Morgunblaðið - 30.06.1968, Síða 24

Morgunblaðið - 30.06.1968, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 196« ,Er svartbakurinn skaðleg ur æðarvarpi?' GREIN MEÐ þessari yfirskrift birtist í blaðinu ísafold s.l. haust höfundur hennar er Guðm. J. Breiðfjörð, og hann kemst að þeirri niðurstöðu í grein sinni, að svartbakurinn sé síður en svo skaðlegur æðarvarpi. Vill jafn- vel halda því fram að hann verndi æðarfuglinn. Fyrir 2—3 árum las ég grein í dagbl. „Tíminn" um svipað efni, og höfundur hennar kemst að sömu niðurstöðu og Guðm. Breiðfjörð, ég skrifaði þá grein- arkom sem ég ætlaði að senda einhverju dagblaðanna. En hætti þá við það, sökum þess að grein- arhöfundurinn andaðist í milli- tíð, og ekki gat ég farið að pexa um þetta við dáinn mann. Það er heldur ekki ætlun mín að fara að karpa mikið við nafna minn Breiðfjörð um þetta efni aðeins skýra frá nokkrum stað- reyndum. Þegar ég var að alast upp, báðumegin við síðustu aldamót. Man ég hvað okkur krökkunum þótti fögur sjón að sjá æðar- kollurnar sem komu upp að fasta landinu í byrjun sláttarins, hver með sinn ungahóp. Það var við- burður ef nokkur æðarkolla sást ungalaus, og kölluðum við þær „geldkollur". Þessar æðarkollur höfðu orpið í eyjunum, en sóttu niú upp að landinu í ætaleit fyrir sig og ungana. Nú er skipt um. Nú sjást sjaldan æðarkollur koma upp að landinu með unga. Nú koma þær flestar ungalausar, og viðburð- ur ef útaf bregður svipað og var um „geldkollurnar" áður. Þetta vita allir hér, sem nenna að veita því athyglL Hvað veldur þessu. Er það einhver sérstök sýki sem herjar á æðarungana, sem ekki þekkt- ist áður. Eða er það Örninn eða minkurinn sem hér eiga mestu sökina, eða í þriðja lagi. Eru varpbændur famir að ræna fugl inn öllum eggjum hans á vorin, svo ekki verður eftir til við- halds stofninum? Síðasta spurn- ingin er fjarstæða, og læt ég henni ósvarað. Allir sem til þekkja vita hvemig Örninn hag ar sér ef hann leggst á æðar- varp. En það er ákaflega sjald- gæft nú orðið síðan erninum fór svo mjög að fækka, að hann geri það. Hér í minni landar- eign er arnarbæli, sem hún lagði í ár eftir ár, þar til nú 2 eða 3 síðustu árin. Og aldrei vissi ég til að hún gerði skaða í varphólmum sem hér eru. En silungsvatn og silungs ár, eru þarna rétt við arnarbælið, og það kann að hafa valdið því að hún hvekkti okkur aldrei með varpið. Um minkinn þarf ekki að ræða allir vita hversu voðalegur skað- valdur hann er þar sem hann kemst í æðarvarp. Vorið 1964, urðu piltar mínir varir við að minkur var kominn í Engey sem er (þar sem styst er frá landi '1500 metra vegalengd). Þetta var nokkru fyrir varptíð, en lundi var seztur að í ej^mni. Við áttum ágætan hund, og með tilhjálp hans fanst minkurtnp pg hafði þá gotið 5 hvolpum. Ekki varð það séð síðar á vorinu, að æðarvarpið hefði beðið skaða við þá gestakomu, og hefir ekki ver- ið síðan. Og kem ég nú að svartbakn- um. Það sagði mér stórmerkur bóndi sem bjó í Hergilsey, að eitt sinn hefði hann verið á ferð frá Stað á Reykjarnesi og til Hergilseyjar. Þetta var í byrjun sláttar. Presturinn á Stað bað hann þá að gæía fyrir sig í hólma sem mig minnir að heiti Svartbakahólmi, yzt í Staðareyj- um. og vita hvort svartbaksung- ar hefðu komizt þar upp, en það átti hver varpbóndi að sjá um sina varphólma. Sögumaður minn var við annan mann, og gengu þeir upp á hólmann. Þess sáust merki að 7 svartbakahreiður höfðu verið í hólmanum, en þar var enginn svartbaksungi sjáan legur þá. En þeir sáu annað. 528 æðarunga fundu þeir þar kringum svartbaka hreiðurstæð- in. Það má reikna með 3 svart baksungum í hreiðri, og hefðu það þá átt að vera lausir 20 sem klöktust þar út. Þetta voru leifarnar sem þeir ekki torg- uðu. En hvað þeir hafa étið og svo foreldrar þeirra, treysti ég mér ekki til að reikna út. Þessa sögu þýðir hvorki Goiðm. J. Breið fjörð eða öðrum svartbaka vin- um að rengja. Sjálfur hefi ég margoft horft á hvernig svart- bakahópar hafa ráðist að æðar kollum með unga, og drepið hvem einasta áður en viðureign inni lauk í hvert sinn, og oft ráðizt svo á æðarkolluna sjálfa á éftir og sært hana til ólífis oft og tíðum. Þetta vita allir eyja menn. Og það þýðir ekkert að vera að reyna að telja fólki trú um að svartbakurinn sé ekki skaðvaldur — máske ekki í æð- arvarpi — en áreiðanlega í æð- arfuglsstofninum. Árið 1898, var flutt út sam- kvæmt útflutningsskýrslum 5827 pund af hreinsuðum æðardún (hvað notað hefir verið í land- inu sjálfu eru engar skýrslur um). Síðastliðið sumar var verð á æðardún kr. 2.600.00 pr kg. Mér reiknast svo að þessi út- flutningur með núverandi verð lagi hafi numið rúmlega 7,5 millj ónir. Og þegar þess er gætt að þessi framleiðsla kostar ekki einn einasta eyrir í erlendum gjaldeyri, þá get ég ekki annað skilið en hún sé allrar athygli verð. Nafni minn Breiðfjörð talar um „þröngsýna æðarvarps þing- menn“. En hvað vill hann þá segja um þá þingmenn sem ár eftir ár bera inn í alþingi frum- varp um minkaeldi. Finnast hon- um þeir ekki dálítið þröngsýnir líka? Svartbakurinn er fallegur fugl, þó ekki hafi ég nú vit á að meta hans „fögru söngrödd". En það á með öllum tiltækum ráðum að fæla hann burt úr æð- arvarpi. Op það má ekki skirr- ast við að nota til þess eitur ef með þarf, enda er það það eina sem fælir hann burtu. En þetta er nú vist ódæði sem ekki má nefna, en ég veit ekki hvort það er mikið, hroðalegra að vera drepinn á eitri, en að vera gleypt ur lifandi. Þess utan eru það ótrúlega fáir svartbakar sem deyja af eitrinu, heldur fælast þeir burtu, og það er líka nægi- legt til að ná tilganginum. Fyrir 2 árum átti ég tal við bónda á Austfjörðum sem hafði dálítið æðarvarp. Hann sagði mér reynslu sína af svartbakn- um í æðarvarpi. Og hún var sú sama og mín. Máske einhverjir fleiri sem æðarvarp er hjá, vildu segja frá sinni reynslu. Það gæti kannski orðið til þess; að við fengjum einhverja „þröng- sýna þingmenn" til að sinna því máli á alþingi, að æðarfuglinn væri verndaður meira fyrir svart baknum og öðrum slíkum ræn- ingjum. Brjánslæk 8 febr. 1968 Guðmundur Einarsson. Chevrolet 1955 Til sölu Chevrolet fólksbifreið smíðaár 1955 í góðu standi. Til sýnis á bifreiðaverkstæði okkar Sólvalla- götu 79 næstu daga. Upplýsingar í síma 11588. BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS. Sýnishorn ai kjörseðli FORSETAKOSNINGAR 30. JÚNl, 1968 X GUNNAR THORODDSEN KRISTJÁN ELDJÁRN Þannig lítur kjörscðillinn út, þegar Gunnar Thoroddsen -hefur verið kosinn. Stuðningsmenn. Hlýddi ekki fyrirmæl- um heilbrigðisnefndar NÝLEGA var í Hæstarétti kveð- inn upp dómiur í máli, sem ákæruvaldið höfðaði gegn Sigur- jóni Tómasi Heiðari Tómassyni, framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar EgiH Skallagrímsson hf. fyrir brot á heilbrigðissamþ. Reykja- vikur með þvi að hafa sem stjórnarform. og framkvæmda- stjóri ölgerðarinnar ekki sinnt ítrekuðum fyrirmælum heilbrigð isnefndar Reykjavíkur til eig- enda nefnds fyrirtækis um að framkvæma ráðstafanir í því skyni að draga úr hávaða frá starfsemi fyrirtækisins í húsinu nr. 21 við Njálsgötu, þannig að bann ylli ekki að dómi heilbrigð- isnefndar óþægindum fyrir um- hverfi sitt og þá einkum hjá íbúum húsa að Njálsgötu 23, sem eru sambyggð verksmiðjuhúsi fyrirtækisins. Málavextir eru þeir, að hinn 6. nóvember 1965 og 27. apríl 1966 rituðu íbúar að Njálsgötu 23, heilbrigðisnefnd Reykjavíkur og báru fram kvartanir vegna mik- ils hávaða, sem þeir töldu koma frá verksmiðjurekstri ölgerðar Egils Skallagrímssonar hf. í hús- inu nr. 21 við sömu götu. Að undangengnum hávaðamæling- um svo og athugun á réttmæti kvartana þeirra, sem fram höfðu komið, ritaði borgarlæknir fyrir- tækinu tvö bréf dags. 12. ágúst og 7. nóvember 1966. f bréfinu frá 12. ágúst 1966 var ölgerðinni tilkynnt, að heilbrigð- isnefnd Reykjavíkur hefði á fundi sínum 5. ágúst samþykkt að leggja fyrir eigendur hennar ,,að gera nú þegar ráðstafanir til þess að vélarnar valdi ekkj ó- þægindum fyrir umhverfið sbr. 41. gr. heilbrigðissamþykktar Reykjavíkur." Hinn 7. nóvember 1966 var öl- gerðinni gefinn tveggja mánaða frestur til að gera umræddar ráðstafanir að viðlagðri kæru til Sakadóms Reykjavíkur. Um- ræddar ráðstafanir voru ekki gerðar og var málið því kært til Sakadóms Reykjavíkur. Ákærður skýrði svo frá fyrir sakadómi, að löngu eftir að starfræksla ölgerðarinnar hófst í húsinu nr. 21 við Njálsgötu, hefðu hjónin Guðrún og Elías Lyngdal fengið heimild til að byggja við gafl hússins og þá hefðu þau reist húsið nr. 23 án þess að einangrun væri sett milli húsanna. Ákærður mótmælti ekki í sjálfu sér hljóðmælingum þeim, sem gerðar höfðu verið. Hann kannaðist og við að hafá fengið í hendur bréf heil'brigðis- nefndar, dagsett 12. ágúst og 7. nóvember 1966. Hann sagðist ekki hafa farið eftir fyrirmæl- um í þeim um að draga úr há- vaða frá iðjurekstri fyrirtækis- ins, og kvað hann þetta aðgerð- arleysi sitt hafa byggzt á því, að hann taldi þá, sem byggðu við gafl húss hans eða nýttu sér- gaflréttindi, hafa átt að annast hljóðeinangrun. í forsendum að dómi saka- dóms Reyikjavíkur segir: „í 41. gr. heilbrigðissamþykktar fyrir Reykjavik nr. 11 1950 segir, að öll starfsemi varðandi iðju og iðnað skuli háð eftirliti og fyrir- mælum heilbrigðisnefndar, ef hún getur, að dómi nefndarinn- ar, valdið óþrifnaði eða óholl- ustu, þar á meðal hávaða og titringi en í 255. gr. samþykktar- innar er ákvæði um, að brot gegn henni eða óhlýðni við lög- legar fyrirskipanir heilbrigðis- nefndar varði sektum. Skipaður verjandi ákærðs hefur haldið því fram, að fyrirskipanir heil- brigðisnefndar í máli þessu hafi ekki verið löglegar, þar sem hafi verið beint að röngum aðila. Á þá skoðun er ekki unnt að fall- ast. Samkvæmt orðum 41. gr. bar heilbrigðisnefnd að beina fyrir- mælum sínum til þess aðila, ákærðs, sem rak þá starfsemi, er hún taldi geta vajdið óhollustu, þar á meðal hávaða, en í máli þessu koma ekki til úrlausnar lögskipti á sviði einkaréttar, vegna framkvæmda á fyrirskip- unum nefndarinnar um hljóð- deyfingu. Þar sem ekkert er fram komið, sem hnekkti þvi, að fyrirmæli nefndarinnar hafi einn ig að öðru leyti verið á rökum reist, verður ákærður talinn sek- ur um þá hegðun, sem í ákæru greinir .. “ Sakadómur Reykjavíkur taldi að fella bæri refsingu niður með hliðsjón af öllum málsatvikum og með vísan til 75. gr. alm. hegningarlaga. í Hæstarétti var ákærður sakfelldur, eins og í sakadómi og honum dæmt að greiða kr. 3.000,00 í sekt til borg- arsjóðs Reykjavikur auk alls sakarkostnaðar. - AFMÆLI Framhald af bls. 22. Yndi ljóða og ylur hljóma, berst enn til þín. Þinnar æsku ævintýr. Jón og Geirlaug eignuðust 4 börn. Brynjólf bifreiðastjóra á Akureyri kvæntan Guðrúnu Sig urbjörnsdóttur frá Björgum í Köldukinn. Ólaf er stendur fyr- ir búi móður sinnar, Valborg húsfrú á Akureyri, maður Mag- nús Tryggvason frá Varðgjá. Rafn og Klara Randversdóttir búa á hluta af Hólum. Þau syst- kini bera það með sér að hafa hlotið gott uppeldi og margar góðar erfðir. Geirlaug misti mann sinn 1963 eftir 47 ára hjónaband. Það kom greinilega í ljós á sjötugs afmæli Geirlaugar í Hclum að hún á óskipta virðingu og þakkir sveit unga sinna og samferðamanna. Guð blessi Geirlaugu Jóns- dóttur börn hennar og niðja, kirkju og Hólastað. Laufey Sigurðardóttir frá Torfufelli. Landsmót lúörasveita SJÖTTA landsmót Sambands ís- lenzkra lúðrasveita verður hald- ið á Siglufirði dagana 29. og 30. júní n.k. Er mótið haldið haldið á Siglufirði í tilefni þess, að 20. 20. maí sl. átti Siglufjörður 150 ára verzlunarafmæli og 50 ára kaupstaðarafmæli og annast Lúðrasveit Siglufjarðar um fram kvæmd mótsins. Tíu lúðrasveitir sækja mótið, sem hefst klukkan 14:00 á laugar dag og leikur fyrst hver lúðra- sveit hér og svo allar saman. Um kvöldið efnir Lúðrasveit Siglu- fjarðar til tónlistarskemmtunar og koma þar fram ásamt henni, kvennakór, karlakór, danshljóm- sveit og fleiri skemmtikraftar. Á sunnudagsmorgum verður þing sambandsins haldið og fara mótsslit fram í kaffisamsæti síð- degis, sem bæjarstjórn Siglufjarð ar býður til. Stjórn Sambands islenzkra lúðrasveita skipa nú: Stígur Her- lufsen, Hafnarfirði, Jónas Magn- ússon, Selfossi, og Eysteinn Jón- asson, Reykjavík. — Sv. K.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.