Morgunblaðið - 30.06.1968, Síða 20

Morgunblaðið - 30.06.1968, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 196« Einstœð verðlœkkun Stórar SVERÐLJLJUR (Gladiólur) 1.5 m á hæð á aðeins kr. 30. Tilvaldar í stóru gólfvasana. Nýtt fyrirtœki: Samsteypa fjögurra trésmíðafyrirtækja Stórar fallegar POTTARÓSIR á aðeins kr. 130.00. Voru áður kr. 170.00. GRÓÐRARSTÖÐIN við Miklatorg GROÐURHÚSIÐ Símar 22822 og 19775. við Sigtún, sími 36770. LAUGARDAGINN 22. þ. m. hef- ux göngu sína hér í Reykjavík nýtt fyrirtæki, Innréttingar hf. og er það til húsa í nýju hús- næði að Suðurlandsbraut 12. Stofnendur Innréttinga hf. eru fjögur trésmíðaverkstæði og verð ur verksvið hins nýja fyrirtækis að selja framleiðsluvörur þeirra. Trésmíðaverkstæðin fjögur eru: Hagsmíði sf., sem smíðar eldhús- innréttingar, Smíðastofa Kr. Ragnarssonar, sem smíðar klæða skápa og þiljur, Öndvegi hf., sem smíðar glugga, útihurðir, svala- hurðir o. þ. h., og Valviður, sem smíðar innihurðir, sólbekki og þiljur. Eins og sjá má af þessari upptalningu verður þarna til sölu allt tréverk á einum stað og er það til mikilla hagsbóta fyrir kaupendur, sem geta sparað sér hlaup á milli staða. Megintilgangur með stofnun Innréttinga hf., auk þess að hafa allt tréverk til sölu á einum stað, er að koma á verkaskipt- ingu milli verkstæðanna er það algjör nýjung hér á landi. Verður lögð aðaláherzla á fram- leiðslu og sölu á stöðluðu tré- verki til að hægt verði að halda verðinu sem lægstu og mæta þannig síaukinni samkeppni inn- lendra og erlendra fyrirtækja. Er það von forráðamanna hins nýja fyrirtækis að þetta fyrir- komulag verði til að auka hag bæði framleiðenda og kaupenda. En einnig er fólki gefinn kostur á því að koma með sínar eigin teikningar og gerir fyrirtækið þá tillboð í þær. í húsnæði Innréttinga hf. verð ur til sýnis uppsett eldhúsinn- rétting með öllum tækjum á- samt öðrum framleiðsluvörum, þannig að kaupendum gefst kost- ur á að skoða það, sem þeir ætla að kaupa. Einnig verður séð um uppsetningu og frágang, ef þess er óskað. Ef þetta samstarf trésmíða- verkstæðanna gefur góða raun, er fyrirhugað í framtíðinni að fá fleiri fyrirtæki í samstarfið og einnig að láta það ná til fleiri sviða rekstursins. Eigendur fyrirtækisins eru Kristinn Ragnarsson, Haraldur Samsonarson, Einar Ágústsson, Valdimar Stefánsson og Kol- beinn Ólafsson. (Fréttatilkynn- ing). - LEIKLIST Framhald af bls. 19. brigða. Viðurkenning manna á blekkingum og fáránleika tilbú- inna lausna og algildra merk- inga leiðir siður en svo til ör- væntingar, hún er einmitt upp- haf nýrrar vitundar, þar sem horfrt er í augu við leyndardóm og ógn manhlífsins í' Ijósi ný- fengins frelsis“. „Líta má á öll verk Becketts sem leit að þeim raunveruleika sem Iíggur að baki rökræðna með orðavali hugmyndafræðinn- ar. Vera má að hann hafi rýrt gildi tungumálsins sem tækis til að flytja háspekileg sannindi milli manna, en hann hef- ur reynzt mikill snillingur máls sem listræns tjáningartækis. Af skorti á öðru betra hráefni hef- ur hann mótað orð sin þannig að þau þjóna tilgangi hans frá- bærlega vel. í leikhúsinu hefur hann bætt við málið nýrri vídd — gert það að einskonar und- irleik athafnanna. í leikhúsi, eða a.m.k. í leikhúsi Becketts, er hægt að hætta að líta á sviðið til að leita að ákveðnum hug- myndum, eins og menn leita ekki að ákveðnum hlutum úr náttúr- unni í abstrakt-málaralist." fslenzkir leikhúsgestir deila sök með íslenzkum leikhúsmönn- um, hversu illa hefur tekizt til við kynningu Becketts hér. Þrjár sýningar hafa verið reyndar á verkum hans í Reykja- vík, „Hamingjudagar“ hjá Grímu, „Síðasta segulband Krapps“ á litla sviði Þjóðleik- hússins, hvorttveggja mjög ó- vandaðar sýningar, og „Beðið eftir Godot“ hjá Leikfélagi Reykjavíkur, ágæt sýning að dómi flestra þeirra sem hana sáu, en þeir voru sorglega fá- ÓDÝRT V BORGARTÚN 3 SÍM11013» HREINSLM OG PRESSLM FÖTIN V BORGARTÚN 3 SÍMI 10135 FYRIR 7 0 K R. -f- sölusk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.