Morgunblaðið - 28.08.1968, Page 26
MORGUNtBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1968
Valbjörn skorti 7
stig í OL-lágmark
— Ófafur Þorsteinsson, KR setti sveinamet
í 600 og 1000 metra hlaupum
LITLU munaði að Valbirni Þor-
lákssyni, KR, tækist að ná OL-
lágmarkinu í tugþrautarkeppni
er fram fór í gær og fyrradag.
Hlaut Valbjörn 6993 stig í þraut
inni, en lágmarkið er 7000 stig,
tvisvar eða 7200 stig einu sinni.
Áður hafði Valbjörn hlotið yfir
7000 stig og þar með náð „helm
ing lágmarksins“.
1. Valbj. Þorlákss., KR, 6993 st.
(11.0, 6.58, 12.82, 1.70, 51.6, 15.2,
39.42, 4.25, 58.67, 5:08,5).
2. Þorv. Bened.ss., ÍBV, 5394 st.
3. Elías Sveinsson, ÍR, 4754 st.
Ennfremur var keppt í þrí-
stökki og sigraði Karl Stefáns-
son, UMSK, stökk 14.13 metra
í miklum mótvindi.
Veður til keppni var mjög
óhagstætt, sérstaklega fyrri
daginn og var árangur Val-
björns þá með lakara móti. Þá
var keppt í 600 og 1000 metra
hlaupi fyrir sveina og setti Ólaf-
ur Þorsteinsson, KR, sveinamet
í báðum greinunum. Hljóp hann
600 metrana á 1:27.6, eldra met-
ið átti Svavar Markússon, KR,
1:30.2, og var þá 17 ára gamall.
Tími Ólafs í 1000 metra hlaupi
var 2:45.9'. Eldra sveinametið í
greininni átti Þórarinn Ragnars-
son, KR, og var það 2:47.4.
Úrslit í tugþrautarkeppninni
urðu:
Arsþing G. L. I.
ÁRSÞING Glímusambands ís-
lands verður ha-ldið í Reykjavík
sunnudaginn 20. október nk. og
hefst kl. 10 árdegis á Hótel Sögu.
Tillögur frá sambandsaðilum,
sem óskast lagðar fyrir ársþing-
ið, þurfa að hafa borizt til
Glímusambandsins þremur vik-
um fyrir þingið.
Enska
knattspyrnan
LEIKIR í ensku deiidakeppn-
inni í þessari viku:
Mánudagur:
1. deild:
West Ham — Burnley 5-0
2. deild:
Aston Villa — Bristod City 1-0
Millwall — Bolton 3-1
Preston — Portsmouth 0-0
Þriðjudagur:
1. deild:
Arsenal — Manchester City
Coventry — West Brom
Everton — Liverpood
Ipswich — Q.P.R.
2. deild:
Bury — Charlton
Carlisle — Oxford
Middlesbro — Huddersfield
Sheffield U. — Fulham
4-1
4-2
0-0
3-0
2-3
0-2
1-1
1-0
Akureyri
í 3. sæti
í FRÉTT um lokasföðuna í fs-
landsmótinu í knattspyrnu urðu
okkur á mistök í gær. Við sögð-
um Val hafa náð 3. sæti á betra
markahlutfalli. Það er rangt. Ak
ureyringar halda sínu þriðja
sæti, þó litlu muni. Markahlut-
fall er reiknað þannig, að tölu
skoraðra marka er deilt í tölu
fenginna marka.
Þá varð og villa í línu Fram
í töflunni. Fram vann 4 leiki,
gerði 4 jafntefli, en tapaði 2
leikjum. (í gær stóð, að jafn-
teflin hefðu verið 5 en tapið 1).
Zatopek gaf enn fordæmiö
TEKKNESI hlauparinn Zato-
pek sem heimsfrægur varð
fyrir sína hlaupasigra, og
sem fyrir afrek sín á OI-
ympíuleikum hafði verið boð
inn til Mexico sem heiðurs-
gestur Mexicana, hefur átt í
ströngu að striða dagana sem
innrásin hefur staðið í Tékkó
slóvakíu, eftlr því sem við
lesum í erlendum blöðum.
Zatopek, sem er háttsettur
í her Tékka, stóð í forystu
gegn innrásarherjunum —
enda vanur forystuhlutverk
um frá sínum glæstu íþrótta-
dögum. Hann er sagður hafa
staðið á hinu fræga Wenzel
torgi í Prag allan fimmtudag-
inn og örvað landa sína til að
sýna mótþróa ,,á rólegan
hátt“, sýna andúð sína, en
Góður árangur Óskars
í lyftingum ytra
— en reynsluleysi hans í keppni
kom áþreifanlega í Ijós
EINS og kunnugt er hefur hóp-
ur lyftingamanna æft í Glímu-
fél. Ármanni og náð ótrúlega
góðum árangri þrátt fyrir erfið-
ar aðstæður. Einn lyftinga-
mannanna, Óskar Sigurpálsson,
hefur náð svo góðum árangri í
milliþungavigt á alþjóðamæli-
kvarða, að ÍSÍ fól Ólympíu-
nefndinni að tilkynna þátttöku í
lyftingum á Olympíuleikunum
með fyrirvara. Fyrir tilhlutan
stjórnar ÍSÍ og Ármanns fór
Óskar til Noregs í síðustu viku
til keppni. Áður hafði hann
lyft 437,5 kg í þríþraut lyftinga
laugardaginn 17. ágúst hér
heima, en það er lágmarkið,
sem Alþjóðaolympíunefndin
setur fyrir tvo þátttakendur frá
einni þjóð. Hér á landi eru ekki
til þrír dómarar með réttindi í
lyftingum, og þess vegna fór
Óskar utan síðastl. þriðjudag.
Óskar keppti í Stavanger sl.
miðvikudag og lyfti þá samtals
430 kg., sem er mjög góður árang
ur og mun hljóta staðfestingu
sem Islandsmet. Keppniaðstæð-
ur voru óhagstæðar. Keppt var
úti, og var rigning meðan
keppni fór fram, en það var’ð
til þess að Óskar meiddist lítils
háttar á hendi í keppninni í
snörun. 1 þeim þætti þríþraut-
arinnar lyfti hann 115 kg en
hefur hér heima snarað 122.5
kg.
Síðan tók Óskar þátt í Baltik
flana ekki að neinu.
Síðar er sagt að hann hafi
gefið sig á tal við rússneska
innrásarhermenn og sagt
þeim, að landar þeirra yrðu
útilokaðir frá Olympíuleik-
unum, ef innrásarherirnir
sneru ekki heim.
Á myndinni sjáum við
Zatopek í einkennisbúningi
í hópi landa sinna í Prag.
Cup keppninni í Helsinki 24.
ágúst. Tveir af þrem dómurum
dæmdu keppni Óskars í fyrstu
grein þríþrautarinnar ógilda
vegna of mikillar bakfellu í
pressu og fékk hann því ekki
að ljúka keppninni. Þetta var
þriðja keppni Óskars á einni
viku, en annars láta lyftinga-
menn að jafnaði líða tvær vik-
ur milli keppni.
Óskar telur sig hafa lært
geysimikið í þessari ferð varð-
andi tækni i íþróttinni, ekki sízt
á mótinu í Helsinki, en þar fékk
hann tækifæri til að æfa með
mörgum beztu lyftingamönnum
heims þar á meðal heimsmeist-
aranum í milliþungavigt.
Chelsea vann Manchester 4-0
ÚRSLIT leikjanna í ensku deilda
keppninni sl. laugardag.
1. dcild:
Coventry — West Ham 1-2.
Ipswich — Arsenal 1-2.
Liverpool — Sunderland 4-1.
Manch. Utd. — Chelsea 0-4.
Newcastle — Everton 0-0.
Nottm. Forest — Leeds frestað
í leikhléi, þegar staðan var 1-1,
Landslið mœtir unglinga-
landsliði í knattspyrnu
í KVÖLD kl. 19.15 leikur ungl-
ingaliðið, sem komst í úrslit á
Norðurlandamótinu í sumar gegn
landsliðinu, sem Iandsliðsnefnd
hefur valið. Leikurinn fer fram
á Laugardalsvellinum. Þetta er
leikur, sem margir hafa beðið
eftir með eftirvæntingu.
Landsliðið verður þaneig skip-
að:
1. Guðmiund,uir Pétursson, KR
2. Jóhannes Atlason, Fram
3. Gunnar Austfjörð, Akureyri
4 Ársæll Kjartanson, KR
5. Anton Bjarnason, Fram
6. Magnús Jóniatansson, Akur-
eyri
7. Valur Anderen, Vestmanna-
eyjuni
8. Hörður Markan, KR
9. Helgi Númason, Fram
10. Hermiann Gunnarsson, Val
11. Gunnar Felixson, KR
Varamenn:
Þorbengur Atlason, Fram
Þórður Jonsson, KR
Hal'ldór Björnsson, KR
Ásgeiir Elíasson, Fram
Ólafur Lárusson, KR
Unglingala,ndsliðið verður ó-
breytt frá úrslitaleikrautm gegn
Svíuim í Norðurlandamótinu í
júlí.
vegna eldsvoða á vellinum.
Q.P.R. — Manch. City 1-1.
Southampton —- Wolverhampton
2-1.
Stoke City — Leicester 1-0.
Tottenham — Sheffield W. 1-2
West Brom. — Burnley 3-2.
2. deild:
Birmingham — Portsmouth 5-2.
Blackburn — Aston Villa 2-0.
Blackpool — Bristol C. 2-2.
Bury — Crystal Pal. 2-1.
Cardiff — Preston 1-0.
Charlton — Norwich 2-1.
Fulham — Bolton 0-2.
Huddersfield —■ Derby 2*0.
Middlesbro — Carlisle 1-0.
Oxford — Hull City 1-1.
Sheffield U. — Millwall 1-0.
Það fór kliður um hina 60 þús.
áhorfendur á Old Traffordvelli
Evrópumeistaranna Manchester
United á laugardaginn, þegar
Tommy Baldwin skoraði mark
fyrir Chelsea eftir aðeins 42ja
sekúndna leik. Og kurr og
óánægjukliður hélzt allan leikinn
út, því í leikhléi var sta'ðan 0-3,
skorað af Tambling og Baldwin
bætt við öðru. 1 síðari hálfleik
bætti svo Birchenall þvi fjórða
við. Willie Morgan, heitir ungur
og frískur Skoti sem Manchester
United keypti frá Burnley rétt
áður en leikurinn hófst var geng-
ið frá sölunni. Morgan kostar
United 90 þús. pund, eða á 13.
milljón króna. Morgan leik-
ur með sínu nýja félagi 1
kvöld í Manchester gegn Totten-
ham. Það markverðasta sl. laug-
ardag var þó ekki knattspyman
sjálf heldur eldsvóðinn á City
Ground Nottingham, þar sem
Forest léku gegn Leeds. 1 leikhlé
var staðan 1-1. Leikmönnum
Leeds segist svo frá að þegar
þeir komu upp í búningsklefana
hafi þeir ekki séð handaskil fyr-
ir reyk. Framkvæmdastjórinn
Don Revie skipaði leikmönnum
ssníum að yfirgefa klefana strax
og ekki seinna vænna. Þeir
misstu öll sín föt og annað, en
héldu lífi. Eldurinn m*gnaðist
mjög ört og þótti mikil mild að
engin slys urðu á mönnum, því
yfir 30 þús. áhorfendur voru á
vellinum. Ekki er enn fullkann-
vellinum, Miklar skemmdir urðu
á vellinum, en ekki er talið lík-
Framhald á bls. 27