Morgunblaðið - 04.10.1968, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 196«
15
spurn: hversvegna eigum við
við ekki að' vera ófínir? Erum
við ekki frjálsir menn?
Matti: Nei.
Púntila: Sko! Og sem frjálsir
menn getum við gert það sem við
viljum og nú viljum við vera
ófínir. Því við verðum að snara
út heimanmundi með einkadóttur
minni: nú er að horfast í augu
við það, kalt, hvasst og drukk-
inn. Ég á um tvo kosti að velja,
ég gæti selt skóg og ég gæti
selt sjálfan mig. Hvað leggur þú
til?
Matti: Ég mundi ekki selja
sjálfan mig ef ég gæti selt skóg.
Púntila: Hvað, selja skóginn?
Þú veldur mér sárum vonbrigð-
um, bróðir. Veiztu hvað skógur
er? Er skógur kannski bara
10.000. faðmar af timbri? Eða er
hann grænt augnayndi? Og þú
vilt selja grænt augnayndi?
Skammastín!
Matti: Þá hitt.
Púntila: Líka þú, Brútus? Get
ur það verið vilji þinn að ég
selji mig?
Matti: Hvernig ætlið þér að
gera það: að selja yður?
Púntila: Frú Klinkmann.
Matti: Á Kúrgela, þangað sem
við erum að fara. Frænku sendi-
ráðsfulltrúans?
Púntila: Hún er veik fyrir mér.
Matti: Og henni ætlið þér að
selja á yður kroppinn? Það er
hræðilegt.
Púntila: Engan veginn. En
hvað verður um frelsið, bróðir?
En ég held ég fórni mér, hvað
er ég sosum?
Matti: Satt segið þér.
(Dómarinn vaknar og leitar að
bjöllum, sem ekki eru til og hrist
ir hana.)
Dómarinn: Þögn í réttarsaln-
um.
Púntila: Hann heldur hann sé
staddur í réttarsal afþví hann
sefur. Bróðir, þá ertu búinn að
skera úr um hvort sé meira virði
skógur einsog skógurinn minn
eða maður einsog ég. Þú ert dá-
samlegur maður. Hérna, taktu
veskið mitt og borgaðu brenni-
vínið og stigdu veskinu á þig,
ég týni því bara. (Bendir á dóm
arann.) Upp með hann, út með
hann! Ég týni öllu, ég vildi að
ég ætti ekki neitt, það væri mér
kærast. Peningar eru óþverri,
múndu það. Það væri minn draum
ur að eiga ekki neitt og við
mundum ferðast gangandi um
okkar fagra Finnland, eða í
hæsta lagi í litlum tveggjasæta-
bíl, benzínlöggina mundum við
allsstaðar fá gefins, og við og
við, þegar við værum lúnir mund
um við fara inníkrá einsog þessa
hér og súpa úr glasi sem við
fengjum fyrir að höggva í eld-
inn, það gætirðu gert með vinstri
hendinni, bróðir.
Leikaramir í hlutverkum sinum.
Að ofan: Erlingur Gíslas. (Matti
vinnumaður), Kristbjörg Kjeld
(Eva Púntila), Rúrik Haraldsson
(Dómarinn), Bríet Héðinsdóttir
(Læna matráðskona), Herdís Þor
valdsd. (Prófastsfrúin), Brynja
Benediktsdóttir (Finna stofu-
stúlka).
íbúðir til sölu
4ra herbergja íbúð við Álfheima.
4ra herbergja íbúð við llamrahiíð .
3ja herbergja íbúð við Franmesveg.
Nánari upplýsingar gefur
Málfiutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar, Axels Einarssonar,
Aðaistræti 6, III. hæð. Síniar 12002, 13202, 13602.
Ekið á kyrr-
stæðan bíl
EKIÐ var á R-11097, sem er nýr
dökkgrár BMW, þar sem bíllinn
stóð gegnt Laufásvegi 40, frá
klukkan 16—17.30 í gær, og hann
dældaður mikið að aftan.
Rannsóknarlögreglan biður
vitni áð gefa sig fram og skorar
á ökumanninn, sem tjóninu olli,
að gera slíkt hið sama.
BiLAKAUR^.
Vel með farnir bílar til sölu
og sýnis I bílageymslu okkar
að Laugavegi 105. Tækifæri
til að gera góð bílakaup.. —
Hagstæð greiðslukjör. —
Bílaskipti koma til greina.
Comet, árg ’64.
Cortina, árg. ’63, ’67.
Dafodine, árg. ’63.
Falcon station, árg. ’63.
Volkswagen Valiant, árg.
’64.
Simca 1000, árg. ’63.
Rússajeppi með húsi, árg.
’56, ’57.
Trabant, nýr.
Ford F 500, mjög fallegur
bíll, árg. ’65.
Opel Record, árg. ’62, ’63,
’64.
Bronco, árg. ’66.
Skoda Combi, árg. ’62, ’67.
Rambler American 400,
sjálfskiptur.
Moskwitch, árg. ’65.
Taunus Transit, árg. ’62.
Falcon, árg. ’66.
Taunus 17 M station, árg.
’66.
Volvo Amazon, árg. ’57.
Commer sendibíll, árg. ’67.
Renault R8, árg. ’63.
Taunus 12 M, árg ’63, ’64.
Commer Cup, árg. ’63.
Renault Dauphine, árg. ’62.
Landrover, dísil, árg. ’64.
Landrover, bensín, árg ’65,
’66.
Willy’s lengdur, árg. ’64.
ÓDÝRIR BÍIjAR,
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR :
Chevrolet, árg. ’59, kr. 45
þúsund.
Skoda, árg. ’55, kr. 30 þús.
Tökum góða bíla í umboðsSölu
Höfum rúmgotf sýningarsvæði
innanhúss.
■ UMBOÐIO
ÍSVEINN EGILSSON H.F.
rLAUGAVEG 105 SiMI 22466
íþróttafélag kvenna
Leikíimin hefst hjá félaginu mánudaginn 7. okt. kl. 8
í Miðbæjarskólanum og verður framvegis mánudaga
og fimmtudaga kl. 8 og 8.45.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 14087.
STJÓRNIN.
SKÁLDSAGAN
rr r
eftir
EQ&ERT E.LAXDAL
er komin í bókaverzlanir í veglegu rexín-
bandi. Þetta er góð og vönduð bók.
ÚTGEFANDI.
Snyrtisérfræðingur
frá
ORLANE
verður til viðtals og leiðbeininga
í verzlun vorri í dag og á morgun
Verzlunin
Laugavegi 33 — Sími 19130
Dansskóli Hermanns Ragnar
Sími 82122.
„Miðbœr"
■
Kennsla hefst 7. okt.
Síðustu
innritunardagar
Skírteini afhendast
í Miðbæ 1 dag kl.
3—7 e.h. og á
morgun, laugardag
kl. 2—5.
TÁNINGAR,
TÁNINGAR
Munið hina vinsælu
táningahópa.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS <><>$