Morgunblaðið - 21.06.1968, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1968
LYFTINGAMENN FA
ENGA AÐSTÖÐU
— en eru ekki lakar á vegi
staddir en aðrir OL-kandidatar
Oft er rætt um góða aðstöðu
ísl. íþróttamanna. Bent er á millj
ónahallir og svæði í Laugardal.
Á sama tíma eru iðkendur ann-
arra greina en þar komast fyrir
að iðka sína íþrótt, án þess að
nokkur veiti þeim athygli, án
þess að menn fylgist með því að
þeir eru að vinna afrek sem eru
á alþjóðamælikvarða e.t.v. ekki
mikið lakari en t.d. afrek Guð-
mundar Hermannssonar í kúlu-
varpi.
Hér er átt við lyftingamenn
okkar. Þeir hafa vakið á sér
athygli á Norðurlöndum og af-
rek þeirra eru mjög sómasamleg
á hvaða móti sem er.
En hér hafa þeir mjög slæma
aðstöðu. Að vísu eiga þeir full-
komin tæki til lyftinganna, en
hér er enginn dómari og hér er
þjálfaratilsögn veitt af veikum
mætti.
Við skulum gera okkur grein
fyrir því, að í lyftingum geta
leynzt hér menn sem hlutgengir
gætu orðið á stærstu mótum
heims, ef þeir fá rétta tilsögn
og næga reynslu.
Á sl. hausti auglýsti Ármann
námskeið fyrir unga menn í lyft
ingum. 30-40 strákar komu. Á-
huginn er sannarlega fyrir hendi
en til þess að nýta efniviðinn
Framhald á bls. 27.
Sten Smith Jensen í kringlukasti tugþrautarinnar.
fþróttafréttamennirnir sem þátt tóku i keppninni. Frá hægri: Hallur Símonarson, Alfreð Þor-
steinsson, Jón B. Pétursson, Hjörtur Gunnarsson, Kristmann Eiðsson, Sigurður Hreiðar Hreið
arsson og A.St.
Blaðamenn fengu golfbakteríu
í keppni hjá NESS-klúbbnum
— Þriðju blaðamannakeppninni
lauk með sigri Morgunblaðsins
Golf er iþrótt við allra hæfi.
Sú sanna staðreynd hefur oft
komið fram hér á síðunni, en
hún sannaðist enn einu sinni í
fyrradag er íþróttafréttamenn
ásamt virðulegum ritstjóra eins
vikublaðs háðu hina árlegu
keppni blaðamanna, sem Golf-
klúbbur Ness hefur beitt sér fyr
ir og mun væntanlega beita
sér fyrir.
Skemmst er frá að segja að
golfið tók hugi íþróttafrétta-
manna alla. Sumir höfðu áður
fengið „bakteríuna“ en minna
orðið úr efndum á æfingaloforð
um en efni stoðu til. En aðrir
sem í fyrsta sinn mættu núurðu
jafn hugfangnir af íþróttinni og
í kvöld
ÍSLANDSMÓTINU í útihand-
knattleik verður fram haldið í
kvöld í porti Melaskólans. Verða
leiknir þrír leikir og hver öðr-
um meira spennandi.
höfðu ekki lægra um loforð um
áframhaldand æfinga en hinir,
sem áður höfðu lofað öllu góðu.
Það sýndi sig þegar í upp-
hafi, að framför hafði orðið mik
il meðal blaðamannanna. Þegar
á fyrstu holu var sá er forustu
hafði aðeins einu höggi yfir
„par“ Slíkt þótti að sjálfsögðu
stórkostlegt.
Við aðra var bæði 1. holan
og ýmsar aðrar leiðinlegar og
erfiðar. Golan var ýmsum and-
snúin, illa sást til holufánanna
í sólskininu, og kylfur reyndust
misjafnlega. En allir þessir erf-
iðleikar urðu þó aðeins til að
skerpa ástina til íþróttarinnar,
eins og erfiðleikar hjónabands
skerpa sambúð sannra hjóna.
Það leyndu sér ekki að í hóp
íþróttafréttamanna er að finna
Norðurlandamet í tugþraut
— Dani náði 7592 stigom í 30 stiga hita
DANIR telja að nýtt blóma-
skeið frjálsra íþrótta sé að
hefjast hjá þeim. Mörg met
hafa verið hætt að undan-
förnu, bæði af konum og körl
um, og Danir munu eiga
nokkra fulltrúa á Ólympíu-
leikunum í Mexíkó í þeirri
grein.
Nýjasta metið — og e.t.v.
það kærkomnasta — var sett
sl. sunnudag. Þá lauk keppni
mikilli í Kaupmannahöfn í
tugþraut og danski methafinn
Sten Smith Jensen bætti eig-
ið met og það svo vel, að nú
á hann Norðurlandamet í
þessari klassísku grein. Hann
náði 7592 stigum og dönsk
blöð segja að með þeim ár-
angri sé braut hans til ÓL í
Mexíkó rudd.
Sten Smith Jensen er
'læknastúdent og hefur vakið
athygli fyrir fjölhæfni á und-
anfömum árum og stöðugt
bætt danska metið í tugþraut
og áður orðið Norðurlanda-
meistari, þó að metið kæmi
ekki fyrr en nú.
I þrautinni setti Sten Smith
'Jensen einnig danskt met í
stangarstökki — stökk 4.75
m. Sjálfur átti hann eldra
metið.
Dönsku blöðin halda þvi
fhjög á lofti, að hitabylgja
gekk yfir Danmörku þá er
hann setti metið og þau segja
að hann hafi sýnt, að hitinn
*hafi ekki lamandi áhrif á
liann.
Ilpplýsingar
frá Akureyri
NÚ fer í hönd fyrsti leikur í 1.
deild á Akureyri. Oft hefur mik-
ið reynt á símann á leikvangin-
um á Akureyri. Breytt hefur ver
ið um símanúmer þar í vor og er
það nú 2-15-88 (en ekki 1-27-22
eins og var).
en
hæfileika í golfi ekki síður
í öðrum greinum íþrótta
Þannig varð það að einn náði
að fara þrjár lengstu brautir-
nar aðeins á einu höggi yfir
þær en illar aðstæður og
óvani gerðu honum erfitt fyrir
á hinum þremur.
Alls voru leiknar 6 hlur og
urðu úrslit þessi:
2. H.Sím. Tíminn 38
3. Kristmann Eiðsson Alþ.bl
42
4. J.B. PÉT. Vísir 44
5. Hjörtur Gunnarsson Þjóðv.
54
6. Sig. Hreiðar Vikan 59.
og aðrir aukakeppendur vuru
með meiri höggafjölda.
Að venju var keppt um fagra
styttu sem Pétur Björnsson for
maður Golfklúbbs Ness afhenti
við hátíðlega athöfn. Eftirá kom
í ljós að golfíþróttin, sem eins
og fyrr segir er sannarlega við
hæfi allra, ungra sem gamalla
og kvenna sem karla, hafði grip
ið svo um sig í hugum og hjört
um blaðamannanna. að einhverj
ir munu væntanlega verða meðal
þátttakenda í næstu keppni Golf
keppninni,
Janis Lusis frá Sovétríkjun
um sigrraði nýlega í spjótkasti
á móti í Postdam, kastaði 87,66
m. Það er lengsta kast. sem
náðst hefur í heiminum á
þessu ári. Sjálfur átli hann
fyrra lengsta Kast ársins, 86,30.
IJnglingamót í badminton
I drengjaflokki, einliðaleik,
sigraði Jón Gíslason, Val, Sigurð
Haraldsson, TBR, með 11:6 og
11:3, og í tvíliðaleik sigruðu þeir
Þór Geirsson, TBR, og Sigurður
Haraldsson, TBR, þá Jón Gísla-
son, Val, og Ragnar Ragnarsson,
Val, með 1S:2 og 15:12.
í unglingaflokki, einliðaleik,
sigraði Haraldur Komelíusson,
TBR, Finnbjörn Finnbjörnsson,
TBR, með 16:18, 15:4 oig 15:2, og
í tvíliðaleik sigruðu þeir Harald-
ur og Finmbjörn þá Jafet ólafs-
son, Val, og Snorra Ásgeirsson,
TBR, með 15:4 og 16:2.
REYKJAVÍKURMÓT í badmin-
ton fyrir sveina, drengi og ungl-
inga var haldið í íþróttahúsi Vals
22. og 23. maá sl. Badminton-
deild Vals sá um mótið.
Þetta mót sýndi glöggt mik-
inn og vaxandi áhuga unga fólks
ins á badminton, og komu þarna
fram mangir efnilegir unglingar.
Úrsliit urðu þessi:
í sveinaflokki, einliðaleik, sigr
aði Helgi Benediktsson, Val, Þór
hall Björnsson, Val, með 11:4 og
11:3, og í tvíliðaleik sigruðu þeir
Helgi og Þórhallur þá Öm Geirs-
son, TBR, og Frímann Jónsson,
TBR, með 15:0 og 16:1.