Morgunblaðið - 28.08.1968, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.08.1968, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1968 SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM: KVIKMYNDIR Nýja Bíó E1 Greco Amerísk- ítölsk kvikmynd Leikstjóri: Luciano Salce Aðalhlutverk: Mel Ferrer Rosana Schiaffino HINN FRÆGI grískættaði spasnski nxálari, E1 Greco, (1541-1614) var einhver mesti listamaður, sem Spánverjar hafa eignazt, Kvikmynd þessi er byggð á kafla af æfiferli hans, en með því að ég hefi ekki lasið æfisögu þessa listamanms, þá skortir mig þekkingu til að skera úr því, að hve mikluleyti myndin styðzt við saimsögulega atburði. — Svo mikið mun þó víst, að listamaðurinn lenti sann anlega í deilum við spaenska valdamenn og varð að svara til saka fyrir listmeðhöndlun, sem ekki þótti í alla staði samrým- ast kreddubundnum trúarskoð unum ráðandi manna. Eigi að síður eru flest frægustu verk hans trúarlegs eðlis o g hafa skreytt kirkjur og önnur helgi- hús öldum saman. Myndin fjallar um dvöl Greco f Toledo á Spáni (Greco dvaldi í Toledo nær allan þann tíma, sem hann bjó á Spáni og andað- ist þar), þar sem hann um gengst hina tignustu menn ver- aldlega og geistlega, kemst með- al annars í kynni við sjálfan konunginn, Fillipus annan, og vinnur sér í fyrstu hvarvetna hylli meé list sinni. Tvennt verður þó til að stofna honum í ærinn vanda. Hann verður ást- fanginn af fagurri aðalsmær, og þótt hún endurgjaldi ást hans, er málið ekki þar með leyst, þar sem hún var heitbundin ungum aðalsmanni og er af tign ari ættum en svo, að hún geti gifzt ættsmáum listamanni, þótt frægur sé. í annan stað er hann rógborinn svo bæði við konung- inn og heilaga preláta, að við borð liggur, að hann endi lif sitt á bálkesti sem ótíndur galdra- maður. Kvikmynd þessi er óneitan- lega talsvert áhrifamikil. At- hyglisverð er röksemdafærsla listamannsins fyrir rannsóknar- réttinum spænska, ekki sízt með hliðsjón af baráttu margra lista manna nútímans fyrir tjáningar frelsi. — Það er andi og áhrif listaverkanna, fremur en hið ytra form við fljóta skoðun, sem hann segist tigna guð með. Frjálsræði til túlkunar telur hann sér nauðsynlegt, til að geta þjónað hinum eina, sanna Guði. — Og þótt merkilegt sé, þá virðist hinn illræmdi rann- sóknarréttur fallast á sjónar- mið hans a.m.k. í verki. Færi betur, að allir „rannsóknarrétt- ir“ nútímans sýndu sambærilega skynsemi í skiptum við skapandi listamenn. öllu lakar ganga E1 Greco skiptin við höfðingjavaldið og þjóðfélagslega fordóma og kreddur þess. Þar af rís ástar- harmleikur, sem sumir „harð soðnir" nútímamenn mundu lík- lega telja fulltilfinningasaman á köflum. En varla verður ástar- harmleikur túlkaður á áhrifa- ríkan hátt, án nokkurrar til- finningasemi. Á meðan tízka og tíðarandi byggja ekki hrein- um ástarkenndum algjörlega út úr listaverkum, þá verða menn að sætta sig við, að slíkar kennd ir séu tengdar nokkru „senti- mentaliteti". — Að sjálfsögðu veldur hér hver á heldur, allar kenndir má yfirdrífa í túlkun, en í þessari mynd finnst mér leikstjóra og leikendum hafa tekizt allvel að þræða meðal- veginn í þessum efnum. SAUMAKONUR Vanar saumakonur geta fengið vinnu strax við buxna- og úlpusaum. Heimasaumur kemur til greina. Tilboð merkt: „Akkorð — 6873“ sendist afgr. Morg- unbl. fyrir næstu helgi. Vantar starisstúlkur við framreiðslustörf strax. Aldur 23—30 ára. Upplýsingar í síma 42340 milli kl. 2—3 í dag. f sambandi við kvikmynd þessa mætti gjarnan hugleiða al mennt viðhorf fólks til lista- manna nú til dags, borið saman við fyrri tíma. Að vísu kynnumst við þarna helzt hástéttunum á Spáni, og kemur þar fram mikil virðing fyrir listinni. Hinir tigrnu prelátar kirkjunnar hefðu varla verið svo viðkvæmir fyrir spillandi áhrifum „afvegaleiddr ar listar" ef þeir hefðu ekki virt list og listsköpun almennt. Ekki er ólíklegt, að viðhorf al- mennings til listarinnar hafi ver ið svipað, að svo mifelu leyti sem hann var nægilega upplýst- ur, til að mynda sér skoðanir um slíkt efni. En hvernig er viðhorfið í dag? Nýtur listamaðurinn sama álits og virðingar og hann áður naut? Ástæða er til að draga slíkt í efa. Virðing manna fyrir andlegum viðfangsefnum, list sem öðrum, hefur líklega verið heldur á undanhaldi á síðari tímum. „Velferðarríkið" byggir oft meira á efnahagslegri vel- ferð en andlegri. — Segja má, að einræðisherrar kommúnista- ríkjanna sýni listinni vissa virð- ingu, er þeir dæma listamenn í þrælkunarvinnu. Þeir sýna a.m. k. ótta við áhrifamátt listarinn- ar. Kannski vantar vestræn lýð- ræðisríki eitthvert virðingar- tákn, til að vega upp á móti þrælabúðunum, tákn þess, að þau sýni ekki fálæti, h eldur gaumgæfi vel það, sem bezt er gert í listrænum efnum af þegn um þeirra. — Ætli það geri bet- ur en listamannalaun og aðrar sérstakar fjármunalegar viður- kenningar vegi upp á móti þeirri viðiurkenningu, sem fólg- in er í þrælabúðavist þeirra austrænu. Stormur virðist þurfa að geysa um listamenn, til að þeir fái not- ið sín til fulls. Því ber að fagna, ef myndir á borð við þessa taka að birtast upp til hópa hér í kvikmynda- húsunum á næstunni. Sannast sagna hafa margar þeirra mynda, sem kvikmyndahúsin hafa haft á boðstólum undan- farnar vikur, verið næsta fá- fengilegar. S. K. GÓLFFLÍSAR frá K5 MARLEY MARLEY-gólfflísar „CONSORT“ MARLEY-góIfflísar „HEAVY DUTY“ MARLEY-veggflísar „TRAVERTINE“ og ýmsar aðrar E3 MARLEY til sýnis d Bnrton sýningunni nð Fríkirkjuvegi 11 Nánari upplýsingar hjá MARLEY-umboðinu. MARINÚ PÉTURSSON heildverzl., Hafnarstræti 8, sími 1-71-21. Til sölu 2ja herb. 3. hæð við Álfask., sameign fiullfrág., vandaðar harðviðarinnréttingar, útb. 415 þúis. 3ja herb. 110 ferm. jarðhæð við Stóragerði, sérinng. 3ja herb. 95 ferm. 4. hæð við Stóragerði. Skipti á 4ra—5 herb. íbúð koma til greina. 3ja herb. 2. hæð við Hvamms- gerði, sérinmig., suðursvalir. 3ja herb. 1. hæð við Samtútn, sérhiti og inmg. útb. 350 þús. 3ja herb. 87 ferm. 3. hæð við Laugarnesveg. 3ja herb. 75 ferm. faReg jarð- hæð við Bólstaðarhlíð, vand aðar harðviðarinnréttingar. 3ja—4ra herb. 1. hæð í þríbýl- iishúsi við Njörvasumd. 4rá herb. 116 fenm. 4. hæð við Hvassalediti, vönduð íbúð. 4ra herb. 5. hæð við Ljós- heima, hagstætt verð og útb. 5 herb. 132 ferm. 4. hæð við Háaleitisbraiuf, mjög vand- aðar harðviðar- og plastinn- réttingar. Fallegt útsýni. — Skipti á góðri 3>ja herb. íbúð koma tdl greina. Tvíbýlishús við Kambsveg á 1. hæð, sitór 3ja herb. íb. á 2. hæð, 102 ferrn., 4ra erb. íbúð. f Kópavogi Uppsteyptir sökklar fyrir einbýlishús á góðum stað. Teifeninigar og fleira fylgja. Við Sœviðarsund 145 ferm. 1. hæð og hálfur kjallari, 75 ferm. í þríbýlis- húsi, 26 ferm., bílskúr er í kjallara, hæðin er rúmlega tilb. undir tréverk. Vönduð eldhúsinn.rétting er komin, tvemnar stórar svalir. Skipti á 4ra herb. íbúð koma til greina. Einbýlishus við Hraunbœ húsið er fokhelt nú þegar og selst þannig. Stærð 150 ferm. ásamt 40 fetrm. bíi- skúr. Fastalán áhvílandi, út- borguin má greiða á edniu ári. Fasteignasala Sigurðar Pálssonar byggingamelstara og Gunnars Jónssonar lögmanns. 28. Kambsveg 32. Símar 34472 og 38414. Kvöldsími sölumanns: 35392. STÓRIÍTSALAJ Góðtemplarahúsinu 30-60% AFSLÁTTUR | terylenekApur dragtir peysur nýjar VÖRUR TÁNINGAKJÓLAR kvöldkjólar jerseykjólab ULLARKÁPUR TÆKIFÆRISKJÓLAR BLÚSSUR DAGLEGA SUMARKJÓLAR CRIMPLENEKJÓLAR VERÐLISTIIMINI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.