Morgunblaðið - 13.11.1968, Síða 19
anna Sigurðar Jónssonar og Mar
grétar Eiríksdóttur. Þetta skipti
sköpum í lífi Guðrúnar. Þar
kynnitist hún þeim manni, sem
fyrir henni lá að giftast, Birni
Tryggva Guðmundssyni, uppeld
issyni þeirra L ækjamótshjóna.
Þau giftu sig á Lækjarmóti 3.
júní 1905 og fóru áð búa í
Klömbrum í Vesturhópi sama ár.
Var það fjórum árum eftir að
Júlíus Halldórsson læknir flutti
þaðan til Blönduóss. En hann
hafði reist þar fyrsta íbúðarhús
úr steini í sýslunni með þykk-
um hlöðnum veggjum. Þóttu það
oá ríkmannileg húsakynni. Tryggvi
Guðmundsson var búfræðingur
að menntun, greindur og gegn
maður, er brátt varð vinsæll í
sveitinni.
Þau Tryggvi og Guðrún voru
sex ár í Klömbrum, en fluttu
þá að Stóru-Borg. En þar átti
Guðrún eftir að reyna margt
mótdrægt. Hún missti mann sinn
sjö árum síðar, og var það mik-
ið áfáll fyrir hana, því hún
unni honum heitt. Þau höfðu eign
ast fjögur börn. Tvö dóu í æsku,
fyrsta barnið fjögurra ára stúlka
og það yngsta, drengur sjö ára,
er var rúmlega ársgamall þegar
faðirinn féll frá. Hin eru Guð-
mundur Tryggvason, skrifstofu-
maður í Reykjavík, kvæntur
Helgu Kolbeinsdóttur frá Kolia-
firði og Margrét húsfreyja á
Stóru-Borg, sem aldrei þurfti að
flytjast frá móður sinni, gift
Karli Björnssyni frá Gauksmýri.
Guðrún hélt áfram búskap eft
ir lát manns síns, þó erfitt væri.
f nokkur ár bjó hún með ráðs-
manni, Jóhanni Helgasyni, vönd
uðum og vellátnum manni, en
hann var heilsuveill og varð
skammlífur. Með honum eignað-
ist hún son, Tryggva Jóhanns-
son, vel gefinn mann og góðan
dreng, sem aldrei yfirgaf móður
sína. Bjuggu þau saman á sínum
jarðarhluta við hlið dótturinnar
og manns hennar.
Guðrún Magnúsdóttir á Stóru
' Borg var frábær • atorkukona.
Hún tók á öllu með traustum
og öruggum handtökum í önn
dagsins, æðioft utan bæjar sem
inna, verkdjörf, velvirk og ósér-
hlífin, en jafnframt hagsýn og
hirðusöm, eins og heimili henn-
ar bar ávallt vott um. Að öl'lum
jafnaði muri henni ekki oft hafa
fallið verk úr hendi, og mátti
gleggst sjá það síðustu æviárin,
eftir að heilsu var tekið að
hnigna, h^að hún átti bágt með
að leggja hendur í skaut og haf-
ast ekki að. Hún var hin álitleg-
asta kona í sjón, glaðleg og fjör-
leg og vel greind, eins og þeir
vissu, sem kynntust henni. Ég
hygg mér sé óhætt að segja, að
hún hafi átt til að bera marga
beztu kosti þeirrar kynslóðar,
sem nú er óðum að fal'la í val-
Hagström Bjarton
hinír vönduðu sænsku gítarar.
Hljóðfærahús
Reykjavíkur
Laugavegi 96.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. NÓV. 1968
19
inn. Hún var hreinskiptin og
heil og vammlaus kona, sem
vildi öllum vel og sýndi það
margoft í verki, trygglynd og
raungóð. Hún sinnti að sjálf-
sögðu mest sínu heimili, enda
verkefnin þar nóg, en hún var
líka að eðlisfari útsláttarlaus
kona, ekkert gefin fyrir að trana
sér fram, gerði heldur ekkert til
þess að flagga með ti'lfinningar
sínar við hvern sem var. Allur
yfirborðsháttur var henni fjarri.
Henni var eðlilegra að vera en
sýnast.
Viðhorf hennar til kirkju og
kristnidóms var ávalit eitt og
hið sama: hún bar hlýjan hug
til kirkjunnar og vildi henni í
öllu vel. Þó að kirkjuleið væri í
lengra lagi frá Stóru-Borg að
Breiðabólsstað sótti hún kirkju
sína vel, og hafði þá jafnan með
sér eitthvað af heimilisfólki sínu
Hún laut í trú og trausti drottni
sínum og skapara, sem hún vildi
og vissi að henni bar að þjóna.
Og þannig búin kemur hún þó
fram fyrir hann, sem allt þekkir
og allt veit, hann, sem lýkur
upp og segir: ,,Ég þekki verkin
þín — sjá, ég hef látið dyr
standa opnar fyrir þér, sem eng-
inn getur lokað“.
Tápkonan Guðrún Magnús-
dóttir frá Stóru-Borg er horfin
sjónum okkar út í eilífðina. Sess
hennar er auður, rödd hennar
hljóðnuð, löngu og dáðríku ævi-
starfi er lokið. Hún andaðist
þann 1. þ.m. og var jarðsungin
frá gömlu sóknarkirkjunni sinni
þann 9. þ.m., þar sem áður burt-
farnir ástvinir hvíldu. En í brjóst
um ástvina hennar og annarra,
sem nánast þekktu hana, lifir
minning þökkum vafin og hlýju
vermd. Við kveðjum hana með
virðingu og þökk.
Stanley Melax.
- EJUSSLAND
Framhald af hls. 10
ansky var formaður háttsettr-
ar sendinefndar, sem fór til
Bandaríkjanna 1960. Á fundi
með fréttamönnum í Washing
ton var hann spurður um inn-
rás Sovétríkjanna í Ungverja-
land 1956 og hreytti hann þá
eftirfarandi svari frá sér:
„Fyrir ykkur Bandaríkja-
menn er Ungverjalandsmál-
ið eins og tyggigúmmí. Þið
getið ekki gleypt það og þið
getið ekki hrækt því úr úr
ykkur.
Það sem gerðist í Ungverja
landi var gagnbylting, upp-
reisn fasista og ungverska
þjó'ðin gerði rétt í því að kalla
á okkur til hjálpar“.
ANDREI KIRILENKO tók
að klífa metorðastiga komm-
únistaflokksins 1938, er Stal-
in var við stjóm. Að undan-
förnu hefur hann haft stöð-
ugt vaxandi afskipti af sam-
skiptunum við kommúnista-
flokkana, sem við völd eru í
hinum kommúnistaríkjum
Austur-Evrópu. Sumir telja
hann líklegan eftirmann
Suslovs í því skyni að kveða
niður óróa innan kommún-
istaflokksins, sökum þess að
Suslov er nú heilsutæpur
maður.
KIRILL MAZUROV gekk í
flokkinn 1940. Hann tók virk-
an þátt í starfi æskulýðsfylk-
ingar flokksins, í hernum og
innan flokksins í Hvíta-Rúss-
landi, áður en hann varð
æðsti ma'ður flokksins þar.
Hvíta-Rússland er mikil-
vægt svæði í því heimsveldi,
sem stjórnað er frá Kreml.
Höfuðborgin þar, Minsk, er
mikilvæg herstjórnarstöð.
Mazurov er talin eins og
Brezhnev standa í nánu sam-
bandi við yfirmenn hersins í
So vétríkj unum.
ARVID PELSHE er eini
„gamli bolsévikinn“, sem eft-
ir er í forustuliði Sovétríkj-
anna. Hann gekk í flokkinn
1915, áður en kommúnistar
náðu völdum í Rússlandi.
Á áratugunum tveimur
milli 1920—1940 starfaði hann
í leynilögreglunni og í ýmsum
öðrum deildum lögreglunnar.
Frá 1959 hefur hann verið
æðsti maður kommúnista-
flokksins í Lettlandi — einu
af Eystrasaltslýðveldunum
þremur, sem Sovétríkin her-
nómu í styrjöldinni. Þar hef-
ur uppreisnarandinn gegn
valdhöfunum í Kreml ólgað
æ sfðan.
GENNAD VORONOV hefur
verið meðlimur í kommún-
istaflokknum frá 1931. Hann
hefur starfað fyrst og fremst
sér sérfræðingur í landbúnað-
armálum. Talið er, að hann
hafi lítil tengsl við það, sem
gerist erlendis.
Þetta er sá hópur, sem
stjórnar Rússlandi. Mikið af
undrun heims gagnvart að
því er virtist skyndilegri
stefnubreytingu valdhafanna
í Moskvu til hörku hverfur,
er fólk kynnist ferli þeirra.
Þessir menn hafa alltaf verið
tilbúnir til þess að grípa til
hörkunnar — ofit á hrottaleg-
an hátt.
mm - mmille
glerullareinangrunin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrun-
ina með álpappírnum,
enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4”
J-M glerull og 2V4” frauð-
plasteinangrun og fáið auk
þess álpappír með!
Jafnvel flugfragt borgar sig.
Sendum um land allt —
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121. - Sími 10600.
Nemendahefti R.K.Í. fyrir fræðsluþætti
sjónvarpsins í
SKYNDIHJÁLP
fæst í bókaverzlunum og á skrifstofu Rauða
kross íslands Öldugötu 4, sími 14658.
Afgreiðslumaður
Stór varahlutaverzlun vill ráða vanan afgreiðslumann.
Tilboð ásamt upplýsingum um fyrri störf leggist á
afgreiðslu blaðsins merkt: „Varahlutir — 6502“.
Arbæjnrhverfi og nngrenni
Framvegis munum við annast afgreiðslu á fatnaði
í frágangshreinsun og pressun fyrir Efnalaugina
Lindin. — Hraðhreinsum eins og áður allan algengan
fatnað samdægurs.
HRAÐIIREINSUN ÁRBÆJAR
Verzlunarmiðstöð, Rofabae 7.
Gólfmottur
Vandað og fallegt
úrval
Einlitar og mislitar
CEYSIR HF.
Teppadeildin.
B Ú S L w O Q
SVEFNSÓFA-
SETTIN
VINSÆLU
KOMIN
Úrval af vönduðum
klassiskum frökkum
úr ular- camel- og cashmírefnum.
Allar stærðir — gamla verðið.
BERNHARÐ LAXDAL
Kjörgarði.
BERNHARÐ LAXDAL
Akureyri.
AFTUR
B Ú S L jr O Ð
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATON — SfMI 18520