Morgunblaðið - 07.04.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. APRÍL 1968
7
,Austan kaldinn á oss blés#
Siglunes. Okkur barst þessi mynd frá Jóni Stefánssyni,
Háaleitisbraut 15 í Reykjavík, og þökkum kærlega fyrir
hana. Siglunes er austan megin Siglufjarðar, en Sauðanes
vestan megin. Enginn akvegur er að Siglunesi, og sjálfsagt
er það þess vegna, sem svo fáar myndir hafa af Siglunesi
birzt. Menn hafa gengi'ð eftir fjörunni frá Siglufirði að
Siglunesi, og herma sagnir frá óskaplegum manntapa á
þeirri leið, og væri raunar fróðlegt að fá í hendur frá sögn
af kirkjuferðinni frægu, þegar fólkið lenti í snjóflóðinu.
Margir muna sjálfsagt enn þann atburð, og þætti okkur
vænt um að fá þá frásögn til birtingar.
ENN eru menn að skrifa okk-
ur út af vísunni um Austan-
kaldan og Siglunesið. Við getum
ekki annað en þákkað þennan
áhuga á gömlum og góðum ís-
lenzkum fróðleik. Við birtum
hér í dag tvö bréf frá þeim Jó
hanni Sveinssyni frá Flögu og
Lárusi Salómonssyni. Allt virð
ist benda til þess, að Ingimund-
ur í Sveinungsvík sé höfundur
vísunnar.
Auk þess skrifaði okkur kona
úr Árnessýslu, sem ekki vill
láta nafns sins getið, á þessa
leið:
„Fróðlegt þótti mér að sjá
skýringarnar við vísuna, og þyk
ir mér trúverðugast form Stef-
áns Rafns og líkar vel yfirlætis
laus orð hans. Ekki geðjast mér
að skýringum Hannesar eða
forminu, sem hann setur fram.
Hrakningsrímu á ég gamla, orta
1849 (af Jóni nokkrum Guð-
mundssyni) 179 vísur í handriti
móður minnar heitinnar. (Hún
var fædd 187S sem var fróð um
vísur og ættfræði og margt, sem
týndist með henni, því miður —
þó sumu væri bjargað og kom-
ið til Guðna Jónssonar magisters,
fræðasafnara, en sennilega er
hennar þó hvergi getið í því
sambandi.
Fyrrnefnd Hrakningsríma er
um sjóhrakninga á Breiðafirði
og út af Vestfjörðum, en ekki
finn ég vísuna þar.
Og svo fylgja hér á eftir brétf
Jóhanns frá Flögu og Lárusar
Salómonssonar.
ÞANN 22. marz var spurt I Dag-
bókinni hver væri höfundur vís-
unnar „Austan kaldinn að oss
blés“. Ég hefi heyrt marga til-
nefnda sem höfunda, en jafnan hef
ur rökin skort fyrir höfundarrétt-
inum.
í bókinni Hafræna, sem gefin
var út 1923, er vísan prentuð og
höfundur talinn Ingimundur Jóns-
son í Sveinungavík. Vísunum safn
aði hinn vísi og merki maður dr.
Guðmundur Finnbogason, og hef-
ur hann vafalítið haft rök fyrir
því hver væri höfundur, enda seg
ir hann í formála að bókinni að
hann vilji þakka mörgum hjálp-
semi við að taka bókina saman,
en sérstaklega þjóðskjalaverði dr.
Jóni Þorkelssyni, er hafi af mik-
illi góðvild látið sér í té handrit
að kvæðum og vísum frá miðöldum
vorum. Ungur lærði ég vísuna, og
bá á þrem bragháttum, það er
hringhendu, stikluviki og sam-
hendu, sem eru svohljóðandi:
Austan kaldinn að oss blés,
upp skal faldinn draga.
Þó velti aldan vargi Hlés,
við skulum halda á skaga.
Á hættinum stikluvik er vísan
að öllu eins, nema í fjórðu ljóðlínu,
að þar kemur í stað orðsins „skaga"
orðið „Siglunes".
í hættinum samhenda er fyrsta
ljóðlína eins, en í annarri Ijóðlínu
aftan við orðið „draga“ kemur orð
ið „trés“, og í fjórðu ljóðlínu kem
ur í stað orðsins ,,skaga“ orðið
„SiglUnes".
Það er gagnslaust að lesa frá-
sagnir manna um hver sé höfund-
ur og hvernig hver lærði vísuna í
upphafi. Einna merkasta tel ég frá
sögn Hannesar Jónssonar, enda við
urkenndur fróðleiks- og grei-ndar-
maður. Þá er grein Stefáns Rafns
mjög upplýsandi, og eru greinar
þeirra í Morgunblaðinu 31. marz
Einnig skýringar Helga Bjarnason-
ar í Velvakanda 30. marz.
Enn vantar upplýsingar frá fróð
um mönnum, svo sem Jóhanni
Sveinssyni magister frá Flögu, því
hann veit ég fróðastan um þetta,
og skrifa ég því ekki meira, en
vænti þess að heyra frá honum.
í Morgunblaðinu 28. marz birtist
frásögn Unu Sigtryggsdóttur um
að faðir hennar hafi verið höf-
undur vísunnar, en hann var Sig-
tryggur Jónatansson, s iðasti bóndi
í Framnesi l Skagafirði. Það er
hæpið, að vísan sé eftir hann, þvi
að hún virðist hafa verið komin á
flug fyrir hans ungdómstíð. Sig-
tryggur Jónatansson, síðasti bóndi
Hann hefur lært vísuna ungur, og
svo hafa menn haldið að hún væri
eftir hann. Slík dæmi eru alltíð,
samanber vísu Stefáns Ólafssonar
„Ofan drífur snjó á snjó“, sem er
prentuð í bók Bólu-Hjálmars og
Hjálmari eignuð hún. — Sannan-
legt er, að vísan er skrifuð í Háltf-
dánarbók 1764 og því meix en 20
árum fyrir fæðingu Hjálmars, og
í mörgum handritum er Stefán tal
inn höfundur vísunnar.
31. marz 1968.
Lárus Salómonsson.
FYRIR skömmu kom fyrirspurn I
Dagbók Morgunblaðsins um vls-
una „Austankaldinn á oss blés“. —
Vil ég reyna að leysa úr þvi eftir
beztu getu. Vísan hefur ávallt ver
ið talin eftir Ingimund Jónsson í
Sveinungsvík í Þistilfirði, d. lík-
lega litlu fyrir 1703 (finnst ekki
í manntalinu 1703). Ingimundur var
Skáld, smiður og bíldhöggvari, eins
og hann var kallaður (þ.e. mynd-
skeri), og á hann að hafa lært þá
í Kaupmannahöfn.
Sögn er um það, að Ingimund
hafi hrakið við fjórða mann á opnu
fari austan frá Langanesi vestur á
Siglunes (jafnvel vestur á Skaga,
sbr. eina gerð visunnar) og náð
þar naumlega landi. Vísan er til
í þremur gerðum með mismunandi
bragarhætti. Sr. Bjarni Þorsteins-
son birtir vísuna ásamt tildrögum
í ísl. þjóðlögum, bls. 905. Einnig
er vísan birt hjá Ólafi Davíðssyni
í fsl. þjóðsögum I. bls. 48 (útg.
1945) eftir Gráákinnu Gísla Kon-
ráðssonar. — Vísuna hefi ég heyrt
í þremur gerðum, sem hljóða þann
ig:
Austankaldinn á oss blés,
upp skal faldinn draga.
Veltir alda(n) varga Hlés.
Við skulum halda á Siglunes.
f þessari gerð hefir sr. Bjarni
vísuna, og er bragarhátturinn þá
stikluvik.
Austankaldinn á oss blés,
upp skal faldinn draga trés.
Veltir aldan vargi Hlés.
Við skulum halda á Siglunes.
Er þá vísan orðin samhenda (af
brigðið hagkveðlingaháttur). í þess
ari gerð birtir Ólafur Davíðsson
vísuna:
Austankaldinn á oss blés,
upp skal faldinn draga.
Veltir alda(n) vargi Hlés.
Við skulum halda á Skaga.
Er nú hátturinn orðinn ferskeytt
ur (afbrigðið hringhenda). Ekki
minnist ég þess að hafa séð þessa
gerð á prenti, en alkunn var hún
í Eyjafjarðarsýslu. Má og vera að
þessi sé yngri en hinar, gerð til
þess, að fá fram fleiri háttu.
Meiri skil kann ég ekki á vísunni,
enda naumast meira um hana vit-
að.
Virðingarfyllst,
Jóhann Sveinsson.
ATH.
Þegar ég hafði lokið við þess-
ar línur, sá ég í dálkum Velvak-
anda, að Una Sigtryggsdóttir segir
vísuna eftir föður sinn, Sigtrygg
Jónatansson á Framnesi 1 Skaga-
firði. Þetta hlýtur að vera misskiln
ingur, þar sem vísan er eldri en
Sigtryggur, en Ólafur Daviðsson
segist hafa sögnina, sem vísan er
í, eftir Gráskinnu Gísla Konráðs-
sonar, eins og fyrr segir. Ég hefi
að vísu ekki leitað í handriti Gísla,
en ég tel eflaust, að sá merki fræði
maður, Ó. D., fari rétt með. Hitt
þykir mér ekki ólíklegt, að Sigtr.
hafi haft vísuna yfir á einhverri
sjóferð, og þeir, er viðstaddir voru,
hafi haldið, að hann hafi hana orta,
þar sem Sigtr. var prýðilega skáld-
mæltur.
J. S.
Lítil stúlka i grimubúningi.
Listsýning Verðlaunapeysurnar ásamt nokkrum öðrum fallegum flíkum verða í sýningar- glugga okkar í Þingh.str., 2 næstu vikurnar. Álafoss. Ungur piltur óskar að kynnast reglu- samrj stúlku á aldrinum 16 til 22 ára. Tilb. ásamt mynd sendist afgr. Mbl. merkt: „Áhugi 8957“.
Vil kaupa eða leigja land undir sumarbústað við vatn eða á á fögrum stað. Tilb. merkt: „Sumar 8012“ sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld. Óska að kaupa sumarbústað eða land við á eða vatn í fallegu umhv. Til'b. sendist Mbl. fyrir há- degi 10. apríl merkt: ,8013'.
Hópflug ftala Bílskúr
Tiliboð óskast merkt: „Hóp fluig 8959“, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 16. apríl. upphitaður, til leigu að Laugarásvegi 32. Uppl. í síma 34476.
Gráar þykkar og yrjóttar karl- manna- og dnengjanærbux ur. Þorsteinsbúð, Snorra- braut 61, Keflavík. Góð 3ja herb. íbúð óskast á leigu nálægt Hamrahlíðarskólanum 1. okt. eða fyrr. Reglusemi. Fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 35552 á kvöldin.
Hábær Frá Gluggaþjónustunni
Höfum húsnæði fyrir veizl ur og fundi. Sími 21360. Hátúni 27. Einfalt igler, all ar þykktir. Sími 12880.
Rúmteppi, baðhengi baðmottusett, pífur fyrir baðherb.gl., plastefni, hlíf- ar yfir hræriv., grillvetl., indverskir smádúkair. Gard ínubúðim, Itngólfssbræti. íbúð til leigu 3ja herb. fbúð til leigu. — Uppl. í síma 14652.
Til leigu
Húsnæði um 90 ferm. er til leigu. Hentugt sem
teiknistofa, læknastofa eða skrifstofur. Tilboð send-
ist Mbl. merkt: „Góður staður 8051“.
Óskum að taka á leigu frá 1. maí 2ja herb.
íbúð með húsgögnum
fyrir sænskan verkfræðing.
Upplýsingar í síma 52485, á mánudag.
ARABIA-hreinlætistæki
Stórkostleg
nýjung
Hljóðlaust W.C. Hið einasta í heimi
Verð á W.C.
Handlaugar
Fætur f. do.
aðeins kr. 3.375.00
— 930,00
— 735,00
Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumboð fyrir ísland:
HANNES ÞORSTEINSSON
heildverzlun, Hallveigarstíg 10. — Sími 2-44-55.
\