Morgunblaðið - 28.08.1968, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1968
Ingvar Einarsson
vélstjóri — Minning
Fæddur 12. maí 1897
Dáinn 20. ágúst 1968
INGVAR fæddist í Heimalandi,
Hraungerðishreppi, Ámessýslu,
sonur hjónanna Ingveldar Er-
lendsdóttur frá Mykjunesi í
Holtum og Einars Þórðarsonar,
Króki í sömu sveit. Foreldrar
Ingvars bjuggu á ýmsum bæjum
í Flóa, við sára fátækt og var
Heimaland einn þeirra bæja, sem
hrundi í jarðskjálftanum 1896.
Ingveldur og Einar fluttu til
Reykjavíkur 1905 og voru börn-
in skilin eftir, þar sem bezt var
að koma þeim fjrrir. Um ferm-
t
Maðurinn minn og faðir
okkar,
Jón M. Bjarnason
frá Skarði,
Álfhólsveg 95, Kópavogi,
andaðist í Landspítalanum
27. þ.m.
Eiginkona og börn.
t
Gróa ófeigsdóttir
Deild, Akranesi,
lézt í Sjúkrahúsi Akraness,
mánudaginn 26. ágúst.
Vandamenn.
t
Faðir okkar,
Pétur Guðmundsson
vélstjóri,
verður jar'ðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstud. 30. ág. kl.
13,30. Þeir sem vildu minnast
hans er bent á líknarfélög.
Guðmnndur Pétursson,
Hafsteinn Pétursson,
Ellert Pétursson,
Nína Pétursdóttir,
Hulda Pétursdóttir.
t
Faðir okkar.
Jón E. Oddsson,
verður jarðsunginn láugardag
inn 31. ágúst. Athöfnin hefst
með bæn að heimili hans, Lun
ansholti, kl. 1. Jarðsett verður
i Skarði. Bílferð frá Umferðar
miðstöðinni kl. 10.
Börnin.
t
Faðir minn,
Kristján Jónasson
fyrrverandi vörubílstjóri,
Skúlagötu 62,
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 29.
þ.m. kl. 10.30 f.h. — Blóm vin
samlega afþökkuð.
Fyrir hönd vandamanna.
Kristjana Kristjánsdóttir.
ingaraldur fluttist Ingvar til
Reykjavíkur og varð eftir það
að sjá sjálfur fyrir sér. Með
frábærum dugnaði sínum og
greind kom hann sér til mennta,
nær einn og óstuddur fjárhags-
lega, og var því lítið um skot-
silfur.
Ingvar útskrifaðist úr Vélskól-
anum 1921, var síðan vélstjóri á
skipum Eimskipafélags íslands
lengst af, m.a. 1. vélstjóri á e.s.
Selfoss á stríðsárunum, var þá
óskemmtilegt að vera í skipa-
lest í vélarúmi og hefur það
sennilega tekið á taugar hans,
þótt hann talaði lítt um það.
Hann treysti á forsjón Guðs.
Ingvar giftist 3. apríl 1926
Pálínu Jónsdóttur frá Ólafsfirði,
ágætri konu. Þeim var báðum
umhugað um að búa sem bezt að
börnum sínum og heimili. Þau
eignuðust 5 böm, sem öllu eru
á lífi.
Ég og fjölskylda mín vottum
efirlifandi kopu hans, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
okkar innilegustu samúð.
Bið Guð að blessa minningu
hans.
Una Einarsdóttir.
INGVAR vinur okkar er látinn,
dauða hans bar að snögglega,
eins og hann hafði sjálfur ósk-
að. Ingvar hafði að vísu einn
yfir sjötugt, en ennþá yfirbragð
manns á bezta aldri, andlega og
líkamlega. Heilsuleysi hafði að
t
Innilegar þakkir til allra
þeirra, sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför,
Hilaríusar Haraldssonar
frá Hesteyri
Elísabet Albertsdóttir,
Hans Hilaríusson,
Helga Sveinsdóttir,
Sigurjón Hilaríusson,
Kristín Þorsteinsdóttir.
t
Innilegustu þakkir til allra,
sem sýndu okkur samúð við
andlát og jar’ðarför, eigin-
manns míns, föður okkar, son
ar og bróður,
Haraldar Gotfreðs
Kristjónssonar
stýrimanns, Skólavörðustíg 26.
Sérstaklega þökkum við lækn
um og hjúkrunarliði hand-
lækningadeildar, fjórðu deild-
ar Landsspítalans fyrir frá-
bæra hjúknm hans.
Kristín Hagalinsdóttir
og börn,
Kristjón Haraldsson,
Guðrún Einarsdóttir
og systkin hins Iátna.
t
Hjartans þakklæti til allra
þeirra sem auðsýndu okkur
samúð við andlát og jarðar-
för konu minnar, móður
tengdamóður, ömmu og l%ng-
ömmu,
Katrínar Sigurðardóttur.
Jörundur Sigurbjarnarson,
Gerður Gunnlaugsdóttir,
Þorgrímur Kristmundsson,
bamabörn og bamabarna-
bm
vísu hrjáð hann annaðslagið, und
anfarin ár. En meðfædd karl-
mennska og stolt, bauð að láta
sig ekki.
Ingvar var fæddur 12. maí
1897 að Heimalandi, Hraungerð-
ishreppi (í Flóa), sonur hjón-
anna Ingveldar Erlendsdóttur og
Einars Þórðarsonar. Man ég þau
hjón vel, enda voru þau amma
og afi æskuvinkonu minnar, en
móðir hennar, Una, systir Ing-
vars. Þannig kynntist ég í æsku
þessum ágætu systkinum.
Vart mun mikið hafa verið
mulið undir vin okkar Ingvar í
æsku, nema það sem kænleikur
og umhyggja foreldra Ingvars
náði. Samt brauzt hann til náms
að eigin rammleik, stundaði nám
í unglingaskóla. Hóf síðan nám
í vélsmíði og í beinu framhaldi
af því í Vélgkólann. Gerðist síð-
an vélstjóri hjá Eimskipafélagi
íslands. Var Ingvar talinn glæsi-
legur ungur maður á þeim ár-
um, enda stolt aldraðra foreldra
og þeirra eini sonur. En systur
átti hann margar. Þær voru í
aldursröð: Steinunn, dó í æsku;
Jórunn, er lengi var húsfreyja í
Keflavík, gift Helga Kristjáns-
syni, látin fyrir fáum árum;
Jensína saumakona, Una, gift
Magnúsi Jónssyni trésmíða-
meistara, lengst við Vatnsstíg
10 í Reykjavík; Ásta og Guðrún
létuzt í æsku, Bergþóra, hús-
freyja í Reykjavík.
Árið 1926 kvæntist Ingvar vél
stjóri Pálínu Jónsdóttur, ættaðri
frá Ólafsfirði. Bjuggu þau hjón
fyrst í Reykjavík, síðan á Akur-
eyri og um tíma í Kaupmanna-
höfn. Er mér í minni, er þau
fluttu heim með barnahópinn
sinn, og man ég veil hversu glæsi
leg hjón mér þótti þau vera.
Allsstaðar munu þau hafa átt
fallegt heimili, var Ingvar mikill
og samvizkusamur heimilisfað-
ir.
t
Hjartanlegar þakkir til frænd
fólks og vina er sýndu okkur
samúð og vinarhug við and-
lát og útför mannsins míns
og föður okkar,
Þórólfs Einarssonar
frá Meðalfelli.
Björg Jónsdóttír,
Einar Jóhann Þórólfsson,
Vilborg Þórólfsdóttir,
t
Alúðarþakkir til allra er sýnt
hafa samúð, vináttu og veitt
ómetanlega hjálp í veikindum
og við fráfall,
Karls Gunnars Sigfússonar
Norðurgötu 26, Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og
hjúkrunarliðs lyflæknings-
deildar Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri, samstarfsfólks
og söngmanna.
Sigurlína Jónsdóttir
og börn.
Eftir að við hjónin giftumst,
1940, hófst raunveruleg vinátta
okkar hjónanna við Pálínu og
Ingvar, og í skemmtilegum minn
ingum um þá vináttu, fannst
mér alltaf, að þau bættu hitt
upp, eins og sönnum hjónum ber
að gera. Með þakklæti og mik-
illi gleði minnumst við nú
margra stunda með fjölskyldu
þeirra, fyrst í Tjarnargötu,
seinna á heimili þeirra á Greni-
mel 19 og seinast á Reynimeln-
um. Kannski ekki síður á ferða-
lögum innanlands, og þá í Am-
eríkuflakki okkar. Og hugsum
við þá kannski mest til Trölla-
Hjartanlegar þakkir fyrir auð
sýnda samú'ð við andlát og
jarðarför föður okkar, tengda-
föður og afa,
Kristins Brandssonar.
Sérstakar þakkir til lækna og
starfsfólks fyrir góða hjúkrun
á Sólvangi í Hafnarfirði.
Börn, tengdabörn
og bamaböm.
foss, þar sem Ingvar var lengi
yfirvélstjóri, og á fleiri skipum.
En um Tröllafoss og þá skips-
félaga mætti skrifa langan kafla.
Börn áttu þau Pálína og Ing-
var fimm og eru þau: Guðfinna,
gift Ásgeiri Magnússyni, Sigur-
jón Einar, kvæntur Þorghild
Steingrímsdóttur; Óskar Ingi,
Daniel og Alda menntaskóla-
nemi. Færum við þeim hjónin
okkar innilegustu samúðarkveðj
ur.
Vin okkar, Ingvar, kveðjum
við með söknuði og þakklæti
fyrir tTyggð og vináttu.
Vinir á Hraunteig.
Ég þakka innilega öllum sem
af vinsemd sinni minntust
mín á nítugasta afmælisdag-
inn minn 18. ágúst, hvort sem
það var heimsókn, blóm, gjaf
ir, skeyti, orð, eða hlýjar hugs
anir. Guð blessi þá alla. Lof-
um þann sem lífið gaf.
Valdimar Þorvaldsson,
Súgandafirði.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Presturinn minn sagði nýlega, að allt mundi snúast á
betri veg, ef ég yrði kristinn og gengi í söfnuðinn. Ég ákvað
að helga mig Kristi og gekk í söfnuðinn, en mér finnst mér
farnast verr en áður. Talar Biblían ekki einhvers staðar
um, að þeim, sem elski Guð, samverki allt til góðs? Ekki
hefur það orðið reynsla mín.
Ef einhver hefur talið yður trú um, að yður gæfist
allsherjar lausn á öllum vandamálum yðar, ef þér helg-
uðuð yður Kristi og gengjuð í kristinn söfnuð, þá hefur
sá hinn sami gefið yður rangar upplýsingar. Að treysta
Kristi er ekki hið sama og að höndla „óskastein“, ekki
eins konar galdur, sem tryggir yður velgengni, heilsu
og heppni. Kaunar trúum við kristnir menn því, að
menn verði betri menn á því að taka sinnaskiptum, og
oft lærum við að taka nýjum tökum á lífinu og byrðum
þess. En hvergi stendur það í Biblíunni, að öll vanda-
mál okkar leysist, ef við fylgjum Kristi Jesú. Ef þér
eruð fátækur, getur verið, að þér verðið áfram fátækur.
Ef þér eruð ómenntaður, verðið þér ef til vill áfram
ómenntaður. Ef þér eruð bæklaður, má vera, að þér
verðið það einnig framvegis. En kjarni málsins er þessi:
Kristur verður með yður í fátækt yðar, í fáfræði yðar
og í líkamlegum veikleika, og okkur veitist hægara að
takast á við þessa erfiðleika, af því að hann er með
okkur. Og það kemur jafnvel fyrir að þessi vandamál
leysast, þegar rhenn hafa eignazt hina nýju sýn og nýju
trú. En við fáum engan töfrasprota í hendumar, þótt
við tökum á móti Kristi. Hins vegar veitir hann okkur
frið, gleði, von og þúsund aðrar blessunargjafir.
HOFUM 20 TUNNUB AF
demants síld
Fyrra árs framleiðsla. Einnig fiskkassa fyrir ísfisk.
Fiskhöllin
Mjólkurísvél — kæliborð
Til sölu er mjólkurísvél Ajax og kæliborð 2 m fyrir
sjálfsafgreiðslu og djúpfrystir 2 y2 m. Einnig 2 stk.
kassaborð.
SUNNUBÚÐIN
Skaftahlíð 24 — Sími 36373.