Morgunblaðið - 28.08.1968, Page 1
28 SIÐUR
Vfirlýsing miðstjórnar kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu:
Meyðumst til að láta
undan valdi ofureflis
London, 27. ágúst. AP.
MIÐSTJÓRN KOMMÚNISTAFLOKKSINS í TÉKKÓSLÓVAKÍU
HEFUR SAMÞYKKT YFIRLÝSINGU ÞAR SEM SEGIR, AÐ
ÞJÓÐIR LANDSINS HAFI NEYÐZT TIL AÐ LÁTA UNDAN
VALDI OFUREFLIS, EN ÞÆR MUNI ALDREI FALLA FRÁ
KRÖFU SINNI UM SJÁLFSTÆÐI OG FRELSI.
Yfirlýsingu þessari var útvarpað í Prag og heyrðist útsend-
ingin m.a. til London seint í gærkvöldi. Þar sagði: „Forystumenn
okkar hafa bitrir og djúpt hrærðir fengið í hendur yfirlýsingu
um samningaviðræðurnar, sem fulltrúar okkar áttu aðild að í
Moskvu. Við tÖkum þátt í geðshræringu þeirra og gerum okkur
fyllilcga grein fyrir alvöru þessarar stundar. Við erum að láta
undan ofurefli, en við munum aldrei falla frá kröfunni um full-
veldi og frelsi. Við skiljum, hve erfiða aðstöðu félagi Dubcek og
aðrir félagar okkar áttu í Moskvu, aðskildir frá okkur í töluverðan
tíma.
ÖRVÆNTIÐ EKKI.
Þetta er ekki endir allra daga.
Markmið þjóðar okkar verður eftir sem áður að koma á
sósíalisma með mannúðlegu yfirbragði“.
Landið hernumið um dakveðinn tíma
Leiðtogar Tékkóslóvakíu
eru nú aftur við völd —
Prag, Moskvu, 27. ágúst.
(NTB-AP)
0 Leiðtogar Tékkóslóvakíu
komu heið frá Moskvu í nótt
að loknum samningaviðræð-
unum við leiðtoga Sovétríkj-
anna. Voru þeir allir ör-
magna af þreytu en héldu
rakleitt til fimda við aðra for
ystumenn landsins og skýrðu
þeim frá viðræðunum.
0 Ekki er ljóst hver úr-
slit samningaviðræðnanna
hafa orðið. Tass-fréttastofan
birti yfirlýsingu sem lítt er
á að byggja, en eitt megin-
atriðið virðist þó að herinn
verði áfram í landinu um
óákveðinn tíma, smám sam-
an verði fækkað í honum
unz hann fari allur brott
„þegar ástandið í landinu er
komið í eðlilegt horf“ eins
og segir í Moskvufréttum.
Engin tímatakmörk eru sett
fvrir brottför hersins. Að
öðru leyti er ekki Ijóst
hverju leiðtogar Tékkósló-
vakíu hafa orðið að fórna, en
talið er líklegt að bæði verði
dregið úr framkvæmd um-
bótaáætlunarinnar og komið
á ritskoðun, a.m.k. á allt er
varðar innrásarríkin.
0 Þegar íhúar landsins
gerðu sér Ijóst í hverju nauð-
ungarsamningarnir mundu
fólgnir, lýstu margir von-
brigðum sínum og ugg um
afleiðingar áframhaldandi
hersetu í landinu. í kvöld
sendu ýmis samtök frá sér
mótmælaorðsendingar, með-
al annars verkamenn við
Skodaverksmiðjurnar í Plsen,
scm lýstu samkonulagið nauð
ungarsamninga og sögðust
mundu hrópa mótmæli sín
yfir landið, yfir miðstjórn
kommúnistaflokksins, yfir
þingið og yfir allan heiminn
— og krefjast brottflutnings
innrásarliðsins.
Þúsundir manna söfnuðust
saman í miðborg Prag í
kvöld og kröfðust þess að fá
að heyra allan sannleikann.
0 Þeir Ludvig Svoboda,
forseti og Alexander Dubcek,
aðalritari kommúnistaflokks
ins, fluttu báðir útvarps-
ávörp, þar sem þeir þökkuðu
stuðning og hollustu þjóðar-
innar og hvöttu til þess, að
menn héldu áfram aga og
Framhald á bls. 20
Mynd þessi var tekin á laugardagskvöldiS, er þeir Titó Júgóslavíuforseti og Nicolai Ceau-
sescu forseti Rúmeníu hittust að máli í Vrsac á landamærum rikjanna.
Demókratar deila um Vietnam
Humphrey sigurstranglegastur
Chicago, 27. ágúst AP-NTB
STEFNUSKRARNEFND
bandaríska Demókrataflokks-
ins vísaði í dag frá tillögu um
að skilyrðislaus stöðvun
sprengjuárása á N-Vietnam
yrði tekin inn í stefnuskrá
flokksþingsins í Chicago, en
samþykkti í staðinn að lýsa
því yfir að árásunum verði
hætt þegar er trygging hefur
fengizt frá N-Vietnam um
öryggi bandarískra her-
manna í S-Vietnam. Fyrri til
lagan var borin fram af
McCarthy og McGovern, en
stefna sú er samþykkt var er
mjög í anda Huberts Hump-
hrey. Samþykkt þessi mun
að flestra áliti verða eitt að-
aldeiluefnið í umræðum á
flokksþinginu, sem ljúka á
n.k. fimmtudagskvöld.
Á MORGUN Ihiefst at-
kvæðagreiðsla um útnefnin.gu
forsetaefnis, en úrslit verða vart
kunn fyrr en undir morgun að
ísl. tíma. Að minnsta kosti þrír
frambj öðendur munu sækjast
eftir útnefningunni, þeir Eugene
McCarthy, George McGovern og
Hubert Humphrey, sem af flest-
um er talinn nær öruggur sig-
urvegari við fyrstu atkvæða-
greiðslu. Auk þeirra hefur Lest-
er Maddox ríkisstjóri í Georgía
lýst yfir framboði sínu. í dag
opnuðu stuðningsmenn Edward
Kennedys skrifstofu í Chicago,
en öldungadeildarþingmaðurinn
hringdi þá til skrifstofunnar og
bað um að starfseminni yrði
hætt, því að hann hefðj ekki
áhuga á forsetaembættinu. Var
orðið við óskum Kennedys og
skrifstofunni lokáð. Þrátt fyrir
þetta eru miklar umræður
manna á meðal, sem vilja fá
Kennedy fyrir forsetaefni.
Framhald á bls. 27