Morgunblaðið - 06.04.1968, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1968
15
Barnaleikhúsib:
„Pési Prakkari"
Höfundur: Eincr Logi Einarsson
Leikstjóri: Inga Laxness
ENGINN vafi er á því að bezta
aðferðin til að vinna leikhúsi
skynuga og trygga áhorfendur
er sú að venja böm og unglinga
á leikhúsferðir með því að
beyta fyrir yngstu kynslóðina
fjölbreyttum leiksýningúm við
hennar hæfi. Móttökutregða
fólks á vönduðum en óvenjuleg-
um leiksýningum, sem stundum
skjóta upp kollinum í Reykjavík,
er áreiðanlega fyrst og fremst
sprottin af þeirri afstöðu, sem
fólkið hefur margt til leikhúss-
ins. Það hefur ekki vanizt því
nægilega að opna huga sinn fyr-
ir þeim tilfinningalegu eða vits-
munalegu áhrifum, sem bjóðast
á sýningum góðra leikhúsverka.
Börn verða ekki vænd um neina
slíka tregðu, svo að tilvalið er
að mata þau á margvíslegum
réttum leiklistar, gæta þess að
skemmta þeim alltaf vel, en
þjálfa jafnframt skyn þeirra og
smekk, þannig að þau verði
smám saman með aldri og
þroska bæði móttækilegir og
igagnrýnir njótendur sem drégið
geti sjálfstæða reynslu af kvöldi
í leikhúsi.
Þjóðleikhúsið og Leikfélag
Reykjavíkur sýna eitf barnaleik-
rit hvort á ári hverju. Þótt þær
sýningar séu ærið misjafnar að
gæðum, eru þær þó mjög já-
kvæð starfsemi í þessa átt, og
njóta geysilegra vinsælda yngstu
borgarbúanna. Leikhúsin ættu
að taka það til athugunar hvort
þau gætu ekki fjölgað leikritum
fyrir börn og unglinga á verk-
efnaskrám sínum og reýnt þann-
ig áð ala upp góða áhorfendur,
þótt árangur slíkrar starfsemi
yrði ekki ljós fyrr en eftir nokk-
ur ár.
Nýtt fyrirtæki, sem nefnist
Barnaleikhúsuð, frumsýndi sl.
sunnudag í Tjarnarbæ leikritið
„Pésa prakkara“ eftir Einar
Loga Einarssonar helzta forvíg-
ismann fyrirtækisins. Barnaleik-
húsið boðar fleiri verkefni í
framtíðinni, en framburður þess
lofar ekki góðu um það að starfs
kraftarnir geti komið upp sóma-
samlegri leiksýningu, jafnvel
fyrir svo þakkláta áhorfendur
sem börn eru.
Vera kann að tilgangur Barna
leikhússins sé ekki eingöngu sá
að afla fjár með litlum tilkostn-
aði, og í leikskrá tr beðizt ,,af-
sökunar á þeim hnökrum, sem
sýningunni kunni aS) vera“, og lof
að að gera betur næst. En jafn
hugmyndasnautt og klaufalegt
leik/it sem „Pési prakkari" er,
og óvandað í texta, reynsluleysi
leikendanna og smekkleysi leik-
tjaldanna ber ekki vott um góða
dómgreind forráðamannanna, svo
að ég fæ ekki betur séð en að
fá verði hæfara starfslið til
verka, ef Barnaieikhúsinu á að
verða langra lífdaga auðið.
Þess er þó skylf að geta, að
bömin virtust skemmta sér við
að horfa á „Pésa prakkara".
Örnólfur Árnason.
)
Gígjon heldur
hljómleihu
ó Akureyri
AKUREYRI. 3. apríl. — Söng-
félagið Gígjan hélt samsöng í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri í
gærkvöldi. í körnum eru 19 kon
ur og eru þær allar á sams konar
kjólum, dökkgrænum og skósíð-
um með merki félagsins saum-
uðu framan á brjóstið. Sóng-
stjórar voru Jakob Tryggvason
og Sigurður Demetz Fransson.
Einsöngvari var Lilja Hailgríms
dóttir og undirleik annaðist Þor-
gerður Eiríksdóttir, 13 ára að
aldri. ,
Á söngskránni voru 14 lög, inn
lend og erlend. Húsið var Joétt-
setið áheyrendum, sem klöpp-
uðu listafólkinu óspart lof í lófa.
■ Kórinn varð að endurtaka mörg
j lög og syngja aukalög; Og marg-
I ir blómvendir bárust. — Sv. P.
ROAMER
er nú sem fyrr
bezta fermingar-
gjöfin.
Kaupið úrin hjá
úrsmið.
Kornelíus
Skólavörðustíg 8 &
Bankastræti 6.
Mjög góðir greiðsluskilmálar
VÖRUAiARKAÐURIIMN HF.
ÁRMÚLA IA - SÍMI 8-76-80
Njótið hinnar útfjólubláu geislunar af fjallasnjónum
- VERÐIÐ BRÚN - BRENNIÐ EKKI -
«563 C-Á3
COPPERTONE er langvinsælasti sólaráburðurinn í Bandaríkjunum. Vísindalegar rannsóknir framkvæmdar af
hlutlausum aðila, sýna að Coppertone sólaráburður gerir húðina á eðlilegan hátt brúnni og fallegri á skemmri
tíma, en nokkur annar sólaráburður s em völ er á.
Fáanlegar Coppertone-vörur: Suntan lotion, Suntan oil, Shade, Baby Tan og Noskote.
Heildverzl. Ýmir
Garðastræti 4. — Sími 14191.
NPTIÐ