Morgunblaðið - 30.06.1968, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1968
SIGURÐUR
ELÍASSONh/f
AUÐBREKKA 52-54
KÓPAVOGI
SÍMI 41380 OG 41381
INNI-
HURÐIR
M. Fagias:
FLWITA
rnmjv
leysislega, og lét höfuðið hvíla
á báðum höndum og horfði á
Rússann skærum, bláum augum
sínum. Röddin var slétt og hvöss
eins og sverðsblað. Það var rödd
freistarans. Allt í einu gerði
Nemetz sér ljósa þessa einstæðu
velgengni, sem hún hafði notið
í starfi sínu. Það var hvorki
fegurð hennar né metorðagirnd,
sem því olli, heldur var það hug
rekki hennar og myndugleiki.
Og hann þurfti ekki einusinni
að horfa á Stambulov til þess að
sjá, að töfrar hennar höfðu hann
á valdi sínu. Hann sat þarna
með slappar axlir, en feimnis-
legt sáttarbros lék um varir
hans.
- Það var nú ekki ætlun mín
að vera ókurteis, sagði hann með
mjórri rödd, sem var ekki í
neinu hlutfalli við risavaxinn
skrokkinn. - Síðustu dagar hafa
verið okkur öllum all-þreytandi.
Og við erum þó aldrei annað en
manneskjur. Fyrirgefðu, að ég
hljóp á mig. Ég vil ógjarna, að
þú sért mér reið. Hvernig ætti
ég að fara að, ef þú værir ekki,
í þessum andstyggðar stað, sem
heitir Budapest? Hún brosti og
klappaði á höndina á honum.
- Jæja, vertu þá líka góður
drengur og gerðu eins og mamma
segir. Svo sneri hún sér að
Angelu, og röddin, sem hafði
verið svo blíð, varð hvöss. - Þú
hagaðir þér illa, Eina afsökunin
þín er, að þú ert full. Fáðu þér
stóran bolla af kaffi. En biddu
hann Grigori fyrst fyrirgefning-
ar. Angela stóð á miðju gólfi og
vaggaði fram og aftur eins og
tré í stormi. - En ef ég viL, það
nú ekki? sagði hún, þvermóðsko-
lega.
- Þá ertu bara samstundis
rekin.
- Ég get alltaf fengið vinnu
í verksmiðju.
- Já, það geturðu, sagði
Hanna og kinkaði kolli.
- Ég hata karlmenn, hvíslaði
Angela.
- Nei, það gerirðu ekki. Þú
kannt einmitt vel við þá, sagði
Hanna og hristi höfuðið. Svo
brýndi hún raustina. - En hvað
um þessa fyrirgefningarbón
Angela?
Angela breiddi út faðminn og
var sýnilega að herða sig upp í
eitthvað, sem átti að vera eins-
konar hneiging til Stambulovs.
- Afsakaðu, sagði hún og bætti
svo við: - og ég sker þig ekki á
háls, jafnvel þótt þú ákvæðir að
sofa hjá mér í nótt. Hún sneri
sér að kaffivélinni og fékk sér
kaffi í heiljastóran bolla. Hún
lyfti bollanum. -Skál! -í áttina
til Stambulov og saup svo stóran
sopa. Svo setti hún hægt frá sér
bollann og sagði, hrædd og hik-
andi: - Mér er að verða illt!
Hún teygði handleggina fram
fyrir sig og fálmaði eins og
blindingi eftir dyrunum með
flauelsfortjaldinu. - Farðu með
henni, sagði Hanna við þá rauð-
hærðu. - Gættu þess, að hún
svíni ekki út allt baðherbergið.
Þegar stúlkurnar voru komn-
ar út, sneri hún sér að
Stambulov.
- Hún klárar þetta vel. Hún
er ung. Og auk þess er hún nú
verzt þegar hún hefur fengið sér
einn lítinn. Og án þess að gera
þögn í milli, hélt hún áfram
- Hvað um lækninn? Geturðu
fengið hann látinn lausan?
Stambulov leit á hana hvöss-
um, rannsakandi augum: - Er
hann ríkur, þessi læknir?
— Læknirinn? Nei! Hanna hló.
Ég sver, að ég hef ekkert upp
úr þessum kaupum. Og fulltrú-
inn heldur ekki.
- Hversvegna eruð þið þá að
þessu?
- Fulltrúinn vegna þess, að
— Hann er mín hægri hönd hér í fyrirtækinu því ég er örf-
hentur!
hann er góður maður. Og ég
vegna þess, að ég vil gjarna
gleðja fulltrúann.
- Geturðu ekki glatt hann ein-
hvernveginn öðruvísi? ' spurði
Stambulov.
- Ég er hrædd um ekki, sagði
hún, viðkvæmnislega.
Nemetz rétti Stambulov blað
með nöfnum, tign og númerum á
þeim rússneskum hermönnum,
sem Halny hafði haft til meðferð-
ar. - Kannski hefur hann bjarg-
að lífi þeirra. Það segja þeir að
minnsta kosti sjálfir. Þér getið
yfirheyrt þá ef þér viljið.
Stambulov leit á blaðið og
stakk því síðan í vasa sinn.
- Jæja, sagði hann. - gefið þér
mér blað og umslag, og ég skal
skrifa skilaboð til Levitou of-
ursta. Hann sneri sér að Nemetz.
- Hann er yfirmaður herfangels-
isins og Buda. Komið þér þangað
klukkan níu í fyrramálið, en
ekki fyrr, því að hann er fylli-
bytta og kærir sig ekki um að
láta ónáða sig áður en ónefndur
Utankjörstaðaskrifstofa stuðningsmanna
GUNNARS TH0R0DDSENS
er í Aðalstræti 7, II. hæð (gengið inn að austan-
verðu). Skrifstofan er opin frá kl. 9 f.h. til kl. 10 e.h.
Símar: 84532- Upplýsingar um kjörskrá.
84536: Almennar upplýsingar.
84539. Upplýsingasími sjómanna.
Stuðningsmenn GUNNARS THORODDSENS eru
hvattir til þess að láta utankjörstaðaskrifstofuna
vita um kjósendur, sem verða fjarri heimilum sín-
um á kjördegi, bæði innan lands og utan.
30. JÚNÍ.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
N'i skaltu taka trúmálin alvarlega, og athugaðu, hvar skórinn
kreppir. Það er þátttakan sem um er að ræða, ekki fjármunir.
Þú mátt treysta á nýja kunningja.
Nautið 30. apríl — 20. maí.
Þetta á að vera tími gleði og ávinnings fyrir þig, þú skalt gera
þér fai um að hafa næg verkefni.
Tviburarnir 21. maí — 20. júní.
Líklegt er, að gaman verði heima hjá þér. Taktu öllu eins og
það kemur fyrir. Reyndu að forðast flýti, og láttu gesti þína vera
eins og imima hjá sér.
Krabbimi 21. júní — 22. júlí.
Vertu með fjölskyldunni í dag. Reynið að fara smáferð, en
gætið hófs.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Persónuvöld þín virðast aukast eittihvað i dag, margir munu
fara eftir þínu fordæmi. Taktu deginum með ró.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Þetta verður skemmtilegur sunnudagur, og þú færð nægan tíma
til tómstundaiðkunar með fólki sem þér er kært. Gott kvöld til
skemmtunar, í hófi.
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Þetts er ágætur dagur til að hygla að æfistarfinu Leggðu eyrun
við því, sem sagt er meðal vina.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Þolinmæðin kann að vera með minnsta móti, en reyndu samt að
beita henni. Reyndu að leita hófanna, seinni hluta dagsins í
hljómlist.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Þessi sunnudagur er ekki ætlaður til þess að áfellast náungann
eða vera með afbrýðissemi Reyndu að gera hreint íyrir þínum
dyrum, haltu þig meðal vina seinni hluta dagsins, en farðu
snemma heim.
Vatnsberínn 20. jan. — 18. febr.
Dagurinn í dag styrkir það sem þú hefur álitið um mannlegt
eðli, og þér gefst kostur á að kanna það ofan í kjöiinn.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz.
Fólki ber ekki saman í dag, en láttu þig það litlu skipta. Haltu
þér utan við allar deilur, ef þér er annt um frið. Tjaldaðu því,
sem til er.