Morgunblaðið - 30.06.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.06.1968, Blaðsíða 2
2 MOKGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1968 Ai .... Skautbúningur. Islenzkir búningar 11 V/-::; Peysuföt. Upphlutur. g-ert sér grein fyrir mismun á peysufötum og upphlut, en með þeim vaxandi áhuga ungs fólks fyrir þessum klæðum er vonandi að slíkur misskiln- ingur ríki ekki. Upphlutur er mjög glæsilegur og klæðileg- ur búningur fyrir ungar kon- ur og eykur þeim þokka. Upp SÁ misskilningur varð í myndatexta undir baksíðu- mynd í blaðinu í gær að upp- hlutur var kallaður peysuföt. Til þess að leiðrétta þetta og fyrirbyggja rangar hugmynd- ir birtum við hér myndir af upphlut, peysufötum og skaut- búningi. Margir hafa ekki hlutur með öllu tilheyrandi í vönduðu klæði og gulli kost- ar um 8—10 þúsund krónur. Ættu sem flestar ungar konur að leggja metnað sinn í að eignast þennan hátíðlega bún ing, sem ávallt mun gnæfa yf ir tízkuna. Æsingar í Argentínu Buenos Aires 29. júní NTB TIL gífurlegra óeirða kom í nótt um mestalla Argentími og í fjór um helztu borgum Iands voru 350 manns handteknir þegar lög reglu og óeirðaseggjum lenti saman. í Cordoba gerðu hundruð stú- denta sér götuvígi og köstuðu heimatilbúnum bensínsprengjum að lögreglumönnum. Fyrr í vik- unni voru 160 manns handtekn- ir í borginni vegna mótmælaað- gerða gegn ríkisstjóminni. í Rosario varð lögreglan að nota táragas til að dreifa miklum mannfjölda, sem hafði uppi hróp og lét öllum illum látum. í höf- uðborginni Buenos Aires handtók lögreglan á annað hundrað manns eftir að til harðvítugra á taka hajði komið milli lögregl- unnar og herskás mannfjölda. Vitað er, að nokkrir menn meidd ust en enginn þó alvarlega. Ljós myndarar sem reyndu að taka myndir af atburðunum tókst ekki betur til en svo, að útbúnaður þeirra var rifinn af þeim og að mestu eyðilagður. Margar ráðstefnur og ferðamannastraumur SVO virðist sem land okkar sé að komast inn í hringiðu ráð- stefna og er skemmst að minnast ráðherrafundar NATO-ríkjanna hér. Nú stendur hér yfir lækna- Morðárás Saigon, 29. VÍET júní. NTB, AP. Cong-menn gerðu í dag árás með sprengjuvörpum á flóttamannabæinn Son Tra í norðurhluta S-Víetnam. Vitað er að 88 óbreyttir borgarar fórust og á annað hundrað meiddust. Þorpið var lagt í rústir, að þvi er Bandaríkjamenn við flugvöll- inn Da Nang segja frá. Engar eldflaugaárásir hafa verið gerðar á Saigon undan- farna viku. ráðstefna og í næsta mánuði verða hér ráðstefnur t.d. á veg- um tollstjóraembættisins, pósts og síma og Viinnuveitendasambands fslands. Inn í milli koma svo stórir ferðamarnnahópar. í ágústmánuði verður ráðstefna sumarháskóla, seðlabankastjórar Norðurlanda verð hér, gestir koma á vegum landbúnaðarsýn- ingarinnar, Landssamband íslenzkra iðnaðarmanna verður með ráðstefnu, ennfremur Hús- næðismálastofnunin. Þá fer fram vígsla Norræna hússins og norrænn byggingardagur verður hér. Þetta mun þó ekki leiða til þess að hótelherbergi verði ófáan leg hér í sumar, nema þá fáa daga í senn, en vissulega verður hér margt ferðamanma. Mikil spenna í kosningunum í frönsku dag París, 29. júni. AP, NTB. KOSNINGABARÁTTUNNI fyrir Tvö hundruð börn deyja daglega í Biafra i Stóraukin hjálp verður að berast tafarlaust Umuahia, Biafra, 28. júní. NTB. AP. KIRKLEY formaður brezku hjálparstofnunarinnar í Biafra skýrði frá því á föstudag, að tvö hundruð manns dæju humgurdauða á degi hverjuun í Biafra, og ef hjálp bærist ekki tii landsmanna í stórum stil og það tafarlaust mundi dánartalan hsekka íeitt þús- umd manns. Hann sagði, að þörfin á eggjahvítuauðugumi fæðutegundum væri sérstak- lega brýn, einkum handa ung börmuim, vanfærum konum og mæðruim með börn á brjósti. Hjálparstofnunin hefur varið 200.(>00 sterlingspundum til kaupa á matvæluim og hjúkr- unargögnum, sem verða send flugleiðis til Biafra. Hins veg- ar hrvkki það skammt til að bjarga lífi þúsunda barna, sem væru nær dauða en lifi af nærimgarskorti og sjúk- dómum, sagði Kirkley. Hörm- ungar fólksins í Biafra eru meiri en orð fá lýst, sagði hann, og færu ekki matarsend ingar og sjúkragögn að stneyma í enn rikara rnæli til landsins mætti segja, að ástandið yrði vonlaust með öllu. Samtúnis því, að slík lýsing er gefin í Biafra, bárust þær fregnir frá Lagos-stjórninni, að her hennar hefði náð á sitt vald borginni Yenagos úr höndum Biaframanna. Stjórn- arherinn tilkynnti, að barizt væri af miikilli hörku og skæruliðastarfsemi Riafra- manna veitti herliði Lagos- stjórnar nnar þunga búsifjar. Forsvarsmaður stofnunar þeirrar á vegum kirkjunnar, sem gengst fyrir matvæla- sendingum til Biafra sagði í Kaupmannahöfn í dag, að góðar horfur væru á þvi að sendingar kæmust tii skila. Til dæmis væri skreið pökkuð þannig, að henni mætti kasta úr flugvélum. Hann sagði, að fimm skip væru nú í þann veg inn að leggja af stað til Biafra, hlaðin skreið, þurra- mjólk, sjúkragögnum o. £1. Fyrst skipanna fimm „Hofs- jökuli“ lestaði nýlega vörur i Kaupmannahöfn fyrir um 700.000 danskar krónux. Næsta skip kemur tiil Esbjerg þann 10. jútí og á að lesta m.a. mikla skreiðarsendingu, sem íslenzka kirkjan hefur gefið tvl hinna nauðstöddu fórnar- lamba borgarastyrjaldarinnar. Talið er að átta miljónir manna hafi orðið að yfirgefa heimili sín í Biafra og Nígeríu. í Biafra eru nú um 3 milljónir flóttaimanna. seinni hluta frönsku þingkosning anna lauk í Frakklandi í dag, með ávörpum hinna ýmsu fram- bjóðenda í útvarpi og sjónvarpi. Þrátt fyrir að Gaullistar telji sig ur sinn nokkurn veginn vísan í kosnigunum í dag og að þeir fái hreinan meirihluta, hafa þeir lagt mikla áherzlu á, að kjósend- ■ur neyti atkvæðisréttar sins, en sitji ekki heima vegna þess að þeir telji sigur vísan. Allir framtojóðendur Gaullista, svo og hinna stjórnmálaflokk- anna, hafa sl. viku ferðast um •ladið þvert og endilangt og hald- •ið kosningafundi með stuðnings- mönnum sínum. Þá hafa allir ráðherrar stjórnarinnar ferðazt mikið til að styðja frambjóðend- ur flokksins í heimakjördæmum. George Pompidou, forsætisráð- herra Frakklands, flutti sjón- varpsávarp í gærkvöldi og •hvatti stuðningsmenn Gaullista fil mikillar sóknar og de Gaulle átti að flytja lokaávarp í sjón- varpið í dag. Gallistar fengu nær 6% meirihuta við kosningarnar sl. •sunnudag, en höfuðvopn þeirra •í kosningabaráttunni var að halda fram hættunini sem stafaði ■af kommúnistum. Héldu þeir ■fast við stefnu de Gaulle for- seta gegn stúdentum og verka- mönnum, og söbuðu þá um að •hafa reynt að hrifsa stjórn lands- •ins í sínar hendur meðan á ó- •eirðunum í Frakklandi stóð. — Hafa rök þessi fært Gaullistum rnikinn stuðning meðal þeirra er en en að •nefndir eru „flokkur óttans“, það eru miðstéttarkjósendur, Ga-ullistar óttast nú mjög iþessum kjósendum geti fundist þeir hafa veitt stjórninni of mikil völd, og snúist gegn henni í þessum kosningum. Bæti Gaullistar við sig tveim- ur kjördæmum í kosningunum í dag fá þeir hreinan meirihluta í franska þinginu. í kosningun- um sl. sunnudag unnu þeir 152 af 487 þingsætum og stjórnmála- ■fréttaritarar telja mjög líklegt að þeir vinni að minsta kosti 160 af þeim 313 er um verður kosið í dag, en þá fá þeir um 50 þing- sæta meirihluta. í kosningunum sl. sunnudag vann stjórnaramd- staðan aðeins 14 sæti og skoðana kanmanir benda til þess að þeir muni aðeins fá um 143 í dag. — Ýmsir stjórnmálafréttaritarar •vara þó Gaullista við of mikilli •bjartsýni, því að hugir franskra •kjósenda séu mjög hverfulir og •geti snúizt fyrirvaralaust. Ríkir •að sögn mikil spenna í Frakk- landi um úrslit kogninganna. RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIOSLA*SKRIFSTOFA SÍMI 1Q*iaa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.