifandi konu sinni, Þórstínu
Jóhannsdóttur frá Akureyri. Þau
eignuðust tvö börn, Hilmar Tóm-
as, íþróttakennara, hann er
kvæntur Unni Sigtryggsdóttur
Klemenssonar, hjúkrunarkonu,
Berta Júlía dvelur heima hjá
mó'ður sinnL
Björn og Þórstína áttu fallegt
heimili að Hlíðarvegi 30, Kópa-
vogi. Þau nutu mikillar ham-
ingju saman, voru samhent og
sístarfandi að hag heimilisins.
Þórstína hefur um árabil unnið
hjá Mjólkursamsölunni og á sín
hvorum megin götu heimili sitt
og vinnustað.
Allir, sem til Björns þekktu
vissu, að hann var hið mesta
prúðmenni, ágætlega gefinn og
hafði sérstæða mjög hlýja og
hófsama kímnigáfu. Það var sem
hljóðlát gleði fylgdi honum jafn
an, bros hans er eftirminnilegt.
Hann var góður heimilisfaðir,
umhyggjusamur og ástúðlegur,
fagrar minningar létta konu hans
og börnum missinn, tengdadótt-
urin, sem reyndist Birni eins og
gó’ð dóttir hefur einnig mikið
misst. Systkinum sínum varð
Björn mikill harmdauði.
Björn Vilhiálmsson innritaðist
í Borgarspítalann til rannsóknar
í ársbyrjun 1967. Um vorið gekk
hann undir mikinn holskurð í
Landsspítalanum, sem mun hafa
verið vonlítið viðnám í leik,
sem þegar var tapaður. Bjöm
var heima að Hlíðarvegi síðsum
ars og fram eftir vetri, 9. desem
ber fór hann í síðasta sinn í
siúkrahús. þá í Landakotssptíala.
Hann rakti þessa söeu alla í dag
bók sinni. Hann fékk leyfi til að
dvelia á heimili sínu um jól og
nvár. að morgni bess 26. marz
lézt hann í Landakotsspítala.
Genginn er góður drengur.
Horfinn er hefður dagur.
1. apríl 1968.
Þórunn Elfa.
RITSTJÓRN • PREIMTSMIÐJA
AFGREIÐSLA.SKRIFSTOFA
SÍMI 1Q*iaa
Gáta mannlegs lífs er stund-
um torráðin og óskiljanleg, allt
frá vöggu til grafarinnar. Fögn-
uður er í brjósti móðurinnar við
fæðingu barns síns, og söknuður
þegar það er ekki lengur. — Ef
við lítum á mannlegt líf raun-
sæum augum, þá fæðumst við
aðeins til að deyja. Það er stutt
á milli þessara atburða að vera
í heiminn borinn og að vera
kallaður til baka. Hvert? Sumir
lifa lengi og láta að baki sér
langa sögu, sem oft vekur at-
hygli okkar hinna, sem erum á
biðlistanum, bíðum eftir loka-
deginum. Aðrir lifa skemur, en
skilja þó eftir sína sögu.
Einn af þeim var Björn Vil-
hjálmsson járnsmiður, sem kvadd
ur er í dag hinstu kveðju. Það
ríkir sorg á heimili hans í dag
og söknuður í huga vina hans
og stéttarbræðra. Það er þjóðar-
sorg að missa atorkumenn, sam-
viskusama. Menn eins og Björn
Vilhjálmsson í blóma lífsins, en
eigi stoðar hót, að deila við dóm-
arann. Enginn veit sína æfina
fyrr en öll er. Með Birni er
genginn góður drengskaparmað
ur. Að honum er vissulega eftir-
sjá, hann bar ekki tilfinningar
sínar á torg út, tefldi sitt tafl
við dauðann æðrulaust. Slíkir
menn mátti segja um að „deyi
standandi".
Æfisögu Björns Vilhjálmsson-
ar þarf ekki að segja, hana rifja
þeir upp með sjálfum sér, er
þekktu hann bezt.
Við ykkur aðstandendur hans,
konu hans og börn, langar mig
til að benda ykkur á orðin sem
blasa við á þeim stað er hann
er kvaddur í dag hinsta sinni
„Kona hví grætur þú“.
Fagrar minningar og góðan
eiginmann, föður og vin vina
sinna, þurrka burt þau tár, er
renna úr augum ykkar á stund
sorgarinnar. Þó okkur sem eftir-
stöndum, finnist dapurt, þá haf-
ið það hugfast að Guð lokar
aldrei öllum dyrum, það standa
ávallt einar opnar — dyr bæn-
arinnar. —
Blessuð sé minning Björns Vil
hjálmssonar.
Björn Dúason.
BLAÐBURÍURFOIK
f eftirtalin hverfi
AÐALSTRÆTI,
Talið við afgreiðsluna i sima 10100
N0RSKAR SKÍÐAPEYSUR
fyrir dömur
og herra
SKÍÐAÚLPUR
SKÍÐAVETTLINGAR
fallegt úrval.
GEYSIR HF.
Fatadeildin.
Vörugeymsla — lagergeymsla
Til leigu er jarðhæðin í Tryggvagötu 8, — m.a. hentugt til
geymslu á vörum o.fl.
Upplýsingar gefa:
LÖGMENN
Eyjólfur Konráð Jónsson,
Jón Magnússon,
Hjörtur Torfason,
Sigurður Sigurðsson.
Tryggvagötu 8, símar 1-1164 og 2-2801.