Morgunblaðið - 21.06.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JIJNÍ 1968
Heildsalar - verzlanir
Kúrant og ókúrant vörukaup.
Viljum kaupa ódýran nærfatnað, tilb. barna- og
unglingafatnað svo sem peysur, buxur, skyrtur,
blússur og margt fleira. Aðrar vörutegundir koma
einnig til greina. Sími 11670.
VEGUR
HAMINGJUNNAR
NÝ SKÁLDSAGA
eftir
Ingibjörgu Sigurðordóttur
Tilvalin sumarleyfisbók handa hinum fjöl-
menna lesendahópi Ingibjargar Siguruðar-
dóttur. Verð kr. 240.00 -f söluskattur.
BÓKAFORI.AG ODDS BJÖRNSSONAR Akureyri.
— Bókmenntir
Framh. af bls. 15
Það er starfið, sem krefst aug-
lýsingar, nafns og frægðar. Mað-
ur er orðinn örlítið fyrirtæki,
strax og hann sendir frá sér
eina bók. Skrifi hann margar
bækur og verði heimsfrægur, er
hann orðinn að stofnun.
Höfundi kann að vera jafn-
annt um frægð verka sinna, þó
hann sé persónulega hlédrægur
og hégómalaus.
Sumir öfunda frægt fólk. Af
orðum frægra manna að dæma
eru óþægindin af frægðinni þó
langtum meiri en ánægjan, sem
henni kann að fylgja. Þegar
Stefán Zweig var orðinn frægur
rithöfundur, óskaði hann sér, að
hann gæti gengið um sem óþekkt
ur maður. Heimsfrægir menn hafa
endað ævi sína í sárustu neyð,
einmana og hjálparvana.
Sé litið H1 fortíðarinnar, bend-
ir margt til, að ásókn rithöf-
unda í frægð og nafn sé ekki
gamalt fyrirbæri í sögunni, held-
ur einkenni síðustu alda og eink-
um líðandi stundar. Orsakirnar
kunna að vera sundurleitar, en
í fljótu bragði sýnast tvær vera
þyngstar á metunum:
1) Bókmenntasagan, sem er til-
tölulega ný fræðigrein, en þar
eru höfundar ósjálfrátt flokkað-
ir, vegnir og metnir. 2) Aug-
lýsingin, sem er hverjum höfundi
nauðsynleg, svo hann geti unn-
ið sér fyrir daglegu brauði, að
ekki séu talin menningarleg þæg-
indi, sem öðrum þykja sjálfsögð.
Þegar íslenzkar fornbókmennt
ir voru færðar í letur, svo tek-
ið sé nærtækt dæmi, var hvorki
til bókmenntasaga né auglýsing.
f Sturlungu er víða minnzt á
Snorra. Þó er á einum stað ein-
ungis — og eins og af tilviljun
— drepið á, að hann hafi sett
saman bækur.
Og hvað um Njáluhöfund?
Ætli hann hafi ekki setzt við
að skrifa af sömu hvötum og
nútímahöfundur? Samt veit eng
inn nafn hans. Á okkar tíð hefði
hann unnið til æðstu verðlauna.
Hann hefði getað orðið frægur
maður og — ríkur, ef hann hefði
kært sig um það. Og hann hefði
öðrum fremur getað huggað sig
við, að nafn hans mundi ekki
svo brátt þurrkast úr meðvit-
und fólks.
En annaðhvort er, að höfund-
ur Njálu hefur ekki hirt um, að
AUSTIN 1300
Það nýjasta frá B.M.C. metsöluvagn
á meginlandinu. Stórkostlegur vagn.
Sýnishorn komið
Lítið inn
nafn sitt lifði með verkinu, eða
þjóðin hefur ekki talið nafn
hans þess virði að muna það,
enda þó öldin léti sér ekki lítið
annt um orðstír þeirra manna,
sem hún (öldin) taldi hafa unn-
ið einhver frægðarverk.
Gagnrýnendum og öðrum, sem
um bókmenntir fjalla, er tamt
að nota nafn höfundar sem sam-
nefnara fyrir verk hans. Það er
aðeins málvenja, sem þó ýmsir
misskilja, jafnvel sjálfir höfund-
arnir, halda þá, að verið sé að
tala um sig persónulega. Og al-
menningur álítur á sama hátt, að
verið sé að tala um menn, þeg-
ar aðeins er, í rauninni, fjallað
um verk.
Sú staðreynd stuðlar einnig
að því, að sumir nútímahöfund-
ar eru viðkvæmari fyrir nafni
sínu en góðu hófi gegnir.
Erlendur Jónsson
Lokað eftir hádegi í dag
i vegna jarðarfarar Kristjáns Kristjánssonar forstjóra.
Verkfræðistofa Braga Þorsteinssonar
og Fyvindar Valdimarssonar,
Gevafoto vinnustofan, Suðurlandsbraut 2.
Hef kaupanda
að vel tryggðum vöruvíxlum. Tilboð sendist
blaðinu fyrir 25. þ.m. merkt: „8305“.
Bifreíð til sölu
Til söiu er vel með farinn Skoda 1202 árg. 1964.
Bifreiðin er í toppstandi. Bifreiðin er til sýnis við
skrifstofur okkar í Vonarstræti 12, þar sem veittar
eru allar upplýsingar.
Tékkneska bifreiðaumboðið h.f., sími 19345.
Laxinn er kominn
í KORPU
Veiðileyfin eru seld í
Veiðimanninum
ABURÐARVERKSMIÐJAN.
TLNG-SOL
Ijósasamlokur ocj bilaperur
Garðar Gíslason
Hverfisgötu 6 — Sími 11500.
JÓHANN ÓLAFSSON & CX).
Brautarholti 2, sími 11984.