Morgunblaðið - 14.05.1968, Side 12

Morgunblaðið - 14.05.1968, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAT 1900. Á SLÓDUM ÆSKUNNAR I UMSJA STEFÁNS HALLDÓRSSONAR OG TRAUSTA VALSSONAR Strákarnir, þeir eru ágætir, greyin ÞEGAR við höfðum lokið við talinu við Sigrúnu Harðardóttur (sjá annars staðar á síðunni), fáum við þær fréttir, að Soffía Wedholm hafi verið kosin full- trúi ungu kynslóðarinnar 1968. Við förum á stúfana og ætlum •að spjalla við hana, en okkur er tjáð, að hún sé farin. Við urðum auðvitað rokspældir, en tökum strax gleði okkar á ný, Kristín Waage. því að við sjáum aðra unga og gullfallega stúlku, Kristínu Waage, fulltrúa ungu kynslóðar- innar 1967, og tökum hana tali: — Hvernig fannst þér skemmt unin takast hérna í kvöd? — Hún tókst í alla staði prýðilega og gefur alveg rétta mynd af æskunni eins og hún er í dag. Sumir halda því fram, að svona skemmtun eigi engan veginn rétt á sér, en það held ég ekki. Sú, sem var kosin full- trúi ungu kynslóðarinnar 1968, á það svo sannarlega skilið, og óeka ég henni hjartanlega til hamingju. — Hvað um tónlistina sem hér var flutt? — Ég kann mjög vel að meta feana. Þó er ágætt að hlusta á eitthvað rólegra öðru hvoru, t.d. jázz eða klassiska músik. — Hver er þín uppháhalds- hljómsveit? — Af íslenzkum eru Hljómar alltaf beztir. Mér finnst Óðmenn einnig mjög góðir. Þeir hafa af- skaplega skemmtilega og góða söngkonu. Af erlendum hljóm- sveitum er Rolling Stones mitt uppáhald. Bee Gees eru einnig góðir. Uppáhaldssöngvarinn minn er Tom Jones. — En svo við vendum okkar kvæði í kross, eins og það heitir, þá langar okkur til að spyrja þig Kristín, hvenær þér hafi fundizt að vera full- trúi ungu kynslóðarinnar í heilt ár? — Það hefur verið mjög gam- an, en það hefur líka verið dá- lítið erfitt. — Hefur þér fundizt fólk veita þér meiri athygli, eftir að þú verst kjörin heldur en áður, þegar þú varst óþekkt? — Já, vissulega, og það hef- ur verið dálítið óþægilegt. — Hafa piltarnir verið kurt- eisari við þig, t.d. á böllum, heldur en vð kynsystur þínar? — Nei, það hef ég ekki orðið var við. Þeir eru alltaf kurteis- ir við mig, greyin, það mega þeir eiga. En þeir hafa ekkert verið tillitssamari né stimamýkri við mig en aðrar stelpur. — í hvaða skóla ertu? — Ég er í Verzlunarskólan- um, 3. bekk Tók próf inn í hann úr Kvennaskólanum. — Hvort líkar þér betur að vera í skóla, þar sem allt er Þessar myndir eru frá ný-1 afstöðnum kosningum í, Menntaskólanum í Reykja- vík. Var þá kosið til hinna \ I ýmsu embætta skólafélag- I anna. Kosningarnar voru að i mörgu leyti líkar almennum ' kosningum til Alþingis eða1 | iforsetaembættis hvað tilhög I I un snerti, en þó miklu líf- legri. Aróðurinn var geysileg , * ur og úrslitin tvísýn. Önnur ' I myndin sýnir hluta af þeim ' áróðursspjöldum, sem uppi | héngu. Hin myndin er frá ( ' kjörstað. (Ljósm. Kristinn Benedikts-' l son) kvenkyns, eins og í Kvenna skólanum, eða þar sem bæði kyn in eru saman? — Þar sem bæði eru strákar og stelpur. Það er einhvern veg- in miklu eðlilegra. -— Þú fórst til Englands s.l. sumar — það voru þín verð- laun. Var sú ferð ekki ánægju- leg? — Jú, hvort hún var. Ég var í skóla, sem enskir kalla Summ- er Holiday School, þ.e.a.s. fólk kemur meira til að skemmta sér ’en að sitja á skólabekk. En auðvitað lærðum við ensku. í þessum skóla voru unglingar af ýmsum þjóðernum, og var það afskaplega gaman og fræðandi að kynnast þessu fólki. — Nú varst þú úti sem full- trúi ungu kynslóðarinnar á ís- landi. Var tekið meira tillit til þín þess vegna? — Já, reyndar. Ég leyndi því nú fyrsta mánuðinn, en það komst einhvern veginn á kreik, og þá var eins og fólk væri alúðlegra við mig. —■ Þar sem fólk var farið að tínast burt úr Austurbæjarbí- ói og fáir orðnir eftir, slógum við botn í samtalið með eftir- farandi spurningu: Hvað er þér minnisstæðast frá þessu ári og hvað um framtíðina? — Það var, þegar ég var krýnd, og eins skólavistin í Englandi; hún er mér ógleyman- leg. Um framtíðina er ekki gott að segja. Ætli ég ljúki ekki 4. bekkjar prófi úr Verzlunarskól- anum og hefi síðan áhuga á að komast einhvers staðar að sem sýningarstúlka erlendis. En heim kem ég örugglega: hér líð ur mér langbezt. Ung söngkona —- Rœtt við Sigrúnu Harðardóttur Á KVÖLDSKEMMT'uNbediri sem Karnabær og Vikan stóðu fyrir í Austurbæjarbíói nú fyr- ir skömmu, var kosinn fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1968 og vinsælasta hljómsúeitin að áliti áhorfenda. En þar kom einnig fram 19 ára gömul söngkona Sigrún Harðardóttir. Hún fékk frábærar móttökur ungra á- heyrenda, svo okkur datt í hug, að lesendur síðunnar vildu vita nánari deili á þessari ungu söngstjörnu og áttum því við hana viðtal það, sem hér fer á eftir. — Hvar komst þú fyrst fram opinberlaga, Sigrún? — Það var í Miðbæjarskólan um, 12 ára gömul. Söng ég þar dúett ásamt bekkjarsystur minni á almennri skemmtun, sem þar var haldin. Síðan var það í kór Miðbæjarskólans. Við sung- um m.a. í útvarpið undir stjórn söngkennarans okkar, Jóns Þór arinssonar. Ég man, að við vor- um talsvert upp með okkur, því að við fengum borgað fyrir að syngja í útvarpið. Nú, svo sungum við líka á skólaskemmt unum. Einstöku sinnum tók ég lagið með hljómsveitum, sem léku hjá okkur á skólaböllum. Þá söng ég í iandsprófi í leik- riti, sem flutt var á árshátíð skólans, kom einnig fram í Háskólabíói fyrir troðfullu húsi í þessu sama leikriti á sameig- inlegri skemmtun gagnfræðaskól anna. — Hvert lá svo leiðin að loknu landsprófi? — Ég hafði hug á mennta- skólanámi í M.R., en þar sem foreldrar mínir fluttu til Banda ríkjanna þá um sumarið, hent- aði mér betur að hefja nám í M.A., sem ég og gerði haustið 1966. — Hefurðu eitthvað sungið fyrir norðan? Sigrún Harðardóttir — Ég tróð fyrst upp um pásk ana 1967 og söng þá á skemmt- un í Sjálfstæðishúsinu. Undirleik annaðist hljómsveit Irtgimars Ey dals. Einnig hef ég sungið með kvartett M.A. á skólaskemmt- unum. Það er verulega góður kvartett, þótt ég segi sjálf frá. En aftur á móti söng ég fyrir surtnan s.l. sumar á Hótel Sögu. Söng ég með hljómsveit Reynis Sigurðssonar í þrjár vikur í sumarfríi Ragnars Bjarnasonar. — Fannst þér ekki erfiðara að syngja með heilli hljómsveit á opinberum veitingastað héld- ur en með kvartett á skóla- skemmtunum? — Jú, óneitanlega. Ég var svo þreytt fyrstu tvo dagana að ég vissí naumast hvað ég hét. En ég vandist þessu fljótt og þótti mjög vænt um, hvað fólk skemmti sér vel. Seinna frétti ég það úti í bæ, að fólk hefði orðið undrandi yfir því, að ég hreyfði mig á sviðinu. — Söngstu eitthvað meira hér fyrir sunnan? — Baldur Guðlaugsson bað mig að syngja í útvarpið. Það var í sambandi við norrræna æskulýðsmótið, sem var hérna. Ég kom einnig fram í sjónvarp- inu í þættinum hans, “Stundar- korn“. Áður en ég fór norður kom stjórnandi þessa þáttar, Andrés Indriðason, að máli við mig og spurði, hvort ég vildi ekki syngja inn á plötu. Ég trúði þessu nú ekki beinlínis, en sagði, að það væri allt i lagi. Svo hóf ég nám mitt fyrir norð- an og hugsaði ekkert meira um þetta. En litlu eftir að ég er byrjuð í skólanum, hringir And rés norður og segist ætla að senda mér spólu með þrem er- lendum lögum og einu eftir Gunnar Þórðarson í Hljómum. Ég hlustaði á spóluna og var afskaplega ánægð með lögin, en einn var galli á gjöf Njarðar ég fékk ' ekki nema einn texta, sem ég var ekki ánægð roeð. Svo ég bað bekkjarsystur mína, Guðrúnu Pálsdóttur, að endur- semja þennan eina texta. Gunna lætur mig svo hafa hann. Ég sendi Andrési textann og var hann svo ánægður með hann að Guðrún er beðin að semia tvo í viðbót, sem hún og gerir. Fjórða textann á plötunni samdi svo Andrés sjálfur. — Hvar var platan tekin upp og hvaða lög eru á henni’ — Hún var tekin upp í sjón- varpinu. Upptökuskilyrðin þar eru mjög góð. Það var einungis ungt fólk, sem vann að upptök- unni, mjög samstilltur og góður hópur. T.d. lagið Kæra Kaiitas, sem mér þykir mjög væiit um. við það unnu stiákarnir alveg undirbúningslaust - - ekkert niíi urskrifað. Lögin á þessari piötu eru Ástarkveðja (P'ais5- “a - Framh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.