Morgunblaðið - 28.08.1968, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.08.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1868 21 Kajak-naust við víkina á leið til Garða, Um borð á leið til Brattahlíðar. — Öræfakyrrð Framhald af bls. 13 ið er hugsað um að heyja. Á góðvfðrisdögum dunda menn við að veiða og strákar sulla í lækjum og draga silung, og ef hret gerir á hausti, eins og fyr- ir tveimur árum, þá fellur mik- ill hluti af fjárstofninum. Þetta er þó að færast í betra horf. Á nokkrum stöðum hef ég séð myndarbú með fjárhúsum, og hlöðu og smátt og smátt færist þetta í betra horf.“ íslenzkir hestar. „En eitthvað er þarna um nautgripi?“ „Lítið eitt. Dálítið er um nautgriparækt í Brattahlíð og í Görðum, en einnig ber mikið á íslenzkum hestum á þessum stöð um. Þarna þeysast bæði krakk- ar og fullorðnir um á hestum af þessum íslenzka stofni, sem þangað var fluttur upp úr alda mótunum." „Þegar fslendingar sjá mynd- ir af grænlenzku fólki, þá er það oftast í þjóðbúningum. Ganga Grænlendingar venju- lega þannig til fara?“ „Nei, það gera þeir ekki venjulega sér maður grænlend- inga í anórökkum, en þó ber á því, að fólk hafi kamíkur á fót- um.“ Nú stendur Magnús upp og sækir kamíkur, sem liggja á hillu í stofunni. Þær eru svart- ar og saumaðar úr skinni með marglitum ídrætti, úr þunnu skinni sem hann segir vetra lit- að með jurtalitum. Segir hann að eins sé með þetta og aðra handavinnu grænlendinga, að tíminn, sem verkið taki, skipti ekki máli. Máli sínu til sönn- unar kemur hann með mjög haglega smíðaðan kajak, sem grænlendingur h efur smíðað og er hver smáhlutur listilega tálgaður í bein, en báturinn sjálfur klæddur þurrkuðu roði. „En Grænlendingar klæða sig þá á vestrænan hátt?“ „ Já, margt af fólkinu er sæmi lega klætt í hreinlegum fötum og börnin eru í nankins-vinnu- fötum, en það er áberandi, eins og reyndar víðar hjá frum- stæðu fólki, að í fatnaði nota Grænlendingar sterka liti.“ „Hvernig er menntun Græn- lendinga háttað?" „Það mam talsvert vera um menntað fólk af grænlenzkum ættum, m.a. hef ég hitt græn- lenzkan prest, kennara og yfir- setukonu. Skólar eru á öllum þéttbýlisstöðum og þá er oft sambyggt skólinn og kirkjan, aðeins stúkað á milli.“ íslendingabyggðir. „í Görðum eru mjög skemmti legar minjar frá hinu forna biskupssetri, en þar er talið að veizlusalurinn hafi rúmað 3-400 manns geysilega mikið mann- virki og maður skilur varla, hvernig þeir hafa flutt þetta stóra grjót, sem til byggingar- innar þurfti. Sumir steinarnir vega um 4 tonn. Þarna í Görð- um var Jón Smyrill biskup á sama tíma og við höfðum Pál biskup í Skálholti og milli þess ara tveggja stéttarbræðra hef- ur verið mikil vinátta. í Görð- um var grafið eftir fornminjum árið 1926 og fannst þar gröf Jóns Smyrils og í henni bisk- upsstafur, sem talinn er hafa verið gjöf frá Páli biskupi — og í kistu Páls biskups í Skál- holti fannst annar mjög svipaður að gerð. Einmitt um þetta leyti virðist hafa verið mesit veldi í Görð- um og þá hefur kaþólska kirkj- an átt þar ítök og lendur um allar sveitir, rétt eins og hér var á fsliandi um aldir. Það eru margir fleiri merk- ir staðir þarna, en gömlu ís- iendingabyggðirnar voru upp- haflega mestar í Eiríksfirði og Einarsfirði. Þormóður Kolbrún arskáld á að hafa komið á þess- ar slóðir og verið á Stokka- nesi, sem er nú Narssarssiuak". Vélvæðing lítil. „En snúum okkur aftur að Grænlendinigum. Ég sá í sjón- varpsþætti þínum, að einhver vélvæðing sé þar í landi.“ í Görðum til dæmis var sá hlutur, sem nœst komst vélvæð- ingu, kerra með bílhljólum. En dráttarvél mun hafa komið þangað nýlieiga. „Aðra sögu er að segja um Narssaq. Þar búa um 1500 manns og þar hefur verið kom- ið upp rækjuverksmiðju, frysti húsi og sláturhúsi, sem Konung lega Grænlandsverzlunim reku- ur. Hins vegar skilst mér að Grænlendingar eigi sjálfir báta og annað slíkt, sem að fiskveiði lýtur. Þeir eru snillingar að fara með vélar og amnað slíkt.“ „Hvernig sýndist 'þér vöru- val vera í verzlunum þarna?“ „Mér sýndist það svipað og maður sá hér á landi fyrr á ár- um. Þar var talsvert af fatnaði, allskonar niðursuðuvörur og ný llenduvörur. Auk þess voru ýms ar víntegundiir upp um allar hill ur. Grænlendingar eru tóbaks- menn og vínhneigðir, enda lifa þeir eins og ég sagði áðan, fyr- ir líðandi stund. Ég sá þarna fátt fólk, undir áhrifum og fannst ekki á því bera að slíkt væri almennt." Grænlendingar eldast fljótt. „Eru grænlenzk börn falleg?“ „Það eru þau. Þau eru bæði sælleg, falleg yfirleitt og fjör- leg. Hitt er annað mál, að fólk virðist eldast mjög fljótt. Fólk sem manni finnst hljóti að vera 60-70 ára gamalt er e.t.v. ekki orðið fertugt. Enda hefur verið talið, að meðalaldur Grænlend inga hér áður fyrr hafi verið milli 20 og 30 ár.“ „Hafa ekki íslenzkir ferða- menn sótt til Grænlands?" „Jú, en það mætti vera meira, því ég tel ekki illa varið þeim tíma og því fé, sem í slíkt ferða lag fer. Þarna er hægt að sjá svo marga athyglisverða og ó- venjulega hluti, að þeir, sem á annað borð hafa tök á að ferð- ast til annarra landa, ættu alls ekki að láta Grænland fram hjá sér fara. íslendingar hafa gjarnan farið til Grænlands til lax eða silungsveiða. En veiði- tíminn er stuttur þar, eins og hér og ekki alltaf mikinn fisk að fá. Hins vegar er þar margt athyglisvert að sjá svo allir eru ánægðir." Bezt að hafa með sér tjald. „En er ekki fremiur erfitt að komast á milli staða í Græn- landi?“ „Að sumarlagi og sérstaklega nú, eftir að ferðamannastraum- ur til Grænlands jókst, er tals vert um góða báta, sem ferja menn milli staða, svo tiltölu- lega auðvelt er að ferðast um. Hitt er annað mál, að gisting er svo til eingöngu í grennd við flugvöllinn og lítill mögu- leiki á gistingu annars staðar, nema menn hafi með sér tjald. Ég held að ef menn hafa með sér tjald, geti þeir á auðveld- ari hátt kynnst landi og þá sér staklega þjóð heldur en ef þeir færu í stórum hópi eina dag- stund um merkan stað. Svæðið kringum Eiríksfjörð og Einars- fjörð er vafalaust það svæði á Grænlandi, sem hefur á mesta fjölbreytni að bjó,a, en aftur á móti tel ég, að svæðið hér norð urundan við Meistaravík og þar í grennd sé paradís þeirra, sem unna fjallalandslagi. Með- an námurnar voru starfræktar voru þar skemmtilegir bátar, sem hægt var að ferðast með, en nú vantar þar aðstöðu til gistingar og ferðalaga." „Hvað var unnið í þessum námum?" „Þarna var unnið blý og tin, en krýólít er unnið á vestur- ströndinni. Nú er talið, að ein hver hugur sé í mönnum að taka upp námugröftinn aftur og gætu þá allar aðstæður þarna breytzt til hins betra. Þess má til gamans geta, að á þeim tíma, er unnið var í námunum í Meist aravík, var talað um að hafa umskipun við Eyjafjörð, því að eins er skipgengt að námasvæð inu fáa mánuði á sumri.“ „Og þú ert að hugsa um að fará aftur til Grænlands ein- hvern tíma?“ „Eflaust, ef ég fæ tækifæri til þess, þá er ég alltaf tilbú- inn að fara. Það eru fá lönd, sem hafa aðdráttarafl í saman- burði við Grænland og þau á- hrif, sem ég hef þar orðið fyrir eru varanleg." Nokkrir Garðabúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.