Morgunblaðið - 21.06.1968, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1968
Island — Ameríka:
Sæsímastrengurinn
slitinn á tveim stöðum
— viðgerð lýkur vart fyrr en eftir 25. /úní
SÆSÍMASTRENGURINN milli
íslands og Ameriku er nú slit-
inn á tveimur stöðum og mun
viðgerðum vart ljúka fyrr en efl
ir 25. júní, að því er Jón Skúla-
son, verkfræðingur hjá Landssim-
anum sagði Morgunblaðinu í
gær. Teknar hafa verið í notk-
un allar línur í strengnum milli
íslands og Evrópu og fer sam-
bandið milli Islands og Ameríku
nú í gegn um London.
Það var um síðustu helgi, sem
strengurinn slitnaði — af völd-
um íss við suðurodda Grænlands,
en líklega hefur togari slitið
strenginn á hinum staðnum, sem
er við Nýfundnaland.
Sæsímaskipið Ampere mun
annast viðgerð á strengnum við
Nýfundnaland og kvaðst Jón
halda, að sú viðgerð væri þeg-
ar hafin. Sæsímaskipið John
Gerbardsen
á Þingvöllum
EINAR Gerhardsen, fyrrverandi
forsætisráðherra Noregs, og kona
hans hafa dvalizt hélendis nú i
fjóra daga í boði íslenzku ríkis-
stjómarinnar. í gær fóru þau
hjónin í skoðunarferð til Þing-
valla og áfram hringinn til
Hveragerðis.
Deginum í fyrradag eyddu
þau hjónin við Mývatn. Flogið
var snemma morguns til Akur-
eyrar, og þaðan ekið beint í Mý-
vatnssveit. Á leiðinni var komið
við hrjá Goðafossi. Við Mývatn
skoðuðu hjónin Dimmuborgir og
fóm að Námaskarði. Var farið
aftur til Reykjavíkur um kvöld-
ið. —
í dag mun Einar Gerhardsen
og kona hans sitja hádegisverð
hjá forseta íslands að Bessastöð-
um og um kvöldið verður mót-
taka í norska sendiráðinu. Héð-
an fara þau hjónin síðari hluta
föstudags.
Cabot, sem er útbúið sem ísbrjót
ur, mun annast viðgerðina við
suðurodda Grænlands, en vegna
erfiðra skilyrða af völdum íss
mun þeirri viðgerð ekki ljúka
fyrr en eftir 25. júní.
Nú eru í notkun fimmtán tal-
rásir í strengnum til Evrópu, 7
til London, 6 til Kaupmannahafn
ar og tvær til Þórshafnar, 19
telex — línur, 1 til Hamborgar
1 til Þórshnfnar, 3 til Kaupmanna
hafnar og 15 til London og svo
fjórar fastar ritsímalínur.
Samninga-
fundur
SAMNINGAFUNDUR milli Flug
virkjafélags íslands og flugfélag
anna hófst klukkan 4 í gær, en
Flugvirkjafélag íslands hefur
boðað verkfall frá og með n.k.
sunnudegi. Málinu -hefur ekki
verið vísað til sáttasemjara.
Samningafundurinn stóð enn yf-
ir, þegar Morgunblaðið spurði
síðast frétta í gærkvöldi.
Fiske-kynning
í Landsbanka
f GLUGGUM Landsbankans að
Laugavegi 77 er nú Fiske-skák-
kynning. Þar eru sýnd ritverk
Fiske og ýmsir hlutir úr eigu
hans. Þá er þar rakin saga hans
í fáum, en greinargóðum orð-
um, og myndir sýndar.
Wilson vill skerða
völd lávarðanna
LONDON, 20. júní. AP
HAROLD Wilson, forsætisráð-
herra skýrði frá því í dag að
brezka stjórnin mundi leggja
fram róttækt frumvarp, sem mið
aði að því, að draga úr völdum
lávarðadeildarinnar. Forsætis-
ráðherrann, sagði, að stjómin
hygðist hinda enda á arfgengan
rétt lávarða til að hafa áhrif á
löggjafarstarf þjóðkjörinna
fulltrúa. Hins vegar neitaði
hann að fallast á þá kröfu nokk
urra þingmanna Verkamanna-
flokksins, að Lávarðadeildin
verði lögð niður.
Wilison gerði Neðri málstof-
stofunni grein fyrir þessum til-
lögum sem eru til komnar vegna
þess að Lávarðadeildin felldi á
Iþriðjudaginn stjórnarfrumvarp,
sem gerði ráð fyrir að hert yrði
á refsiaðgerðum gegn Rhodesíu
Wilson sagði, að engin ríkis-
Stjórn gæti látið viðgangaist
slika árás á lýðræði og anda
st j órn arskr ár innar.
Forsætisráðherrann sagði, að
aflýst hefði verið viðræðum milli
fulltrúa Verkamannaflokksins,
íhaldsflokksins og Frjálslynda
flokksins um leiðir til að breyta
Lávarðadeildinni, og stjómin
mundi standa ein að þeim breyt
ingum, sem gera þyrfti. Borið
yrði fram frumvarp um breyt-
ingar á Lávarðadeildinni er boð
aðar hefðu verið í hásætisræðu
Elísabetar drottningar við þing
setningu í fyrrahaust.
í hásætisræðunni sagði, að
stjórn Wilsons hygðist leggja
niður arfgengan rétt fulltrú-
anna í Lávarðadeidinni og gera
þannig deildinni kleift að þró-
ast innan ramma nútímaþingræð
is.
Wilson var ákaft fagnað af
stuðningsmönnum sínum þegar
hann tók til máls, en lokaorð
hans drukknuðu í hrópum frá
þingmönnum íhaldsflokksins.
Wilson tók ekki skýrt fram
á hvern hátt stjórnin hyggst
leggja niður arfgengan rétt
þingmanna Lávarðadeildarinnar
og er ekki ljóst hvort arfgeng-
inn réttur lávarðanna til ^etu í
Framhald á bls. 27.
Keflavíkurgangið
á sunnudag
FORVÍGISMENN Samtaka her-
námsandstæðinga skýrðu frá
því á fundi með blaðamönnum
í gær, að efnt verði til Kefla-
víkurgöngu n.k. sunnudag.
Göngustjóri er Skúli Thor-
oddsen, læknir, en á útifundi í
Lækjargötu mun Stefán Jóns-
son, útvarpsmaður, flytja ávarp.
Geir Hallgrimsson, borgarstjóri, Jakob Guðjohnsen, rafmagns-
stjóri og Steingrímur Jónsson, fyrrv. rafmagnsstjóri, með
fyrstu laxana, sem veiddir eru úr Elliðaánum í ár.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Laxveiði hafin
í Elliðaánum
LAXVEIÐI hófst í Elliðaánum
í gærmorgun og opnuðu þeir
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
Jakob Guðjohnsen, rafmagns-
stjóri og Steingrímur Jónsson,
fyrrv. rafmagnsstjóri árnar. Um
hádegisbilið höfðu þeir veitt níu
laxa. 40 laxar höfðu verið tald-
ir upp í Elliðaárnar í fyrradag.
Þór Guðjónsson, veiðimála-
stjóri, sagði Morgunblaðinu í
gær, að laxveiði væri nú hafin
víðast hvar. í dag hefst laxveíði
í Arnessýslu, en þar er nú risin
upp deila milli stjórnar Veiði-
félags Arnesinga og stjórnar
Stóru-Laxárdeildar félagsins. —
Hefur stjórn Veiðifélags Arnes-
inga ákveðið, að veiði hefjist á
félagssvæðinu í dag, en stjórn
Stóru-Laxárdeildarinar hefur
ákveðið, að stangveiði í Stóru-
Laxá skuli ekki hefjast fyrr en
5. júlí. Er það í samræmi við
samþykkt aðalfundar Vefðifé-
lags Árnesinga.
Leikf. Þjóðleikhússins
f dag föstudag sendir Þjóð-
leikhúsið leikflokk út á land
með leikritið Billy lygari eftir
Keith Waterhouse og Willis Hall
Það er leikflokkur Litla sviðs-
ins í Lindarbæ, sem fer í þessa
isýningarferð ÞjóðleSkhússins.
Leikritið var frumsýnt á Litla-
sviðinu í Lindarbæ í byrjun
janúar s.l. og urðu sýningar alls
20 á leiknum. Sýning þessi þótti
takast mjög vel og hlaut sýning
in mjög góða dóma hjá öllum
gagnrýnendum. Leikstjón er
Eyvindur Erlendsson og er þetta
fyrsta verkefnið sem hann svið-
setur fyrir Þjóðleikhúsið. Ey-
vindur stundaði leiklistarnám í
iLeiklistarskóla Þjóðleikhússins
og útskrifaðist þaðan árið 1960.
Hann hefur numið leikstjórn
við Leiklistarstofnun ríkisins í
Moskvu í 5 ár og útskrifaðist
þaðan á s.l. ári.
Leikurinn verður fyrst sýnd-
ur í Ásbyrgi í Miðfirði, þá á
Húsavík, í Valaskjálf, Fáskrú’ðs-
firði, Eydölum á Breiðdal Sindra
bæ í Hornafirði, Hamraborg í
Berufirði. Síðar verður svo sýnt
víðar á Austurlandi og þaðan
verður haldið til Norðurlands og
sýnt þar.
Kosningafundur stuðningsman na Gunnars Thoroddsens, „Með
ungu fólki'S var nær eingöngu sóttur af fólki á aldrinum 20—
35 ára. (Ljósmynd Mbl.: Kr. Ben.)
- ÆSKAN
Framhald af bls. 28.
* ' voru endurvarpsmyndir með er-
indinu. Ólafur Þ. Jónsson óperu
söngvari söng við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar og þá
fluttu Klbeinn Pálsson og Emi-
lía Kofoed-Hansen saman ávarp
til unga fólksins. Því næst léku
Hljómar frumsamin lög og syst-
kinin María og Þórir Baldursson
léku og sungu. í fundarlok flutti
Gunnar Thoroddsen ávarp og
lokaorð hans voru þessi: „Má
ég bera fram þá einlægu ósk
/ að okkar ástkæru fósturjörð
fylgi heill og hamingja, gæfa og
gengi „á meðan gróa grös í mold
og glóir nokkur stjarna"
Þá söng Ómar Ragnarsson bar
áttusöng með aðstoð Hljóma og
fundarmenn tóku hressilega und-
ir.
Fundinum lauk með því að
dr. Gunnari Thoroddsen og frú
Völu var fagnað með langvar-
andi lófataki og ferföldu húrra
hrópi.
Fundur þessi er fjöimennasti
kosningafundur, sem ungt fólk
hefur efnt til á íslandi og sóttu
nokkuð á þriðja þúsund ungra
manna og kvenna fundinn.
F/SKE - MÓ71& ~Lokasta&a - mx 1 § t ? P <* i mm. 'A % Y «9- i o § B § N v> T Q o m. ar § o ö: w** V) «0 £ <». 3S Í8 I "P 'Á VI 'UÍ V ■w V/NN. Alls . - PÓÐ
1 B- VASJUKOV Á 1 / 'Á / *Á / Zz *Á 'Á 'Á / / 7 10’Á 1-Z
2 M- TAIMANOV Zz /z Á l i Zz / Zz ! Zz. / / í JÖZz 1-Z
3 PR.TbR.lK P Vz \P / 0 Zz 'Z 'Á l / / / / J 10 3
R. &YRNE 0 Á 0 0 'Á Zz / ! Zz ! / / 7 7" 4
5 W. UHLMANN Á 0 0 / Á 0 ÁL 'Á fs. / / / / / 8’T. 5
6 p. OSTOJ/C 0 0 / 'Á 'Á ./ Á 0 7 Á 0 / / / 8 4-7
7 L. S2A0O Zz Vz 7z 'Á ! 0 % 0 W 1 '/.2 / Zz / 8 4-7
8 W. AÞD/son 0 'fz 0 /z /z Zz 0 / 0 0 1 / / / TA 8-9
9 Gudmundur Á O 'Á 0 'Á l / ! 0 /z / / Zz 7/2 8-9
FR.EYSTR/NN Á Á 0 Á Á 0 'Á. / 0 Zz 'Zz 'Á / / 7 10
&RAO/ Á 0 0 0 0 Á 0 / l Á } 0 k I 6 11-1Z
11 tMGí R. Á Á 0 0 0 / Zz 0 Zz Á 0 /z / ! 11-12
ÖENQNÝ O 0 0 0 0 0 O O 0 Zz / Zz / 7 ¥ 13
JA JöHANN Ö. 0 0 0 0 ö 0 'A 0 0 0 fz 0 0 / 2 11
W Andr&s 0 0 0 0 ö 0 H 0 Zz Ö 0 o Ö 0 Zz 1S
Úrslit Fiske-skákmótsins
birtast hér á töflunni, með úr-
slitum einstakra skáka í mót-
inu. Sovézku skákmennimir
tveir sýndu örugga tafls-
mennsku í mótinu, en Frið-
rik Ólafsson gaf þeim lítið
eftir, vann m.a. flestar skák-
irnar, alls átta. Tveir ís-
lenzku keppendanna, þeir
Freysteinn og Ingi gerðu báð
ir jafntefli gegn Vasjúkoff og
Taimanoff ásamt Ungverjan-
umSzabo.