Morgunblaðið - 14.05.1968, Page 25
MORG-UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 196«.
25
Leifur Sveinsson formað-
ur Húseigendafélagsins
AÐALFUNDUR Húseigenda-
félags Reykjavíkur var haldinn
30. apríl sl. í húsakynnum fé-
lagsins að Bergstaðastræti 11.
Fundarstjóri var Páll S. Páls-
son, hrl., formaður félagsins.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Þórður F. Ólafsson, lögfr., flutti
skýrslu um starfsemi félagsins á
árinu 1967 og las upp ársreikn-
inga félagsins. Voru þeir sam-
þykktir samhljóða.
Rekstur skrifstofu félagsins
var með svipuðu sniði og áður.
Hefir mjög færzt í vöxt, að hús-
eigendur leiti til skrifstofunnar
með upplýsingar og lögfræðileg-
ar leiðbeiningar. Flestar eru fyr-
irspurnirnar viðvíkjandi leigu-
húsnæði og sambýli í fjölbýlis-
húsum.
Stjórn iHúseigendafélags
Reykjavíkur hefir beitt sér fyr-
ir endurskoðun á lögum um sam-
eign fjölbýlishúsa og gefin verði
út reglugerð, eins og þau lög
gera ráð fyrir. Nefnd hefir ver-
ið skipuð til að vinna að endur-
skoðun þessari og á félagið að-
ild þar að.
Á árinu gerði stjórn Húseig-
endafélags Reykjavíkur ítrekað-
ar tilraunir til að mildaðar yrðu
hinar þungu skattaálögur á hús-
eigendur, sem fólust í níföldun
fasteignamats sem viðmiðun við
ákvörðun eignarskatts og eigna-
útsvars. Bar það ekki árangur,
en hins vegar hefir eigin húsa-
leiga fengið að haidast óbreytt,
11% af fasteignamati.
20. desember sl. gekkst Húseig
endafélag Reykjavíkur fyrir al-
mennum borgarafundi um hita-
veitumál. Hitaveitustjóri hélt
þar fróðlegt erindi og svaraði
fyrirspurnum fundarmanna.
Einnig tók borgarstjóri til máls
og skýrði hitaveitumálin frá sjón
armiði ráðamanna borgarinnar.
Margir fundarmanna kvöddu sér
hljóðs.
Páll S. Pálsson, formaður fé-
lagsins, taldi sér ekki fært sök-
um anna að gegna formannsstörf
um lengur, enda búinn að vera
formaður í félaginu í 10 ár. Stakk
hann upp á Leifi Sveinssyni, lög-
fræðingi, í sinn stað, og var hann
kjörixm samhljóða. Meðstjórn-
endur voru kjörnir Jón Guð-
mundsson og Hjörtur Jónsson, en
fyrir eru í stjórninni Friðrik
Þorsteinsson og Alfreð Guð-
mundsson. Varamenn voru kjörn
ir Albert Guðmundsson, Árni
Jónsson og Kristinn Guðnason.
Endurskoðendur voru kjörnir
Jónas Jósteinsson og Sigurður
Hólmsteinn Jónsson.
Samþykkt var tillaga til laga-
breytinga. Fól hún í sér breyt-
ingu á ársgjöldum félagsmanna
Verður boðað ti'l framhaldsaðal-
fundar í félaginu, svo breyting
þessi fái endanlega afgreiðslu.
Að lokum voru fráfarandi for-
manni, Páli S. Pálssyni, hrl.,
þökkuð löng og giftudrjúg störf
í þágu félagsins og fundi síðan
slitið.
Hólaskóla slitið
Hólaskóla var slitið kl 2 á
sunnudaginn 5. maí. 37 nemar
voru við skólann í vetur, þar af
útskrifuðust 22 búfræðingar, 9
eftir tveggja vetra nám og 13
eftir eins veturs nám. Tveir stú-
dentar stunduðu nám við skól-
ann í vetur. Hæsitu einkunn 9.70
sem mun vera sú bezta sem bú-
fræðingur hefir fengið við skól
ann, hlaut Jón Viðar Jónmunds-
son frá Hreggstöðum í Svarfað-
ardal. Hlaut hann verðlaun 1000
kr norskar úr Minningarsjóði Ás
mundar Jónssonar frá Skúfstöð
um, sem frú Irma Weile Jónsson
stofnaði. Styrkur þessi er veittur
til náms við iandbúnaðarháskóla
í Noregi, einnig hlaut Jón verð-
laun fyrir góðan árangur í
Jarðræktar og fóðurfræði Verð-
laun er minningarsjóði Tómasar
Jóhannssonar, leikfimiskennara,
hlaut Ingar Jónsson Sólvangi,
Fnjóskadal. Verðlaun frá Drátt-
arvélum h.f. hlutu þeir Ingvar
Jónsson og Skúli Ragnarsson.
Kaupfélag Skagfirðinga veitti
Friðriki Hallgrímssyni, Viðarstöð
um í Norðurmúlasýslu, verðlaun
fyrir þrifnað og góða umgengni,
Og verðlaun frá Morgunblaðinu
fyrir tamningu og góða meðferð
hesta hlaut Eyjólfur ísaksson
Reykjavík.
í góðu erindi er skólastjóri
flutti taldi hann þá nema er
hann hefði haft í vetur einhverja
þá beztu er hann hefði haft bæði
að gáfum, góðum félagsanda og
umgengni, einnig sagði H.J.Hólm
járn kennari sem talaði á eftir
skólastjóra að af langri reynslu
við keranislu teldi haran Hóia-
sveina í vetuir eirah vearja þá bezitu
er hann hefði haft kynni af.
Fyrir hönd skólapilta talaði
Aðalsteinn Jónsson og þakkaði
kennurum ágætt samstarf og
kvenfólkinu sérstaklega góða að
hlynningu í mat og þjónustu. Um
leið og skólastjóri kvaddi bú-
fræðinga og árnaði þeim heilla
lét hann í ljósi ánægju yfir
fraimmistöðu yngrideilduinga skól
ans, en þar urðu efstir Gunralaiug
ur Tobíasson frá Geldingaholti
og Gunnþór Kristjánsson frá
Borgum í Þistilfirði.
f vetur var gerð könnun á því
hverjir af nemum skólans hefðu
ætlað sér aða hefðu aðstöðu til
að gerast bændur og reyndust
þar um 70 ákveðnir til land-
búniaðarstarfa.
f vetur eins og undanfarin ár
hefir jám og trésmíðanám verið
mjög mikið stundað, og vil ég
fuilyrða, að anmars staðar í skól-
um mun ekki vera eins góð og
hialdgóð feenraisia og þamia mátti
sjá: fullkomnar fjárviktir, ágæt-
ar flutingaskerrur aftan í Jeppa,
Hliðgrindur o.fl. Lauslega áætl
að virtu 'feeraniarair smíðisigripina
á minnst 500.000, krónur.
Áður enn ég fór af staðnum
hitti ég ráðsmann búsins og
spurði hann um bústofn og hey-
birgðir, Hann sagði vera á fóðr-
um í vetur 550 fjár, 37 í fjósi og
65 hross, miklar birgðir taldi
hiann veraa af heyjum og væiri nú
búið að selja um 300 heata.
Einis og æfinlega var gaman
að koma að Hólum í þetta skipti,
þó svalt væri í lofti og enginn
gróður kominn vegna frosta, þá
var logn heima á Hólum, sólsskin
og blíðviðri. Staðuriran var líka
að kveðja hóp ágætna Hólasveiraia.
Allar
ge rdi r
Myndamáta
■Fyrir auglýsingar
•Bækur og timarit
•Litprentun
Minnkum og Steekkum
OPÍÐ frá kl. 8-22
MYWDAMÓT hf.
simi 17152
MORGUNBLAOSHIÍSINU
LOKAÐ
vegna jarðarfarar frá kl. 1—4 í dag.
Málningarverzlun Péturs Hjaltested
Suðurlandsbraut 12.
Vönibíll
Til sölu Dodge vörubíll, árgerð 1962 (amerískur),
með 120 ha. Bens-diesilvél og gírkassa, vökvastýri,
mótorbremsu, Sankt Pál sturtu. Vél o. fl. nýviðgert.
Varahlutir fylgja. Nánari upplýsingar gefur Hall-
dór Benediktsson, sími 15, Hellissandi.
Húseign í Borgarnesi
Til sölu er sparisjóðshúsið eldra á horni Egilsgötu
og Skúlagötu í Borgarnesi. Á hæð er þfiggja her-
bergja íbúð, niðri tvö skrifstofuherbergi, sérsnyrting
og eldtraust skjalageymsla ,hentugt fyrir sjálfstæða
starfsemi. Stór lóð.
Tilboð sendist Jóni Magnússyni, Hótel Borg, Rvk.
<§> MELAVÖLLUR
Bæjarkeppni í knattspyrnu.
í kvöld kl. 20.30 leika
Reykjavík — Akranes
Mótanefnd.
Pasalong
Hudson
Feinstrumpftiosen
Ný sending af hinum
eftirsóttu
HLDSOIM
sokkabuxum komin í
varzlanir, bæði 20 og
30 den.
HUDSON merkið
tryggir meiri vörugæði.
Davíð S. Jónsson
& Co. h/f.
Sími 24-333.
ðskum eftir oð rdða
matreiðslumann að Hótel Loftleiðum.
Vinsamlegast hafið samband við
Friðrik Gíslason.
t Hótel Loftleiðir.
íoFTLEIDIR
Samsöngur
á Húsavík
HÚSAVHC, 13. maí. — Kirkju-
kór Húsavíkur hélt samsöng í
Samkomuhúsinu á Húsavík í gær
fyrir fullu húsi og við mjög góð-
ar undirtektir áheyrenda.
Mercedes Benz 220 Se 1963
Mjög góður einkabíll, selst fyrir skuldabréf.
Seljum einnig óvenju glæsilegan Benz 190 árg. 1964.
Aðal BÍLASALAN, Ingólfsstræti 11.
NVKOHilÐ IViJÖG VANDAÐ
slétt þvotta
FLAUEL
Söngs(jórar voru að þessu
sinni tveir, Ingimundur Jónsson
og Reynir Jónasson, kirkjuorg-
anisti, sem annaðist undirleik
undir lög þau, sem Ingimundur
stjórnaði.
í söngskránni voru 12 lög eftir
innlenda og erlenda höfunda og
varð kórinn að endurtaka helm-
ing þeirra.
Nauðimgaruppboð
það sem auglýst var í 1., 3. og 5. tölublaði Lögbirt-
ingablaðsins 1968 á Auðbrekku 33 efri hæð, þing-
lýstri eign Jakobs Guðbjartssonar, fer fram á eign-
inni sjálfri fimmtudaginn 16. maí 1968 kl. 17.
20 litir.
Austurstræti 9.
— Fréttaritari.