Morgunblaðið - 13.11.1968, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. NÓV. 1968
- EFTA
Framhald af hls. 1
Eysteinn Jónsson fraimsögu-
maður mimnihluta utamríkis-
nefnidar, tal'di að ókleift væri að
svo stöddu að sækja uan aðild.
Nauðsynlegt væri að fyTst yrði
uivnið að stefnumótun í iðnaðar-
málum, þannig að 'hann hefði
möguleika á að njóta isín á frjáls
um markiaði EFTA-Iandaninia.
Sagði Eysteinn það skoðun minni
Muta nefndarinnar að EIFTA-
nefndin ætti að halda áfram störf
um og undirbúa ræikilega í sam-
ráði við ríkisstjóm oig Alþimgi
þær viðræður, sem rétt kynni
að þykja að fram faeru á sínum
tíma um tengsl íslands við
EFTA. Lagði minnihlutinn síðan
fram eftirfarandi frávísunartil-
lögu:
>air sem ekki er tímabært nú
að taka ákvörðun um aðildarum-
sókn að Fríverzlunarsamtökum
Evrópu, m.a. vegna óvissu í efna
hag'smálum, ófullnægjandi at-
hiugiunar á atunum undirstöðu-
aitriðum málsins, svo aem stöðu
iðnaðarins, og niýiegrar ákrvörð-
unar Breta um 10% tolt á freð-
fiskfflökum frá EFTA-löndunum,
satnþykkir Alþinigi að taka fyrir
næsta mál á dagskrá.
Gylfi Þ. Gíslason viðskipta-
málaráðherra, saigði að ekki bæri
að giera of lítið úr þeim erfið.ieik
um sem afnám allra verndartolla
miundi hafa fyrir íslanid. En
menn yrðu að gera sér greim fyr-
ir því að vaxtarakilyrði iðnaðar-
ins mundu verða miikiLu meiri
heldur en óhagræðið sem af að-
ild hlytist. Áður en tiliaga þessi
hefði verið lögð frarn hefði ver-
ið þrautrætt við fuliltrúa íslenzks
iðnaðár og væri það fullkomlega
í samræmi við skoðanir þeirra
að sótt yrði um aðild. Las ráð-
herra upp bréf frá Félagi ísl. iðn
rekenda, þar sem vitnað er í
ályktun er gerð var á síðasta að-
alfundi félagsins, en þar kemur
m.a. fram að nauðsiynilegt sé að
taka ti'I rækilegrar aithugunar
þróun ailþjóðaviðskipita og mark-
aðsbanidaíaiga í Bvrópu. Slík at-
hugun færi bezt fratm á þann
hátit, að sótt yrði urn aðild og
könnuð þau skilyrði sem þátit-
töku íslands yrðu sett.
Magnús Kjartansson sagði að
iðnaðarmálaráðhema vanimæti
hina þjóðlegu íslenzku aitvínnu-
vegi, en vildi í stað eflimgu
þeirra stuðla að betri og meiri
möguleikum erlendra auðhringa
til að koma ár sinn fyrir. borð
hérlendis.
Jóhann Hafstein iðnaðarmála-
ráðherra, sagði að viðleitni ríkis-
stjórnarimmiar að nemma stoðum
undir fleiri greinar aitviinnuilífs
og gjaldeyrisöfíuniar á ÍSlandi
væri ekki vel séð hjá Magnúsi
Kjartanssyni. Þær aðgerðir sem
gerðar hefðu verið á undanföm-
um áruim hefðu ekki drogið úr
vaxtarmöiguleikum þeirra at-
vinnuvega er þinigmaðurimn
mefndi þjóðlega, heldur væm til
þess fallnir að styrkja atvinnu-
lífið í heiOd. Unnið hefði verið
að því að fá framkvæmdum við
álbræðsluna í Straumsvík og
virkjunarframkvæmdum við Búr
fel1 hraðað, þar sem slíkt væri
talið hafa mikið þjóðhagslegt
giídi nú. Tilgamgslaust væri fyr-
ir þingmanminm að reyna að
beita biekkingum, þar sem al-'
menmángur sæi það sem gert
væri, og skildu þýðingu þessara
mála.
Ólafur Björnsson sagði, að svo
sam komið hefði fram væri hér
ekki um að ræða íslemzka aðild
að Eb'i'A, heldur eimiunigiis könn-
un á því, að hvaða kjörum við
gætum komizt. Þiogmaðurinn
sagði það skoðun sina, að iðmað-
urinm yrði í framtíðimni að taka
við megiinhluita fólksfjölgumax-
inmar á íslandi og því væri nauð
symlegt að efla hamm eine mikið
og kosrtur væri. Til þess að iðn-
aiðuriinm gæti orðið nægtiega öfl-
ugur, þyrfti að tryggja honum
það stóra markaði að hægt væri
að nota nýjustu og hagvæmiusitu
tækmi við framteiðsiuma. Með að-
i'ld að EFTA opmuðust væmtan-
lega fleiri möguleikar til útf.lutn-
ingsframleiðslu iðmaðarimB.
Þá vék þingmjaðurinn að því,
að á 30 ára tímabili, eða fram til
1960 hefðu íslendimgar búið við
það skipulag í efmahagsmálum
að höft og skemmitamár hefðu
verið helzta hiagstjónniartækið.
Með inngömgu í EFTA jnrði það
tryggt að við yrðum að
fylgja reglum siðmenmimgar-
þjóða £ viðskiptalháttum. Sagði
þingmaðurinm síðam nokkuð frá
reymsiu simmi af 'baÆtapóláitíikinmi,
og sagði hama bjóða upp á póli-
tísika spillinigu, þar sem hver
r-eyndi að hygia sínum flokks-
mammi í skjóli aðstöðu aimmax.
Irunflutnimigshöft væru eklki hag-
stjómartæki til að ráða við
greiðfflu'halla við útlömd tffl lemgd
ar. Slík hefði orðið bæði okikar
reynsla og amnairra þjóða.
Sveinn Guðmundsson sagðist
viðurkenna mörg þau rök sem
fram hefðu komið að efia þyrfti
stöðu íslenzks iðmiaðar áður em
gengið væri i toíla- og iruarkaðs-
bandalög. Hins vegar væri full-
komlega tí.ma'bært að kamna all-
ar aðstæður með umsókm að
bandalaginu, Sagði þimgmaður-
inm að þettia mál hefði verið mik
ið tffl umræðu hjá ýmsum félög-
um að undainförniu ag vitiruaði ti!
ályktunar Félags ísl. iðnrekenda.
Sagði Sveinn að líkur^ bentu til
þess að iðnaðardeild S.Í.S. mundi
ekki líta sömu augum á þetta
mál og Framsóknarflokkurinn,
þrátt fyrir tengsl flokksins og
fyrirtækisins. Þá hefði einnig
Vinnuveitendasamband fslands
gert áiyktun þess efnis að rétt
væri að hraða sem mest könn-
un málsins, þannig að betri tími
gæfist til aðlögunar ef af inn-
töku yrðL
Ræðumaður vakti athygli á
jví að í EFTA löndunum byggi
I&ðeins um 3% af fólksfjölda
heimsins, en um 15% af heims-
viðskiptunum færi um þessi
lönd. Meðal EFTA Iandanna
væru öll grannríki okkar, og þau
sem við hefðum haft mest og
bezt samskipti við. Geta hæri
þess einnig að þrátt fyrir EFTA
aðild hefðu ríkisstjórnir aðild-
arlandanna möguleika á stjórn
allra fjárfestinga aðgerða og gæti
haft fulla stjórn á fjárfestingum
í landi sínu. Innan EFTA hefðu
sjónarmið landanna oftast ver-
ið viðurkennd og hefðu þannig
t.d. Finnar haldið ákveðnum inn
flutningstollum vegna Rússlands
viðskipta sinna. Sveinn sagði að
lokum, að sitt álit væri að fyrir
umsókninni væru fjórar aðalrök
semdarfærslur. f fyrsta lagi vant
aði íslenzkan iðnað miklu stærri
markað, ekki sízt þegar litið
væri til þess að í framtíðinni
yrði hann að taka' við stórum
hluta fólksfjölgunarinnar í
landinu. f öðru lagi væri sam-
starf við EFTA-löndin hagstæð
frá fjármálasjónarmiði iðnaðar-
ins. f þriðja lagi stuðlaði það að
áframhaldandi og aukinni iðn-
þróun og í fjórða lagi yrði að
vera skýlaus krafa ef að EFTA
samningar kæmu til að atvinnu
vegirnir sætu við sömu kjör og
hjá öðrum EFTA löndum.
Skúli Guðmundsson ræddi eink
um um skuldasöfnun fslands er-
lendis, og það er hann nefndi
óþarfan og óhóflegan innflutn-
ing.
Hannibal Valdimarsson, sagði
að þingmenn yrðu að gera sér
grein fyrir því að hér væri að-
eins verið að ræða um og ætti
að taka afstöðu til óformlegrar
umsóknar. Einungis væri um að
ræða könnun möguleika á aðild
íslands. Mál þetta hefði verið ó-
venjulega vel kannað, þar sem í
fyrra hefði verið skipuð nefnd til
rannsóknar þess og í henni áttu
sæti þingmenn frá öllum stjórn-
málaflokkum. Ekki bæri á þvi
i greinargerð nefndarinnar, að
hún hefði orðið ósammála um
afgreiðslu málsins, þótt svo virt
ist uppi á teningnum nú. Hanni-
bal sagði það skoðun sína, að
sú skoðun sem komin væri fram
í minnihluta áliti utanríkisnefnd
ar mótaðist af endanlegri af-
stöðu málsins, og væru því ekki
á rökum reistar þar sem fjallað
væri einungis um áframhald
þeirra rannsókna er hafnar væru.
Kvaðst Hannibal mundi harma
það mjög ef ísland stæði utan
við EFTA bandalagið, eitt sér
með Spáni, og fjarlægðist á þann
hátt vinaþjóðir okkar á Norð-
urlöndunum. Lýsti Hannibal síð
an yfir stuðningi sínum, Björns
Jónssonar og Hjalta Haraldsson-
ar við frumvarpið.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, gerði fyrst athuga-
semd við ræðu Skúla Guðmunds
sonar og sagðist undra að jafn
glöggur maður og Skúli skyldi
ekki hafa skoðað eignahilðina
einnig er hann var að kynna
sér skuldir íslendinga. Svaraði
ráðherra síðan gagnrýni er fram
hafði komið í ræðu Magnúsar
Kjartanssonar, þess efnis að rík-
isstjórnin væri ekki nægjanlega
vel á verði og fylgdist ekki nóg
með þeim efnahagssamvinnuvið-
ræðum er Norðurlöndin hefðu
sin á milli. Sagði forsætisráðherra
að allir hlytu að sjá það að úti-
lokað hefði verið fyrir fsland að
senda sérfræðinga til þess að taka
þátt í þeim níu umræðuhópum
sem nú fjölluðu um þessi mál.
Bæri það vott um ókunnugleika
þingmannsins á fjölda þeirra sér
fræðinga er ríkisstjórnin hefði í
þjónustu sinni, að halda slíku
fram. Þá hefði það ekki mikla
þýðingu fyrir íslendinga að fylgj
ast með þessum umræðum, þar
sem flest málanna er þar væri
fjallað um væru algjörlega óvið
komandi okkur. Síðan sagði ráð
herra að hann hefði rætt við þá
menn er að þessum málum störf
uðu á Norðurlöndum, og hefði
það verið samróma álit þeirra að
íslendingar yrðu fyrst að gera
upp hug sinn um afstöðu til
EFTA áður en könnun hæfist á
því hvort við vildum gerast að-
ilar að efnahagssamstarfi Norð-
urlandanna.
Þá tóku Magnús Kjartansson
aftur til máls, en síðan fram-
sögumenn nefndarálitanna, þeir
Pétur Benediktsson og Eysteinn
Jónsson.
Sýnir pennateikn-
ingar á Akureyri
Akureyri, 12. nóvember.
SÉRA Bolli Gústafsson í Lauf-
ási sýnir um þessar mundir 18
penn'aiteikniingar í Oafé Scandia
á Akureyri. Myndirnar eru flest
ar af húsum og landslagj, en einn
ig náttúrustemningar og andlits-
myndir. Þær eru til sölu og verða
til sýnis fram í næstu viku
— Sv. P.
Stœrðarstöðlun í
byggingaiðnaði
BYGGINGARTÆKNIRÁÐ Iðn-
aðarmálastofn'uinar íslands sam-
þykkti á fundi sinnm nýlega að
ósika eftir tilnefnimgu í stöðlun-
arnefnd, er vinna skal að samn-
imgu .þriggja frumvarpa um
stærðastöðlum fyrir byigginigar-
iðnaðinn.
Eftirtaldir menn hafa verið
skipaðir: Geirharður Þorsteins-
steinsson arkitekt, tilnefndur af
Arkitektafél. íslands; Þór Bene-
diktsson verkfr., tilnefndur af
Verkfræðingafél. íslands og
Þórður Jasonarson tæknifr., til-
nefndur af Landssamb. iðnaðar-
manna.
Framangreindir aðilar eiga að
fjalla um:
Mátkerfið, þar sem ákiveðin
lengdareining, 1 M eða 100 mm,
er lögð tffl grundvaiilar stærðar-
stöðlunar í byggingum.
Skipulagningarmát, sem tekur
til hönnu.nar og máilsetninga í
byggingum.
Heildarhæð íbúða, en stöðlun
heildarhæðar í íbúðum er for-
senda verksmiðj-uframleiðslu á
mörgum byggingareiningum,
Tilgangur stærðastöðlunar fyr-
ir byggingariðnaiðinn er einnlg:
1) Áð auðvelda vinnu á by.gg-
ingarstað við útsetningu á mál-
uim, staðsetningu og festingu á
máteiningum.
2) Að auðvelda hönnun með
kerfisbundinni málsetnin.gu og
ákveða staðsetning.u by.gigingar-
eininga inrtbyrðis og með tilliti
til allra byggingarinmar.
3) Að auðvelda samvinnu
milli hönnuða, framleiðenda,
dreifemda og framkvæmdaraðila
á byggingarstað.
Samræmd stöðlun á bygging-
areinimgum stuðlar að hagræð-
imgu í byggingariðnaðimum og
gerir kleift að verksmiðjufram-
leiða einimgar og samfoyg.gja þær
ám þess að klippa tá og höggva
hæl.
(Fréttatilkynning frá IMSÍ).
Þingi Iðnemasomb. íslands lokið
EFTIRFARANDI fréttatilikynn-
img barst blaðinu frá Iðnnema-
samfoandi fslamds:
„26. þimgi Iðnnemasam.bands fs
lands lauik á sunnudagskvöldið,
en það var haldið nú um helgina
í BeykjavLk. Var þimgið fjölsótt,
og fór hið bezta fram. Voru
gerðar ýmsar ályktanir, bæði um
hagsroumamáil iðnnema, svo og
atvinmu og efnaiha.gsmál og önn-
ur þjóðmál. Eimnig voru gerðar
breytingar á lögum samfoandsins,
þannig að nú skal gangast fyrir
umræðum meðal iðnnema um
þjóðmál.
Ný stjórn var kosin og var Sig-
urður Magnússo-n endurkosinn
formaður sambandsins, aðrir 1
stjóm eru: Jóhann Guðmunds-
son varraformaður, Kjartan Kol-
.beinsson, Pétur Ingimu.ndarson,
Matthías Viktorsson, Þorvaldur
Ólafsson, Heiðar Alfoertsson, Jó-
hannes Harðarson, Eyþór Steins-
son. Tiil vara Einar Bjarnason,
Jón Gissurarson, Pétur Yngvi
Gunnlaugsson, Jón Ingi Haralds-
son.
f ritnefnd Iðnnemans miálgagns
Iðnnemasambandsins voru kosn-
ir Sigurður Magnússon ritstjóri,
Þorkeil Stefánson og Jóihann
Guðm«u.ndsson“.
- JARÐHITI
Hér fer á eftir þingsálykt-
unartillaga Asgeirs Pétursson
ar og greinargerð hennar:
Alþingi ályktar að skora á rik-
isstjómina að láta hefja skipu-
legar, fræðilegar rannsóknir á
því, hvernig jarðhiti verði bezt
hagnýttur til garðyrkju í land-
inu. Verði í því efni einkum kann
að, hvaða efni reynist bezt til
flutnings á heitu vatni og til
byggingar gróðurhúsa. Þá verði
og rannsakað, hvort unnt sé að
draga úr byggingarkostnaði gróð
urhúsa, t.d. með samræmingu í
byggingaraðferðum og stærð
gróðurhúsa, smíði einstakra hús-
hluta og tæknibúnaðar þeirra.
Beinist rannsóknin einnig að því
að auka hagnýta þekkingu á sviði
jarðvegsfræði, áburðarþarfar og
gróðurvals, á sviði gróðurhúsa-
ræktunar og garðyrkju almennt.
Greinargerð.
Jarðhitinn á fslandi er enn sem
komið er einkum notaður til upp
hitunar húsa og til ræktunar í
gróðurhúsum. Því fólki, sem
framfæri sitt hefur af slíkri garð
yrkju,‘ fer stöðugt fjölgandi, og
flatarmál þess gróðurlendis, sem
er undir gleri, fer einnig vax-
andi. Hefur og neyzla gróðurhúsa
afurða farið vaxandi hin síðari
árin. Ljóst er þó, að það er ein-
att handahófskennt, hvernig gróð
urhús eru byggð, enda liggja ekki
fyrir upplýsingar um það, hvaða
byggingarefni séu haldbezt og ó-
dýrust til þessara nota. Þá brest
ur einnig á um, að framkvæmd-
ar hafi verið ýtarlegar jarðvegs-
og áburðarrannsóknir, sem þó
gætu orðið undirstaða aukinnar
hagkvæmni um rekstur gróður-
húsa og aukið uppskeru í þeim.
Þá ber og nauðsyn til þess að
rannsaka, hvaða gerð leiðslna sé
endingarhezt og ódýrust, svo og
hvaða tæknibúnaður við vökv-
un og loftræstingu sé hagkvæm-
astur. Kunnugt er nú, að miklar
framfarir hafa orðið í plastiðn-
aði, og væri því ástæða til þess
að rannsaka, hvort ný efni á þvl
sviði kynnu að geta leyst glerið
af hólmi, sem enn er að mestu
notað til þess að klæða gróður-
húsin.
Samþykkt og framkvæmd þess
arar þingsályktunartillögu gæti
orðið til þess að greiða talsvert
fyrir garðyrkjunni í landinu og
auka framleiðslu grænmetis og
ávaxta. Ennfremur gæti sú fram
kvæmd leitt til lækkaðs fram-
leiðsluverðs þessara þýðingar-
miklu landbúnaðarafurða.
Gert er ráð fyrir þvi, að starf-
andi rannsóknastofnanir atvinnu
veganna framkvæmi rannsóknir
þær, sem fjallað er um í þessari
þingsályktunartillögu.