Morgunblaðið - 30.06.1968, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚNI 1968
7
RÉTT innan við Vifilstaðahlíð
er gíghóll sá, sem Garðahraun
rann úr á sínum tíma. Hann
heitir Búrfell og er 179 m á
hæð. Úr honum liggja hraun-
traðir, nokkuð langar, seim
mjög fróðlegt og skemmtilegt er
að Skoða. Bftir þessum hráun-
tröðum hefur hraunið runnið
frá gígnum í norðvesturátt og
síðan alla leið í sjó fram á Álfta
nesi.
Sfeammt frá Búrfelli er Gjáa-
rétt, er var rétt Garðhreppinga,
en er nú friðlýst. Örstutt frá
henni eru fjárhellar og gjár
djúpar.
Frá Búrfelli er og skammt að
Húsafelli (275 m), sem er stakt
móbergsfjall og ekki er ýkja
langt að Helgafelli, sem er líka
stakt móbergsfjall, 340 m á hæð.
Þó það sé ekki hærra, er það-
an fallegt útsýni í björtu veðri, .
Sé farið upp ranann að norðan-
verðu, er það svo auðvelt upp-
göngu, að það er tilvalin fjall-
ganga fyrir alla fjölsfeylduna.
Helgafell er stutt frá Kaldár-
seli, en þar eru nú sumarbúðir
K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði.
Þar á Kaldá upptök sín, en hún
er merkileg að því leyti, að hún
rennur aðeins stuttan spöl um
hraunið og hverfur sivo ofan í
það
Sögn er um það, að karl, einn,
er kunni ýmislegt fyrir sér,
hafi kveðið 'hana niður, er hann
hafði misst tvo syni sína í hana.
Norðan við Helgafeli eru svo
Valahnúkar. Við þá er Músar-
hellir. Þar útbjuggu „Farfuglar"
hér „hreiður", sem þeir kalla
Valaból. Þeir hlóðu upp í hell-
ismunnann og settu þar dyr og
glugga. Svo hafa þeir girt þar
og gróðursett tré og blóm og er
þetta hinn vinalegasti staður.
Jóh. Björnsdóttir.
I hraungöngunum hjá Búrfelli.
Gígurinn Búrfell t.v. og Helgafell t.h.
Þessi mynd er tekin uppi á Helgafelii. Ganga á Heigafell er
tilvalin fyrir byrjendur. Þessi börn, sem eru á aldrinum 5
—11 ára, eru þó ekki öll í sinni fyrstu „fjallgöngu“, því að
þrjú þeirra höfðu áður gengið á Vífilsfeli og eitt þeirra þar að 1
auki á Hengil, Keili, Skálafell og Brennisteinsfjöll. Krakk- l
arnir heita: Eiríkur, Magnús, Guðrún, Hörður og Salbjörg.
Gamalt og gott
76. í leik er enginn annars bróðir:
undir sitt brauð tók hver glóðir
Hægt er að skerða litla lest.
Engi er verri, ílt þó hræðist.
Einn er ei von við mörgum
stæðist
Vesalan dregur duptið flest.
, (ort á 17. öld.)
GENGISSKRÁNIN6
Mr. 76 - 26. Júní 1968.
8kráö fráElnlng Kaup Sala
27/11 '67 lBandar. dollnr 50,93 57,07
24/6 '68 18terlingspund 135,68 136,02
26/6 - lKanadndollnr 52,90 33,01í]<
25/8 - lOODanskar kr«5nur 761,05 762,91
27/H '67 lOONorskar krónur 796,92 798,88
18/6 '68 lOOSœnsknr krónur 1.101,551. ,104,25
12/3 - lOOFlnnsk mörk 1.361,311, ,364.65
14/6 - lOOFransklr fr. 1.144,561. .147,40
6/6 - lOOBelg, frankar 114,18 114,46
25/6 - lOOSvlssn, fr. 1.321,481 .324,72
6/6 27/11 lOOOyllinl lOOTókkn. kr. 1.573,201 .577,08
'67 790,70 792,64
12/6 '68 lOOV.-þýzk mörk 1.425,201 .428,70
13/6 - lOOLÍrur 9,14 9,16
24/4 - 100Austurp. sch. 220,46 221,00
13/12 '07 lOOPesotar 81,80 82,00
27/11 - lOOReikningskrónur Vöruskiptalönd 99,86 100,14
-* - iReikningspund- Vöruskiptalönd 136,63 138,97
íjí Broytlng trá síðustu skránlngu.
FRÉTTIR
Heymarhjálp
Maður firá félaginu verður á
ferðalagi um Norðurland frá
1.—15. júlí til aðstoðar heyrnar-
daufum. Allir sem óska, geta
snúið sér til hans. Nánar auglýst
á hverjum stað.
Kvenfélag Laugarnessóknar
Skemmtiferð félagsins verður far
in fimmtudaginn 4. júlí. Farið verð
ur um Reykjanes, Krísuvík a?
Strandarkirkju. Uppl. hjá Ragn-
hildi 81720.
Kvenfélag Kópavogs
Líknarsjóður Áslaugar Maack heí
ur blómas. 30. júní.
Kvenfélag Bústaðasóknar
Hin árlega skemmtiferð félags-
ins verður farin sunnudaginn 7.
júlí kl. 8 árdegis frá Réttarholts-
skólanum. Uppl í síma 34322 og
32076
Strandamenn
Farið verður í skemmtiferð í
Veiðivötn föstudaginn 5. júlí kl. 8
síðdegis. Tilkynnið þátttöku til
Hermanns Jónssonar úrsmiðs, Lækj
argötu 4 fyrir þriðjudaginn 2. júlí.
Kvenfélag Hafnarf jarðarkirkju :
fer sína árlegu skemmtiferð
þriðjudaginn 2. júlí kl. 9 frákirkj-
unni. Farið verður suður á Reykja-
nes. Þátttaka tilkynnist í símum
51975 (Sigríður og 50002 (Áslaug)
Kvenfélag Lágafellssóknar
Hin árlega skemmtiferð félags
ins verður farin fimmtudaginn 4.
júlí. Nánari upplýsingar í símum
66184, 66130, 66143. Pantanir óska,«t
fyrir 1.7. Nefndin.
Grensásprestakall
Vegna fjarveru minnar um nokk
urra mánaða skeið, munu vottorð
verða afgreidd í skrifstofu séra
Franks M. Halldórssonar, og ei
sóknarfólki bent á að snúa sér til
hans. Guðsþjónustur hefjast aftur f
Breiðagerðisskóla eftir sumarhlé,
eins og undanfarin ár. Felix Ólafs-
son.
Nessókn.
Frá 16. júní verð ég fjarverandi
um óákveðinn tíma. Safnaðarfólk,
sem notar þjónustu mína tali við
sr. Grím Grímsson, sóknarprest,
sem þjónar fyrir mig á meðan. Við
talstími hans er milli 6-7. Sími
32195, vottorð verða veitt í Nes-
kirkju á miðvikudögum kl. 6-7.
Séra Jón Thorarensen.
Frá Orlofsnefnd Reykjavíkur
Reykvískar húsmæður, er óska
að komast í orlof að Laugum 5
Dalasýslu, komi á skrifstofu kven-
réttindafélagsins á Hallveigarstöð-
um, mánudaga, miðvikudaga, föstu
daga og laugardaga kl. 4-6.
VÍSUKORIM
í lO.viku sumars ‘68
f jöllin skarta hvítu enn.
Jafnvel bjartar júní nætur,
jökulkuldi hrellir menn.
Fölnuð landsins flóra grætur,
fjöllin skarta hvítu enn.
Ránki.
Spakmœli dagsins
Fyrst náttúran er tuttugu ár að
byggja upp Mkama vorn, skulum
vér ekki horfa í þann tíma, sem
það tekur að byggja upp sálina.
— Ph. Brooks.
Merkjasala Hringsins er í dag. Reykvíkingar. Kaupið merk
in og styrkið gott starf.
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu
Keflavík — Suðurnes
Vorum að taka upp stóra
sendingu af kjólaefnum og
gluggat j ald aefnum.
Verzl. Sigríðar Skúladóttur
sími 2061.
Chevrolet 1955
Til sölu fóiksbifreið smíðaár 1955 í góðu standi.
Til sýnis á bifreiðaverkstæði okkar Sólvalagötu 79
næstu daga. Uppíýsingar í síma 11588.
BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS.
Við Sœviðarsund
Til sölu er skemmtilegt, fokhelt raðhús (hornhús)
við Sæviðarsund. Stærð 165 ferm., 2 samliggjandi
stofur, húsbóndaherb., 4 svefnherb., eldhús með
borðkrók, bað o.fl auk bíiskúrs. Afhendist strax.
Allt sér. Hagstætt lán fylgir Teikning til sýnis á
skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Simi: 14314.
Kvöldsími: 34231.
íbúð óskast
\
Verðið þér að heiman í júlí og ágúst?
Viljið þér leigja íbúð yðar dönskum og norskum
fjölskyldum?
Danska og norska verkfræðinga og hagfræðinga,
sem eiga að vinna í Reykjavík til 1. september
vantar 2ja—3ja herbergja íbúðir með húsgögnum
náiægt Miðbænum.
Upplýsingar hjá KAMPSAX, sími 2 05 25 og 2 32 85
mánudag kl. 9 — 17.
Richard Tiles
Ilinar eftirspurðu
VEGGFLÍSAR
frá Richard Tiles Ltd. eru nú komnar
Fjölbreytt litaval
H. Renediktsson hí.
Suðurlandsbraut 4. — Sími 38300.
ARABIA-hreinlætistæki
Hljóðlaust W.C. Hið einasta í heimi
Verð á W.C. aðeins kr. 3.650,00
Handlaugar — 930,00
Fætur f. do. — 735,00
Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumboð fyrir ísland:
HANNES ÞORSTEINSSON
heildverzlun, Hallveigarstíg 10. — Sími 2-44-55.