Morgunblaðið - 21.06.1968, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1968
M. Fagias:
FIMMTA
KOmN
ið við, til þess að gera enn eina
tilraun til að fá hana með sér.
Svo ók bíllinn fram fyrir hana
og stanzaði þar. Þetta var næst-
um splunkunýr Citronen, sem
ungur rússneskur höfuðsmaður
ók, en lautinant einn var far-
þegi hans. Hún stóð eins og
negld niður í götuna, og starði
á þá meira hissa en hrædd, er
þeir stigu út úr bílnum og nálg-
uðust hana. Án þess að segja
orð, tók hún veskið sitt upp úr
vasanum og rétti þeim nafn-
skírteinið sitt. En hún gat ekki
að því gert, að höndin skalf.
Foringinn, sem hafði ekið bíln-
um var hávaxinn vel búinn og
fremur geðugur, enda þótt and-
litið væri bólótt. Farþegi hans
UTAVER
Þýzk teppi, verð frá kr. 255.
Ensk teppi, verð pr. ferm. 360,
breiddir 137 — 228 — 366.
Korkgólfflísar, verð pr. ferm.
214 og 324.
Ameriskar gólfflísar, verð pr. ferm.
278. Mjög mikið úrval.
Postulíns-veggflísar enskar og
þýzkar, verð frá 190 kr. ferm.
Fjölbreytt litaúrval.
*é
AUÐVITAÐ
VEITÉO
*
©
að kaffi er svo viðkvœmur drykkur
að það f verður að
laga það með umhyggju.
Einkum verðurað VARAST, að:
nota staðið vatn í kaffilögun,
að láta kaffið sjóða, að
hita upp kaffi sem hefur kólnað,
Það borgar sig að laga kaffið
með umhyggju.
*
0.J0HNS0N
& KAABER
VELJUM (SLENZKT
ÍSLENZKAN IDNAÐ
var minni, herðabreiður og með
sterklega fætur. Hann var í
lakkstígvélum og andlitið á
honum var jafngljáandi og stíg
vélin. Hann virtist ekki rétt
stöðugur á fótunum.
— Hvers vegna voruð þér að
hlaupa? spurði höfuðsmaðurinn
á rússnesku.
Alexa skildi hann vel, þar eð
rússneska hafði verið skyldu-
grein í háskólanum, en hún var
of þreytt til þess að svara og
lét sér nægja að yppta öxlum.
Höfuðsmaðurinn hélt, að hún
hefði ekki skilið sig og sneri
því yfir í lélega þýzku:
•— Warum du gerannt?
— Ég vildi komast heim fyr-
ir útgöngubannið.
Nú þurfti hann að vita, hvað
hún væri að erinda í Buda, úr
því að hún átti heima í Bajza-
götu, hinumegin í Pest, Hún
svaraði eins kæruleysislega og
hún gat, að hún hefði verið að
heimsækja vinkonu sína, og ekki
gætt að tímanum. Foringinn virt
ist eitthvað efablandinn, með til
liti til þess, að dagurinn í dag
var ekki sérlega líklegur til
þess að fara í heimsóknir. Hún
fann, að augu drukkna lautin-
antsins hvíldu stöðugt á henni.
Nú kom hann enn nær henni
þangað til hún gat fundið volg-
an andardrátt hans á hnakk-
anum á sér.
— Inn í bílinn! sagði höfuðs-
maðurinn. — Þér komið með
okkur.
Hún rétti úr sér. Hún var
hærri en lautinantinn en lægri
en höfuðsmaðurinn.
— Ekki að nefna sagði hún,
eins einbeitt og hún gat. Svo
sneri hún sér til að fara, en
höfuðsmaðurinn setti sig í veg-
inn fyrir hana
Lautinantinn greip í hand-
legginn á henni og ætlaði að
draga hana að bílnum. — Du
steig in Wagen, sagði hann og
ekki var þýzkan hans betri en
hjá félaga hans.
Höfuðsmaðurinn brosti til
hennar. — Falleg stúlka getur
ekki verið á ferli eftir útgöngu-
bannstímann. Það er hættulegt.
Þér gætuð orðið tekin föst.
Alexa hleypti brúnum. —
Takið þið mig þá ekki fasta?
spurði hún
Báðir mennirnir hristu höfuð-
ið. Hún varð hrædd. Hún hafði
ekki hlakkað neitt til að sofa
hjá Borbas, en nú átti hún að
sofa hjá tveimur kvensömum
Rússum. Henni varð hugsað til
einnar nætur í Hangony og nú
sá hún Sari fyrir sér, meðvit-
undarlausa og hún fékk skjálfta
um allan líkamann við endur-
minninguna.
— Du steig in Wagen, sagði
lautinantinn aftur, lokkandi.
— Til hvers ætti ég það, úr
því að þið takið mig ekki fasta?
— Við ökum yður heim, sagði
höfuðsmaðurinn og klappaði
henni á öxlina með stóru rauðu
hendinni. — Þér eruð sæt stúlka
Við ökum yður heim.
Já, þið eruð að ljúga, hugs-
aði hún. Hún leit kring um sig
eftir árbakkanum. Þar var eng-
in sála á ferli.
Framsætið í bílnum var nógu
stórt fyrir þrjá. Lautinantinn
hálfýtti hálfstuddi Alexu inn,
en síðan gekk höfuðsmaðurinn
kring um bílinn og tróð sér inn
undir stýrið. Einhversstaðar á
50 KRÓNA
VELTAN
vinsamlega gerið
skil í dag
Skrifstofa stuðningsmanna
G. Th., Pósthússtræti 13.
annarri hæð í húsi var gluggi
opnaður og kona gægðist út.
Lautinantinn leit upp til henn-
ar um leið og hann sjálfur sett-
ist. I sama bili dró konan sig
til baka, skelfd og skellti aftur
glugganum. Lautinantinn fór að
hlæja.
— Allir eru hræddir við ykk-
ur, sagði Alexa á þýzku.
Lautinantinn yppti öxlum og
elit undan, en höfuðsmaðurinn
leit dapurlega og ávítandi á Al-
exu.
— Rússar eru ekki alflir slæm
ir og Ungverjar eru ekki allir
góðir, sagði hann og setti bíl-
inn í gang.
— Hvert ætlið þið að aka mér?
spurði hún. Einhver — en ekki
mundi hún hver — hafði sagt
henni, að það sniðugasta, sem
hægt væri að gera, væri að
halda árásarmönnum uppi á
snakki, af því að orðin væiri
einskonar brú á milli manna, en
þögnin hinsvegar hengiflug.
— Þér fáið að sjá það sagði
höfuðsmaðurinn, dálítið önugur.
Þau óku yfir Dóná. Á torginu
fyrir framan þinghúsið var allt
með kyrrum kjörum, rétt eins
og staðurinn hefði aldrei kom-
izt í kynni við ofbeldisverk og
manndráp. Þau óku fyrir Frels-
istorgið. Alexa leit upp í upp-
lýsta gluggana á ameríska sendi
ráðinu, og fór að velta því fyrir
sér hver glugginn væri gluggi
Mindszentys kardinála. Ekkert
þeirra sagði neitt teljandi. Þýzk
an hjá foringjanum var ekki
nema örfá orð og sjálf var hún
ofþreytt og utan við sig til þess
að geta munað neitt af rússn-
eskunni sinni, sem hún hafði
ekkert þurft á að halda, síðan
hún lauk lokaprófinu við há-
skólann. Hún lokaði augunum
og hallaði sér aftur á bak og
hlustaði á suðið í vélinni og
órólegan hjartslátt sjálfrar sín.
Svo dró billinn úr ferðinni og
stanzaði síðan.
— Jæja þá erum við komin,
sagði höfuðsmaðurinn
— Aussteigen, sagði lautinant
inn og hermdi eftir sporvagns-
stjóra.
Hún opnaði augun. Þau voru
reyndar við húsið í Bajzagötu,
þar sem hún hafði búið þang-
Húsgögn - húsgögn
Til sölu lítið gölluð húsgögn, hjónarúm, kommóður,
sófaborð o. f.
Opið ala virka daga og sunnudaga t.il kl. 7.
B. Á. HÚSGÖGN H.F. Trésmiðja
Brautarholti 6 — Sími 10028.
21. JÚNÍ.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Þér mun finnast fólk leiðitamt í dag Þú skalt vinna af kappi
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Haltu þig við efnið og ekkert þras. Leggðu fyrir, etf mögulegt
er , þú kemst e.t.v. að góðum samningum í kvödd
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní
Hagstæður dagur í tilfinningamálum, gæfan er smitandi, þú færð
vafalaust þinn skammt af henni.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Einhver hreyfing er sjáanleg í samskiptum þínum við fólk,
aðallega þér í ihag Miklastu ekki.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Vertu nægjusamur og sýndu samvinnuvilja I hvívetna. Láttu
tilfinningar þínar biða betri tíma
Þér stendur aðstoð til boða, sem þú Skalt þiggja Njóttu
kvöldsins.
Vogin 23 sept — 22. okt.
Leggðu þig allan fram við aðalatriðin Fjarlægir aðilar eru þér
hagstæðir
Sporðdrekinn 23 okt. — 21. nóv.
Ef þú átt einhverjar sameignir, er tíni til kominn að ræða við
hlutafélagana Láttu ekki tilfinningarnar hlaupa með þig í gönur.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des
Reyndi: nýjar leiðir Sparaðu tímann, nýtt hagár byrjar í dag.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Skap þitt getur brugðizt þér, en innblásturinn er nokkurs virði.
Vatnsberinn 20 jan. — 8. febr
Reyndu að halda skapinu I skefjum, en farðu beint framan að
hlutunum.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz
Reyndu að fhuga mál þín, flæktu þér ekki í fjármálabrall
Einbeittu þér þess í stað að tilfinningamálunum, heimili þínu og
leitaðu þér huggunar þar.
£ :r .