Morgunblaðið - 21.06.1968, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JUNI 1968
títflutningur á Volkswageu eykst
Rætt við Joachim Niemeyer, sölustjóra
Volkswagenverksmiðjanna í N-Evrópu
VOLKSWAGEN er algengasta
bifreiðin á ísiandi og eigendur
bifreiða hér af þeirri gerð hátt
á fimmta þúsund. Þetta er há
tala, en hún er einkennandi fyr-
ir Volkswagen. Það er nefnilega
ekki fluttur út eins mikill íjöldi
af nokkurri annarri bifreiðateg-
und í heiminum, en um 60%
allra Volkswagen-bifreiða, sem
Vestur-Þjóðverjar framleiða, eru
seldar til annarra landa.
Um þessar mundir eru staddir
hér á landi þrír starfsmenn
Volkswagen-verksmiðjanna, en
þeir eru Joachim Niemeyer, sem
er sölustjóri Volkswagen erlend-
ís í Norður-Evrópu, Edo Schneid
sr, sölustjóri í Englandi, írlandi
>g íslandi og Horst Geuder, full-
trúi í útflutningsdeild verksmiðj
anna. í viðtali við Morgunblaðið
í gær skýrði Joachim Niemey-
er frá för sinni hingað og ýmsu,
sem er efst á baugi hjá Volks-
wagen-verksmiðjunum um þess-
ar mundir, en þetta er í fyrsta
sinn sem hann kemur til íslands.
Ástæðuna fyrir komu sinni til
íslands kvað Niemeyer vera þá,
að hann vildi kynnast landi og
þjóð svo og Volkswagen-umboð-
inu á íslandi og starfsmönnum
þess, en hann tók við starfi sínu
hjá verksmiðjunum á síðasta ári.
Þá sagðist hann einnig vilja
kynnast efna'hagsástandinu hér á
landi, sem byggi nú við nokkra
erfiðleika, eftir því sem sér
hefði .kiiizt, og kanna, hvort
ekV aeri unnt engu að síður
?' a’da áfram sölu á fram-
leio. avörum Volkswagen-verk-
smiðjanna jafnt og áður.
Meiri hluti þeirra bifreiða,
sem Volkswagen-verksmiðjurn-
ar framleiddu, væru fluttar út
eða um 60%. Þannig hefðu ver-
ið seldar til útflutnings um
900.000 Volkswagen-bifreiðar í
fyrra og væri það meira en all-
ur bifreiðaútflutningur Banda-
ríkjanna samanlagður.
Vegna hins mikla útflutnings
til ýmissa landa um víða veröld,
sem byggju við ólíkt loftslag og
ólíka vegi, þá hefði verið nauð-
syn á en einnig gefizt kostur á
að aðlaga stöðugt og endurbæta
Volkswagen-bifreiðarnar eftir
þessum aðstæðum. Volkswagen-
verksmiðjurnar yrðu sökum
þess, hve mjög þær byggðu starf
semi sína á útflutningi, að láta
sig miklu varða sérhvern mark-
að, enda þótt hann væri kannski
lítill. Þessu væri öðru vísi farið
með margar aðrar bílaverksmiðj
ur ,einkum þó í Bandaríkjunum.
Þannig flyttu t.d. bandarískar
bifreiðaverksmiðjur út aðeins
um 3% af framleiðslu sinni.
Niemeyer kvað markmið
Volkswagen-verksmiðjanna vera
þau í framtíðinni svo sem hing-
að til, að leggja meiri áherzlu
á tæknileg atriði en tízku í sam-
bandi við bifreiðar sínar, þ.e.
leggja áherzlu á það, sem fólk
skipti mestu máli svo sem ör-
yggi, þægindi og lágan rekstrar-
kostnað.
Þá hefðu Volkswagen-verk-
smiðjurnar alltaf lagt mikla
áherzlu á góða þjónustu og að
hafa næga varahluti fyrir hendi.
Þetta skilyrði hefði Heildverzl-
unin Hekla alltaf uppfyllt, enda
gætu Volkswagen-verksmiðjurn-
ar ekki sætt sig við annað af
hálfu umboðsmanna sinna á
hverjum stað.
Niemeyer sagði ennfremur, að
á þessu ári hefði eftirspurnin
eftir Volkswagen verið enn
meiri en í fyrra. Þá hefðu verið
seldar um 450.000 bifreiðar til
Bandaríkjanna einna, sem er
65% allra innfluttra bifreiða til
þess lands, en það sem af væri
þessa árs hefðu þegar verið seld
ar þangað um 300.000 bílar og
mætti gera ráð fyrir, að þeir
yrðu yfir 500.000 á þessu ári. í
aðalverksmiðjunum í Wolfsburg
væri yfirleitt ekki unnið á laug-
ardögum, en nú hefði orðið að
koma á aukavakt á laugardögum
til þess að eiga auðveldara með
að fullnægja eftirspurninni. í
fyrra hefðu verið fluttir inn
tæplega 600 bílar til íslands.
Þegar Niemeyer var spurður
að því, hvort hann hefði orðið
fyrir einhverjum áhrifum af
hinni stuttu dvöl sinni hér,
svaraði hann því til, að fyrstu
kynni af sérhverju landi skildu
alltaf eftir sterkust áhrif. Eftir
því sem menn kæmu oftar til
einhvers lands yrðu áhrifin veik
ari. Kvaðst hann í fyrsta lagi
hafa orðið fyrir mjög miklum
áhrifum af stórbrotnu landslagi
íslands og kvaðst hann myndu
beita sér fyrir því, er heim
kæmi, að fá ferðafólk til þess
að koma hingað. í öðru lagi
kvaðst hann hafa glögglega orð-
ið var við þann anda frumherj-
ans, sem hér ríkti og sem hann
hefði ekki orðið var við víða í
öðrum löndum, þar sem velmeg-
Starfsmenn Volkswagen-verksmiðjanna ræða við tvo starfsmenn Heildverzlunarinnar Heklu.
Talið frá vinstri: Horst Geuder, fulltrúi söludeildar Volkswagen, Joachim Niemeyer, sölustjóri
Volkswagen erlendis í Norður-Evrópu, Ami Bjamason, framkvæmdastjóri bifreiðadeildar
Heklu, Edo Schneider, sölustjóri Volkswagen í Englandi, Irlandi og á íslandi og Lýður
Bjömsson, skrifstofustjóri í Heklu.
Samdráttar I bifreiða-
sölu hefur orðið vart
NOKKUR samdráttur hefur orð
ið í bílainnflutningi frá því um
sl. áramót. Morgunblaðið hafði
samband við þrjá bifreiðainn-
flytjendur, og bar þeim öllum
saman um, að nú væri áberandi
minni sala á bílum en um sama
leyti í fyrra.
Þórir Jónsson, framkvæmda-
stjóri hjá Sveini Egilssyni og Co
sagði, að yfir heildina væri mik
ið minni sala hjá umboðinu nú
en í fyrra. Þó vægi þarna upp á
móti, að ensku bílarnir, svo sem
Cortina, seldust enn með ágæt-
um. Um bandarísku bílana sagði
Þórir, að undanfarið hefði þeir
verið um 10% af heildarsölu um
boðsin3, en nú væri mjög lítil
hreyfing í þeim, svo að salan
yrði vart nema um 4% af heild-
inni. Þórir kvað umboðið hafa
selt 4200 bíla í fyrra en reiknað
væri með að selja 3000 bíla á
þessu ári.
Ragnar Ragnarsson hjá Tékk-
neska bifreiðaumboðinu sagði, að
óneitanlega hefði orðið vart við
minnkandi sölu, en betur yrði
vart við það síðar á árinu, þar
sem nú væri mest sala á bílum
til handa öryrkjum. Kvaðst hann
gera ráð fyrir, að umboðið mundi
selja um 100 bifreiðum minna
nú en á sl. ári.
Forstöðumaður söludeildar
Volkswagen hjá Heklu kvaðst
hafa orðið var við töluverðan
samdrátt allt frá áraimótum.
Væri gert ráð fyrir að bifreiða
innflutningurinn nú yrði allt að
40% minni í ár en í fyrra.
un ríkti eins og hér. Þar yrði
víða vart við lífsþreytu, sem
hann kvaðst ekki sjá á fólki hér.
Mikil merki framfara mætti
greina hér, sem hann myndi
vilja mega leggja hjálparhönd á.
Nlemeyer var spurður að því,
hvaða áhrif síðustu atburðir á
mörkum Vestur- og Austur-
Þýzkalands kynnu að hafa, en
austur-þýzk yfirvöld settu í síð-
ustu viku það skilyrði, að til
þess að fá að fara frá Vestur-
Þýzkalandi til Austur-Þýzka-
lands, yrðu menn að fá vega-
bréfsáritun og greiða gjald fyr-
ir. Sagði Niemeyer, að það væri
sín skoðun, að austur-þýzk yfir-
völd hefðu gert þessa ráðstöfun
til þess að leggja aukna áherzlu
á, að Austur-Þýzkaland liti á sig
sem sjálfstætt ríki. Kvað Nie-
meyer það skoðun sína, að sam-
einingar beggja hluta Þýzka-
iands væri ekki að vænta í bráð
og að finna yrði leið til sam-
komulags milli þeirra, og að leið
fyrir fólkið í báðum hlutum
landsins til þess að lifa hvort við
hliðina á öðru.
í KVÖLD, föstudaginn 21. júní,
verður síðasta sýningin á þessu
leikári í Þjóðleikhúsinu. Það er
leikritið „Vér morðingjar" sem
þá verður sýnt. Leikurinn hefur
nú verið sýndur 12 sinnum við
mjög góða aðsókn. Eftir að sýn-
ingum lýkur á „Vér morðingj-
um“ í Þjóðleikhúsinu, verður
farið með leikinn í leikför úr á
land og verður fyrst sýnt á Vest-
urlandi, þaðan verður svo haldið
til Norður- og Austurlands.
Þessi leikför mun taka nær
því einn mánuð. Með aðalhlut-
verk fara Kristbjörg Kjeld og
Gunnar Eyjólfsson.
Myndin er af þeim í hlutverk-
um sínum.
Gjafir í Biafra-söfnun RKÍ
HÖFÐINLEGAR gjafir hafa bor-
izit í Biafra-söfnun Rauða kross
íslands. Eftirt. aðilar hafa gef-
ið skreið: Sturlaugur Böðvarsson
frá Akranesá, að verðmæti 100.-
000 krónur, ísfélag Vestmanna-
eyja, að verðmæti 50—60.000 kr.
og Karólína Karlsdóttir, Kefla-
vík, að verðmæti 10.000 krónur.
Ennfremur hafa borizt til S'krif
stofu Rauða krossins peninga-
gjafir, samtals 49.000 krónur.
Tekið er á mótd framlögum í
skrifstofu Rauða kross fslands að
*
Arangursbus
sát&afunclur
SÁTTAFUNDI í deilu sjómanna
og síldarútvegsmanna lauk
klukkan 4 í fyrrinótt án þess að
samkomulag næðist. Nýr fund-
ur hefur verið boðaður klukkan
5 í dag.
ísafjarðar-
kórarnir
í UMSÖGN Gunnars Sigurgeirs-
sonar um söng Karlakórs ísa-
fjarðar og Sunnukórsdns, sem
birtist í Mbl. 19. þ. m., féllu nið-
ur noíkkur orð úr tveim setning-
'um, svo að þær urðu ósikiljan-
legar. Réttar eru þær þannig:
.... Það gerði söngskrána til-
breytingarmeiri, að þar skiptust
á karlakór, blandaður kór og
kvennakór, imeð og án undir-
leiks, ásamt einsöngvurum. Var
söngurinn víða blæfagur og lit-
ríkur ....
.... Mest virðist velta á því,
að forustumenn fáist, og í því
efni hafa ísfirðingar verið heppn
ir. Ragnar H. Ragnar tók við for
ustu af Jónasi Tómassyni, sem
verið hafði lífið og sálin í söng-
'lífi ísfirðinga frá því um 1910 ..
öldugötu 4, deildum félagsins
um allt land og hjá dagblöðun-
•um. (Frá Rauða krossi íslands).
BRIDGE
EINS og skýrt var frá í blaðinu
í gær, komust Ítalía, Bandaríkin,
Holland og Kanada í úrslita-
keppnina á Olympíumótinu í
bridge .Dregið var um, hvaða
sveitir skyldu mætast í undan-
úrslitunum, og drógust saman
Ítalía — Kanada og Holland —
Bandaríkin. í undanúrslitunum
eru spiluð 80 spil og kemst sigur
vegarinn í úrslitakeppnina. í úr-
slitakeppninni eru einnig spiluð
80 spil.
ítalska sveitin virðist hafa
tryggt sér sæti í úrslitakeppn-
inni. Að 60 spilum loknum var
staðan 147—68 fyrir ítölsku
sveitina, og hafði sveitin verið
yfir allan tímann og lítil von
fyrir kanadísku spilarana að
rétta hlut sinn.
Leikurinn mílli Bandaríkjanna
og Hollands va rmjög jafn og
spennandi, og að 60 spilum lokn-
um hefir bandaríska sveitin að-
eins 16 stiga forskot. Að 58 spil-
um loknum var bandaríska sveit
in með 28 stiga forskot, en þá
fóru hinir kunnu hollenzku spil-
arar, Salvenburg og Kreyns, í 7
grönd og unnu ,en bandarísku
spilararnir Kaplan og Kay á
hinu borðinu fóru aðeins í 6
grönd og þar með tapaði banda-
ríska sveitin 11 dýrmætum stig-
um.
í kvennaflokki sigraði Svíþjóð
með nokkrum yfirburðum, en
staða efstu sveitanna varð þessi:
1) Svíþjóð 295 —
2) S-Afríka 275 —
3) Bandaríkin 266 —
4) Ítalía 263 —
5) Frakkland 238 —
6) Sviss 196 —