Morgunblaðið - 10.05.1968, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.05.1968, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1968 - MINNING FramfhaLd af bls. 22 vel af hendi, vinnu sína og skyld ur gagnvEirt börnunum og heimil inu. Er því viðbrugðið af þeim sem með henni voru hversu mik- ill víkingur hún var til vinnu, að hverju sem hún gekk. Sauma- skapur lék í höndum hennar, enda mun hún hafa vakað marga nóttina við að sauma flíkur á barnahópinn. Eftir því sem börn in uxu úr grasi fóru þau að létta undir með móður sinni og öll komust þau til mennta er þau höfðu aldur til, enda öll bráð- vel gefin. Börn þeirra Davíðs og Andreu eru: Hörður, rafvirkja- meistari, Andrés, kennari Sig- urjón, fasteignasali, Sigríðurhús móðir, Bjarnheiður Ólína, hús- móðir, Vikar, skrifstofumaður og Leifur, sem dó um tvítugt, og var það Andreu mikið áfall. Andrea var mjög vel gefin kona og þótt hún nyti aldrei skólamenntunar þá var hún prýð lega sjálfmenntuð. Hún var mjög félagshneigð var meðal annars formaður K venfélags Patreks- fjarðar um árabil, þrátt fyrir heimilisannir. Þá var hún í stjórn verkalýðsfélag Patreksfjarðar 'og einnig í stjóm Slysavama- ífélagsins Unnar á Patreksfirði. ÍHún unni hverju máli er til góðs horfði. Hún var listhneigð kona 'og síðari árin gat hún gefið sér -tíma til að fást við hannyrðir 'og margskonar útsaum, sem áður vannst ekki tími til. Hún var bókhneigð og þótt hún vildi ekki 'flíka því var hún vel hagmælt. ÍHún unni hinni lifandi náttúru ‘landsins og margar feirðir átti hún vestur í Bjarkarlund í Barða strandasýslu, þar sem Bairðstrend ingafélagið lét fyrir mörgum ár um reisa veitinga- og gistiskála, 'eem sonur hennair Vikar, veitti um tíma forstöðu. Andrea unni Breiðafirði og Barðastrandasýslu og tók mikinn þátt í starfsemi 'Barðstrendingafélagsins hér í Reykjavík og var í stjórn kvenna 'samtaka þess- Á sinni 80 ára æfi kynntist Andrea mörgu fólki. Óhætt er áð segja að hún hafi orðið öll- 'um kær sem henni kynntust, vegna ljúfmannlegrar og hóg- værrar framkomu. Hún var ein 'þeirra sem stækkaði við við- kynningu og ekki mátti hún vamm sitt vita í neinu. Þeir sem áttu þess kost að kynnast henni háið munu ekki gleyma þeirri einstöku prúðmennsku, dreng— lyndi og reglusemi ásamt dugnaði er einkenndi störf hennar. Per- sónuleiki hennar var höfðing- legt yfirbragð, festa í athöfn- um, óvenjulegt vinnuþrek ásamt hjálpsemi og góðvild í öllum sam- skiptum við fólk. Árið 1942 fluttist Andrea frá Patreksfirði til Reykjavíkur, enda börn hennar öll þá komin þangað ýmist til mennta eða starfa. Hér í Reykjavík bjó hún með Vikari syni sínum og hélt honum heimili þar til hann kvænt ist nú fyrir tveimur árum og bjó á heimili hans eftir það, þar til síðastliðið haust að hún kenndi þess sjúkdóms er leiddi hana tW dauða. Með h-úsmóðux- störfunum vann hún fullan vinnu dag við saumaskap. í veikindum sínum síðast liðinn vetur naut hún sérstakrar umhyggju Sig- ríðar dóttur sinnar og tengda- sonar Ólafs Sigurðssonar en á heimili þeirra dvaldist hún s.l. vetur milli þess sem hún var í sjúkrahúsum. Fyrir um það bil 15 árum varð Andrea fyrir miklu slysi, er hún varð fyrir bifreið, snemma morguns í svartasta Ska-mmdeginu rétt fyrir jólin, á leið til vinnu sinnar. Lá hún þá marga mánuði í sjúkrahúsi sökum beinbrota og annarra meiðsla. En strax og heilsan fór að batna tók hún til við fyrri störf. Vafalaust hefur hún aldrei náð sér til fulls eftir þetta slys, en það nefndi hún aldrei. Hún var aMrei með æðr-uyrði á vör- um, á hverju sem gekk. Andrea safnaði ekki jarð- neskum auði hér á jörð. En hún átti annan dýrmætari auð í sálu sinni, sem var kærleikurinn. í raun og veru var hún hamingju- söm kona, æðrulaus og búin innri rósemi. Þegar hún nú, með hækk I andi sól, flytur yfir móðuna miklu, þar sem kærir ástvinir bíða hennar, flytjum við syst- kynin frá Vatnsdal, henni móð- ursystur okkar, hjartans þakkir fyrir allt og allt. Um leið send- um við börnum hennar, tengda- börnum, barnabörnum og Vig- dísi systur hennar, sem nú er ein á lífi þeirra systkina, inni- legar samúðarkveðjur. Andrea verður jarðsett í dag. Systkinin frá Vatnsdal. - UTAN ÍÍJR HEIMI FramhaM af bls. 16 mér, svo að ekki væri unnt að koma auga á mig. Viet- cong-mennirnir skutu yfir höfuð flóttafólksins, senni- lega í þeirri von, að það myndi framselja mig. En eng inn flóttamannanna leit við þeim, heldur hjálpuðu mér og leyfðu mér að komast áfram leiðar minnar". Á sunnudag var einnig skotinn til bana í kínverska hverfinu Rúdt von Collen- berg, fyrsti sendiráðsritari Vestur-Þýzkalands í Suður- Víetnam. Fannst hann skot- inn til bana með hendur bundnar fyrir aftan bak og með bundið fyrir augun í Phu Lam-hverfinu, skammt þar frá, sem blaðamennirnir voru myrtir. - 3. SÝNINGAR FramhaM af bls. 17 í mynd nr. 17, sem er mjög hrein og hnitmiðuð í útfærslunni, sam- ræmd í lit nema að nefndri und- antekningu. Sennilega er jákvæð asta árangurinn að finna í mynd nr. 20, en efri hlutinn er þar þó síðri hinum neðri. í öðrum myndum má segja að Valtýr sé öðrum þræði rómantíker og stemningamálari, einkum er það liturinn sem hann leggur áherzlu á og er styrkur hans, nær hann stundum litasamsetn- ingum, sem aðeins mikill tilfinn- ingamaður með liti getur náð fram — og það er athyglisvert að þegar Valtýr virðist hugsa mest um litinn, nær hann ósjálf- rátt sterkustu myndbygging- unni — þannig eru ferskustu og mest sannfærandi myndir Valtýs á sýningunni unnar — en svo er sem hann missi tökin á við- fangsefninu þegar hann leggur mesta áherzlu á byggingu mynd- arinnar og þess sér maður of oft dæmi á þessari sýningu, en vera má að hinar nýju tilraunir, sem Valtýr glímir nú við, muni færa hann nær því að samræma þetta tvennt. Sjálfur hef ég trú á því. Valtýr nær mjög sterkum og rómantískum áhrifum í mynd nr. 13, sem minnir sterkt á landslag — andstæða þeirrar myndar er nr. 34, sem er hrein og vatnstær í útfærslu og ekkert annað en gott málverk. Mér er aftur á móti ógerlegt að koma auga á um- brot 20 ára vinnu í stærstu mynd sýningarinnar, þó ég efi ekki að Valtýr hafi þrautmálað þá mynd. Valtýr sýnir umbrotameiri hlið á sér að þessu sinni, en við eigum að venjast frá hans hendi — því fylgir einnig mikil hætta, enda er sýningin nokkuð brotin þótt Valtýr svíki okkur sjaldn- ast í litnum. En vegna ástands skálans verða sýningargestir að skoða myndirnar betur en ella til að komast í snertingu við þær, og það er ómaksins vert, en ella er hætta á alröngu mati á sýningunni í heild. Svo þakka ég Valtý fyrir það hugrekki að sýna í þessum hrör- lega skála og kynningu nýrrar hliðar listar sinnar. Og öllum þremur listamönnunum þakka ég fyrir fróðlegar stundir og ég hvet sem flesta til að nota tæki- færið til að kynnast þrem vel- þekktum málurum sem sýna samtímis í borginni. Bragi Ásgeirsson. - RIUSSAR FramhaM af bls. 1. Skipað að snúa við Fyrr í dag stöðvaði pólska lög- reglan vestræna diplómata, sem ætluðu að fara frá Varsjá, að sögn Reuters, um leið og frétt- ir bárust um liðsflutninga Rússa. Áreiðanlegar heimildir herma að sögn AP, að pólska lögreglan hafi skipað vestræn- um hermálafulltrúa að snúa til Varsjár frá Kopane, sem er bær skammt frá landamærum Tékkó slóvakíu, en þar hefur hann dvalizt í orlofi. Vestrænn sendiráðsstarfsmað- ur var á fei'ð í bifreið sinni um það bil 50 km fyrix norðaustan Varsjá, þegar fólksbifreið ók fram úr honum, neyddi hann til að nema staðar, og skipaði hon- um að snúa aftur til Varsjár. Samkvæmt heimildunum í Vsir- sjá sagði talsmaður pólska utan- ríkisráðuneytisins er hann var beðinn um skýringu, að hér hlyti að hafa verið um ,,mis- skilning“ að ræ’ða. Hann sagði að þeim diplómötum, sem vildu ferðast, stæðu allir vegir opnir. Frakki nokkur, sem búsettur er í Krakow, varð einnig að snúa við er hann ók í bifreið sinni skammt frá borginni. NTB hermir, að pólska lögregl- an hafi stöðvað diplómata er leið áttu frá Varsjá suður og norð- austur á bóginn, er þeir voru 20—60 km frá höfuðborginni. Vestrænn blaðamaður var stÖðv- aður er hann var á Jeið í bif- reið austur á bóginn til Terespol á landamærum Sovétríkjanna og Póllands og Lublin í Austur- Póllandi. 1 flestum tilvikum bað lög- reglan ökumennina að sýna skil- ríki og sagði þeim að aka aftur til Varsjár. Blaðamannimun var sagt að vegurinn væri ófær vegna hálku, en hann komst á ákvörðunarstað með því að aka aðra leíð. Bifreiðar og vörubif- reiðar, sem Pólverjar óku, fengu að fara óhindrað leiðar sinnar. Starfsmenn blaðadeildar utan- ríkisráðuneytisins sögðu síðar að öll hlið á landamærum Tékkóslóvakíu væru opin og að umferð yfir landamærin væri með eðlilegum hætti og óhindr- uð. Rússar þögulir í Moskvu voru starfsmenn sovézka utanríkisráðuneytisins ekki til viðtals er vestrænir blaðamenn reyndu að hafa sanr- band við þá. Diplómatar sögð- ust engar upplýsingar geta gef- ið um meintan liðssafnað Rússa í Póllandi. Sumir diplómatar sögðu, að ef þessir liðsflutning- ar hefðu átt sér stað væri hugs- anlegt, að þeir stæðu í sambandi við hátíðahöld á 23 ára afmæli sigurs sovézka hersins á hersveit um Þjóðverja í Austur-Evrópu. Aðrar heimildir hermdu, að ef fréttin væri rétt gæti hér ver- ið um að ræða undirbúning her- æfinga á vegum Varsjárbanda- lagsins, sem síðar yrðu haldnar eins og við hefði verið búizt. Ekki hefur verið tilkynnt hvaða dag þessar heræfingar eigi að fara fram. Heimildirnar herma, að þótt Rússar hafi áhyggjur af hinum róttæku breytingum, sem hafa átt sér stað í Tékkóslóvakíu, hafi ekkert bent til þess, að sam búð landanna sé svo stirð, að Rússar ætli að beita hörku. Sovézk blöð vegsömuðu í dag vináttu Rússa og Tékka, en í dag er þjóðhátíðardagur Tékka. Óttast íhlutun Fyrr í þessari viku létu frjáls- lyndir menn í Tékkóslóvakíu í ljós ugg um, að hugsanlegt væri að Rússar gripu til hernaðarlegr ar íhlutunar í Tékkóslóvakíu til þess að binda enda á frjálsræð- isþróunina. Verkalýðsblaðið Prace í Prag ræddi fyrir nokkr- um dögum alla hugsanlega möguleika er leitt gætu til íhlut unar. f Moskvuheimsókn sinni um helgina er talið, að Alexander Dubcek hafi fullvissað vaMhaf- ana í Kreml um það, að forystu hlutverk kommúnista í Tékkó- slóvakíu yrði ekki skert. í gær komu leiðtogar kommúnista- flokka Búlgaríu, Austur- Þýzkalands, Póllands og Ung- verjalands skyndilega í óvænta heimsókn til Moskvu. Leiðtogar allra þessara landa hafa látið í ljós ugg vegna þróunarinnar í Tékkóslóvakíu. Tékkar fjarstaddir Mikla athygli vakti, að Tékk- ar áttu engan fulltrúa í Moskvu- viðræðunum, en það hefur aldrei áður komið fyrir þegar fundir sem þessir hafa verið haldnir. Rúmenar og Júgóslavar voru einnig fjarverandi, og er þetta í annað skipti sem Rúmen- ar hafa ekki átt fulltrúa á fundi æðstu manna Austur-Evrópu- ríkjanna. í stuttri tilkynningu sem birt var í flokksmálgagninu Pravda í dag segir ,að leiðtogarnir er fundinn sátu hafi skipzt á skoð- unum um vandamál sem efst eru á baugi á alþjóðavettvangi og innan kommúnistahreyfingarinn ar. Sagt er, að viðræðurnar hafi verið vinsamlegar og hreinskiln islegar og leiðtogarnir hafi ver- ið sammála um að efla á alla lund vináttu og samstarf land- anna. Fundinn sátu Todor Zhivkov frá Búlgaríu, Janos Kadar frá Ungverjalandi, Walter Ulbricht frá Austur-Þýzkalandi og Wlady slaw Gomulka frá Póllandi og af Rússa hálfu Leonid Brezhnev, aðalritari kommúnistaflokksins, Nikolai Podgorny forseti, Alex- ei Kosygin forsætisráðherra og Konstantín Katusjev, nýskipað- ur flokksritari. Harðar árásir á V-Þjóðverja Æðstu herforingjar Sovétríkj anna gagnrýndu harðlega í dag bandaríska heimsvaldastefnu en þó sérstaklega Vestur-Þjóðverja í tilefni 23 ára afmælis sigurs- ins á þýzkum nazistum. Nikolai Krylov marskálkur, yf sagði að hefndarsinnar og hern- aðarsinnar réðu lögum og lofum í Vestur-Þýzkalandi og stofnaði það friði í álfunni í hættu.. Orð Krylovs eru túlkuð þannig að þau feli í sér að afstaðan til Vestur-Þýzkalands hali harðn- að vegna umræðna þeirra er nú fara fram í Tékkóslóvakíu um utanríkismál. í gær sagði utan- J3 ríkisráðherra Tékkóslóvakíu, Jiri Majek til dæmis, að til þess að vega og meta hættuna af völd um eflingar nýnazisma og hern- aðarstefnu í Vestur-Þýzkalandi yrði að taka til greina áhrif and fasistískra og raunsærra afla í landinu. Pólverjar gagnrýna Tékka. 1 Varsjá Birti Trybuna Ludu, málgagn pólska kommúnista- flokksins óvenju harðorða gagn rýni í dag á stjórnmálaástandið í Tékkóslóvakíu, og hvatti til þess að valdi yrði beitt til að berja niður „utanaðkomandi, andsósíalistísk áhrif“ í stjórn- málum Tékkóslóvakíu. Þessum á hrifum er beitt til að „grafa undan forustuhlutverki verka- mannaflokksins, kæfa niður vald alþýðunnar, og koma á ó- sætti milli Tékkóslóvakíu og annarra bræðralagsríkja komm- únismans“, segir blaðið. Hér er um að ræða hörðustu gagnrýni, sem fram hefur komið í Póllandi á aðgerðirnar til auk ins frelsis í Tékkóslóvakíu, en fyrir þremur dögum mótmæltu Pólverjar því sem þeir nefndu „and-pólska herferð" í Tékksló- vakíu. „Breytingarnar, sem tékkneski kommúnistaflokkurinn hefur ver ið að koma á,“ segir Trybuna Ludu, „hafa í för með sér and- sósíalisk áhrif á stjórnmálalífið í £ landinu. Þessi andsósíalisku áhrif eru runnin und- an rifjum endurskoðunarsinna í úr öllum stéttum í Tékkslóvíkíu og eiga rætur að rekja til nið- urrifsstöðva heimsvaldasinna er- lendis. Við erum sannfærðir um að tékkneskir og slóvaskir kommúnistar, verkalýður Tékkó- slóvakíu, verða færir um að lama tilraunir and-sósíalísku afl anna, og þagga með valdi niður í þessum röddum, sem eru svo fráhverfar hugsjónum og til- finningum tékknesks þjóðfélags og vináttunni, sem tengir þjóð- irnar okkar tvær,“ segir blaðið. í Prag hefur blaðið „Mlada Fronta", málgagn tékknesku æskulýðsfylkingarinnar, svarað mótmælum Pólverja frá því fyr- ir þremur dögum. Segir blaðið að mótmælin séu ótæk, eigi þau að vera tilraun til að setja höml- ur á upplýsingar um ástandið í Póllandi. Spyr blaðið pólsku stjórnina hvað tékknesk blöð hafi sagt um Pólland, sem ekki sé satt. NOTAÐ TliVIBUR OSKAST Óska eftir notuðu timbri í vinnupalla nú þegar. Uppl. í síma 42335 og 42437. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 20., 22. og 24. tbl. Lögbtrtinga- blaðsins 1968 á húseigninni nr. 6 við Báisenda, hér í borg, þingl. eign Guðmundar Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu GjaMheimtunnar í Reykjavík á eign- inni sjálifri, þriðjudaginn 14. maí 1968, kil. 3 síðdegis. Kr. Kristjánsson, setuuppboðshaldaxi. Hárgreiðslusveinn óskast sem fyrst seinni part viku. Upplýsingar í síma 38675 kl. 9—6. Einbýlishús í Englandi Enskur læknir vill leigja hús sitt í Birmingham (nálægt Stratford) 1. júlí til miðs ágústs, gegn leigu á íbúð eða húsi í Reykjavík. Tilboð sendist Mbl. fyrir þriðjudag merkt: „fbúða- skipti — 8613“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.